Vísir - 05.11.1916, Page 3
■ T C~ T T>
J. u
-3
-3
Bæjarfréttir.
í
Jéla og nýárskort
með isl. erindnm og margar aðr-
ar kortateg., fást hjá Helga Árna-
syni í Safnahúsinn.
Brleud mynt.
Kbb. 3/u Bank. Póstb.
Sterl. pd. 17,55 17,70 17,70
Frc. 63,50 64,00 64,00
Doll. 3,70 3,75 3,75
„líellie Bruce"
hét botnvörpungurinn, sem þýzki
kafbáturinn sökti fyrir Austur-
Jandi og var frá Grimsby. í sím-
skeyti frá Eskifirði, dags. 2. þ.
m., er það haft eftir skipshöfn-
inni, að þýski kafbáturinn hafi
skotið á skipið fyrirvaralaust, 20
—30 mílur undan landi; skipverj-
ar voru í sjóhrakningum rúmar
30 klukkustundir á skipsbátun-
um, áður en þeir náðu í land i
Stöðvarfirði, og þar voru þeir enn
veðurteptir er skeytið var sent.
Símasambnnd
náðist snöggvast við Seyðis-
fjörð í gær, en bilaði aftur og
komu aðeins fá skeyti hingað
naeðan sambandið var.
Hugleiðið þetta:
Nútímans langbestu þvottavélar eru vatnsaflsvélin „Banier" og handsveifluvélin „Oin-
cy“, er hér eru sýndar. — Með hvorri þeirra sem er, getur meðalheimili (er kaupir þvott), spar-
að sér alt að ÍOO kr. bein útgjöld árlega, t. d. hér í Reykjavík.-Þær þvo þvottinn jafn-
vel báðar, 07, alveg til fullnustu á alt að 20—30 mínútum, úr aðeins þremur vötnum, auk blámavatmins.
„Banner" er unnið með smá vatnsbunu úr krana, eins og
myndin sýnir, og er því algerlega áreynsluslaust að þvo í hanni, eins
og allir hljóta að sjá. — Hún þarf aðeins 10 pumda vatmmþrýsting.
„Cyncy" hafir færanlega handsveif, og drithjól er fer 12
snúninga við hverja eina sveiflu sveifarinnar
fram og til baka, er gerir verkið eigin-
lega alveg áreynslulaust með öllu. — Með
snúru af drifhjólinu, má setja „Cincy" í
samband við hvaða smá mótor sem er.
Allar húsmæður (þó veiklaðar séu) er
nokkuð geta gert, geta sjálfar þvegið þvott-
inn sinn i þessum vélum, og það hæglega,
þó þær gætu'* ómögulega þvegið hann hálfan
„Banner“-vatnsaflvélin. með gömlu aðferðinni.-Þeir er vilja
eignast svona vél geta fengið að sjá „Cincy" i notkun hér heima hjá mér (á Njálsgötu
22) n. Ir. miðviliudag þ. 8. þ. m., lil. 1 siðdL., og með þvi fengið fulla sönnun fyrir
gildi hennar. Hverri vél fylgir íslenzk notknnartilsögn ókeypis. Á umbótum á „Cincy“-vélinni
voru tekin 13 einkaleyfi (Patents) á árnnum 1907—1910, og síðan er hún talin langbesta handafls þvotta-
vélin, Eiem nú er til í heiminum.
Þeir er vilja fá sér þessar vélar, sendi mér pantanir sínar nógu saemma.
StefYm B. Jónsson,
einkasali þessara véla hér á landi.
„Cincy“-vélin.
Flsksala.
í gær var byrjað að selja fisk-
inu af „Rán“ á uppboði á upp-
fyllingunni fyrir neðan Hafnar-
stræti. Uppboðinu verður haldið
áfram á morgun. Fiskurinn er
seldur í 200—300 pnnda kösum v
og var verðið í gær 10—12 kr.
fyrir smærri fiskinn, en upp i
32 krónur þorskurinn.
Nanðsynjavörur.
Ritstjóra „Landsins" þykir víst
góður hákarl. í siðasta blaði finn-
hann verðlagsnefndinni það til
foráttu, að hún hafi vanrækt að
hafa eífcirlit með verðlagi á ýms-
um vörum sem hafi hækkað meira
i verði en mjólkin, t. d. hafi há-
karl hækkað í verði um 200% en
mjólkin þó að eins nm 100 % ! —
Kirkj uhlj ómleika
balda bræðurnir EggertogÞór-
arinn í Dómkirkjunni í kvöld kl.
7’ Aðgöngumiðar seldir í Good-
templarahúsinu.
álþýðufyrirlestur.
Gísli Sveinsson flytur fyrirlest-
úr um vixla og notkun þeirra, í
Iðnaðarmannahúsinu kl. 5 í dag,
tyrir Alþýðufræðslu félagsins Mer-
cur.
513 ' ^
er símanúmer T. Bjarnason nm-
^oðssala en ekki 573 eins og mis-
Preatasfc hefir i anglýsingu hans
I gær.
\ t •
^Bragi"
Var ókominn til FJeetwood 1.
f* k). um miðjan®dag; nýrri írétt-
-■v hafa ekki fengist;j vegna síma-
slitanna. Fyrirspurn um hann
var hraðsímuð héðan í gær og
svarið er væntaniegt þegar er
símiim kemst í lag aftur.
Quebecbrúin lirunin.
í fimm síðastliðin ár hefir staðið
yfir bygging eins hinna mestn
mannvirkja í heimi, þar sem ver-
ið var að smiða brú yfir St. Law-
rencefljótið í Quebec í Ameríku.
Hún var svo að segja fullgerð
fyrrihluta septembermán. og átti
að setja i skorður miðstykkið þ.
11. sept. Það var úr stáli og vóg
5100 smálestir. Þegar alt var
komið í skorður, féll þetta heljar-
bákn ofan í ána, sem er 200 feta
djúp þar, og fórusfc 9 manns en
margir meiddust. Sagt er að brú-
in sé sú lengsta í heimi af sömu
gerð ; Forth brúin á Skotlandi er
sú næsta. 17,000,000 doll. ersagt
að þrúin kosti öll og er þetta eitt-
hvert alvarlegasta slys sem fyrir
hefir komið af sömu tegund, sér-
staklega þegar þess er gætt að
þetta ér í annað skifti sem þessi
sama brú hrynur. Það var árið
1907 sem hún hrundi i fyrra skift-
ið og varð þá 70 manns að hana
og meiddi fjölda fólks.
Þúsundir manna vorn viðstadd-
ir þegar þetta slys vildi til í bæði
skiffcin, því það þótfci heimsvið-
burður að þessi brú fullgerðist.
[Lögberg].
olinder’s mótorar
Ný meðmæli
meb þessari ágætu mótortegund eru það, að í Breiða-
íjarðarbátinn nýja, sem Stykkishólmsbúar og fleiri hafa
látið smíða í Danmörku, og værítanlega kemur kingað
til lands um mánaðamótin okt. og nóv. næstk., befir
verið keyptur
80 hestafia Boiinder’s mótor með Diesei fyrirkomuiagi
Um smíði bátsins, mótorkaup í hann 0. fl. mun fram-
kvæmdarstjóri Eimskipaíelagsins, herra E. Nielsen, hafa
séð, og ætti það því ekki að vera tilviljun ein að þessi
mótortegund hefir verið valin.
Bolinder’s mótorar eru einfaldastir að gerð,
. vandaðastir að smíði, endast best, og eru olíusparastir
allra mótora.
Eru búuir til af J. & C. Gr. Bolinders Mekaniska
Yerkstads A/B., Stockholm og Kallháll, sem er stærsta
verksmiðja í sinni röð á Norðurlöndum.
Bolinder’s hafa fengið fleiri heiðurspeninga og
viðurkenningar en nokkur önnur mótor-verksmiðja á
Norðurlöndum.
Útgerðarmenn! Vanti yður mótor, þá kaupið ein-
ungis Bolinder’s, því það er vélin sem þið að lokum
kaupið hvort sem er.
Pantanir afgreiddar með ' mjög stuttum fyrirvara,
flestar tegundir alveg um hæl.
Allar upplýsingar viðvíkjandi mótorum þessum gefur
G. Eirikss, Reykjavík.
Einkasali fyrir Island.