Vísir - 03.02.1928, Síða 3
VISiH
yiuua aö, ufl. hafskipaskurSinn
œikla, sem veriS er aS grafa frá
Albany höfuSborg New 'York-rík-
, íSj til vatnanna miklu i kornbelti
Ameríku. Eins og lcunnugt er,
stendur Albany við Hudson-ána,
er nú veríSur dýpkuS þar er þarf,
svo að þegar hafskipaskurðurinn
,er fullgerður, er komin hafskipa-
leið alla leið til Chicago, Cleve-
; iand, Detroit og annara stórborga
við vötnin miklu inni í Ameríku.
Af þessu, sem hér hefir verið
minst á, mun ljóst vera, þó að
. eins hafi verið stiklað á steinum,
,að Smitlr er alllíklegt forsetaefni
demókrata. Starf hans í þágu New
.• York-ríkis hefir fyrir löngu gert
hann þjóðkunnan mann, enda á
, liann miklum vinsældum að fagna,
, ekki sist í New York-ríki.
Bandaríkín eru nú heimsins
auðúgasta og voldugasta þjóð, og
hin vaxandí afskiftasemi Banda-
ríkjamanna af málum þeim, sem
yarða allar þjóðir, vekur æ meiri
eftirtekt — og ótta — vegua hins
geipilega auðvalds þar i álfu. Þess
vegna eru forsetakosningarnar i
Bandarfkjunum að þessu sinni
sérstakrar athygli verðar, er öfga-
stefna í hermálum o. fl. virðist
vera aö verða ofan á. Verði mik-
•ílhæfur, sanngjarn og sjálfstæður
inaður valinn forseti, er þó von til
fress, að hann kynni að geta fylkt
þjóðinni um þau mál, sem varða
heillir hennar og annara þjóða, en
hermátaöfgar og annað af líku
tæi verði kveðið niður.
A. Th.
Veðrið í morgun.
' Frost um land alt. I Reykjavík
7 st., Vestmannaeyjum, 4, Isafirði
.7, Akureyri 5, Seyðisfirði 2/
Grindavik 7, Stykkishólmi 6,
‘Grímsstöðum 6, Raufarhöfn 2,
Hólum í Homafirði 4, Blönduósi
S, Færeyjum hiti 1, Angmagsalik
frost 8, Kaupmannahöfn hiti 1,
Utsira 2, Tynemouth 2, Jan Mayen
O st. Mest frost hér í gær 8 st.,
minst 2. — Djúp lægð suður a'
Grænlandi á norðausturleið. Veld-
ur sennilega hvassviðri og snjó-
komu á suðvesturlandi í nótt. Út-
norðan kaldi í Norðursjónum. —•
Horfur: Suðvesturland og Faxa-
flói: í dag hægviðri. í nótt vax-
andi suðaustan átt. Sennilega hríð-
arveður með morgninum. Breiða-
fjörður og Vestfirðir: í dag hæg-
viðri. í nótt vaxandi austanvind-
ur. Norðurland og noröausturland:
í dag norðanátt. Éljagangur í út-
sveitum. í nótt hæg suðaustan átt.
Austfirðir og suðausturland: I dag
norðanátt og úrkomulaust. í nótt
breytileg átt.
Vísir kemur út
tímanlega á sunnudaginn. Aug-
Jýsendur eru vinsamlega beðnirað
koma auglýsingum í sunnudags-
blaðið á afgreiðsluna í Aðalstræti
9 B (sími 400) fyrir kl. 7 annað
kveld, eða í Félagsprentsmiðjuna
fyrir kl. 9 annað kveld. — Eins
«g allir vita, er langbest a‘ö aug-
lýsa í Vísi.
Ú tskálaprestakall.
Prestkosning hefir farið fram í
Útskálaprestakalli, og voru atkv.
talin í gær. Flest atkvæði fékk Ei-
ríkur Brynjólfsson cand theol. 233,
sira Ásmundur Guömundsson á
Eiðum fékk 158, Ólafur Ólafsson
cand. theol. 125, Einar Magnús-
son cand. theol. 124, síra Guð-
mundur Einarsson á Þingvöllum
17, og síra Þorsteinn Ksistjánsson
0 atkv., en 6 seðlar voru ógildir.
Alls greiddu 669 manns atkvæði
af 906 á kjörskrá. Kosningin er
ólögmæt.
Leikhúsið.
Schimeks-fjölskyldan, gaman-
leikurinn, sem Leikfélag Reykja-
vikur sýndi í gærkveldi í fyrsta
sinn, fékk hinar bestu viðtökur.
Iæikuriim er mjög fjörugur og til-
svörin hnyttin og hitta markið.
Skemti fólk sér ágætlega og hló
dátt. Leikurinn verður sýndur
uæst á sunnudaginn.
Félag frjálslyndra manna
heldur fund kl. 8J4 í kveld, í
Bárunni, uppi. Fundarefni: Bæj-
arstjórnarskosningarnar.
Karlakór K. F. U. M.
hélt hljómleika í gærkvöldi i
Gamla Bió, fyrir fullskipuðu húsi
áheyrenda. Skemti fólk sér hið
bcsta, og varð að endurtaka mörg
lógin. Fer nú að verða hver síð-
astur, að heyra þessa góðu skemt-
un, því óvíst er að kórinn syngi
nema einu sinni enn.
Gestkomandi
er fjöldi manns lfér í bænum
um þessar mundir, og komu flest-
ir með Goðafossi 0g íslandi í gær
og fyrrinótt. Meðal þeirra má
nefna Odd Gíslason bæjarfógeta
dg frú hans, Þórólf Sigurðsson frá
Baldursheimi, Magnús Thorsteins-
son bankastjóra, síra Sigurgeir
Sigurðsson frá ísafirði (á leið til
útlanda), Ingvar Guðjónsson út-
gerðarmann, Einar Thorsteinsson
kaupmann á Blönduósi og frú
lians, Sæmund Ilalldórsson kaup-
mann í Stykkishólmi og Einar M.
Jónasson fyrv. sýslumann á Pat-
reksfirði.
Minningagjafasjóði Landsspítalans
bárust árið 1927 gjafir, sem nema
samtals kr. 16704,20. Af þessari
upphæð voru afhent minninga-
spjöld fyrir kr. 6555.20, en samúð-
arskeyti Landssímans fyrir kr.
10149.00. Af síðari liðnum er þó
meira en helmingur, eða kr. 5913.50
frá árinu 1926, en kr. 4235.50 frá
1.—3. ársfjórðungi ársíns 1927. —
Sjóðurinn er nú orðinnkr. 142.739.-
78. Um leið og Landsspítalinn tek-
ur til starfa, verður byrjað að út-
hluta úr sjóðnum styrk til fátækra
siúklinga. Þá kemur það í góðar
þarfir, að sjóðurinn sé sem mests
megnugur. — Til leiðbeiningar
þeim, sem styrkja vilja sjóðinn,
skal þess getið, að minningagjafa-
spjöld hans eru afgreidd hjá frk.
Helgu Sigfurjónsdóttur, Vonarstr.
8, og frú Lilju Kristjánsdóttur,
Laugaveg 37. Samúðarskeytin af-
greiðir Landssímastöðin í Reykja-
vik, bæði innanbæjar og til flestra
stærri símastöðva utan Reykjavík-
ur. Einnig má senda sainúðarskeyti
milli allra stærri símastöðva, um
land alt.
ISÍ áttúruf ræðisf élagið
heldur aðalfund siiin á morgun
kl. 5 á NáttúrugTÍpasafninu.
Staka.
Orðsins-listar lifir gnótt
lengi í þjóðarmunni.
íslensk tunga, þú átt þrótt
þinn í ljóðhendunni.
Guðm. í. Guðmundsson.
Guðspekifélagið,
Reykjavíkurstúkan, fundur í
kvöld kl. 8)4, stundvíslega.
Um trúboðið í Kína
flutti ÓJafur Ólafsson trúboði
fyrirlestur í Dómkirkjunni í gær-
kvöldi. Var þar fjölment.
Töframagn helgisiða,
sérprentun úr „Lögréttu", fæst
hjá Katrínu Viðar, og kostar 35
aura.
Fiskiþingið.
Á fundi þess í kvöld kl. 8 verð-
ur rætt um síldarútveginn. Hefir
síldarútvegsmönnum verið boðið á
þennan fund. Má búast við mikl-
um lunæðum um málið.
Skipafregnir.
Egill Skallagrímsson kom frá
Englandi í nótt, en Arinbjörn hers-
ir í gær. Gulltoppur og Hilmir
komu af veiðum í morgun, en
Apríl í gær. ;'
Verslunarmannafél. Rvfkur.
Sú breyting verður á fundarstað
félagsins í kveld, að fundurinn
verður haldinn á Skjaldbreið kl.
8)4, en ekki í Kaupþingssalnum,
sakir þess, að fiskiþingið hefir
fund þar á sama tíma.
Gjöf
til sjóhrakta mannsins, afhent
Vísi: 5 kr. frá N. N.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 10 kr. frá fjórum
systrum,5 kr. frá Andvöku 5 kr.
frá M. B.
Útsalan
lieldup áfram.
Margt fyrir hálfvirði, þar á meðal: Handtöskur, Toi-
letkassar, Manicuresett og kassar, Rakvélar, Krullu-
jámahitarar. Með 20% afslætti: Handsápur, Raksápur,
Rakkrem, Handspeglar, Vasaspeglar, Kjóla- og Kápu-
belti, margir litir, mikið úrval. — Kraga- og Kjólablóm,
Myndarammar, gyltir og mislitir, margar stærðir. Háls-
festar úr gler-, vax- og beinperlum. Kjóla- og, Kápu-
spennur, Gúmmísvampar, Svampakörfur, Tannpasta,
Tannpúlver, Tannvatn. Krullujám, margar stærðir,
Lokkajám, Púðurdósir, Púðurkvastar, Hámet; einföld
og tvöföld, margir litir og stærðir. Hárvötn og Hmvötn
allskonar. Hárburstar, Andlitspúður og Krem. Hárspenn-
ur, misl., mikið úrval. Ilmvatnssprautur, Aureol, hárlit-
ur, mikið lækkaður í verði.
Þetta eru aðeins sýnishom af því, sem til er. Búðin
er lítil og vömbirgðir ekki miklar. Þessvegna ættuð þér
að athuga þetta í tíma.
Helene
Hápgreiðslustofa.
Sími 1750.
Aðalstræti 6.
8mi5jnst(g iO
‘Uerksm
,Sínn 1091 Lít^kistuiviiinustofa
Jíeijkjapik
Relgi Helgason, Laupueg 11, slmi 91
og a,,eftrunar“
umsjón.
St. Minerva
Fundur kl. 81/,,,
Dagskrá: Dansinn í regl-
unni. Erindi um Grænland.
Tófuskinn
kaupir fsl. refaræktarfél. h.f“,
Laugaveg ro. Sími 1221.
K. STEFÁNSSON.
ísland f erl. blöðum.
FB. 1. febr.
Samkvæmt bréflegri tilikynningu
frá hinu konunglega danska kon-
súlati í Lúbeck er af utanríkis-
málaráðuneytinu í Kaupmannahöfn
hefir verið send forsætisráðherra,
hefir verið ágæt aðsókn að is-
lensku listsýningunni. Blöðin „Lú-
beckische Anzeiger" og „Lúbetík-
er-General-Anzeiger“ gera fyrir-
lesturinn, er haldinn var i sam-
bandi við listsýninguna að umtals-
efni. Kvöld það, er fyrii-lesturinn
var haldinn, var aðsókn svo mik.il,
að eigi var hægt að halda hann
i sal þeim, setn til stóð, að hann
væri haldinn í, og varð að leigja
annan og stærri sal.
Þ. 12. des. f. á. hélt ensk kona,
Miss Beck, fyrirlestur um íslend-
ingasögur í „Beckenham Antiqui-
arian Society" (Beckenham forn-
félaginu. Beckenham er ein af út-
jaðraborgum Lundúnaborgar).
Fyrirlestri Miss Beck hafði verið
mjög vel tekiö. Frásögn i „The
Beckenham Journal" ber það með
sér, að Miss Beck hefir kynt sér
vel landnámssögu íslands, og
sagnaritun hér á landi.
Mr. C. V. Miller flutti í desem-
bermánuði fyrirlestur um fiskveið-
ar á íslandi. Fyrirlesturinn flutti
hann fyrir „The Norwich Round
Table Club“.
f „The Lancct" er birt mynd af
Undirritaður tekur að sér að
gera uppdræ'ti að húsum og öhu
þvi er að húsagerð lýtur. AUar
uppl. á Teiknistof inni í Lækjar-
götu 6.
Guðm. Graðjónsson
húsameistari.
Landsspitalanum, eins og hann
leit út, er hann var kominn undir
þak.
Eins og' kunnugt er, strandaöi
enski botnvörpungurinn Ohm á
Skagatá í sumar, og dró varðskip-
ið Óðinn hann á flot. Talsverður
hluti björgunarlaunanna, átta þús-
und krónur, var að fyrirlagi
stjórnarinnar á Islandi, afhentur
bresku stjórninni, og var féð látið
renna í sjóð ekkna og bama sjó-
manna í Hull.
Stjórninni hefir borist fjöldi um-
mæla um þessa ráðstöfun íslensku
sijórnarinnar, úr ýmsum breskum
biöðum. Eru ummælin öll á eina
leið, að þessi gjöf sé mjög þakkar-
verð, og sýni velvild stjórnar ís-
lands og íslendinga í garð hinriar
bresku sjómannastéttar.
I ritinu „Country Life“ er birt
heillar síðu mynd af Skógafossi.
Súkkuladi.
Ef þér kaupið súkkulaði, þá
gætið þess, að það sé
LillU'Súkkulaði
eba
Fjallkonu-súkkulaði.
winr.
u
l
Minningaspjöld eru afgreidd
lijá: Fröken Helgu Sigurjóns-
dóttur, Vonarstræti 8, 0g frú Lilju
Kristjánsdóttur, Laugaveg 37.
Samúðarskeyti Landsspítalans af-
greiðir Landssímastöðin í Reykja-
vík, bæði innanbæjar og til flestra
stærri stöðva utan Reykjavíkur.
Eimiig má senda samúðarskeytí
niilli allra stærri símastöðva um
land alt. '
Minningagj aía-sj óöurinner
styrktarsjóður efnalítilla sjúkling'a
Landsspítalans.
S. E. T.
Dansleikuv
fyrir temp'ara I GóStemplarahús-
inu laugardag 4. þ. m. kl. 9.
Kvartett félagsins spilar.
Húsið skreytt.
Aðgöngumiðar seldir frá kl
7-9.
Stjórnin.