Vísir - 09.06.1918, Page 2
VÍSIR.
Aigrciiila bklsins i Aðalitrwi
14, opin írá kl. 8—8 á hverjnm degi,
Skrifetoía á B&ma sts,«.
Sími 400. P. 0. Boi 887.
Sitíitjórina ti! viðtaía írá ki. 8—8.
Prentimiðjan á Lau*«veg í
eími 133.
Aaglýiiagma veitt möttaka i Lan&
stjörauaai aftir kl. 8 á kvöldia.
Anglýsingaverí: 50 auí. hver oœ
dálki 1 itærri acgl, 5 anra oi-n. i
SM&anglýsingam mei öbreytts íetri.
Eimskipafélagið.
Ársreikningurinn fyrir árið
1917 lagður fram.
Tekjnafgangnr kr. 758,351,81
Ársreikningur Eimskipafélags
íslands hefir nú verið lagður
fram og sýnir hann að félagið
hefir grætt kr. 758,351,81 eða
rúmlega 8/i miijón á árinu 1917.
Innborgað hlutafé er talið kr.
1678,351,53, svo að gróðinn svar-
ar til 45°/c af því og verður það
að teljast glæsileg útkoma. Árið
1916 varð tekjuafgangurinn að-
eins 831 þús. kr.
Af gróðanum koma 390 þús. í
hlut Gullfoss en 315 þús í hlut
Lagarfoss. Landssjóðsstyrk hefir
félagið haft að upphæð 40 þús.
kr. og 12350 kr. hefir það feng-
ið fyrir útgerðarstjórn landssjóðs-
skipanna.
Öll farmgjöld skipanna hafa
orðið rúml. 1773 þús. krónur;
Gullfoss 935 þús. og Lagarfoss
838 þús.
Inneign félagsins í bönkum
og handbært fó var um áramót-
in- kr. 1207,877,81.
Gfarðræktin
á
Glarðskaganuin.
Landsstjórnin réðist í það í
vor, að stofna til garðræktar
í stórum stií suður á Garðskaga.
Og það lán fylgai því fyrirtæki,
að stjórninni hugkvæmdist að
fela einmitt þeim manni fram-
kvæmdirnar, sem til þess var
sjálfkjörinn. En maðurinn er
Einar Helgason, garðræktarráðu-
nautur.
Hefir nú verið unnið þar syð-
ra af miklu kappi í vor. Yerk-
stjóri er þar G-uðmundur Jóns-
son frá Skeljabrekku, afkasta-
maður mikill við vinnu og helj-
armenni að burðum. Hann smal-
-aði fólki til vinnunnar um allan
y:si;i
Ekkert hitunarábald
jafnast við lofthitunarvélarnar amerisku -— það játa
allir er til þekkja. Mó og brúnkolum brenna þær með besta
árangri, svo að enginn móofn getur gert það eins vel. Þær fást
nú á ótrúlega lágu verði, svo að svarar til 4 aura á rúm-
fet bvert er þær hita, hér komnar með öllum kostnaði álögðum.
Pantið nú í tíma! Nánari uppl. veitir
Stefán B. «Fónsson.
Atvinna.
Nokkrir karlmenn óskast til róðra á Bakkafirði í sumar.
Asæt lijör.
Sigurgeir Halldórsson,
Lindargötu 36. Heima kl. 12—2 og 6—8.
Góð atvinna.
Tveir karlmenn og tvær stúlkur geta fengið ágæta atvinnu
eystra í sumar.
Eólkið þarf að fara með Sterling. Fær fría ferð.
A. v. á.
lonungshúsið á i>ingvöllum
verðnr opnað þann 15. jnní.
Yirðingarfyllst.
Guðrún Jónsdóttir.
AAtvirma.
Eg hefi verið beðinn að ráða 2 Q C3L U, gleg
Háseta og í góðan mat-
S "KT © Í ~n til síldveiða í sumar. Lysthafendur gefi sig fram
sem fyrst.
Guðleifur Hjörleií'sson,
Bræðraborgarstíg 4.
ikrifstofuherbergi til leigu.
Tvö góð herbergi í Miðbænum eru til leigu fyrir skrifstofu i'rá
1. júlí þ, á. — Tilboð merkt „A 317“ óskast sent afgr. Vísis.
Stúlka óskast
nú þegar í
elðhnsið á Skjalðbreið.
Borgarfjörð og er nú hérumbil
búinn að rífa sundur allan Garð-
skagann. Hafa kartöflur þegar
verið settar niður í 31 dagslátt-
ur, en auk þess hafa 16 dag-
sláttur lands verið plægðar til
næsta vors. Undrast menn þar
um slóðir mjög hamfarir þessar,
og finst það ekki líkt því að
menskir menn hafi verið þar
einir að verki og engin stjórnar-
handbrögð sjást þar á neinu.
En nú er eftir að vita, hvað
náttúran vill gera fyrir þetta
þarfa fyrirtæki. Yerða menn að
vona hið besta í því efni, úr því
að svo langt er komið án þess
að skakkafallafylgja stjórnarinnar
haíi náð til þess.
I Silki-
| Golftreyjur,
stórn úrvarli
jEgiiiJacobsenj
Lloyd George
fastur f sessi.
Um eitt skeið var haldið að
Lloyd George mundi vera valtur
í forsætisráðherrasætinu hjá Bret-
um. Fyrst var það út af því að
hann hafði fallist á að fela Foeh
hershöfðingja Frakka yfirsfjórn
alls bandamannahersins í Frakk-
landi, en síðan kom ósanninda-
áburður Mauriee hershöfðingja,
sem í öðrum löndum var búist
við að mundi riða honum að
fullu, enda var það þá vitanlegt.
að Asquith fyrv. forsætisráðherra
ætlaði nú að beita sér á móti
honum, en áður hafði hann látið
hann hlutlausan.
Mauriee þessi sakaði þá tvo
ráðherrana, Bonar Law og Lloyd
George um að hafa gefið þinginu
rangar skýrslur, bæði um her-
afla Breta á vesturvígetöðvunum
og í Mesopotamíu og um ákvarð-
anir sambandsherráðsins í Ver-
sailles. Þegar þessi áburður hans
var fyrst gerður að umtalsefni í
þingiuu, var L. G. ekki viðstadd-
ur, en Bonar Law kvað málið
þannig vaxið, að það væri ekkí
hægt að ræða það opinberlega,
en stjórnin mundi vilja ganga
að því, að tveir dómarar yrðu
látnir skoða skjöl þau er málið
snerti og skera úr því, hvort
ráðherrarnir hefðu vitandi gefið
rangar skýrslur.
Á þetta vildi Asquith ekki
fallast. Sagði hann að slík mál
ættu að sjálfsögðu að úrskurðast
af þinginu sjálfu, þvi það væri
þingið sem yrði að fullvissa sig
um að ekkert óhreint væri í því
og rétti sínum til þess að fram-
kvæma rannsóknina mætti það
ekki sleppa úr höndum sér. —
Gerði hann það því að tillögu
sinni, að þriggja manna þing-
nefnd yrði skipuð til þess að
rannsaka málið.
Sú tillaga kom til umræðu
nokkrum dögum síðar, eu nú
kom Lloyd George sjálfur til
skjalanna og var úrslitanna beðið
með mikilli eftirvæntingu, enda
vissu allir, að stjórnarskifti yrðu
að fara fram, ef tillaga Asquiths
yrði samþykt, því að breskum
ráðlierrum þykir ]>að ekki virð-