Alþýðublaðið - 25.05.1928, Blaðsíða 2
aiEÞÝÐUBBAÐIÐ
Ulþýðublaðið
« kemur út á hverjum virkum degi.
} Aigreiösla í Alpýðuhúsinu við
i Hverfisgötu 8 opin frá kl. 9 árd.
; til kl. 7 siðd.
< Skrlfstofa á sama stað opin kl.
' 9Vs-10Vs árd. og kl. 8-9 síðd.
« Simar: 988 (afgreiðslan) og 2394
Í (skrifstofan).
« Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,50 á
} mánuði. Auglýsingarverðkr.0,15
« hver mm. eindálka.
J Prentsmiðja: Alpýðuprentsmi&jan
j (i sama húsi, simi 1294).
Landslög og leppmenska.
Það. vakti almenna ánœgju
meðal almennings, er það frétt-
ist, að dómsmálaráðherra hefði
fyrirskipað opinbera réttarrann-
sókn á stjórn hf. Shell á íslandi.
Eftir skýrslu lögfræðings þess, er
að tilhlutun dómsmálaráðherra
hafði rannsakað félagsstofnun
þes'sa, hafði félagsstjórnin rang-
lega tilkynt til hlutafélagsskrár,
að alt hlutaféð (500 pús. kr.)
væri innborgað, með því að
stærsti hluthafinn, Björgúlfur Ól-
afsson læknir, hafði' ekki greitt
inn Iofað hlutafé sitt, að upphæð
244 þús. kr. Auk þess þótti það
óvíst, að aðrir íslenzkir hluthaf-
ar hefðu af hendi int hlutafjár-
upphæð sína, þar á meðal for-
maður félagsstjórnarinnar, Magn-
ús Guðmundsson, fyrrv. döms-
málaráðherra.
Ef að skýrsia lögfræðingsins
reynist rétt, sem engin ástæða er
til að efast um, hefir stjórn hf.
Shell brotið fyrirmæli hlutafélaga-
laganna, og ætti þá eftir 53. gr.
þeirra að sæta sektum eða fang-
elsi.
Einnig mun hafa verið fyrir-
skipuð rannsókn gegn stjóm hf.
Olíusölunnar hér í bænum, sem er
eins konar dótturfélag hf. Sheil,
vegna þess, að stjórn þess hafði
vanrækt að fá sér verzlunar'leyfi.
En það, sem er mest um vert
og nauðsynlegast við réttarrann-
sókn þessa, er það, að upplýsa
um heimildir hf. Shell til atvinnu-
reksturs hér á landi (verzlunasr).
Eftir rannsókn lögfræðingsins
virðist full ástæða til að ætla
að vafasamt mætti telja að meiri
hluti hlutafjárins væri eign
manna, búsettra hér á iandi,. en
samkvæmt lögum um verzlunar-
atvinnu- nr. 52 frá 27. júní 1925,
m-ega hlutafélög því að eins reka
verzlun hér á landi, að meira en
helmingur hlutafjár sé eign bú-
settra manna hér á landi.
Og þar er komið að kjarna
málsints. islenzk löggjöf hefir sett
fyrirmæli, s-em rneðal annars eiga
að tryggja það, að erlent auð-
magn vaði hér ekki takmarka-
iaust inn í landið án íhlutunar
landsmanna. Þess vegna eru sett
ákvæði um það, að erlendir menn
megi ekki eiga fasteignir hér á
iandi né skip, sem sigla undir ís-
lenzk-um fána, og ekki heldur rel.a
hér rerzlunaratvinnu, nema m-eð
rissum takmörkunum.
En það hefir hins vegar þótt
við brenna, að til væru þeir ís-
lenzkir þegnar, sem á snið við
landslög og rétt hafa lánað nafn
sitt erlendum fjárplógsmönnum,
svo þeir gætu sezt að auðlind-
um Iandsins með sömu réttindum
og landsmen-n sjálfir. Þessir m-en-n
eru nefndir leppar, og þykir á-
hrifa þeirra til þes-sa einkum hafa
gætt við þíldárútgerð hér á landi,
Þeir þykja ekki þjóðthollir menn,
og eru, af sómakærum mönnum,
1-itt í hávegum hafðir, sem mak-
Iegt er.
Nú virðist sumu'in, sem vafa-
samt sé, að íslenzk löggjöf sé
nógu skýr og ákveðin til þess
að girða vel fyrir leppmensku.
Ef það er rétt, sem skýrsla lög-
fræðingsinis hermir, að stærsti
hluthafirin í hf. Sh-ell, sem sagð-
-ur er að eiga alt að helmingi
hlutafjárins, hafi fengið hlutafé
sitt að láni — eða ætli að fá
það að láni — hjá einum félags-
anga hins erlenda milljóna-félags,
Shell, gegn handveði í hlutabréf-
unum, þá virðist ón-eitanlega lagt
á tæpasta vaöið, að telja s-Iikt
hlutafé eign manna búsettra hér
á landi. Og ef að gengið er út
frá því að skýrsla lögfræðings-
ins sé rétt, er áreiöianfega full
ástæða til þess, að athuga hvort
hf. Shell á íslandi h-efir raunveru-
lega rétt til atvinnu- (verzlunar-)
rekstrar hér á landi eftir ísinezk-
um lögum. En ef að þetta er-
lenda lánaða fé yrði af dómstól-
unum talið eign búsettra manna
hér á landi, væri full þörf fyrir
næsta alþingi að endurskoða lögin
um verzlunaratvinnu, svo að hægt
væri að koma í veg fyrir að
ganga megi þannig á snið við
anda þeirra og tilgang.
Réttarrannsóknin og dómur út
af kærunni á h-endur stjórnend-
um h-f. Shell á íslandi mun skera
úr þessu. Þess vegna er fyrir-
skipun réttarrannsólmarinnar sjálf-
sögð og merkil-eg. C. /.
Hús tereianasp á
Kl. um. 6 í morgun, þegar
verkamenn á Siglufirði voru að
fara til vinnu sinnar, sáu þeir,
að eldur var uppi í húsi Alfons
Jónssonar 1-ögfræðings. Fóru þeir
þegar til og gerðu fólkinu í hús-
inu aðvart, og bjargað-ist það með
naumindum út. Brann siðan húsið
til kaldra kola á einni klukku-
stund og varð engu af húsmunum
bjargað. Veður var stilt og gott.
Upptök eldsins eru algerlega ó-
kunn. Hús;ið var nýsmíðað timbur-
hús- — og bíður eigandi mikiötjón.
í húsinu bjuggu: Alfons Jóns-
son, móðir hans og systir — og
Sigurður Jónsson verkfræðingur.
Slapp hann seinastur út — og
mátti ekki tæpara standa um und-
ankomu.
Verkamannaningíð í
Síobkhólmi.
Alþjóðasamband flutninga-
manna (International Transp-ort-
workers’ Federation) heldur þing
í Stokkhólmi dagana 9.—14. júlí
í sumar. Þ-ingið verð-ur háð í
Ríkisþinghúsinu.
í sambandi þessu eru tvö ís-
lenzk félög: Verkamannafél. Dags-
brún og Sjómannafélag Reykja-
víkur,
Dagskrá
sú, sem lögð verður fyrir þing-
ið, er þannig:
1. Ávörp frá ful-ltrúum og hyll-
ingaróður.
2. Þingsetningarræða, flutt af
fors-eta sambandsins.
3. Kosnir menn til jress að ann-
ast skrifstofustörf þingsins.
4. Piófun kjörbréfa.
5. Ákveðnar starfsreglur þings-
ins.
6. Skýrsla framkvæmdastjórnar.
7. Skýrsla um fjármál sam-
bandsins.
8. Endurbætur á nútíma flutn-
ingatækjum (ritgerð eftir N.
Nathans, aðstoðarritara sam-
bandsins.
9. Ræddar framkomnar til-lögur.
10. Alþjóða-auðvaldið og alþjóða-
samband verkamanna (ritgerð
eftir Edo Fimm-en, aðalritara
-sambandsihs).
11. Ákveðin iðgjöld sambandsfé-
1 aga.
12. Aðalstöðvar sambandsins.
13. G. Ákveðin réttarhlutföll landa
til þess að eiga sæti í a-ð-
alstjórn og framkvæmda-
stjórn.
b. Kosning aðalmanna og
varamanna i aðalstjórn
■ sambandsins.
c. Kosning framkvæmda-
stjórnar.
d. Kosning ritara.
14. Ákveðinn staður til næsta
þinghalds.
Eins og gefur að skilja er 9.
liðurinn á dagskránni veigamesta
atriðið, þar sem eru til-l-ögur, sem
sambandsdeildir og einstakir full-
írúar leggja fyrir þingið. Sam-
bandsistjórninni hafa þegar bor-
ist nokkrar til-lögur, en vænta má
að miklu f-leiri mál komi þar
frarn, þvi frestur til þess að fá
mál tekin á dagskrá er ekki út-
runninn fyr en 15. næsta mán-
aðar.
1 næstu blöðum verður drepið
á nokkur mál, sem ví-st er um
að koma fyrir þingið.
R. Walter
flytur fyrirlestur í kvöld kl. 71/2
í Nýja Bíó um „Moderner Luft-
v-erkehr“. Sýnir hann 50 skugga-
myndir. Aðgöngumiðar fást í
bókaverzlun Sigf. Eymundssonar
og k-osta 50 aura. R. Walter hef-
ir verið höfuðsmaður í lofther
Þjóðverja, og er geysifróður um
öll flugmál.
KnattspynMfréttir.
í fyrrakvöld hélt 3. flokks mótið
áfram; keptu fyrst félögin Frarn.
og K. R. Lauk þeim leik þannig,
að K. R. vann með 8 gegn 0.
Leikur þessi var mjög ójafn, því
K. R. menn höfðu aiveg yfirhönd-
ina til leiksloka.
Þá keptu Valur og Víkingur, og
fóru þeir leikar svo, að Valur
vann að> lokum með 3 gegn 1.
Leikur þessi var prýðilegur í alla
staði, og mátti fyrst ekki í milli
sjá, hvor sigra myndi. Fyrri hálf-
ieik Jauk þannig, að jafntefli var,
1 gegn 1, og hélst það þannig
þar til eftir voru hér um bil_ tíu
mínútur. Náðu þá Valsmenn öðru
marki. Voru síðan gerð mörg
skæð upphlaup af beggja hálfu,
sem fylgt var með ópum og íagn-
aðarlátum áhorfenda, s-em vom
nijög margir; en öl-l upphlaup
voru hindruð, þar til næstum því
að leikslokum, að Valsmönnum
tókst að koma þriðja markinu*
Leikurinn v^ar jafn prýðilegur hjá
báðum félögum.
Næst keppa Víkingur og Fram,
í kvöld kl. 8, -og Valur
og K. R. kl. 9. Ættu áhorfendur
að muna það, að þó völlurinn sé
ógirtur, mega þeir hvorki leika
með, né ganga inn á völl-in-n, þótt
þeir séu „spentir”, því með því
móti bæði tef ja þeir og -eyðileggja’
leik drengjanna.
Þráilnn.
Frá fimleikaflQkknum.
Lundúnum, FB., 24. maí.
I Aberdeen Press er farið svo
feldum orðum um leikfimissýn-
ingu kvennaflokks íþróttafélags
Reykjaví-kur þar í borg þ. 21. þ.
m.:
Hinn frægi flokkur íslenzkrai-
fimleikakvenna sýndi listir • sínar
í nýju danzhöl'linni hér í borg, að-
allega ýmsar æfingar í fegurðar-
Ieikfimi, sem voru sýndar hægt
og með miklum þokka, og svip-
ar list þeirra til hinna fegurstu
danza, að því er snertir ósk-eikult
og ágætt samræmi. Sýning stúlkn-
anna bar það með sér, að mikil
rækt hafði verið lögð við að æfa
þær sem bezt, og það, ásarnt méð-
f-æddum yndisþokka þeirra-, gerðí
þeim auðv-elt að veifa áhorfend-
úm hina beztu skemtun.
Sandhöllin.
Á fundi Sundfélags Reykjavíkur
23. þ. m. var samþykt í einu
hljóði svofeld tillaga:
„Sundfélag Reykjavíkur s-korar
á bæjarstjórn Reykjavíkur, að
hefjast nú þegar handa í sund-
hallarmálinu og skipa sérstaka
sundhallarnefnd, er vinni að því
að byrjáð verði á byggingu sund-
hállarinnar í sumar.“