Vísir - 08.02.1928, Blaðsíða 3

Vísir - 08.02.1928, Blaðsíða 3
VISIR eigí síöur en NorSmanna, og væri vel, aS þessi brýning norska ræS- ismannsíns væri hugleidd hér á lítndi. Því tiltölulega eigum vér smestra hagsmuna aö gæta, vegna 'verslunar vorrar, hjá Spánverjum. í»eir eru enn tiltölulega stærstir kaupendur íslenskra útflutnings- áliuröa, og þarf eigi aö leiöa rök aö því, aö oss er þaö afar áríö- andi, aö auka þekkingu þessarar viíSskiftaþjóöar, eigi aö eins á flaltfískinum okkar, heldur einnig <OSS sjálfum, þvi aö almenn viö- kynning er nauðsynlegur grund- VÖllur allra viöskifa. Hér skal eigi út í það fariö, hversu kostnaðarsamt það muni yerða, aö taka þátt í þessari sýn- íngu og fá þar afmarkað sýningar- svæöí. En væntanlega legst stjórn- ín á eítt meö útgeröarmönnum og fiskútflytjendum, um að afla sér fullrar vitneskju utn hve tnikill kostnaðurinn yröi. Mun óhætt að geta þess til, að hann verði eigi tneiri en svo, að hann kæmi létt nifSur á þeim, sem mesta hags- ínuní hafa af þátttökunni, ef sam- vinna væri höfö um hana, þó að ■einstaklingum mundi það ofviða. Utan af landi. Borgarnesi 8. febr. FB. Bændanámsskeið var haldið á ■Hvanneyri í Andakílshrepp í vik- •íinní sem leið. Stóö það yfir viku tíma, endaði á laugardag síðastl. Fyrirlestrar voru margir haldnir á námsskeiöinu, fyrst og fremst $,{ skólastjóranum og kennurum skólans, en einnig af öðrum góð- um mönnum, sem fengnir voru gjlgng'ert til þess aö flytja fræð- andí fyrirlestra á námsskeiðinu. Þannig kom Ágúst H. Bjarnason próíessor frá Stúdentafélaginu og flutíi fyrirlestra um þjóðfélagsmál, sálarfræði, trú og vísindi. Ragnar Ásgeirsson kom frá Búnaðarfélagi íslands, Ílutti fyrirlestra um garð- 5fækt, Guðmundur Jónsson frá Torfalæk um tilbúinn áburð, til- raunabú o. fl. Þá flutti og Helgi Hannessou fyrirlestra um jarö- rækt. Námsskeiöið var fjölsótt mjög og síðasta kveldið munu hafa ver- |S mn 300 aðkomumenn á Hvann- eyri. Var öllum þessum sæg tekiö höföinglega. Námsskeiðinu var elitíð með samkomu og skemtu menn sér þar hiö besta. Það merkasta, sem gerðist á námsskeiðinu var það, að samþykt var að hefja samskot til væntan- legs nýs alþýðuskóla í héraðinu. Svo er málum þeim háttað, að Al- þýðuskólinn á Hvítárbakka er far- inn að ganga svo út; sér, að óhjá- kvæmilegt er, að byggja hann upp á næstu árum. Er þá senni- legt, að hann verði fluttur þang- að sem jarðhiti er. Á námsskeið- íntt söfnuðust saman í peningum og dagsverkaloforðum um sex þúsund krónur. Sú upphæð er áætluð þannig, að lagt var til grundvallar að reikna dagsverkið á sex krónur. Ennfremur er til sjóður, sem Ungmennasamband Borgarfjarðar safnaði í þessu augnamiði, og eru í honum um eitt þúsund krónur. Auk þesS hafði sambandið áður safnað fé til áhaldakaupa handa skólanum. U. M. F. VELVAKANDI. öestamót ungmeanafélaga sem staddir eru x bænum, verður haldið föstudaginn xo. febr. og hefst kl. 8*4 í Iðnó með skemt- un, svo sem venja er til, og dansi á eftir, með undirleik 5 manna hljóðfærasveitar. — Aögöngu- miðar verða seldir i Iðnó á niorgun frá kl. 4—7 og á föstudaginn frá kl. 4 og kosta kr. 3.00. i' Tiðarfar heldur umhleypinga- samt. Snjóaði talsvert um daginn, síðan hlánaði, en snjó tók ekki upp, svo að jörð skemdist og er nú víðast haglítið. Bkkert frétst um bráðapest nærlendis upp á sið- kastið, en dálítið orðið vart við lungnaormaveiki. Annars eru skepnuhöld yfirleitt góð. - Heilsu- far er gott. Jarðarför Jóhannesar Kjartanssonar frá Hruna fór fram i gær að viðstöddu mjög miklu fjölmenni. Húskveðju ílutti síra Bjarni Jónsson, en lík- ræöu í kirkjunni síra Friðrik Hallgrímsson. Mentaskólakennar- ar báru kistuna í kirkju, en bekkj- arbræður hins látna úr kirkju. Verkfræðingar báru kistuna inn í kirkjugarðinn. Indriði Einarsson fer til Noregs 23. þ. m. til þess að vera viðstaddur hátíðahöld þau, er fram fara í Osló í tilefni af 100 ára afmæli Henriks Iibsen. Leikhúsið. Gamanleikurinn Schimeks-fjöl- skyldan verður sýndur ánnað kveld. Leikur þessi fær ágæta dóma og þykir bráð-skemtilegur. Aðgöngumiðar verða seldir i dag og á rnorgun. Þórður Kristleifsson efnir til söngskemtunar i Gamla Bíó næstkomandi föstudagskveld, eins og sjá má af auglýsingu hér í blaðinu í dag. Þ. K. söng opin- berlega hér í bænum fyrir nokk- urum árum, og gerðust þá margir til þess, að dæma söng hans, eins og sumum kann að vera minnis- stætt enn. Síðan hefir hann verið erlendis að staðaldri og stundað söngnám af miklu kappi hjá góð- um kennurum. Er fullyrt af kunn- ttgum mönnunt, að söngur hans hafi breyst mikið síðustu árin, eða siðan Reykvikingum gafst kostur á að hlusta á hann. — Þórður hef- ir dvalist heima hjá föður sínum að Stóra-Kroppi í Reykholtsdal, siðan í sumar og efnt til söng- skemtana víða um Borgarfjörð. Hefir fólk þar efra látið mjög vel af söng hans. Fúlmenskuverk. í íyrrakveld kl. 8 var ráðist á stúlku eina þar sem hún var á gangi í Tjarnargötu. Eftir nokk- urar stympingar náði þorparinn af stúlkunni handtösku hennar. Var i henni gullúr ásamt nokkuru af peningum. Hélt stúlkan eftir töskureiminni, en taskan sjálf slitnaði frá og hljóp bófinn með hana á burt og komst undan, þvi að annað fólk var ekki þama ná- lægt. Stúlkan hefir gefið lögregl- unjii góða lýsingu á manninum, svo að væntanlega næst hann og fær verðskuldaða refsingu fyrir tiltækið. ólafur ólafsson kristniboði heldur fyrirlestur í fríkirkjunni í kveld kl. 8j4 um kristniboð í Kína. Fólk er beðið að koma í fyrra lagi. Þegar Ólaf- ur hefir áður talað um þetta efni, hefir aðsókn verið svo mikil, að sunúr hafa orðið frá að hverfa. Stokkseyrarbruninn. Próf í íkveikjumálinu frá Stokkseyri í fyrravetur standa nú yfir nær daglega. Hefir Halldór Júliusson sýslumaður rannsóknina á hendi. Einn maður hefir verið settur í gæsluvarðhald. Síra Jónmundur Halldórsson er á ferð hér i bænum. Hann ætlar að halda fyrirlestur í K. F. LT. M. annað kveld um einn hinn merkilegasta mann í Japan, Kag- awa, sein hefir fómað öllu til þess að vinna fyrir hina bágstöddustu í mannfélaginu, og hefir fengið afar miklu áorkað. — Þar er um svo inerkilegan rnann að ræða, að rétt þótti að gefa almenningi kost á að heyra eitthvað um hann. Þess vegna er þessi fundur í K. F. U. M. opinn fyrir konur og karla svo lengi sem húsrúrn leyfir. Skemtunin i Bámnni í kveld byrjar kl. 8j4- Má búast við að þar verði fjöl- ment. Jón Lárusson kveður 12 úrvals kvæðastemmur, en auk þess verður margt annað til skemt- unar. Síðast verður dansað. Borgfirðinga- og Mýramannamót. Athygli skal vakin á auglýsing- unni um mótið hér í blaðinu í dag. Þess er vænst að mótið verði fjöl- ment. Hrímnir nefnist matvöruverslun ein, sem tók til starfa hér í bænum skönunu fyrir jól. Er Bjarni Eggertsson frá Laugardælum eigandi hennar og veitir henni forstöðu ásamt Sig- birni Ármann kaupmanni. Versl- un þessi hefir fengið ágæt tæki til allskonar matvælaframleiðslu, svo sem bjúgnagerðar allskonar, kjötmölunar og tilbúnings kaldra rétta og álags á brauð, og hefir dugandi matreiðslumann til að veita því verki forstöðu. Loftræst- ing er ágæt i búðinni og geymslu- herbergjum, fullkomnari en víðast hvar mun tíðkast liér í bænum. En mest er þó um vert, að verslunin hefir stóra frystiklefa í kjallaran- urn, og getur geymt þar alt að tuttugu smálestir af matvælum í þeim kúlda, sem best hæfir. Eru frystivélarnar og útbúnaður allur frá Ths. Sabroe í Árósum, en vélar frá þeirri verksmiðju hafa náð feikna mikilli útbreiðslu. Mun það tilgangur verslunarinnar er fram í sækir, að kaupa nýjan fisk hér af vélbátum og taka úr honum beinin — en selja „fisk- filet“ úr kælihúsinu; er þannig framreiddur fiskur orðinn rnjög eftirspurð verslunarvara, einkum vestan hafs, og þykir húsmæðrum handhægt að fá fiskinn í því ástandi frá kaupmanninum, að þær geti lagt hann beint á pönn- una. Ennfremur mun verslunin ætla sér að gera tilraunir með sölu á jtessari vöru erlendis, eink- um í Englandi. Er vert að gefa þeirri tilraun gaum, því að takist hún vel, gæti opnast nýr og ótak- markaður markaður fyrir þetta fisk-nýmeti. Og það þykir full- reynt víða erlendis — einkum í Bandaríkjunum — að hægra sé að koma fiskinum óskemdum á fjar- lægan markað, með því að taka úr honum beinin meðan hann er glænýr og láta hann strax í þær umbúðir, sem hann veröur í er neytandinn kaupir hann. Dronning Alexandrine kom hingað i nótt. Farþegar voru fáir. Meðal þeirra var mr. Allan i Hafnarfirði. , ísland kom til Leith kl. 2 í nótt. Er á útleið. Lyra kont til Vestmannaeyja í gær- kveldi og mun hafa farið þaðan um hádegi í dag. Getur skipið því eigi komið hingað fyrr en seint í kveld. Eigi að síður er gert ráð fyrir, að það komist héðan á til- settum tíma annað kveld. Skallagrímur kom af veiðurn í gærkveldi. Hafði veitt í salt og fengið 90 föt lifrar. íþökubræður eru beðnir að mæta kl. 8 í kveld í Goodtemplarahúsinu, uppi. Hjúskapur. Gefin voru saman í hjónaband síðastl. laugardag ungfrú Guð- finna Bjarnadóttir og Georg J. Grundfjörð. Heimili ungu hjón- anna er á Bragagötu 29. Gamla Bíó sýnir nú í síðasta sinn í kveld mjög góða mynd, er heitir „Kon- ungur betlaranna“. Nýja Bíó sýnir þessi kveldin mjög góða og efnisríka ntynd,er heitir „Fórn- fýsi æskunnar“. Fimtug er í dag frú Guðrún Jónasson. Áheit á Strandarkirkju, afhent Visi: 2 kr. frá J. A., 3 kr. frá J. Ó., 5 kr. frá ónefndri konu úr sveit, 5 kr. frá B., 5 kr. frá konu. Gjafir til fátækti stúlkunnar, aíhentar Vísi: 3 kr. frá S. S., 15 kr. frá N. N. Gjöf til sjóhrakta niannsins, afh'ent Vísi: 15 kr. N. N. Veðrið í morgun. Frost í Reykjavík 2 st., Vest- mannaeyjum o, ísafirði o, Akur- eyri 1, Seyðisfirði o, Grindavík o, Stykkishólmi 2, Grímsstöðum 4, Raufarhöfn 1, Blönduósi o, LIól- um í Homafirði liiti 2, Færeyjum 7, Angmagsalik frost 7, Kaup- mannahöfn hiti 6, Utsira 6, Tjme- A ntsölunni: Httaflösknr ág. teg. 1,40 Skolptötor emalll 1,90 DÖmnveskt 1 50 Ba natösknr 1,00 Barnnköonar 0.40 Kökndtska*' postnlin 080 Desertdt«kar — 0,50 Penfnqabadðnr 0.60 Blómstnrvasar 0 60 Vasaverktærl 0 80 Teskelðar 0 12 Sptl stór 0 60 Ú -festar 0,50 Kattlkönnnr emaill. 2.80 Lokhalðarar 0,50 20° 0 af 511u* K. Wmm s in». Nottð isienskar vörnr! TauMtar af ýmsum stærðum, verða seldír mjög ódýit á mO»g- nn, Fimtnðag Afgr. ÁLAFQSS. Simi 404 Hatnaratr. 17, língbarnavernd Líknar á föstudögum kl. B—4 í Bárngötn 2, iangangur frá Garðastræti. niouth 5, Hjaltlandi 8, Jan Mayen frost 8 st. — Mestur liiti hér í gær 2 st., mest frost 3 st. Úrkoma 5.2 mm. — Lægð fyrir sunnan land á austurleið. Grunn lægð yfir Vestfjörðum. Vestan stiniúngS' kaldi í Norðursjónum. — Horfur:, SuðvesturlandjFaxaflói og Breiða- fjörður: í dag breytileg átt og éljagangur. I nótt sennilega vestan átt. Vestfirðir: í dag og nótt norðan átt og éljagangur. Norð- urland: í dag og nótt hægviðri og dálítil snjókoma. Norðausturland og Austfirðir: í dag og nótt all- ltvöss norðaustan átt. Hríðarveð* ur. Suðausturland: í dag pg- nótt breytileg átt. Sumstaðar éljagang- u r.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.