Vísir - 04.08.1916, Qupperneq 2
VlSIR
VISIR
Afgretðsla blaðsins á Hótel
Isiand er opin frá kl. 8--7 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstrætl.
Skrífstofa á sama stað, Inng. frá
Aðalstr. — RltBtjórírm tll viðtals frá
kl. 3—4.
Síml 400.— P. O. Box 367.
Best að versla i FATABÚÐINNI!
Þarfást Regnkápur, Rykfrakkar fyrlr
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aður á eldri sem yngrl.
Hvergi betra að versla en i
FATABUÐINNI, Hafnarstr. 18. Siml 269
Einvígi í skýjum uppi.
Navarre skorar á bezta flug-
mann Þjóðverja, að berjast
við sig í skýjum uppi.
Hér um daginn var Navarre á
sveimi, fyrir ofan Þjóðverja. Lét
hann þá hlut detta til jarðar og
fylgdi þar með pappírsmiði, er á
varrituöáskorun til Immelmands hins
þýzka, sem lalinn er beztur af öll-
um flugmönnum í liöi Þjóöverjanna
og hefir að velli lagt 15 af mót-
stöðumönnum sínum. Navarre sagði
að sá, er sigur bæri af hólmi, skyldi
talinn frægasti flugmaður í heimi.
Það er búist við að þessir ofur-
hugar mætist áður en Iangt um
líður.
Yfir Berlín.
Þess var nýlega getið í símskeyti
til Vfsis, að franskur flugmaður
hefði flogið yfir Berlín og kastað
þar niöur »fréttapistlum«. Frétt
þessi var mjög ónákvæm og virt-
ist ekki hafa mikla þýðingu, en
þessi Ioftför hefir vakiö mikla eftir-
tekt í öörum löndum, og er sagt
frá henni í enskum blööum á þessa
leið:
Þ. 20. júní kl. 9 og hálf um
kvöldið flaug flugmaðurinn Ansel-
me Marchal frá Nancy anstur yfir
Þýzkaland. Hann haföi skipun um
að fljúga yfir Berlín og kasta þar
niður bréfmiðum, sem þetta var
ritaö á:
»Vér hefðum getað kastað sprengi-
kúlum niður í Berlínarborg varnar-
lausa, og drepið þar konur og börn,
en vér látum oss nægja þetta ávarp*.
Ferðin gekk vel til Berlínar, og
lauk hann þar erindi sínu og kast-
aði miðunum umhverfis keisara-
höllina. Frá Beilín hélt hann ferð-
inni áfram austureftir, á leið til
Rússlands, en er hann haföi flogið
850 enskar mílur og átti eftir að-
eins 60, varð hann fyrir því óhappi
að flugvélin bilaði svo að hann
varð að lenda í nánd við Cholm í
PóIIandi og ganga þar Austurríkis-
mönnum á vald. Hefir hann verið
í haldi í Salzerbach síöan og ekk-
ert heyrst af honum fyr en nú í
lok júlímánaðar, að vinir hans f
París fengu bréfspjald frá honum,
þar sem hann sagöi frá ferðalag-
inu.
Þykir för þessi hin frækilegasta
og Austurríkismennirnir sem hand-
tóku Marchal, trúðu ekki sögu hans
í fyrstu.
Leikið á Bieta
Norskt selveiðaskip, »Flóra«, var
á heimleið noröan úr íshafi um
i
miðjan júlímánuð, en hitti á heim-
leiðinni brezkt herskip. Herskipið
stöðvaði »FIóru«, skipaði henni að
fara til Englands, og fekk henni
3 menn til fylgdar. Skipstjóri Flóru
tók þessu öllu vel, en sfyrði skipi
sínu beina leið ti) Noregs. Sjóliðs-
mennina brezku grunaði ekkert fyr
en komið var svo nærri landi í
Noregi, að sást til ferða norskra
fiskiskipa fram og aftur á fiskimið-
unum. En þá var Flóra orðin kola-
laus, svo að ekki var neinn vegur
til þess að koma henni til Eng-
lands, og uröu Bretarnir því að
sætta sig við að láta hana fara
með sig til Álasuuds í staöinn.
Sprengikúlnagryfjur
Skotfœraeyðsian í ófriðnum.
Hver landspjöll sprengikúlurnar
gera á vígvöllunum, geta menn
fengið nokkra hugmynd um af eftir-
farandi bréfi frá frönskum hermanni,
sem verið hefir hjá Verdun síðan
áhlaup Þjóöverja hófust þar:
»Margar mílur vegar sést ekkert
annaö en gryfjur eftir sprengikúlur«,
segir hann, »gryfja við gryfju þús-
undum saman, stórar og smáar,
gryfjur eftir 75 mm. kúlur og ægi-
legar skálar eftir hinar tröllslegu
420 m.m. kúlur, sem em eins djúp-
arog Thames-áin og eins víðáttu-
miklarog Trafalgar-torgið íLundún-
um og hæglega gætu gleypt 10
heyvagna meö 20 hestum fyrir.
Dag einn grófu sprengikúlurnar
mig tvisvar sinnum í mold. Þær
sprungu í svo sem þriggja feta fjar-
lægð frá mér, en ósár var eg þó
eftir. Byssukúlum og sprengikúlum
er skotið svo miljónum skiftir í því
skyni að drepa menn, ekki ein
byssukúla af hverjum 10000 hittir
markið og ekki ein sprengikúia af
hverjum 1000 særir nokkurn mann«.
Gula dýrið.
Leynilögreglusaga.
---- Frh.
»Haldið þér að þetta blóð og
þetta hár sé af ráðherranum?«
spurði Morrison skelkaður.
»Auðvitað er ómögulegt um
það að segja, en eg held að svo
sé ekki. Það lítur heldur út fyrir
að hann hafi veitt árásarmönn-
unum þetta högg, því mér virð-
ist engi vafi leika á, að honum
hafi verið veitt árás. Hann hefir að
líkindum haldið á kylfunni í hend-
inni og honum því orðið fyrst á
að grípa til hennar. En á morg-
un mun eg ganga úr skugga um
hvort mannsblóð er á kylfunni,
þótt eg þykist fullviss nú, að svo
sé. Kylfan hefir veitt þungt högg
og eg öfunda eigi þann sem hef-
ir fengið það.
»Eg held að við getum ekki
gert meira í kveld og leyfi mér
að leggja mig til svefns. Þér
gerið svo vel og látið mig vita
ef eitthvað kemur fyrir*.
»Eg skal gera það«, svaraði
Morrison. »Eg fer um miðnaetti
til þess að athuga hvernig þeim
líður þar niður frá og mun eg
ekki vekja yður nema eitthvað
markvert komi fyrir*.
Bleik þakkaði og bauð honum
góða nótt.
Þegar hann var nýsofnaður
vaknaði hann við það að barið
var á dyrnar. »Vaknið þér, BIeik«,
kallaði Morrison. »Eg hefi feng-
ið boð um að það sjáist flugvél
yfir Westward Ho!«
2. kapituli.
Eltingaleikurinn f
loftinu.
Þegar Bleik talaði um að Tin-
ker ætti að geta komist frá Hen-
den til Westward Ho! á fjórum
tímum, þá hafði hann tekið of
djúpt í árinni því á svo góðri
flugyé! og »Grái Örninn« var þá
var hægt að fara þessa vegalengd
á tæpum fjórum tímum. — En
hvorki hann né Tinker sjálfur
hafði búist við, að hann mundi
lenda í slíkum ógöngum sem raun
varð á.
Þegar Tinker fór frá London
hélt hann beint til Hendon. —
Flugvélin var tilbúin er þangað
T I L IVI I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.bv. (il 11
Boigarst.skrlfat. i Iminastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrlfst, Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.timi kl, 11-1,
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugrlpasafnið opið Þ/,-21/, siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypi8 lækning háskólans
Kirkjustrætt 121
Alm. læknlngar á þriðjud. og föstud.
kl. 12—1,
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar i Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2-3.
andsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
kom og hann steig þegar upp
í hana og hóf hana til flugs. —
Hærra og hærra, svo sneri hann
í vestur og hélt beint áfram. —
Flugvélin titraði af þrýstingnum
eins og ólmur hestur búinn til
kapphlaups. Hann fór hverja
míluna eftir aðra með jöfnum
hraða. Borgir komu í ljós og
hurfu aftur í dökkleitri móðu. —
Sveitir og skógar báru fyrir aug-
að og hurfu aftur. Hann hélt
stefnunni beint til Landeyjar því
hann vissi að þá kæmist hann
til Westward Ho! með því að
snúa lítið eitt til vinstri. Eftir
þessari ákvörðun lét hann flug-
vélina halda hinni sömu stefnu.
En þegar hann kom yfir Bristol-
flóann og hvergi var að sjá nema
himiun og haf varð honum litið
til norðurs og sá hann þá dökk-
an blett í loftinu, sem nálgaðist
óðum. Það var eins og fugl er
hóf sig til skýjanna en því leng-
ur sem hann horfði á þetta sá
hann betur að þetta var ekki fugl
heldur flugvél. Hann sneri »Ern-
inum í áttina til flugvélarinnar,
sem hóf sig hærra og hærra og
hélt síðan í vestur. »Hún er lík-
lega frá Cardifft sagði hann við
sjálfan sig, »ef hún er ekki það-
an þá hefir hún verið að fljúga
þar í nágrenninu. Mér þætti gani-
an að vita hvort hún er frá flug-
vélastöð á suðurströnd Wales.
Það er best eg reyni að ná henni.
Gerir ekki til þótt maður hafi
dálítið kappflug yfir flóann*.
Frh.