Vísir - 27.11.1922, Blaðsíða 3

Vísir - 27.11.1922, Blaðsíða 3
0lfi«3i Lífstykki i mikln úrvali, sérlega vömluð. VersL GULLFOSS, Aasturstræti. Jjölbreytt úrvel af: Smekbiegum og vöndaðum LEÐURV0RUM Hentugar Jóla- og tækifæris-gjafir fyrir karla og konur eldri sem yngri. Zarlakór K. F. U. M, andurtekur söngskemtun sína í BárubúS þriðjudaginn 28. þ. m. kl. 9 síðdegis. Aðgöngumiðar fást í Bókaverslun Reynið rafurmagnspernrn- ar frá okknr. Þær kosta Iriðjnngi minna en hjá öðr- nm. Gæði þessarar vörn leggjnm víð óhræddir nndlr <dóm almennlngs. L&tiðreynsl- ma skera úr, því að hún er sannleiknr. lelgi Magnússon & Co. iægst fyrir vestan og norðan land. Hæg suðlæg átt. Horfur: Vestlæg . átt. Óstöðugt veður. Vatnsveitan. A bæjarstjórnarfundi á laugar- daginn var sam]?ykt að leggja vatns- veituna samkvæmt tillögu vatns- nefndar og að fela nefndinni allar framkvæmdir. Jafnaðarmenn vildu láta kjósa nýja fimm manna nef.nd, til að sjá um framkvæmd verksins, Sigf. Eymundssonar og ísafoldar. en sú tillaga var feld með 8 atkv. gegn 4, en vatnsnefndarmenn greiddu ekki atkvæði. Önnur tillaga frá jafnaðarmönnum, um að láta byrja á verkinu J>egar í stað, var 03 feld, með svipuðum atkvæðamun. porsteinn Björnsson, frá Bæ, endurtók í gær fyrirlest- ur sinn um íslendinga í Vesturheimi. Áheyrendur voru margir og sagðist ræðumanni vel. Fundur verður haldinn í verslunarmanna- félaginu Merkúr kl. 8 [/2 í kvöld í Iðnaðarmannahúsinu, uppi. Silfurbrúðkaupsdag eiga í dag hjónin Rósa Krist- jánsdóttir og Kristján Guðmunds- son, Skólavörðustíg 11 B. Sjötiu ára afmæli átti í gær, 26. nóvember, Stein- dór Guðmundsson á Bjargi við Sel- landsstíg. Hvar íæst atrauað hálilln, hart og gljáandi sem gler? Á Grettisgötn 24. Til rússnesl(u barnanna. Frá óskírðum dreng 1 kr. Frá E. E. 5 kr. Karlakór K. F. U. M. endurtekur söngskemtun sína í Bárubúð þriðjudaginn 28. þ. m. kl. 9 síðdegis. Björgunarbáturinn. Fyrir eitthva'S um 12 árum síöan gengust nokkrir framtakssamir menn hér í Reykjavík fyrir fjár- söfnun til fyrirhugaöra kaupa á björgunarbát, vegna hinna tíöu og sorglegu mannskaöa, sem þá aö undanförnu heföu orðið, Eftir þyí, sem eg hefi heyrt, gáfu margir menn hér í Rvík og suður með sjó talsvert fé í þessu augnamiði, en hafa því miður enn ekki séð neinn árangur af þeirri fjársöfnun. Mundi ekki „Vísir“ vilja, eða hlut- aðeigandi menn, sem fyrir þess- ari fjársöfnun gengust, gefa mér og öðrum sjómönnum upplýsing- ar um, hvers vegna þetta þarfa íyrirhugaða fyrirtæki hefir verið dregið svo mjög á langinn. Rvík, 30. okt. '22. Sjómaður. Af vangá liefir dregist að birta fyrirspurn þessa. Vísir getur ekki svarað henni; honum er með öllu Páiíoa Breidfjörö. Hangið kjðf 1 kr. % kg., saltkjöt, nýtt kjöt, isl. smjör, smjörliki, ostar, reyktur lax, hákarl, riklingur, sardinur, fiskahollur o. m. fl. pessar vörur er langódýrastar í Versl. Þjótandi Lindargötu 43. Eaupið og nottð aðeins ísienskar vörur, „ALAPOBS1' útsalaoi nutt í Nýhöfn. ókhnnugt um málið. En vafalaust gera þeir, sem fyrir fjársöfnuninni gengust, fúslega grein fyrir fram- kvæmdum sínum. , 'ðktft um hlutrerk. 58 •iiær má eg koma ? Viljið þér ekki snæða mið- ■degisverð hjá mér? — Nei, nei, eg verð ekki tilbúin þá — þakka yður fyrir. pér verðið heldur að hitta mig seinna ii kvöld. — Getum við ekki hist fyr? spurði hann. Má eg ekki koma aftur klukkan þrjú? — Nei, það er of snemt. Ekki fyr en klukkan fimm. — Jú, segjum heldur klukkan fjögur. Eg kem aftur klukkan fjögur og bíð yðar hér. — Eg lofa engu um það að vera heima þá, ■mælti eg og flýtti mér að talsímanum. Til allrar hamingju svaraði Philippa sjálf: — Jú, það er ungfrú Tracey. Er það frú George? — Nei, nei, — það er eg — Rósa. Eg þarf endilega að finna yður undir eins, Philippa, mælti sg. Eg hét yður því, að trúa yður fyrir leyndav- máli, og nú get eg sagt yður helmingi meira en eg bjóst við. Hvar getum við hist? Við komum okkur saman um það, en Philippa sagðist eiga svo annríkt, að hún gæti ekki veríö lengur með mér en hálfa stund. Hún kvaðst þurfa að fara víða um borgina. Sagðist hún ætla að fara í vagni og taka mig í leiðinni. Við gætum svo talað saman í vagninum. Hún kom í vagni, eins og hún hafði sagt, og eg steig upp í hann eins og í leiðslu. Svo ókurn vúð á stað, en það má hamingjan yita, hvert við íórum. Eg hygg, að við höfum ekið fram og aítur um sömu göturnar, því að þrátt fyrir orðastraum minn heyrði eg Philippu segja hvað eftir annað við ökumann: — Snúið við og akið sömu leið að sigurboganum.------------Snúið aftur við.--------- Eg veit ekki hvernig fór um alt það, er hún þurfti að gera. Eg hygg að hún hafi gleymt því undir eins og eg hafði sagt tvær eða þrjár setn- ingar: — Alt er komið í lag. Hann er frjáls! Georg er frjáls .... , Philippa mælti mjög rólega: — Verið ekki svona æst, Rósa. Berið ekki svo ört á. Eg skildi ekki hvað þér sögðuð. '— pá skal eg segja yður það með skýrari orðum, mælti eg titrandi af geðshræringu. — Georg er ekki giftur. Hún Ieit einkennilega til mín t>g eg vissi óðara hvað það þýddi og varð þá undir eins róleg. — Nei, eg er ekki gengin af vitinu. Georg mun bráð- um skýra yður sjálfur frá því, hvernig í öllu ligg- ur. J?að er satt, sem eg segi. Hann er ekki giftur — hann er frjáls. — Er það satt? mælti Philippa lágt. Ætlið þér að skilja við hann? — Skilja við hann, hrópaði eg. Hvernig ætti eg að skilja við mann, sem eg hefi aldrei verið gift? pá sneri Philippa sér alveg að mér og nú dundu yfir mig spurningar: — Hefir Georg haft okkur fyrir fífl, eða hvað? Vita foreldrar hans þetta? Hvers vegna hefir hann látið stm hann væri kvæntur? — Foreldrar hans vita ekkert enn. En hann hélt sjálfur, að hann væri kvæntur. Hann vissi ekki, að brúður hans var gift áður. — Gift áður, endurtók hún reiðulega. Voruð þér gift áður? — Nei, nei, mælti eg og svo sagði eg henni alla söguna. Hún greip aldrei fram í fyrir mér en hlustaði á mig með athygli. pegar eg sagði henni frá fyrstti samfundum okkar George í Ritz, mælti hún með viðkvæmni: — Auminginn, ósköp hafið þér átt bágt. — Já, enginn vildi trúa mér og enginn trúði mér — nema þér. — Auðvitað trúi eg yður, sagði hún. Ef þér færuð með skröksögu, munduð þér hafa gert hana sennilegri. Satt að segja hefir mig oft furðað á því, hvernig þér eruð. Ekkert af því, sem sagt hefir verið um konu Georges átti við yður. pér hafið ekki á yður neitt leikkonusnið. Síðan fór hún að spyrja mig um Georg, hvað hann hefði sagt og gert meðan hann var nauð- beygður til að leika á foreldra sína og láta sem hann væri maðurinn minn. — Eg hefði haft gaman af að sjá framan i hann, mælti hún og hló ofurlítið. Hvað kallaði hann yður, Rósu? — Já, stundum, þegar foreldrar hans voru við. — pað hefir nú líklega ekki verið oft. Og hanrt var ekki sérlega þýðlegur við yður upp á síðkastið. Eg skil nú samt ekkert í því, bætti hún við hugs- andi..

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.