Alþýðublaðið - 05.05.1920, Qupperneq 1
Alþýðublaðið
Greíið út af A.lþýðiiflokknum.
1920
Miðvikudaginn 5. maí
100. tölubl.
Alþbl. er blað allrar alþýða!
fú sambanðsríkimi.
Khöfn, 3. m»í.
Danska sjómannaverkfailinu
heldur áfram.
Sjótnannaverkfallinu heldur á-
íram. Ekkest útlit fyrir að því
létti af.
Hýja ráðuneytið i Danmörku.
Christensen faerðist undan að
mynda ráðuneyti sökum heilsubil-
unar. Konungurinn hefir i dag
beðið Neergaard að œynda ráða-
aeyti. Christensen verður kirkju-
uiála (og kenslumála) ráðherra.
Friður við Ungverja.
Khöfn, 3. maí.
Frá París er símað, að sendi-
aefnd Ungverja verði fengið upp-
kast að friðarsamningum 6 maf.
Fái Ungverjar 10 daga frest tii
svars.
Verkföll.
Khöfn, 3. maí.
Frá París er sfaað, að ýmsum
verkföllum, sem voru hafin I. maf,
iialdi áfram.
Framrás Pólverja.
Khöfn, 3. maf.
Frá París er sfmað, að Pólverj-
ar hafi f gær (2. maf) haldið inn
* Kieff.
jjorgarstjórakosnmgin.
„Spekúlanta“ viljum vér
enga hafa!
Sfðast er eg ritaði hér í blaðið
um borgarstjórakosninguna, faerði
eg fram dæmi um framkvæmda-
semi Knúts. Dæmið var af ásettu
ráði tekið af pví, sem IítUfjörleg-
ast má teljast í óstjórn þeirri, sem
átt hefir sér stað í framkvæmdum
bæjarins upp á síðkastið En ein-
mitt það, hve vanrækslan á þessu
sviði er í sjálfu sér smávægileg,
hjá mörgu öðru, þá er deginum
Ijósara, að því auðveidara hefði
verið fyrir Knút að láta hana
aldrei eiga sér stað. Margt smátt
gerir eitt stórt, og smáyfirsjónir
borgarstjóra ættu einar að nægja
til þess, að engum heiðvirðum
manni, sem áhuga hefir á velferð
bæjarins, ætti að koma til hugar
að styðja Knút til borgarstjóra í
annað sinn.
Einmitt dæmið um Austurvöll
sýnir svo Ijóslega búhyggju- og
framkvæmdarsemisskort borgar-
stjóra, og það af þeirri ástæðu,
hve auðvelt hefði verið að fram-
kvæma það verk, sem bæjar-
stjórnin í þessu falli fól honurn.
Af verkunum skuluð þér þekkja
þá. /
Því miður hefir Knútur stærri
syndir á borgarstjórasamvizku sinni
en Austurvöll. Og er sú stærsta,
sem er opinbert leyndarmál, af-
skifti hans at Helga Magnússyni
& Co.
Öllum hlýtur • að vera það Ijóst,
hve fjarri það er öllu lagi, að
æðsti starfsmaður bæjarins og
framkvæmdarstjóri hans skuli vera
kluthafi í fyrirtæki, sem einna
mest viðskifti hefir við bæinn.
Slíkt lfðst hvergi, ekki einu sinni
í Ameríku, nú orðið, jafnvel þó
það um eitt skeið væri þar alsiða,
meðan óstjórnin og íégræðgin var
algerlega látin leika lausum hala.
Þeir munu fáir, sem geta stað-
ist freistinguna, að vera hliðhollir
sínu .firma*', þegar um gróðavon
er að ræða, hversu samviakusamir
sem þeir annars kunna að vera.
En eins og menn vita, er Knútur
talinn mjög duglegur maður, og
er það líka, þegar „fósturbörnin"
hans eiga í hlut.
Þegar bærinn þarf að láta gera
eitthvað, t. d. leggja holræsi, gas-
pípur eða reisa timburhús, — er
þá nokkuð eðlilegra, en að borg-
arstjóri, sam á í félögum, sem
verzla með það, sem til þessa
þarf, gefi þeim bendingu um hitt
og annað, sem öðrum ekki verður
Ijóst? Lengi frestinn, sem settur
er á útboðunum, eða eitthvað
annað, sem hans „firma" getur
komið vel?
Hvað sem þessu Ifður, þá vita
allir að félög þau, er Knud Zim-
sen er hluthafi í, hafa orðið hlut-
skörpust, á einn eða annan hátt,
þegar bærinn hefir boðið út verk,
sem þau gátu leyst af hendi.
Grunsamlegt er nú þaðl En eng-
um dettur í hug að væna Knút
um sérdrægni. Hann gerir það,
sem bænum er fyrir beztu! Engin
hætta. Óg hver er sjálfum sér
næstur. Því skyldi hann vera að
taka aðra fram yfir H. M. & Co. ?
Hann getur bezt séð um að fé-
lögin sín „snuði" ekki bæinnl
En sem sé, allra hluta vegna,
væri heppiiegast, að borgarstjórí
væri ekki bundinn neinum skyld-
um eða samgróðaböndum við
gróðafélög, því ilt er að treysta
ágirnd manna. Þess vegna kjósa
alþýðumenn Sig Eggerz, að hann
er laus við slfk bönd. Því spekú-
lanta viljuni vér enga hafa!
Kvásir.
Landveg að norðan koma þeir
Páll Einarsson hæstaréttardómari,
Aage Schiött og Richard Beck
mentaskólanemar. Þeir lögðu af
stað ríðandi sl. föstudag frá Ak-
ureyri.