Vísir - 24.09.1916, Blaðsíða 2
V I SI R
VISSR
Afgrelðsla blafisins á Hótei
Island er opin frá ki, 8—7 á hverj-
utn degi,
Inngangur frá VaUarsiræti.
Skrlfstofz á sama atað, Inag. Irá
Aðalstr, — Ritstjórinn til vlðtali irs
kl. 3—4.
Sinii 400.— P, O. Box 367.
Brúkaðir innansiokk^nuinir
til sölu á Hótel ísland, nr. 28.
á Hótel ísland ræður fólk til alls
konar vinnu — hefir altaf fólk á
boðstólum.
Gula dýrið.
Leynilögregiusaga.
' ---- Frh.
Hann sá því að honum var vís
bani ef hann ætlaði að klifra upp
á bryggjuna. Hann átti aðeins einn
kost fyrir höndum og hann var sá
aö synda út höfnina og reyna að
komast undan á þann hátt. Þenna
kost tók hann og synti hraösund
út á höfnina. Hann synti af öllum
mætti. Þegar hann haföi farið drjúg-
an spöl leit hann aftur. Hann sá
aö Kínverjinn synti á eftir sér og
hafði hnífinn á milli tannanna.
Hann þreytti áfram af öllum
mætti. F.kki all-langt fyrir framan
sig sá hann iítið gufuskip. Hann
ákvað að reyna aö komast þangaö
og kallaði á hjálp.
Fyrstu hundrað álnirnar dró
hvorki sundur með þeim né saman
en Tinker fór brátt að þreytast og
hann fann aö Kínverjinn nálgaðist
óðum. Aftur kallaði hann á hjálp
og í þetta sinn sá hann einhveiju
hvítu bregða fyrir á þilfari skips-
ins, sem var eins og fimtíu álnir
frá honum. Nú lagði hann fram
síðustu kraftana. í sömu svifum var
brugðið upp leitarljósi á skipinu og
skein það beint í andlit honum,
svo fór það yfir höfuð honum og
staðnæmdist á Kínverjauum, sem
bak við hann var.
Tinker synti á móti Ijósgiamp-
anum og nú var það kappsund um
líf og dauöa því Kínverjinn fylgdi
honum fast eftir. Þaö var farið að
draga af honum en þá heyrði hann
kailaö með skærri rödd frá skip-
inu:
»Áfram! Þaö er ekkert að óttast.«
Alt í einu heyrði hann háan
hvell og kúla þaut yfir höfuð hon-
um sem lenti í munni Kínverjans
og braut sundur hnífinn, en sjór-
inn í kringum hann litaðist af
blóði. Kínverjinn rétti upp báðar
hendurnar og sökk.
Nú var svo af Tinker dregið að
hann gat varla haldið sér uppi.
Kaðli var kastaö út Irá skipinu.
Hann náöi í hann og var svo
dreginn hálf meövitundarlaus upp
á skipið. í nokkrar mínúíur lá hann
í hálfgerðu móki. Honum sýndist
kona sem hann kannaöist við,
standa fyrir framan sig. Gat þaö
verið að það væri Yvonn sem stóö
hjá honutn ? Hann reyndi að kom-
ast til sjálfs sín og fór að reyna
að standa á fætur. Þá sá hann að
þetta var ekki nein missýning. Hann
strauk hendinni yfir augun.
»Það eru vísl þér«, stamaöi hann,
en eg get varla trúað því, Yvonn*.
»Jú, auðvitað er það eg, Tinker
En hver ósköp hafa komiö fyrir
yður? Hvers vegna voru þér að
fá yður sjóbað á þcssum tíma, svo
seint að kvöldi, og hvernig stóð og
á hinum kínverska nioröingja sem
elti yður.
Þegar hún nefndi tímann komst
Tinker aftui; til sjálfs sín og mundi
Verk-
manna-
buxur
mjög sterkar, fást í verslun
nú eftir hvað beið hans um mið-
nætti. Hann varð alvarlegur á svip-
inn og sagði:
»Þér veröið að fyrirgefa hvað eg
er aulalegur. Eg var dálítið utan
við mig og svo hefi eg drukkiö
eitthvað af sjó býst eg við. En
það var lán að eg skyldi hitta yður
hérna. Eg þarfnast mjög einhvers
sem eg get ráöfært mig við um al-
varlegt málefni.
»Er það eitthvað Bleik viðkom-
andi?« spurði hún fljótlega.
Tinker hneigði höfuðiö til sam-
þykkis.
»Þá verðiö þér fyrst að fara
niöur og skifta um klæði. Þér
gerið fátt svona til reika.
Frh.
JboUtvder’s moVotar,
Hversvegna er þessi mótortegund víösvegar um heim þ. á m. einnig í Ameríku, álitin standa öllum öðrum framar?
Vegna þess að verksmiöja sú er smíðar þessa mótora hefir 20 ára reynslu í mótorsmíði og framleiðir einungis fyrsta flokks vélar. Hefir ein-
göngu þaulvana verkamenn. Verksmiðjan býr til allskonar mótora fyrir báta og aflstöðvar og hverja aöra notkun sem er. Ennfremur
hráolíumótora og flytjanlega mótora með 3 tii 320 hestöflum.
Bolinder’s mótorar eru ódýrasla, einfaldasta og ábyggilegasta aflsuppspretta sem til er. Verksmiðjan framlciöir einnig mótorspil og mótordælur.
Bolinder’s verksmiöjurnar í Stockholm og Kalihall, eru stærstu verksmiöjurnar á Noröurlöndum í sinni röð. Hafa yfir 1500 starfsmenn, og er
gólfflötur þeirrar deildar, er eingöngu framleiöir bátamótora 100.000 □ fet.
Árleg framleiðsla 60.000 hestöfl. Yfir 10.000 Bolinder’s mótorar meö samtals 350.000 hestöflum eru nú notaðir uro allan
heim, í ýmsum löndum, allsslaðar með góðum árangri. Yfir 3000 fiskiskip nota nú Bolinder’s mótora.. Stærsti skipsmótor smíðaður
af Bolinder’s verksmiöjunni hefir 1.500 hestöfl. 20 hestafla mótor eyðir aö eins ca. 260 grömmum af hráolíu á kl.stund pr. hestafl
Með hverjum mótor fylgir nokkuð af varahlutum, og skýringar um uppsetningu og hirðingu.
Fengu Grand Prix í Wien 1873 og sömu viðurkenningu í París 1900. Ennfremur hæöstu verölaun, heiðurspening úr gulli
á Alþjóðamótorsýningunni í Khöfn 1912. Bolinder’s mótorar hafa alis fengiö 5 Grand Prix, 140 Heiðurspeninga, og 106 Heiðurs-
diplómur, sem munu vera fleiri viöurkenningar en nokkur önnur verksmiðja á Norðurlöndum í sömu grein hefir hlotið.
Þau fagblöö sem um allan heim eru í mestu áliti mótorfræöinga meöal, hafa öll lokiö miklu lofsoröi á Bolinder’s vélar
Til sýnis hér á staönum eru m. a. ummæli: The Motor Boat, The Motor World, The Shipping World, Shipping Gazette, The Yachts-
man, The Engineer, The Marine Engineer & Nava! Architect,
Auk þess hefir m. a. Prof. Nansen, sem notað hefir Bolinders’s vélar í skip síti, hrósaö þeim mjðg.
Einn eigandi Boiinder’s mótors skrifar verksmiðjunni: »Eg er haröánægður með vélina, Hefi látiö hana ganga 4 þúsund
mílur í misjöfnu veðri, án þess nokkru sinni að taka hana í sundur eða hreinsa hana.« Fjöldi annara meðmæla frá vel þektum útgerö-
armönnum og félögum er nota Bolinder’s vélar, eru til sýnis.
Þeir hér á landi sem þekkja Bolinder’s mótora eru sannfærðir um að það séu beztu og hentugustu mótorar sem hingað
hafa fluzt. BoHnder’s mótora er hægt að afgreiða með mjög stuttum fyrirvara, og flestar tegundir alveg um hæl. Varahlutir ávalt
fyrirliggjandi hér á staðnum. Aðgengilegir borgunarskilmálar.
Allar upplýsingar viðvíkjandi mótorum þessum gefur
Eíríkss, Eeykjavík
Einkasali á ísiandi fyrir
Stockholm. Útibú og skrifstofur í ,New York, London, Berlin, Wien, St. Petersburg, Kristjaníu,
Helsingfors, Kaupmannahöfn etc. etc.
G.
J. & C. G. Bolinder’sjj Mekaniska Verkstads A/B