Vísir - 23.08.1916, Page 2
V I S 1 R
VISIR
A f g r e 1 ö s i a blaðsints á Hötel
Island ei opin frá kl, 8—7 á hverj-
nm degi,
Inngangur írá Valiarstræti,
Skrlfstofa á sama etaö, inng. ftá
Aðalstr. — Rftstjórinn til vföíals frá
kl. 3-4.
Sími 400.— F. O. Bos 367.
Best að versla i FATABÚÐINNI!
Þar fást Regnkápur, Rykfrakkar fyrlr
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aðurá eldri sem yngrl.
Hvergi betra að versla en i
FATABUÐINNI, Hafnarstr. 18. Siml 269
EússnesMr flóttamenn
í Englandi,
— o—
Eins og kunnugt er, hefir Eng-
land lengi verið griðastaður rtíss-
neskra flóttamanna, sem flúið hafa
land vegna pólitízkra ofsókna, eða
vegna trúarskoöana sinna, svo sem
Oyðingar.
En nú er svo Komíð, að því
er þýzk blöð herrna, að griðin eru
ekki lengur örugg í Englandi. —
Hefir enska stjórnin látiö tilkynna
öllum slíkum flóttamönnum, að ef
þeir gangi ekki í enska herinn og
berjist þannig fyrir málefnum Rúss-
lands, þá veröi þeir afhentir rúss-.
nesku stjórninni, — Flóttameun
þessir eru flestir Gyðingar, og til-
viljunin var nú svo findin, að láta
þann ráðherrann, sem samkvæmt
embættisskyldu sinni hlaut að til-
kynna þeim þessa ákvörðnn ensku
stjórnarinnar, einmitt vera Gyðing-
inn Samuel, innanríkisráðherra.
Deildir jafnaðarmannaflokkanna
rússnesku í Lundúnum hafa sentút
ávarp til ensku þjóðarinnar, þar
sem þessu tiltæki stjórnarinnar er
andmælt mjög skorinorl, en sagt
er að ekkert enskt blað hafi fengist
til að birta það.
í ávarpinu er bent á hvílíkt hróp-
legt ranglæti það sé, að neyða þessa
menn, sem ofsóttir hafa verið af
rússnesku stjórninni og hraktir og
hrjáðir á ýmsa vegu, til þess að
úthella blóöi sínu fyrir haröstjór-
ana, sem hafi leitt svo margvíslegt
böl yfir þá. Og þar sem þeir hafa
komiö til Englands í fullu trausti
til þess, aö þeir væru þar öruggir
fyrir öllum ofsóknum, þá finnist
þeim þeir vera veiddir i gildru á
sviksamlegan hátt, þar sem þeim sé
ekki einusinni gefinn kostur á að
fara til annara landa.
Ávarpið er afar haröort í garð
ensku stjórnarinnar eins og þýzk
blöð segja frá því, — Og ekki
geta þau þess »í Jósefs sporum,
hvað eg hefði gert». — En Bret-
um til varnar mætti færa það, að
þeir hafa lögleitt hjá sér almenna
varnarskyldu, sem allir Englending-
ar verða að beygja sig undir, Virð-
ist þá ekki ósanngjarnt að þeir
menn, sem þangað hafa leitað, af
hvrrjnm ástæöum sem er, til þess
að njóta verndar enskra laga og
í ensks borgararéttar, einnig veröi að
! taka á sig skyldur enskra borgara.
; — En ekki veröur því neitaö, að
j lúaleg er hótunin um að framselja
Rússastjórn þá, sem ekki vilja verða
við kröfunum.
Tískuprestar
og
skrumauglýsingar.
Við og við er eins og geysi
um löndin einhver feikna áfergja
meðal manna í því að trana sér
fram eða láta »tala um sig«. —
Menn heyja einskonar kappleik,
með hinum einkennilegustu aug-
lýsingum um sjálfa sig, og eru
þar að engu eftirbátar hinna bí-
ræfnustu kaupmanna eða gróða-
brallsmanna. Skrumið gengur
fjöllunum hærra.
Þetta hefir nú líka náð til
þeirrar stéttar, er áður var nefnd
hin andlega stétt, en
verðskuldar enganvegin það heiti
lengur. — Nú eru uppi hér og
þar um heiminn hreinir t í s k u-
prestar, þ. e. prédikarar sem
hafa tekið á sig það snið, að
fólki því, sem sérstaklega vill tolla
i tískunni, þykir sjálfsagt »að
sækja þá«og hafa þeir því ávalt
húsfylli áheyrenda(ekki síst spjátr-
ungarog uppskafnings-fólks, með
drjúgum meiri hluta kvenþjóðar-
innar). Velja prestar þessir sér
einatt þannig umtalsefni og kunna
að »haga orðum sínum« svo, að
fult eins »spennandi« þykir á-
heyrendunum að hlýða á þá og
að lesa hina áhrifamestu skáld-
sögu (að maður ekki segi blátt
áfram »reyfara«, sem líklega er
goðgá að nefna í þessu sam-
bandi!) Svona getur útlistun »ei-
lífðarmálanna* orðið f j ö r u g—
þegar þau eru klædd í nýtísku-
búning.— Spara prédikarar þess-
ir hvorki orð né athafnir til þess
að láta blöðin sífelt vera að bá-
súna lof þeirra út á meðal Iýðs-
ins; eykst þá æ aðsóknin og um
leið »ávinningurinn«.
Þeir, sem komið hafa út fyrir
landssteinana, kannast við þetta
frá öðrum löndum: Tískuprestana
og »reklame« þeirra eða skrum-
auglýsingar. Þ a ð er sannarlega
eitt af merkilegustu »fyrirbrigð-
unum« í trúmálum nútímans. —
Að þessi œfintýri séu líka að
»gerast með þjóð vorri«, um það
bera greinilegastan vottinn m. a.:
Greinarstúfur, sem birtist íblað-
inu »íslending« á Ákureyri 28.
f. m. og »ísafold« tekur upp 19.
þ. m., svó og »auglýsing« sú
eða tilkynning, sem látin var
ganga gegnum öll blöðin um
messu í »Fríkirkjunni« sunnu-
daginn 20. þ. m. (sem fríkirkju-
presturinn þó var ekkert við rið-
' inn). O. Sv.
Aths.
Vísir verður aö láta þess getið,
aö fregnina um. að Geir Sæmunds-
son vígslubiskup ætlaði að tóna í
fríkirkjunni á sunnudaginn, flutti
hann ekki sem skrumauglýsingu,
heldur taldi hann það víst, að Ies-
endur blaðsins mundu kunna hon-
um þökk fyrir að flytja þá fréit,
en óþökk, ef hann hefði ekki gert
þaö. — íslendings-greinin getur
heldur ekki skoðast sem skrum-
auglýsing, því vænlanlega kemur
engum til hugar, að sá sem »skium-
iö« er um, hafi skrifað hana. —
En hitt mun lengi hafa tíðkast, að
einstökum prestum hafi verið hælt
í blöðum, ekki síðnr en öðrum af-
burðamönnum, og engum dottiö í
hug að nefna skrumauglýsingar í
því sambandi.
Kjötlausir dagar
i Engiandi.
Kjötið er orðið svo dýrt og af
svo skornum skamti í Englandi, að
þar er nú einnig fariö að tala um
að fyrirskipa kjötlausa daga, eins
og í Þýzkalandi. Þeirri uppástungu
var svarað í þinginu á þessa Ieið:
Það verður léleg huggun fyrir þá,
sem vilja fá tneira kjöt og ódýrara
kjöt að fá alls ekkert kjöt!
Fangaskifti
Breta og Þjóðverja
Bretar og Þjóðverjar eru farn-
ir að hafa skifti á herföngum,
sem ekki er álitið að færir geti
orðið til herþjónustu aftur. En
ekki eru samningar fullgerðir
um skifti á þeim föngum, sem
kyrsettir voru í löndunum í ó-
friðarbýrjun. Virðast þeir samn-
ingar þó ekki eiga Iangt í land.
Lord Robert Cecil lýsti því ný-
T I L M I N N I S:
Baðhúsið oplð v. d. 8-8, ld.kv. 111 11
Borgarst.skrlfat. i brunastöð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki oplnn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samk.sunnd. 8'/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tíml kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til vlð-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
LandsBlmlnn oplnn v. d. daglangt (8-9)
Heiga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugrlpasafnið opið U/,-21/, siðd,
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Sainábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahællð. Hcimsóknartimi 12-1
Þjéðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypls læknlng háskólans
Klrkjustrætí 12r
Alm, læknlngar á þrlðjud. og föstud,
kl, 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslæknlngar á föstud,
kl. 2-3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlæknlngar i Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2 -3.
andsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
Rúðugler
fæst á Laugaveg 73,
Sími 251.
JSo&var 3ot\sson.
r
1—3 herbergi á-
samt eldhúsi ósk-
ast I. október.
Jón Hafliðason. Vallarstræti 4.
lega yfir í enska þinginu, að samn-
ingar stæðu yfir um að fá bresku
fangana í Ruhleben látna lausa.
Er í ráði að gefa ölium mönn-
um eldri en 45 ára, heimfarar-
leyfi úr báðum löndunum, en að
skifta á yngri mönnum mann
fyrir mann.
Brusiloff,
Rússakeisari hefir nýlega sœmt
Brusiloff hershöfðingja sem stýr-
ir sókn Rússa í Gaiiciu, heiðurs-
sverði sankti Georgs, gimstein-
um sett, fyrir afrek hans í ófriðn-
um. —
Brusiloff þykir hafa sýnt fram-
úrskarandi herstjórnaryfirburði og
er hann þó >ó!ærður« hershöfð-
ingi, hefir aldrei gengið á her-
foringjaskóla.