Vísir - 02.10.1922, Page 5

Vísir - 02.10.1922, Page 5
2. oEtölsér 1922. ' sslRii r Að fjalla baki. (Úr dag'bók Nafnlausafélagsins). —O—■ Norðanstormur hristi tjaldið svo að súlurnar svignuðu og hrikti i strengjunum. Vindurinn þaut í tjaldskörinni með miklum látum, svo að prímusinn með grautarpoftinn á herðunum, átti stundum ilt með að ná andanum. petta var snemma morguns. Um afturelding höfðum við skreiðst út á fjórum fóturr, með svefninn í augunum, lil þess að sjá til veðurs. Kveldið áður var bjart veður og kuldalegt. Milli Heklu og Búrfells var himininn stálblár með rauðum gárum. pað var kuldi. Enda kom þá norðanvindurinn ískaldur innan að frá Búrrelli og þaut í svipum yfir hraunin og sandana og niðut á Landið. . . Nú vorum við í túnjaðnnum i Galtalæk og skulfum okkur ti! hita. Loftið var fult af dökkum skýjum og svörtust voru þau í kring um Heklu. Stormurinn kom enn þjót- andi ofan úr óbygðinni, en ekki eins kaldur og kveldið áður. En rigning og slagviðri sýndist vera í aðsigi. Otlitið var því ekki beint örf- andi til þess að leggja af stað inn í gróðurlausustu óbygðir landsins. prátt fyrir það vorum við í góðu skapi og á ferðalagi er gott skap meira virði en gott veður. Við hirtum ekkert um að ryðja tjaldið. par lá alt hvað innan um annað, bakpokar, vatnskápur, strigapokar, þverbakstöskur, teppi, matreiðslutæki og matvæli. Við sett- umst í sitt hvert horn á tjaldinu, dróg- um undir okkur fæturna og hlustuð- um á suðuna í prímusnum, sem eld- aði undir grautarpottinum. Við reyktum pípur okkar af hinni mestu ró og sögðum fátt. Við vorum ó- þvegnir og stirðir í andiliti og hárið lá eins og náttúran sjálf hafði greitt okkur. Við vorum samt ár.ægðir með lífið og sjálfa okkur og gerðum ekki hærri kröfur en það, að mega vera í næði. Og ekkert næði jafn- ast á- við það að lifa í áhyggju- leysi og án tillits til annara en sjálfs sín. pegar okkur varði síst, vár tjald- skörin dregin til hliðar og inn kom höfuðið á Ólafi í Austvaðsholti „Jæja, clrengir, hestarnir eru komn- ir, ættum við ekki að fara að síga það?“ Við vildum ógjarnan bregða værð okkar og báðum hann koma inn. Eftir nokkra stund var matur framreiddur, og að því loke.u var öllu kastað út úr tjaldinu. Farang- urinn komst smátt og smátt í lag og hvarf ofan í töskurnar, það sem þar gat verið. Að lokum var alt bundið upp á hestana. Við lögðum af stað og héldum sem leið lá inn undir Búrfell. Vegurinn er varðaður frá Galt%fæk og alla leið niður í Skapt- ártungur, bak við Heklu. Vörð- urnar eru ekki hlaðnar úr grjóti, eins og tíðkast, heldur er í þeir.a stað” staurar, reknir niður eða festir með grjóti. Ei* fjöl negld þvert á þá ofarlega, og eru á hana rituð tölu röð hverrar vörðu. pær eru alls 798. Vörðurnar standa allþétt. pær eru að vísu víða fallnar og flestar þann- ig, að staurarnir hafa sorfist sundur feti ofar jörðu. Vörðunum bregður stundum fyr- ir eins og krossum og fékk eg ósjálf- rátt ímugust á þeim fyrir þá sök. En alt af kom það illa við mig, er eg sá fallna vörðu með andhtið í sandinum. Mér fanst það vera eins og hermaður fallinn á verði, er mér bæri að votta virðingu mína Vegurinn upp af Galtalæk ligg- ur yfir sandorpið hraun. En af því taka við Rjúpnavellir. peir eru slétt- ir, grösugir og talsvert skógi vaxnir. Líklega eru þar eftirstöðvar af stóru skóglendi, sem þakið hefir landið við fætur Heklu áður en eldur, ösku- Raluriuapspefir Viö höfom lækkaö yerðiö á hiaum ágætu, viðurkeadu rafur- magasperum ofekar niðnr í kr> 150 pr. stk. Þetta er ábyggilega lægsta verö í banuxn. fall og sandfok lögðu það undir áig. Hér var einu sinni kostamikil jörð. Nú eru að eins reitir, hér og þar, sem standa grænir innan um hraun- ið og sandinn. pað er kjarni í þess- um smáskorna gróðri sem haldist hefir við og grænkað á hverju vori, þótt umkringdur sé af ómildri nátt- úru, sem gerir honum erfitt að lifa og dregur úr vextinum. En náttúr- an tekur aldrei syo, að hún gefi ekki eitthvað í staðinn. pau grös, sem eiga erfiðast uppdráttar, standa lengst græn. pegar komið er inn undir Búr- fell taka við melar, sem ná milli pjórsár og Rangár ytri. par heitir Kjallakstungur og tekur þar við af- réttur Landmanna. Er hann afgirt- ur þar á milli ánna. par sem girð- ingin nemur við pjórsá, er áin breið mjög og vatnsmikil. Veltist hún, þar fram leirgrá og ólgandi og eru klappir sitt hvoru megin. Tvær tröll- stiklur skifta henni í þrent og er þar breiður foss og alleinkennileg- ur. Hann er ekki hár en svo vatns- mikill og ólmlegur, að mörgum mundi finnast Gullfoss barnaleikur hjá honum. (Frt.) Notlð aðeins (slenskar vörnr. Hinar haldgóðu Trawl D O P P U R úr Álafoss-dúk. Trawl B U X U R úr Ála- foss-dúk, sem hafa rutt út úr land- inu allri erlendri vöru af sömu gerð vegna slvrkleika síns og ódýrleika. Bestu lilífðarföt fyrir sjó- menn og verkamenn. Fást ódýrast hjá Sigurjón Pétursson & Co. Hafnarstræti 18. Tryggið yður i eintak af BJARNARGREIFUNUM í tíma. Guðjón ó. Guðjónsson. Sími 200. KAUPIÐ ekki annað hjólhestagúmmí en EXCELSIOR. Dekk frá 8—20 kr. og slougur frá 3—6 kr. ásett. SÍGURpÓR JÓNSSON, Sírni 341. Aðalstræti 9, SkólatnaOttr. Best úrval af kven-, karlmanna- °g drengjastígvélum. Svembjðrn Árnason Laugaveg 2. Skift um hlutverk. 29 fyrir mér nýr kapítuli í þeirri sögu, sem eg hafði byrjað aftan á. — Vildi hann giftast yður? -Já. — Og vilduð þér ekki eiga hann. — Nei, sagði hún rólega. Og eg er hrædd um, að foreldrar hans fyrirgefi mér það aldrei, að minsta kosti ekki móðir hans. Engin móðir getur fyrirgefið þeirri stúlku, sem hryggbrýtur son henn- ar, enda þótt hún hefði síst af öllu viljað að hann gengi að eiga þá stúlku. — pað nær ekki nokkurri átt, mælti eg, jafn- vel þótt lafði Meredith eigi í hlut. Hverni& í ó- sköpunum áttuð þér að geta fengið af yður að giftast honum, þegar yður þótti ekki vænt um hann? — Góða mín, mælti hún og rak upp einkenni- legan hlátur. Sannleikurinn er sá, að — — — í sama bili kom afgreiðslustúlka til okkar, og spurði brosandi, hvers við óskuðum. Sýnið þér mer rúskinnsskó, mælti Philipþa. Nei hatta — auðvitað voru það hattar sem eg vildi fá að sjá, litla hatta, sem falla vel að liöfð- inu, og helst ef þeir væru úr svörtu flaueli. pegar stúlkan var farin mælti Philippa: — Eg verð að reyna að skýra yður frá öllu áður en þær mamma og lafði Meredith koma. Eg vil, að þér fáið að vita hvernig í öllu liggur, og að eg er ekki eins slæm og yður hefir verið sagt. pað er ekki satt, að eg hafi gefið honum undir fótinn íOg síðan alt í einu snúið við honum bakinu af því að eg sé dutlungafull og tilfinningalaús. Sann- leikurinn er sá, að homtm þótti ekki nógu vænl mn rnig. Eg horfði /undrandi á hana og mælti: — Hví skyldi honum ekki hafa þótt vænt um yður? Af hverju dragið þér þessa ályktun? Hún ypti öxium: — Honum þótti ekki vænt um mig — ekki frekar en um móður mína. Hann gat aldrei fallist á lífsskoðanir mínar. Eg er ekki vön því, að vefja alt í gullslit eins og móðir hans. í þessu kom afgreiðslustúlkan aftur og setti hatt á höfuð Philippu. — Er hann ekki ljómandi, Mademóiselle. Hann fer Mademoiselle alveg framúrskarandi----------- — Já, það er gott. Hvað kostar hann? Eg kaupi hann, sagði Philippa og leit naumast í spegil. Svo sagði hún við mig: — Georg var í raun- inni ákaflega afturhaldssamur. • T. d. skifti hann öllu kvenfólki í tvo flokka. I öðrum flokknum voru konur eins og móðir hans, blíðar og ljúfar, er taka öllu því sem að höndum ber í lífinu eins og sjálf- sögðu og kemur aldrei til hugar að hafa aðra skoðun en'menn þeirra hafa. Og í hinum flokkn- um voru konur eins og þessi þarna. Hún bandaði með höfðinu í áttina til frönsku leikmeyjarinnar, sem hallaðist upp að brjósti Ame- ríkumannsins til þess að láta hann kaupa dýrara höfuðfat handa sér heldur en Ijaim ætlaði. — Já, hann skifti konunum í tvo flokka: kon- ur, sem hægt er að giftast og konur, sem hafðar eru til að skemta séí við. En kæmi það svo fyrir að þessi skoðun gæti ekki staðist, þá gerði það hann alveg ruglaðan. Hann gat alls eigi trúað því, að leikkona gæti orðið ágæt eiginkona og húsmóður, og hann gat alls eigi felt sig við konur af sinni stétt ef þær höfðu ekki nákvæmlega sömu skoðanir og óluú brjósti sömu hleypidómana og hann hafði drukkið í sig með móðurmjólkinni. Afgreiðslustúlkunni var það augsýnilega ráð- gáta hvernig á því gat staðið, að þessar tvær ensku stúlkur skyldu ekki hafa meiri áhuga fyrir jafn vandasömu verþi og því að velja sér hatta. Hún kom með ótal tegundir, en Philippa leit ekki við þeim og hélt áfram samræðu sinni við mig. — George hæfði alls ekki slík kona og eg er. Hann fann að eg var hugsandi kona. Og það er ungri stúlku ófyrirgefanlegt. Karlmenn halda að það sé hin mesta blessun fyrir þá sjálfa, ef konur þeirra eru fáfróðar. Hann hélt að eg væri skap- hörð, og honum gramdist það. Ekki mundi hann hafa beðið yðar ef þetta væri rétt. Svo. Jú, þetta var byrjunin. pað byrjaði þannig að við fórum að þræta um alt milli himins og jarðar þangað til við urðum bæði reið. Og þegar þannig er ástatt milli pilts og stúlku, þá endar það altaf með bónorði. Svo rak að því að við George þráttuðum svo ákaft og skömmuðumst svo mjög að við vorum nærri því neydd til að trúlofast. En eg vissi að það mundi aldrei geta blessast, enda þott hann héldi það. Hann vildi giftast mér bara af þrjósku. En það hefði verið hin herfilegasta viíla, og eg sagði honum það. — Hvernig tók hann því, spurði eg og mér varð ósjálfrátt að hugsa um Reggie Penmore og bónorð hans. — Hann varð reiður, auðvitað. Mjög reiður. Hann sagðist skyldu fara burtu og giftast þeirri fyrstu konu, sem hann rækist á og sér virtist svo þæg, að ekki væri vandfarið méð hana. Já, einmitt það, var hið eina, sem eg gat sagt. —- pér hafið auðvitað frétt eitthvað um þetta, frú George, mælti Philippa. En eg verð að segja það, að George hefir verið heppinn í „vali“ sínu með þæga stúlku. pegar eg frétti að hann hefði gifst leikmeyju, þá hélt eg satt að segja að hún væri af alt öðru bergi brotin. pér eruð líklega ein af þessum varaskeifum, sem svo eru kallaðar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.