Vísir - 15.11.1918, Page 1
FREGNMIÐI
FRÁ DAGBLÖÐUNUM
-- 15. nóv. 1918.
Ný|a þýska stjórnlu.
Hún afneltar
„ bolscL e visinan um “.
í ensku loflskeyti frá 13, ]). m,
er sagt frá því, að jafnaðarmanna-
flokkarnir þýsku (meirihlutaflokk-
urinn og nokkur óháðra jafnað-
nrmanna) hafi f sameiningu rnynd-
aS nýja stjórn undir forustu Haase
(úr flokki óháðra) og Ebert- (úr
fl mhl) Auk þessara tveggja
manna eru i stjórninni: Dittmann
og Barth úr tlokki óliáðra og
Scheidemann og Landsberg úr
meirihlutaflokknum.
Ebert befir skýrt frá því, að
fyrsta verk bráðabirgðastjórnar-
innar hafi verið að samþykkja
vopnahlésskilmálana, en því næst
fari hún að vinna að friðarsamn-
ingum og taka alla stjórn rík-
isins í sínar hendur.
I málgögnum stjórnarinnar er
því lýst yfir, að „bolchevisminn“
eigi enga flokksmenn í Þýska-
Inndi og heldur ekki innan stjórn-
arinnar.
Þjóðverjar vilja hraða
íriðarsarnuiuyunum.
Hungursneyð yflrvofandi
Dr, Solf, (fyrv.) utanríkisráð-
berra Þjóðverja, hefir sent Wil-
son Bandaríkjoforseta þráðlaust
skeyti og skorað á hann að flýta
þvl sem mest, að friðarsamning-
ar verði byrjaðir, vegna þess að
hungursneyð sé yfirvofandi í Þýska-
landi. Hann væntir þess að Þjóð
verjar geti komist að hráðabirgða
friðarsamningum.
Eámenar hafa á uý sagt
Þjóðverjum strið á hendur.
í ensku loflskeyti frá 14. nóv.
er það liaft eftir þýzka blaðinu
„Frankfurter Zeitung“, að Rúm-
enar hafi nú aftur sagt Þjóðverj-
um strfð á hendur.
Her bandamanna var kominn
inn í Rúmeniu áður en vopnahléð
komst á, en siðan hafa engin
vopnaviðskifti orðið þar.
Þýski rikiseriingiuu er
enn á lifi.
í ensku loftskeyti frá 13. þ. m#
var það talið vafalítið, að þýsk i
ríkiseríinginn hefði verið drepinn ,
en í skeyti frá 14. er það aftur
fullyrt, að hann sé á lífi, en eng.
inn viti hvar hann sé.
Frakkar í Elsass-Lotkrinyen
í jandskapast við þýska heriuu.
1 ensku loftskeyli frá 13. nóv
er sagt frá því, að þýska her.
stjórnin hafi sent Frökkum svo-
hljóðandi loftskeyti:
Franskir íbúar í Elsass-Lothring.
en sýna þýska hernum, sem þar
fer um, fjandskap í ýmsumgrein-
urn. Til þess að komast hjá vand-
rœðum. mælumst vér tit þess, að
franska stjórnin skori á íbúana að
forðast öll illindi.
Matvælaúthiutuu Bandaríkj-
anna.
j. frönsku loftskeyti frá 14. nóv.
er skýrt frá því, að Hoover, mat-
vælaráðherra Bandarikjanna, liafi
lýst því yfir í ávarpi til þjóðar-
innar. að nauðsynlegt sé enn og
verði framvegis að spara alt feit-
meti og liveiti, til þess að geta
hjálpað Norðurálfubúum.
Iloover fer lil Norðurálfunnar
næstu daga.
Belgakonnngur kominu aftur
til Bryssel.
I ensku loftskeyti frá 14. nóv.
er sagt frá því, að Albert Belga-
konungur sé væntanlegur til Brys-
sel, höfuðhorgarinnar í Belgíu, í
dag.
Serbía hiu mikia.
Fulltrúar Serba, Króala og
Suður-Slava hafa átl fund með
sér í Genf í Sviss undanfarna
daga. Hafa þeir samþykt að sam-
eina lönd sín í eitt sambandsriki
og kosið því sameiginlega bráða*
birgðastjórn, sem á að fara með
utanríkísmál jieirra og önnur sam*
eiginleg mál, þangað til reglulegt
fulltrúaþing verður kvatt saman.
niiígið hljóðlega um í hús*
unum og segið sjúklingum ekki
slæmar fréttir, reynslan sýnir að
þeim þyngir af því.
Klukknnni verður seink*
að um einn klukkutíma i kvöld
um miðnœtli. — Lögreglustjóri.
Næturlækuir
er í Brunastöðinni frá 10 að
kveldi til 8 að morgni,
u/n Hjúkrunarnefndin.
Daglæknir
er í Brunastöðinni.
u,')i Hjúkrunarnefndin,
Mannhjálp
karla og sérstaklega kvenna óskast,
Borgun ef krafist er.
u/n Hjúkrunarnefndin.
Hvar
er ósjúka skólafólkið ? ?
14 íi Hjúkrunarnefndin.
Yfirsetukonur
vantar i Brunastöðina.
Góð borgun. — Bíll.
u/u Hjúkrunarnefndin.
Bilar
óskast með bíistjól'Ulu.
14/u Hjúkrunarnefndin.
Matur
fæst ókeypis
1, í eldhúsi Baruaskólaus
(hafraseyði).
2, hjá Tómasi Jónssyni Lvg. 2
(mjólkurvellingur).
u/u Hjúkrunarnefndin.
Steinolía
fæsl i Sleinolmfélagsskúrnum við
Amtmannsstig.
34/u Hjúkrunarnefndin.
Félagsprentsmiðjan.
Hjúkrnnaruefadin.
Sími 530: L. H. Bjaruasou.
— 225: Hjúkruuarstofau.