Vísir - 07.09.1916, Síða 4

Vísir - 07.09.1916, Síða 4
VÍSiR Skógareldar brenna heila bœi og sveitir tii ösku. í marga daga aö undanförnu hafa geysað ægilegir skógareldar í norðursveitum Ontario fylkis. Skóg- ar hafa brunniö á hundruðum mílna og stórtjón oröiö að. Á sunnu- daginn veltist þetta voöa eldhaf yfir bygöir og bæi og brendi alt sem fyrir var. Fólkið flýöi á bátum út á ár og vötn og yfirgaf heimili sín og eignir, en eldurinn sleikti þaö alt upp með tungu eyðileggingar- innar. Átta smáborgir brunnu svo að segja til kaldra kola og heilar sveit- ir svo gersamlega að ekki er eftir kofi né önnur mannamerki. Bæirnir sem btunnu beita : Coc- brane, Ramora, Matheson, Rustka, Iroquis, Howe, Kelso og Porcupine Junction. Þegar síðast fréttist vissu menn um 200 manns sem mist höfðu lífiö, eu mörg hundruð höföu stór- skerast. Þúsundir manna streyma inn í nærliggjandi héruð heimilis og bjargarlausir og hefir stjórnin þeg- ar hafist handa og mörg flutuinga- og auðfélög fólkinu tii bjargar. Þar á meðal má nefna Eaton félagið; þaö sendi tafarlaust tvö vagnhlöss af vörum með tveiniur mönnum til þess að sjá um sanngjarna og skynsamlega útbýtingu. Eldurinn heldur áfram viöstöðu- laust í dag (mánudag) og er erfitt að segja hversu míklu tjóni harrn kann aö valda. Lögb. 3/8. Rider Haggard um ófriðinn. Sagnaskáldið Rider Haggard, sem mörgum íslendingum er kunnur, var nýlega á fyrirlestraferð um Ka- nada. Einn fyrirlesturinn hélt hann í Winnipeg. Hafði hann haldið því fram, að Þjóöverjar yrðu aldrei sigraðir að fullu, þó sigur fengist, myndu þeir rísa upp aftur og verða voldugir. Ekki efaðist hann um sigur bandamanna, en jafnskjótt og ófriðnum yrði Iokið sagði hann aö Þjóðverjar rnyndu byrja á nýjan leik. Herskyldu yrðu Englendingar neyddir til að láta haldast heima- fyrir um tíma og eilífð og nýlend- urnar yrðu að kappkosta að fjölga fólki, til þess að geta veitt Eng- lendingum sem mesta og bezta hjálp í næsta ófriði. Vínbann í Eússlandi. Svohljóðandi fregnmiða gaf blaö. DRENGUR ie Templar út í gær: Lög um algert áfengisbann í Rússlandi. Dúman (rússneska þingið) sam- þykti 13. júlí s. 1. algert, framhald- andi áfengisbann. Sala, aðflutningur og tilbúningur áfengra drykkja, sem hafa inni að halda 1 x/2% áfengis og meira er bannað. Rússland stöðvar áfengisinn- flutning við landamœrin. Kína hefij skuldbundið sig til þess gagnvart Rússlandi að banna ailan tilbúning og innflutning af : áfengi á 53 kílómetra breiðri land- óskast nú þegar til að bera Vísi út um bæinn, i i I fer vestur 8. septemb. spildu meðfram Iandamærunum. Menn búast viö að ge'a á þennan hátt komið í veg fyrir áfengisinn- flutning til Siberíu og Rússlands. Dr. Matti Helenius frá Finnlandi flutti fregnina um bannlögin í Rúss- landi á þingi Stórstúku Danmerkur I. O. G. T., sem haldið var í júlí- mánuöi þ. á. í Randers. Hin fregn- in, um samninginn við Kína, var send »Dansk Good-Temp!ar<r frá Petrograd þ. 6. f. mán. * Varnarskylda í Kanada. í Lögbergi frá 3. ágúst er sagt frá því, að borgarafundur hafi veriö haldinn þá nýlega í Winnipeg um almenna varnarskyldu. Var þar sam- þykt að skora á stjórnina að Iögleiða herskyldu í Kanad, þar sem það væri fullsannaö og til þrauta reynt, að sjállboðaaöferöin væri bæði dýr og áhrifalítil. Tillaga í þessa átt var samþykt í einu hljóði á fundin- um og samstundis símuð til for- sætisráðherra Kanada. Bifreið heldur uppi ferðum milli Hafnar- fjarðar og Rvíkur. Fæst einnig leigð í lengri og skemri ferðir. Hringið í síma nr. 9 í Hafnar- firði eða 367 í Rvík. Egill Viihjálmsson, bilstj., Hafnarfirði. Bíll fer til Eyrarbakka á morgun kl. 12. Einn maður getur fengið far. A. v. á. Rúgmjöl fæst í L iverpool. kl, 9 árdegis. C. Zimsen. Umboðssala min á Sfld, Lýsi, Fiski, Hrognum og öðrum íslenskum afurðum mælir með sér sjálf. Áreiðanleg og fljót reikningsskil. ÍNGVALD BERG Bergen, Norge. LeitlO upplýslnga hjá: Sfmnefnl: Útibúi Landsbankans á Isafirðl, Bergg, Bergen. Bergens Prvfatbank, Bergen. H ÚSNÆÐi | KAiJPSKAPUR | Einhl. maður (sjóm.) óskar eftir herbergi frá 1. okt. A. v. á. [46 Brúkaðar námsbækur, sögu og fræðibækur, fásf með miklum af- slætti í Bókabúðinni á Laugav. 4. [31 Ágætt herbergi fyrir einhleypan, prúöan mann, mikil sól, sér inn- gangur. A. v. á. [47 Brúkaðir ofnar til sölu. Góðir — ódýrir. A. v. á. [51 Ein stofa með forstofuinng. ósk- ast til leigu handa einhl. konu frá 1. okt. A. v. á. [48 SKATA þur og óþurkuð ásamt mörgum öðrum teg. af saltfiski — fæst í Hafnarstr. 6 (portinu). B. Benónýsson. 152 2- 3 herb. og eldhús óskast frá 1. okt. Borgun fyrirfram, et óskað er. Afgr. v. á. [49 Skólapiltur (í 1. bekk menta- skólans) óskar eftir húsnæði og fæði frá 1. okt. í haust, helst á samastað. A.v.á. [57 Rósaknúppar til sölu á Hvg. 40 uppi. [55 Brúkaður klæðaskápur óskast til kaups. A. v. á. [56 Gott herbergi og helst fæði á sama stað, óskast fyrir menta- skólapilt frá 1. okt. n. k. A. v. á. [58 Stóran gasofn, steinolíuofn og litla silungastöng kaupi eg nú þegar. M. Júl. Magnús, læknir. [17 Tvö herbergi með húsgögnum til leigu fyrir einhleypan á Lauf- ásv. 38. [59 I — Y 1 N N A — | TILKYNNINGAR | Stúlka óskast nú þegar. Uppl. í Bárunni. [50. Hesta til göngu í ágætt hag- lendi tekur helgi Gíslason, Brekku á Álftanesi. [53 Stúlka, vel að sér, óskar eftir stöðu við verslun. A.v.á. [54

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.