Vísir - 29.06.1918, Page 4
v * c i 3
Frá landssímanu
Frá 1. júlí næstk. hækka símagjöld innanlands eins og hér segir:
Símskeytagjöld:
10 aurar fyrir orðið og minsta gjald 1 króna; fyrir blaðaskeyti
hálft gjald og minsta gjald 1 króna. Fyrir póstávísanasímskeyti 2
krónur, án tillits til orðafjölda. Fyrir innanbæjarskeyti hálft gjald,
en minst 50 aurar. Viðáukagjald fyrir skrauteyðublöð 50 aurar.
Fyrir afhendingu símskeyta í talsíma 40 aurar fyrir hver 100 orð
sða færri; að öðru leyti óbreytt.
Talsímagjöld:
15 aura gjaldið hækki í 25 aura.
25 — — — - 35
35 — - — - 50
50 — - — - 75
75 — — — - 100
100 — — — - 160
125 - — - 175
150 — - — - 225
Reykjavík 29. júni 1918.
O. Forberg.
•r
Larimanns guílúr
með mjórri gnllfesti, heiir tapast
A. v. á.
* tim •+* 'ié
Ú Bæjarfrétfir,
Afmæli í dag.
yaldímar DaSason, jarðyrkjum.
Stefanía Guömundsdóttir, hfr.
Ölafur G. Eyjólfsson, kaupm.
Eyjólfur Þorkelsson, úrsmiður.
Jakob Björnsson, prestur.
Kristín Einarsdóttir, húsfrú.
Björg Eiríksdóttir, húsfrú.Sauð-
árkróki.
Ólöf Magnúsdóttir, húsfrú.
Peter Petersen, bíóstjóri.
Sigurjón Sigurðsson, trésmiður.
Jósafat Jóhannsson, verkm.-
Sigþrúður Brynjólfsdóttir.
Þórður Pálsson, læknir.
Magnús Andrésson,prestur,Gils-
feakka.
Sigríður Pétursd., ekkja, 80 ára.
Sendinefndin
danska átti fyrsta fund sinn með
íslensku nefndinni í þinghúsinu í
gær, en ekkert sögulegt mun þar
hafa gerst.
Sigurður I.
átti að fara upp í Borgarnes í
gærmorgun, en varð hér veðurtept-
ur.
Borg
fer héðan liklega norður um ann-
að kvöld.
Hjúskapur.
Ungfrá Þórunn Þórey Magn-
úsdóttir og Guðni Pálsson voru
gefin saman í hjónaband 18. þ.
an. af séra Bjarni .Jónssyni,
Höfundur
greinanna um forsætisráðherr-
ann og A.-A. A. hefir beðið
Vísir um rúm fyrir nokkrar at-
hugasemdir við „svar“ ráðherr-
ans og verða þær birtar næstu
daga. ______
Bandaríkiu
og óíriðnrinD.
Það hefir verið búist við því, að
Þjóðverjar myndu koma fram með
ný friðartilboð, en í löndum banda-
manna hefir verið varað mjög mik-
ið við því, að taka nokkurt tillit
til þeirra boða, svo framarlega,
'sem nokkuð bólaði þar á yfirdrotn-
un Þjóðverja. Og nú orðið eru
Bandaríkjamenn ekki sáttfúsari en
hinir.
Lansing, utanríkisráðh. Banda-
ríkjanna, sagði nýlega i ræðu, að
nú, þegar hin stórkostlegasta styrj-
öld, sem sögur færu af, væri hafin-
þá gengi þaö glæpi næst, að horfa
rm öxl. Hann kvaðst miklast af
bví, að vera i bandalagi við þjóð-
ir, sem hötuðu hinn prússneska
hugsunarhátt. Prússar hefðu á
glæpsamlegan hátt komið ófriðn-
'um af stað, og nú skyldu þeir fá
aö eiga í ófriði þangað til þeir
heföu fengið nóg af honum og ó-
friður væri orðinn prússneskum
hugsunarhætti viðurstyggilegur.
„Sigurinn blasir við oss,“ sagöi
hann, „og að baki þeim sigri er
réttlátur og var^íleg-ur friður. Fyr
en sá friður er fenginn, vill Ame-
ríka ekki sliðra sverðið og getur
það ekki.“
Sildveiði. Nokkra vana og duglega menn ræð jeg í síldarfiskirí. Góð kjör. Guimar Ólafsson Yesturgötu 37. Heima 6—7. | KAUPSKAPUB 1
K V R selur ív. V. íi. j[s], sokka og vetiinga, 43
Morgunkjólar úr afargóðu tvist- taui, fást í Lækjargötu 12 A. [28
Reiðbjól. óskast í skiftum fyrir gramofon A.v.á. [290
Jarpnr hetinr með marki sneitt aftan, biti fram- an hægra og blaðstíft aftan vinstra hefir fundist. Yitjist til lögreglu Reykjavíkur. Beislisstaagir úr silfri og nikkeli; einnig beisl- iskeðjur í stóru úrvali nýkomið> í Söðlasmíðabúðina Laugaveg 18 B. Sími 646. [423
Til sölu 8 varpbænur og 1 hani af góðu kyni. Klöpp við Klappastíg, hjá Yölundi. [432
Kartöflur Ef þið viljið fá óskemdarkart- öflur, þá komið í versl. Vísir. Dansk-íslenska orðabók kaupir Guðm. Davíðsson, Frakkastig 12 [454
Kniplingar til sölu. A.v.á,[442
Til sölu hæna með 8 ungum, fatnaðir og stígvél í bakhúsinu á Kárastöðum. [455
Nýkomið: Tanskór (gnmmisólar), Strigaskór, Leikfimisskór, Tnristaskór, Brnnir skór. Vöruhúsið. • Kýr óskast keypt í Kópavogi [449
Kvensundbolur og sundhetta til sölu með tækifærisverði í Bergstaðastr. 3. [452
Kvenreiðhjól til sölu á Grettis* götu 44 uppi. [447
VÍNNA
VÁTRTGGIN6AR
1
A. V. T u 1 i n i u s.
Brunatryggingar,
sæ- og stríðsvátryggingar.
Bókhlöðustíg 8. — Talsími 254.
Skrifstofutími kl. 10-11 og 12-2.
n
HUSNÆÐl
-búð, 2=r3 herbergi óskast 1.
okt. Þorst. Sigurgeirsson hjá
Timbur- og kolaversl. Símar
238 og 68 [436
Góð stóí stofa, og eldhús eða
ítök í eldhúsi, óska barnlaus
hjón eftir, I okt. Má einnig vera
stærri íbúð. A.v.á. [428
Stofa með sérinngaugi og
húsgögnum til leigu. Uppl. á
Lindargötu 32, kl. 6^-7. [453
Duglegur og ábyggilegur
drengur, 12—14 ára eða eldri„
óskast fyrir smala að Bæ í
Hrútafirði góð kjör í boði. Nán-
ari uppl. hjá Ól. Oddsyni, ljds-
myndara. [421
Kaupakona vantar; getur feng-
ið vinnuna strax. Uppl. Njálsg,
52. Sími 467. [438
Kaupakona óskast á gott-
heimili i Húnavatnssýslu. Góð
kjör. Uppl. á Lináarg. 10A. [431
Stúlka óskast hálfan eða all-
ann daginn. Uppl. Templara-
sundi 3. [443
Kaupakona óskast á gott
sveitaheimili. Uppl. á Yesturg.
35. (450
Stúlka óskast í ágæta vist í
bænum í góðu húsi. Uppl. gef-
ur Kristín J. Hagbarð, Lauga-
veg 26. [451
Telpa 12—14 ára óskast helst
strax. A.v,á. [446
Herbergi til leigu fyrir ein-
hleypan reglumann. A v.á. [441
Herbergi ávalt til Ieigu fyrir
ferðafólk á Spítalastig 9. [456
Pakki tekicn í misgripum í
misgripum í búð Lárusar G.
Lúðvigssonar. Skilist á No^ður-
stíg 3. ’ [445
ísaumaðir fingravetlingar töp-
uðust sunnud. 23. þ.m. í holtinu
við Óðinsgötu. Skilist gegn fund-
arlaunum á Óðinsgötu 13. [444
Gullnál með gulum steini
tapaðist 17. júní. Uppl. Austur-
stræti 6 uppi. [448
FélagsprentMmtíjan.
/