Vísir - 18.08.1916, Blaðsíða 2

Vísir - 18.08.1916, Blaðsíða 2
VISIR VISIR A f g r e i ð s I a blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—7 ð hver)- um degí, Inngangur frá Vallarstraetl. Skrlfstofa á sama stað, Inng. frá Aðalstr. — Rltstjórlnn tll vlðtali fri U. 3-4. Sími 400,— P. O. Bo* J£7. Best að versla i FATABÚÐINNI! Þar fást Regnkápur, Rykfrakkar fyrir herra, dömur og börn, og allur fatn- aðurá eldrl sem yngrl. Hvergi betra að versla en i FATABUÐINNI, Hafnarstr. 18. Siml 269 Fryatts-málið. Um Fryatt skipstjóra. í »Daily Mail« er Frayatt skip- stjóra, sem Þjóðverjar dærodu til dauöa og líflétu fyrir að verjast kafbálum sem á hann réðust, lýst þannig, að hann hafi veriö fálátur en atorkusamur. Hann kunni ekki að hræðast og í mestu háskaæfin- týrum var hatin jafn rólegur og þegar hann sat aö miðdegisverði heima hjá sér. Hann var lágvaxinn, en þrekinn og hraustbygöur, gekk lítið eitt haltur eftir meiðsli, er hann hafði hlotið í sjómenskunni. Sjómaður frá hvirfli til ilja. Sjórinn glitraöi í hvössu og föstu augnaráði hans, kraftur sjáfarins var greiptur í hvern drátt í einbeitta, þrekmikla, skegg- lausa andlitinu, og sjávarhljóðið var í röddinni þegar hann hrópaði fyrir- skipanir sínar frá stjórnpallinum. Þjóðverjar hötuðu hann vegna þess aö hann lék á kafbáta þeirra. Hann var oft búinn að komast í hann krappann í viðureignum við þýzka kafbáta, eftir að þeir höfðu tekið upp þá hernaðaraðferð að skjóta öll ensk flutningaskip, og jafnvel hlutlaus skip fyrirvaralaust, hvar sem þeir hittu þau. Lék orð á því, að Fryatt væri sling- astur allra skipstjóra sem um Norðursjóinn sigla, í því að verjast kafbátunum og áttu þeir oft í vök að verjast fyrir honum vopnlausuin og sluppu stundum nauðuglega undan, eins og U 33. það er líka álit Breta, að þessi dómur hafi verið kveðinn upp af heipt til hans. Hásetum hans varð oft skrafdrjúgt ; um atferli hans þegar hann nálg- ’ aðist þá staði, þar sem kafbátarnir \ eru vanir að vera á sveimi. Hann ' skimaði þá í allar áttir, og sæi hann j þá engan skipsturninn upp úr sjón- ' ura, varö honum á oröi aö það ætlaði ekki aö verða margt til dægra- ‘ styttingar í þeirii ferðinni. i 1 Einn af yfirboðurum hans sagði um hann : Við treystum honum til að fara hvert sem vera skal. Hann er hinn mesti fullhugi og það má aliaf treysta því að hann rasi ekki um ráð fram, þegar hætta er á ferð- um. Hann er hægfara og gætinn* en ábyggilegur með afbrigðum. Þegar hann f tyrsla sinni var eltur af hraðskreiðum kafbáti, sendi hann alla skipshöfnina niöur í véla- rúmið til hjálpar kyndurunum og var einn við stýriö. Eldtungurnar stóðu upp úr reykháfnum og máln- ingin skorpnaöi af honum af hitan- um og skipið nötraði og brakaði í hverjum bjáika af hinum ægilega þrystingi, en Fryatt skipstjóri reykti rólegur pípuna sína og slýröi skip- ! inu úr bættunni inn í landhelgi * Hollands. «Það var gott drengir«, var alt og sumt sem hann sagði, þegar skipshöínin kúguppgefin og titrandi af æsingu kom upp á þilfarið. Menn hans treystu honum og óttuðust hann, »Ekkert slys hendir okkur meðan gamli maðurinn er á skipinu* var viðkvæði þeira. Þeir trúðu á hann. »Hann gerði aö eins skyldu sína. Hann gerði það sem hann gat tii aö bjarga skipinu og skipshöfninni. j Hvers vegna skutu þeir hann?« i spuröi systir hans, þegar lífláts- ; fregnin barst henni. «Hvað eftir annaö hafði verið ráðist á skip hans fyrirvaralaust. Hann gerði ekki annað en aö verjast, og fyrir það var hann dæmdur og skotinn«. Fryatt átti konu og 7 börn. — Sjálfsagt er talið, aö ríkið ali önn fyrir þeim, en sum blöðin vilja láta gera upptækar allar eignir Þjóð- verja í Englandi og greiða ekkjunni lífeyri af þeim. Telst svo til, að eignir Þjóðverja í Englandi séu um 7 milj. sterl.pd. meiri en eignir Breta í Þýzkalandi. Dómur hlutlausra. Svo virðist sem blöð hlutlausra landa séu mjög samtaka um að áfeliast þjóðverja fyrir að lífláta Fryatt skipstjóra fyrir þær yfir- skynssakir, sem á hann voru . bornar. Bandaríkjablaðið Tribune segir: Sama árið sem Fryatt skipstjóra varð það á að reyna að bjarga skipi sínu frá eyðilegg- ingu, höfðu þjóðverjar sökt fjöru- ■ tíu varnarlausum enskum skipum | fyrirvaralaust. Hefnd þýzku \ stjórnarinnar er eins og við var | að buast. Bleyðuháttur þýzka flotans, sem einkennir hann frá öllum öðrum, kemur þar fram \ í sinni réttu mynd. Drenglyndi er honum því ósamþýðanlegt. Nieuwe Rotterdamsche Courant segir: Dómurinn er gagnstæður mannúðarfullri útleggingu herlag- anna. þjóðverjar drepa varnar- lausa menn hundruðum samán, en þá sem ekki vilja láta drepa sig góðviljuglega kalla þeir laun- vígismenn (franctireurs). Hollenska bláðið Handelsblad segir: Líflát þessa enska sjó- manns er ekki hægt að nefna annað en bleyðulegt morð, fram- ið af hatri og hefnigirni. Hefnd. Brezk blöð og brezkir borgar- ar hrópa á hefnd. — þau minna á ummæli Asquiths í neðri mál- stofunni 27. april 1915, þegar hann sagði: þegar vér höfum leitt ófriðinn til lykta — sem við með guðs hjálp munum gera — þá skulum við ekki gleyma og meigum ekki gleyma þessu há- marki grimdar og hryðjuverka, sem framin eru af ásettu ráði; þá munum vér telja það skyldu vora, að hegna þeim, sem sann- ir verða að sökum í þessu efni, hegna þeim svo sem oss er unt. Bretaveldi eftir ófriðinn. Lloyd George ávarpar Kanadamenn. 7. þ. m. lók hinn nýi hermála- ráðherra Breta í fyrsta sinn þátt í liðskönnun. Þaö var ný herdeild frá Kanada sem hann veitti þann heiður. Að lokum ávarpaöi hann liðs- foringja deildarinnar á þessa leið: »Eg er hér kominn, sem Eng- lendingur, til að þakka Kanada fyr- ir hjálpina. Vér viturn hvert afrek þér unnuö í annari Ypres-orust- unni, þegar þér björguðuð Calais. Rélt eins og Klettafjöllin kasta aftur stormunum vestra, eins brutu helj- urnar þær hin tryltu áhlaup Þjóö- verja á bak aftur. Vér erum að mynda bandalag innan hins mikla ríkis til þess að geta tekist á liendur stærri verkefni í framtíöinni. Eins og það var verður þaö aldrei aftur; það verður ein stór samanhangandi heild, sem mun ráöa meiru um forlög heims- ins í framtíðinni en nokkurt ríki á liðnum öldum . . ,« T I L MINNIS: BaOhúsifl opiö v. d. 8-8, Id.kv. III 11 Borgarst.skrlfat. i brunastöð opin v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Isiandsbanki opinn 10-4. K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd Landakotsspít. Sjúkravltj.timl kl, 11-1. Landsbanklnn 10 3, Bankastjórn til vlö- tals 10-12 Landsb j. asai/i 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssimlnn oplnn v. d> daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugrlpasafnlð oplð r/,-21/, siðd, Pósthúsið oplð v. d. 9-7, sunnd, 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-b. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vífilsstaðahælið. Hclmsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Klrkjuitratl 121 Alm. lækningar á þrlðjud. og föstud, U. 12-1. Eyrna-, nef- og hálslæknlngar á föstud, kl. 2—3. Tannlæknlngar á þrlðjud. kl. 2—3. Augnlækningar i Lækjargötu 2 á mlð* vikud. kl. 2—3, andsféhlrðlr kl. 10—2 og 5-6. ftúmenar og Búlgarar berjast. Snemma í ágúst reyndu búlg- arskir og austurrískir hermenn að næturlagi að fara yfir Ddná hjá Flaminder í nánd við borgina Giurgevo í Rúmeníu (í suöur frá Búkarest). Framveröir Rúmena vörn- uðu þeim landgöngu og hófu skot- hríð á þá og kölluöu Búlgarar þá meira lið sér til hjálpar og svör- uðu skothríðinnj í sömu mynd. — Sagt er að þetta tiltæki hafi verið vei undirbúið af Búlgara hendi, allir varðeldar slöktir áður í nánd við stöðvar þeirra og Ijós öll á búlgörskum skipum sem þar voru í nárid á Dóná. Stjórn Rúmena hefir mótmælt þessu tiltæki viö Búlgarastjórn og leitt henni fyrir sjónir að það væri ósamrýmanlegt vinfengi því sem væri í milli ríkjanna. Norsku skipj sökt í Norðursjónum. —o— Þjóöverjar hafa um síðustu mán- aðamót sökt norska seglskipinu »Marz« í Norðursjónum. Skipið var á leið iil Englands með farm. Sænskt skip bjargaði skipshöfninni. Einnig er sagt að norska bark- skipiö »Aganda« hafi hitt þýzkan kafbát í Norðursjónum og að Þjóð- verjar hafi lagt eld í það.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.