Vísir - 13.08.1916, Side 4

Vísir - 13.08.1916, Side 4
V 1 S I R H e r 1 e i ð i n g F I ó r u. Af Englandsför Flóru eru nú komnar allnákvæmar fregnir í Austra frá 3. þ. m. Er svo sagt þar að farþegarnir hafi borið skips- höfninni á Flóru mjög vel söguna og einkum Hansen skipstjóra. — En það sem merkilegra er, er það að „einnig virtist farþegunum öll- um vera mjög hlýtt til Englend- inga þrátt fyrir að þeir höfðu vald- ið allmiklum hlykk á leið Flóru, en sökum hins hlýja viðmóts og samúðar er þeir mættu hjá Eng- lendingum, er þeir höfðu mök við, og eftir að hafa fengið betri þekkingu á ástæðum þeim sem fyrir hendi eru hjá ensku þjóð- inni nú á þessum heljartímum, komust þeir til betri skilnings á kringumstæðunum, sem óhjá- kvæmilega færði þá nær hinni ensku þjóð“, að því er Austri segir. — Landgöngu voru Bretar búnir að leyfa öllum farþegunum í Leith og 9 farþegar, sem ætluðu til Danmerkur og Noregs, fengu að fara þar i land og með járn- braut til Newcastle til að ná þar í skip. Er þetta eftirtektarvert vegna þess að annars er mjög erfitt að fá landgönguleyfi í Leith, svo að það jafnvel hefir verið talið ófáanlegt. Afskifti Dana, Austri flytur útdrátt úr fyrir- lestri landlæknis og er þar skýrt frá afskiftum Dana af máli þessu á þessa leið: „Til Lerwick kom Flóra 13. júlí á hádegi. — Símaði landlæknir þá bæði til íslenzku stjórnarinnar og sendiherra hennar í London,Björns Sigurðssonar, og lét vita hvernig komið var. Einnig var símað til sendiherra Dana í London og hann beðinn að gera gangskör að því að farþegarnir herteknu kæmust sem fyrst heim aftur, 3: til Siglu- fjarðar. Sendiherrann gerði þá fyrirspurn um hvort fólkið vildi komast til Siglufjarðar á íslandi eða Siglufjarðar í Noregjl! Var honum skýrt frá að fólkið vildi heldur komast til Siglufjarðar á íslandi! Tveim dögum eftir að í sendiherrann hafði fengið þessar ! nauðsynlegu upplýsingar, gerði ■ hann fyrirspurn um það hvort Símskeyti frá fréttaritara Vísis Khöfn 12. ágúst Asigkomuiag Austurríkismanna er orðið ískyggi- legt. Þeir hafa yfirgefið Lemberg og Stanislau. Italir hafa tekið borgirnar Rubia og Doberdo, Portúgalar hafa sent hersveiiir til Frakklands. farþegarnir á Flóru hefðu fengið eitthvað að borða! Jú, honum var svarað að ekki skorti mat — og síðan hafa Flóru- farþegarnir ekki heyrt neitt frá sendiherra Dana í London.“ „Til Leith kom Flóra 21. júlí um liádegi. Sneri landlæknir sér þá þcgar bréflega til danska konsúls- ins þar; skýrði honum frá öllum málavöxtum í þeirri von að hann tækist á hendur að greiða úr vand- ræöum farþeganna. Meö bréfinu lét hann fylgja símskeyti til konu sinnar er hann bað konsúlinn að annast um sending á. Að tveim dögum liðnum kom konsúllinn til skips og tjáði land- lækni að hann hefði þá fyrst feng- • ið bréf hans. Konsúllinn taldi mál Flórufarþeganna mjög erfitt viðureignar og lét á sér heyra að hann treysti sér ekki að ráða fram úr vandræðunum. Afhenti hann landlækni símskeytið og taldi vafa- samt að það fengi að fara gegnum símann, eftirlitið væri svo strangt. í skeytinu stóð ekkert annað en „Vellíðan — kveðjur", tók land- læknir við því og sendi sjálfur. Kvaddi hann síðan konsúlinn og þakkaði honum umhyggjuna. Eru hér með talin afrek Dana í þessu vandamáli. Meðan á þessu stóð hafði sendi- herra íslendinga í London, Bj. Sig., útvegað landlækni landgöngu- ieyfi í Leith. Hafði enska stjórn- in fúslega gefið landlækni vega- bréf (eftir að henni var kunnugt hvaða „manneskja" hann var) er heimilaði honum að vera í landi í Leith (og Edinburgh) frá kl. 9—9 daglega." Að lokinni ferðasögunni segir Austri, að stjórnmálablæ hafi brugðið á ræðu landlæknis. Hafði hann þá vikið að því, hve óeðli- legt væri, að utanríkismál vor væru í höndum Dana. Reynslan hefði sýnt það síðan stríðiö hófst, að þá skorti bæði þekkingu og vilja til að verða oss að gagni í þeim málum. Allur vandinn væri látinn hvíla á herðum íslenzku stjórnarinnar, og væri það gott, því á því sjáist að íslendingar séu færir um að bjarga sér sjálfir einnig í utanríkismálum, enda ættu þeir að keppa að því marki aö fá fullveldi yfir öllum sínummálum og sinn eiginn sigl- ingafána. Gerði landlæknir hálft um hálft ráð fyrir því, að hann hefði svift sig atkvæðum til landskosn- inganna með ræðu sinni, en ekki finst Austra „að tilgangur hans hafi beinlínis verið sá, að „spila af sér“ atkvæðum með henni!“ SprengiJí úlna~sprenging í ííew-York. —o— 2000000 sterlingspunda tjón. Sunnudagsmorguninn 30. júlí höfðu orðið ægilegar sprengikúlna- sprengingar í New-York. Sagt er að eldur muni hafa komið upp í skotfærageymsluhúsi og borist í flutningabát, semhlaðinn varsprengi- kúium. — Sptengingarnar voru svo stórfeldar að mikill hluti borgarinnar lék á reiðiskjálfi og var eins og skothríö væri hafin á borgina, því kúlnabrotunum rigndi á húsþökin f New-Jersay og Ellis-Island. í Brooklyn hentust menn úr rúm- unum. Bryrnar yfir East-River riö- uöu til og skýjaskafarnir gnötruðu. Broadway var þakinn af gierbrot- um, því þar var ekki ein rúða heil í nokkrum glugga. — Á Black Tom, tanga, sem gengur út í fjörð- inn nálægt frelsisstytlunni hrundu vöruhús National Storage Comp. tíl grunna óg eru þær skemdir taldar 1500000 sterlingspunda virði, en alt tjón sem af sprengingunum varð í borginni lágt reiknaö 2 miljónir punda. Um manntjón er ekkert fallyrt í þeim fregnum, sem Vísir hefir séð. — Spreningamar urðu þrjátíu. Ekki er þess getið til, að Þjóð- verjar séu valdir að þessu, og er fregnin þó tekin úr ensku blaði. — En varla munu þeir þó gráta það. aö Bandaríkjamenn fái slíkan smjörþef af verkunum sprengikúln- anna, sem þeir selja fjandtjiönnum þeirra. \ — v 1 N N A — 'I Kaupakona óskast á á g æ 11 heimili. Uppl. á Suðurg. 6. [67 TAPAÐ — FUNDH0 Manchetta með gullhnapp hef- ir glatast. (Pvottahúsnúmer 997). Skilist á'afgr. Fundarlaun. ]60 Herbergi til leigu fyrir feröafólk í Lækjargötu 12 B. [305 Herbergi með húsgögnum til leigu í Bánmni. [14 Kona með son sinn 8 ára gaml- an óskar eftir 2 herbergjum með eldhúsi í kyrlátu og góðu húsi, frá 1. næsta mánaðar. — í stað eldhúss gæti smáherbergi með vatni og gassuðuvél komið til niála. Uppl. gefur Helgi Bergs. Sfmi 249. [47 2—3 herbergi og eldhús óskast til leigu frá 1. okt. C. Nielsen, afgreiðsla Gufu- skipafél. sameinaða. [262 1—2 herbergi og eldhús eða aðgangur að eldhúsi óskast til leigu sem fyrsteðal. okt. Uppi. á Hverfisg. 41, bakaríinu. [64 KAUPSKAPUR Saitfiskur til sölu'. A.v.á. [65 Langsjöl og þríhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [43 Saumaskapur á morgunkjólum, barnafötum o. fl. er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur- endanum). [217 Morgunkjólar fást beztir'í Garða- str. 4. [299 Bókabúðin á Laugavegi 4 selur brúkaðar bækur. Lágt verð. [3 Morgunkjólar fást og verða saum- að|r í Lækjargötu 12 A. [30 Barnakerra óskast til kaups eða leigu. A. v. á. [63 Veiðistöng óskast til *1eigu um hálfsmánaðartími. Menn snúi sér til Árna Ólafssonar Árnasonar, Suðurg. 14. Sími 401. [66 Prentsmiöja Þ. í>. Clementz, i 916.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.