Alþýðublaðið - 05.05.1920, Síða 1

Alþýðublaðið - 05.05.1920, Síða 1
Alþýðublaðið Greíið út af A.lþýðiiflokknum. 1920 Miðvikudaginn 5. maí 100. tölubl. Alþbl. er blað allrar alþýða! fú sambanðsríkimi. Khöfn, 3. m»í. Danska sjómannaverkfailinu heldur áfram. Sjótnannaverkfallinu heldur á- íram. Ekkest útlit fyrir að því létti af. Hýja ráðuneytið i Danmörku. Christensen faerðist undan að mynda ráðuneyti sökum heilsubil- unar. Konungurinn hefir i dag beðið Neergaard að œynda ráða- aeyti. Christensen verður kirkju- uiála (og kenslumála) ráðherra. Friður við Ungverja. Khöfn, 3. maí. Frá París er símað, að sendi- aefnd Ungverja verði fengið upp- kast að friðarsamningum 6 maf. Fái Ungverjar 10 daga frest tii svars. Verkföll. Khöfn, 3. maí. Frá París er sfaað, að ýmsum verkföllum, sem voru hafin I. maf, iialdi áfram. Framrás Pólverja. Khöfn, 3. maf. Frá París er sfmað, að Pólverj- ar hafi f gær (2. maf) haldið inn * Kieff. jjorgarstjórakosnmgin. „Spekúlanta“ viljum vér enga hafa! Sfðast er eg ritaði hér í blaðið um borgarstjórakosninguna, faerði eg fram dæmi um framkvæmda- semi Knúts. Dæmið var af ásettu ráði tekið af pví, sem IítUfjörleg- ast má teljast í óstjórn þeirri, sem átt hefir sér stað í framkvæmdum bæjarins upp á síðkastið En ein- mitt það, hve vanrækslan á þessu sviði er í sjálfu sér smávægileg, hjá mörgu öðru, þá er deginum Ijósara, að því auðveidara hefði verið fyrir Knút að láta hana aldrei eiga sér stað. Margt smátt gerir eitt stórt, og smáyfirsjónir borgarstjóra ættu einar að nægja til þess, að engum heiðvirðum manni, sem áhuga hefir á velferð bæjarins, ætti að koma til hugar að styðja Knút til borgarstjóra í annað sinn. Einmitt dæmið um Austurvöll sýnir svo Ijóslega búhyggju- og framkvæmdarsemisskort borgar- stjóra, og það af þeirri ástæðu, hve auðvelt hefði verið að fram- kvæma það verk, sem bæjar- stjórnin í þessu falli fól honurn. Af verkunum skuluð þér þekkja þá. / Því miður hefir Knútur stærri syndir á borgarstjórasamvizku sinni en Austurvöll. Og er sú stærsta, sem er opinbert leyndarmál, af- skifti hans at Helga Magnússyni & Co. Öllum hlýtur • að vera það Ijóst, hve fjarri það er öllu lagi, að æðsti starfsmaður bæjarins og framkvæmdarstjóri hans skuli vera kluthafi í fyrirtæki, sem einna mest viðskifti hefir við bæinn. Slíkt lfðst hvergi, ekki einu sinni í Ameríku, nú orðið, jafnvel þó það um eitt skeið væri þar alsiða, meðan óstjórnin og íégræðgin var algerlega látin leika lausum hala. Þeir munu fáir, sem geta stað- ist freistinguna, að vera hliðhollir sínu .firma*', þegar um gróðavon er að ræða, hversu samviakusamir sem þeir annars kunna að vera. En eins og menn vita, er Knútur talinn mjög duglegur maður, og er það líka, þegar „fósturbörnin" hans eiga í hlut. Þegar bærinn þarf að láta gera eitthvað, t. d. leggja holræsi, gas- pípur eða reisa timburhús, — er þá nokkuð eðlilegra, en að borg- arstjóri, sam á í félögum, sem verzla með það, sem til þessa þarf, gefi þeim bendingu um hitt og annað, sem öðrum ekki verður Ijóst? Lengi frestinn, sem settur er á útboðunum, eða eitthvað annað, sem hans „firma" getur komið vel? Hvað sem þessu Ifður, þá vita allir að félög þau, er Knud Zim- sen er hluthafi í, hafa orðið hlut- skörpust, á einn eða annan hátt, þegar bærinn hefir boðið út verk, sem þau gátu leyst af hendi. Grunsamlegt er nú þaðl En eng- um dettur í hug að væna Knút um sérdrægni. Hann gerir það, sem bænum er fyrir beztu! Engin hætta. Óg hver er sjálfum sér næstur. Því skyldi hann vera að taka aðra fram yfir H. M. & Co. ? Hann getur bezt séð um að fé- lögin sín „snuði" ekki bæinnl En sem sé, allra hluta vegna, væri heppiiegast, að borgarstjórí væri ekki bundinn neinum skyld- um eða samgróðaböndum við gróðafélög, því ilt er að treysta ágirnd manna. Þess vegna kjósa alþýðumenn Sig Eggerz, að hann er laus við slfk bönd. Því spekú- lanta viljuni vér enga hafa! Kvásir. Landveg að norðan koma þeir Páll Einarsson hæstaréttardómari, Aage Schiött og Richard Beck mentaskólanemar. Þeir lögðu af stað ríðandi sl. föstudag frá Ak- ureyri.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.