Vísir - 03.12.1926, Blaðsíða 2

Vísir - 03.12.1926, Blaðsíða 2
VÍ?IR Þupkaðip ávextip: Epli, Apricots, Ferskjur, Blandaðir ávextir, Sveskjur, Rúsinur, Gráfíkjur. Símskeyti Khöfn 2. des. FB. Briand telur horfur á góðri sambúð Frakka og ítala. Símað er frá París, að Briand hafi sagt í ræðu, sem hann hélt í þinginu, að hann vænti þess, að sambúðin á milli Frakka og ítala veröi góð i framtíðinni. Samsæri í Rúmeníu. Símað er frá Vínarborg, að þær fregnir hafi borist þangað frá Rúmeníu, að komist hafi upp um samsæri, sem gera átti til þess að koma Carol fyrverandi krónprins á konungsstól landsins. — Fimm hundruð liðsforingjar hafa verið handteknir. Það hefir sannast á Mirtescu, hermálaráðherra í Rú- meníu, að hann er meðsekur sam- særismönnunum. Hefir hann ver- ið gerður landrækur. Khöfn 3. des. FB. Stjórnarfarið á ítalíu. Simað er frá Rómaborg, að stjórnarnefnd, sem hafði það hlutverk á hendi, að stemma stigu fyrir andróðri gegn stjórninni, liafi ákveðið burtrekstur 500 mót- stöðumanna Fascista til afvikinna staða. Ný stjórn í Grikklandi. Símað er frá Aþenuborg, að Zaemis hafi myndað samsteypu- stjórn. Utan af landi. Akureyri 2. des. FB. Minningarsamkoma í tilefni af 200 ára afmæli Eggerts Ólafsson- ar var haldin hér i gærkveldi að tilhlutun stúdentafélagsins. Ræðu- menn voru: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, Sigurður Guðmunds- son skólameistari, Pálmi Hannes- son kennari. Davíð flutti einnig snjalla drápu til fósturjarðarinn- ar. Blandaður kór söng nokkur lög. Samkoman var ágætlega sótt og þótti takast hið besta. Hríðarveður í dag. „íslendingur". Olia úr kolnm, Stórmerk uppgötvun. '—o— Þýskur efnafræðingur, prófess- or Bergius, hefir nýlega skýrt frá merkri uppgötvun, sern hann hefir gert. Honum hefir tekist að finna aðferð til þess að vinna olíu úr kolum á miklu hagkvæmari hátt en menn liafa áður kunnað, og svo notadrjúg er þessi nýja aðferð hans, að hann fær olíu senr nemur þreföldu andvirði kolanna. Úr einni smálest kola vinnur hann 150 kg. af bensíni, 200 kg. af venju- legri steinolíu, 80 kg. af hráolíu og 60 kg. af smurningsolíu. Úr kolum sem kosta eitt hundraö krónur, vinnur hann olíu fyrir þrjú hundruð krónur. Bergius er kunnur maður af eldri rannsóknum sinum, og er engin hætta talin á því, að fregn- in sé orðum aukin. Hann hefir um langt skeið stundað þessar oliu- rannsóknir, og m. a. rekið til- raunastöðvar í Þýskalandi tvö undanfarin ár, og á þeirri reynslu hefir hann bygt skýrslu þá, sem hann hefir gefið. Standard-Oil-fé- lagið hefir lagt mikið kapp á að eignast einkaleyfi á aðferðum pró- fessorsins, en ekki tekist. Segir hann að hægt sé að nota aðferð- ina við öll kol nema ,,antracit“- kol. Norski jarðfræðingurinn Adolf Hoel er kunnugur aðferð Bergius-. ar, og lýsir henni þannig: Kolin eru mulin í salla ‘og dáliflu af jarð- olíu blandað saman við þau. Síð- an eru þau hituð upp í 2—300 stig undir afarmiklum loftþrýstingi og veitt yfir þau vatnsefni. V'ið það breytast efniseindir kolanna og olía hiyndast. — Bergius hefir stofnað félag til þess að vinna olíu í stórum stíl, og ætlar það að Skóhlífar fyrir karla, konur og börn. Yfip 30 tegundum úr að velja. Ennfremur kven-snjóhlífar af mörgum gerðum. Stærst úrval. Lægst verð. Hvannbergsbræðnr. Jólaútsalan byrjnð. VEEDOL 10-50 o\ \0 Höfum fyrirliggjandi eftirtaidar tegundir af hinni heimsþektu VEEDOL smurningsoliu : Silkikjólar, handmálaðir 10 — 25%, lægsta verð kr. 29.70. Silkisiæður m. teg. Silkipeysur m. teg. nýjasta tíska. Silkinærfatnaður, kjólatau mjög m. teg. Crepe de Chine og Crepe de marocain 15 litir, afar ódýrt. Kven- og barnasvuntur mjög m. teg. Vasaklútakassar fjölbreytt úrval, mism. verð. BarnafatnaBur allsk. 10—25%. Regnkópur barna og kvenna 25—50%. Gufuvéla olia, BifreiSa — Skiivindu — Koppafeiti fyrir allar tegundir vélum. AthugiS verð og reynið gæði þessara tegunda, og berið saman við verð og gæði annara tegunda. Jóh. Ólafsson & Co. Reykjavík. Aðalumboðsmenn fyrir: Alt mjög bentngar jólagjafir. Ilerslun Krislfnar SiDurðard. Laugaveg 20. A. Sími 571. koma upp olíugerð í kolahéruðun- um í Ruhr og brúnkolahéruðunum þýsku. Ef efndirnar verða góðar á þess- ari uppgötvun, verður hún mann- kyninu mjög afdrifarík. Bensín lækkar mjög i verði, og við það. batnar aðstaða bifreiða og flug- véla í satnkepninni við járnbraut- irnar. Eimskipin hverfa úr sög- unni, en diesel-skip koma í stað þeirra. Upphitun húsa verður með alt öðrum hætti en nú er. Kolin hverfa af markaðinum, en olían kemur i staðinn. Og áhyggjurnar af allsherjar olíuþurð í heiminum hverfa í bili. Menn spá því, að einkaleyfin á aðferð Bergiusar verði dýrustu einkaleyfin sem sögur fari af, ef þau á annað borð verði seld. Og að beini hagnaðurinn sem Þjóð- verjar hafi af hugviti þessa landa síns muni á skömmum tíma netna eigi minni upphæð en allar hern- aðarskaðabætur þeirra. Tide Water Oil Co. New York. er mælikvarðinn, sem alt annað átsúkkulaði er dæmt eftir. — Af bragðinu skulu - þér þekkja þad. - Kvenskó fallega Karlmannaskó HÚSSkó fallega Skó- fatnaður. Við höfum: frá kr. 8—10 0. afr. — — 9—12 o. s fr. — — 3. Skólilífar karla og kven fallegar, sterkar og mjög ódýrar. Barna gúmmístígvél ódýr. Auk þessa seljum við hina þjóðfrægu Panther skó eins ódýrt og frekast er unt. Þórðnr Pétnrsson & Co. Khöfn í nóvember. Sem stendur fer fram manntal í Danmörku, og samtímis eru skráð- ir herskyldir menn. Ekkert er við þæssu að segja, en hitt er verra, að eyðublöð og auglýsingar, sem not- aðar eru við þetta, eru ekki í sent bestu samræ'mi við fullveldisvið- urkenninguna frá 1918. Liðin eru nú 8 ár frá þvi er hið nýja ríkja- samband öðlaðist gildi. Margur hefir lært meira á svo löngum tíma, en að setja saman eyðublöð, svo að í lagi sé og samkvæm rikja- stöðu. Þetta hefir þó einhvernveg- inn þvælst fyrir Dönúm, því að eftir eyðublöðunum að dæma, er ísland enn þá talið með „nýlend- unum“. Þar stendur skýrum stöf- um að menn, sem fæddir eru utan Danmerknr (udenfor det egentlige D.) svo sem á Grænlandi, Færeyj- um og íslandi, eigi að tilgreina „landshlutann“, sem þeir eru fæddir í. Og þetta er prentað af opinberum yfirvöldum hjá „sam- bandsþjóðinni“ Anno Domini 1926! íslenska stjórnin verður að krefjast þess, að lagfærðar séu svona fullveldisvillur, þó að aldrei sé nema á pappírnum. Ganga verður ríkt eftir, að rétt sé skýrt frá afstöðu hvors ríkis til annars- svo að almenningur gangi þess eigi algerlega dulinn, að breyting hafi á orðið, en það hefi eg rekið mig á hér ótal sinnurn, að ísland cr talið í sömu andránni og Græn- land og Færeyjar. En víðar er pottur brotinn. í dönskum almanökum, sem eg hefi komist yfir hér í Danmörku, er svo að segja undantekningarlaust rangt skýrt frá sumum atriöum, sem snerta ful|veldisviðurkenn- inguna frá 1918, og er það bein litilsvirðing á ríkjasamningunum, ekki síst þar sem almanök þessi eru stimpluð með stimpli danska háskólans, og því undir einskonar opinberu eftirliti. Eg tek sem daáni, að það er altítt um upp- talningu ráðherra ríkjanna, að nöfn dönsku ráðherranna og starfi þeirra í ráðuneytinu séu sett efst

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.