Alþýðublaðið - 06.05.1920, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 06.05.1920, Qupperneq 1
Alþýðublaðið Greíið út aí A.Iþýðuílokknum. ' ■ . / 1920 Fimtudaginn 6. maí 101. tölubl. Alþbl. er blað allrar alþýðu! frá sambanðsríkinn. Khöfn, 4. maí. Nýja ráðuneytið. Ráðuneyti þannig skipað verður ýtnefnt 5. maí: N. Neergaard, forsætis- og fjár- . málaráðherra, Harald Scavenius, utanríkisráðherra, Ktaus Berntsen, liermálaráðherra, I C. Christensen, kirkju- og kenslumálaráðh., Rytter landsdómari, dómsmálaráðherra, Tyge Rothe stórkaupm. verzlunar- ráðherra, Slebsager þingmaður, samgöngumálaráðherra, Madsen- Mygdal forstjóri, landbúnaðarráð- herra, Sigurð Berg, innanríkisráð- herra. Sjómannaverkfallið. Vinnuveitendafélagið hefir sett •verkbann á (boycotteret) hafnar- verkamenn og sjómenn þ. 10. maf, Utflutningur landbúnaðarafurða (smjör, flesk og egg) verður aftur hafinn með hjálp sjálfboðaiiða. pólverjar og Rússar. Khöfn, 4. maf. Frá London er símað, að Pól- verjar hafi tekið 15000 fanga í JKíew, auk geisilega mikiis her- fangs. €rzberger. Khöfn, 4. maí. Frá Berlfn er símað, að Cent- rumflokkurinn (kaþólskur borgara- flokkur) hafi rekið Erzberger úr flokknum. Danska ráðuneytið. Forsætisráðherra Nieis Neer- gaard er kunnur stjórnmálamaður í Danmörku. Hann er fæddur árið 1854 í Hjörring á Jótlandi. Hann varð stúdent 1872, tók próf í sagnfræði 1879 og síðan 1881 próf f hagfræði. Hann hefir ritað ýmsar merki- legar bækur um hagfræði og stjórnmál og var um tíma ritstjóri blaðsins -,Tilskueren“. Þingmaður varð hann 1897. Árið 1908 varð hann fjármála- ráðherra í ráðuneyti Christensens, varð sjálfur forsætisráðherra frá 1908—09, Og síðan fjármálaráð- herra í raðuneyti Holstein Ledre- borg. Hann hefir um langt skeið verið einn af foringjum vinstri- manna. Hinn nýi utanríkisráðherra er Kammerherra Harald Scavenius, fyr sendiherra Dana í Petrograd. Eftir að bolsivfkar tóku við völd- um í Rússlandi, mun hann hafa gætt hagsmuna Bandamanna þar. Hermálaráðherra er hinn nafn- kunni leiðtogi vinstrimanna, Klaus Berntsen. Hann er nú 75 ára að aldri. Innanríkisráðherra var hann í ráðuneytinu Neergaards og Hol- stein Ledreborgs, en myndaði stjóra 1910 og stjórnaði þangað til 1913, að Zahle tók við völd- um. Mentun sfna fékk hann á lýðskólum og hefir verið einn af frömuðum lýðskólahreyfingarinnar dönsku. Kensiu- og kirkjumálaráðherra er J. C, Christensen, sem er oss íslendingum kunnur. Hefir hann komið tvisvar hingað tii iands, í annað skiftið 1907 með Friðriki konungi 8. og 1918 til að smfða sambandslögin. í skeytum frá Khöfn er þess getið, að lconungur hafi beðið hann að mynda ráðu- neytið, en hann hafi skorast und- an sökum heilsubilunar. Má vera að aðrar orsakir en heiisubilun iiggi til þess, að hann vtli ekki taka að sér stjórnina, því óvíst er hversu gamalt eða vinsælt þetta ráðuneyti verður. Þeir Neergaard, Berntsen og Christensen hafa allir um langt skeið verið foringjar vinstrimanna og börðust á sínum tíma fyrir auknum pólitiskum réttindum, gegn afturhaldinu, sem þá stjórn- aði Danmörku. Má telja þá alla meðai merkustu manna Dana. Sömuleiðis Sigurd Berg, sem er utanríkisráðherra i nýja ráðuneyt- inu. Hann er sonur hins fræga vinstrimannaforingja Chr. Bergs. Hann var innanríkisráðherra í ráðu- neyti Christensens frá 1905—08. Var hann riðinn við Aiberti-málið, en var sýknaður. Dómsmálaráðherra er Rytter landsdómari, fyrv. amtmaður f Færeyjum. Hann sagði af sér amtmannsembættinu 1918 út af ósamlyndi við Zahle, sem var þá dómsmálaráðherra, en er nú seztur í sæti hans. Verzlunarráðherra er Tyge Rothe stórkaupm., form. vinstrimanna- félagsins í Khöfn. Samgöngumáiaráðherra er Sleb- sager þingm., en landbúnaðarmála- ráðherra Madsen Mygdal forstöðu- maður landbúnaðarskólans í Dalum. AHir ráðherrarnir eru vinstri- menn, og fór sem vænta raátti, að hinir gömlu fjendur, hægri- og vinstrimenn myndu eigi geta setið saman á ráðherrabekkjunum, enda þótt þeir gengju f bandalag um að fella hina fyrv. stjórn. Er nú eftir að vita, hvort að þessari stjórn tekst jafnvel og Zahlestjórninni. X Staka. 1 Þótt firðar kalli mig fyliirút, sem fótum lögin troði, mundi eg ekki kjósa Knút, þótt konfak væri f boði. Rútur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.