Vísir - 15.04.1928, Side 3
VlSIR
Lítið í gluggana í dag Itjá
Vilcar
Laugaveg 21.
„ráögjaf i“ risavaxins fyrirtækis,
sem hefir biljón dollara í veltunni,
íélags þess, sem lætur smíöa meir
en helming allra bifreiöa, sem
íramleiddar eru i Bandaríkjunum.
Rascob hyggur, aö aukin véla-
notkun muni ieiða þaö af ,sér, a'ð
hæg-t verði að framleiða alt það,
sem íbúar jarðarinnar þarfnast,
þótt enginn maður vinni lengur
•en fimm daga á viku. Kemst eitt
ameríska blaðið að orði á þá leið,
að sannarlega væri það mikil gæfa
bilum mönnum, ef fullkomnari vél-
ar og aukin vélanotkun yfirleitt
gæti hvorttveggja í senn aukið
framleiðsluna eftir vaxandi þörf-
tim og velmegun manna, svo að
þfcir verði eigi til neyddir, að vinna
:Sex' daga á viku hverri, eins og nú.
William Green, forseti Verka-
ilýðssambands Bandaríkjanna, seg-
ir i blaðinu New York Evening
'World', að sambandið hafi tekið
■fimm vinnudaga vikuna upp á
■stefnuskrá sína, eftir margra ára
•athuganir og reynslu, er hafi leitt
'það í Ijós, að þessi stytting vinnu-
tíinans myndi hagkvæm og —
mannúöleg. Mr. Green — og einn-
tg Mr. Davis, atvinnumálaáðherra
Bandaríkjanna, hallast að þeirri
skoðun, að með fimm vinnudaga
■vikunni verði ráðin bót á atvinnu-
leysismeininu. En báðum er þeim
Ijóst. að fyrstu skrefin til þess, að
lcoma á fimm vinnudaga viku í
ameriskum verksmiðjum, sé að
gera avinnurekendum það alnrent
Ijóst, hversu heillavænlegar afleið-
ingar þessi stytting vinnutímans
myndi hafa.Blaðið „AlbanyKnick-
erbocker Press" lætur í ljósánægju
•sína vfir skoðun Mr. Rascob’s.
Kveður blaðið hann eitt srnn hafa
verið óbreyttan verkamann.
Þótt sum blöðin, sem um mál
þetta hafa skrífað, ali nokkrar
áhyggjur um það, hvernig menn
alment rnuni nota hina auknu
hvíldardaga, þá virðist tónninn í
blöðunum' yfirleitt vera sá, að af-
leiðingarnar af stytting vinnutim-
:3,ns muni verða heillavænlegar, en
-að ]rað rnuni taka nokkuð langan
■tima, þangað til hægt verði að
stytta vinnutímann alment i finim
vinnudaga á viku. Það gcti jafn-
■vel orðið mannsaldursbarátta, uns
•markinu er náð. Þó má geta þesn,
:að í fjölda verksmiðja í Bandarikj-
itnum vinna menn aðeins til kl.
12 á laugardögum. Blöðunum er
Ijóst, að ýmsir örðugleikar eru á
leiðinni að markinu, en það sé cng-
in ástæða til ])ess að vera vonlitlir
■um úrslitin. Eitt blaðið rninnir
menn á, að þegar barist var fyrir
því, að stytta vinnustundafjöldann
úr 12 í 10 stundir á dag, þá hafi
ýmsir haldið, að af rnundi leiða
„hrun lýðveldisins" og þar fram
eftir götunum. Nú mun almennast
unnið átta eða átta og hálfa stund
á dag, í amerískum verksmiðjum’,
en frámleiðslan per capita rneiri
heldur en þegar unnið var io
;stundir á dag. (FB).
Frú Annie Leifs.
Frá París er F. B,. skrifað:
Frú Annie Leifs, kona íslenska
tónskáldsins og hljómsveitar-
stjórnandans Jóns Leifs, var
gestur philliarmoniska músik-
félagsins hér í París, er það hélt
7. konsert sinn á þessu ári.
Frúin spilaði við þetta tæki-
færi i stærsta hljómleikasal
Parísar, „Grand Salle Playel“,
eingöngu verk eftir Mozart.
Dómarnir á þá leið, að frúin
hafi unnið mikinn „sigur“ með
hljómleik sínum. Píanóleikur
hennar þótti fagur og kvenlega
fínn og vakti mikla eftirtekt og
aðdáun áheyrendanna, sem áttu
þarna yndislega stund. Á söng-
skránni var liún kölluð is-
lenskur pianóleikari og varð
hún okkur tii sóma og landi
voru og vakti eftirtekt 4 þjóð-
erni voru. Eftirtekt mentaðra
Parísarbúa liefir hún vakið á ís-
lenskri list. og ekki liefir neinn
listamaður betur lialdið heiðri
íslands á lofti á músíksviðinu,
síðan Eggert Stefánsson söng
hér tvisvar 1925. Jón Leifs var
hér með konu sinni og fóru þau
hjónin héðan til Baden-Baden,
en þar liafa þau bækistöð sína.
Vinnur Jón þar mikið að tón-
smiðum og ggrir mikið til þess
að víðfrægja ísland. Væntanlega
gefst Reykvíkingum bráðlega
kostur á að hlusta á pianóleik
frú Leifs. ]>að er lcitun á jafn
sálargöfgandi list og píanóleik-
ur hennar er. — Danski sendi-
herrann var á hljómleikunum
og óskaði frúnni til hamingju
með sigurinn og lét í Ijós ósk
um, að hún færi til Kaupmanna-
liafnar og héldi þar liljómleika.
Bæjarfréttir
Dánarfregn.
Jón Torfason frá Hákonarbæ,
Aijóstræti io, andaðist í fyrradag
eftir langa legu, og er þar góður
og gamall Reykvíkingur til mold-
ar hniginn. Hann átti heima hér í
bænum alla æfi og forfeður hans
höfðu búið hér mann fram af
manni. Jón heit. var óvenjulegur
dugnaðar- og ráðdeildarmaður,
liinn vandaðasti maður til orðs og
æðis, vinsæll og vel metinn af öllum
scm hann þektu. Hann var mikill
maður vexti, skörulegur i sjón og
svipmikill. Kona hans, Guðríður
lielgadóttir, lifir eftir hann og
einn sonur þeirra, Ág'úst hús-
gagnasmiður, en tvö börn sín
mistu þau hjón uppkomin fyrir
nokkrum árum, Jón og Guðriði.
Jarðarför
Þorkels Guðntundssonar fer
íram á morgun, frá heimili hans,
I.okastíg 9, kl. i e. h.
Hjúkrunarfélagið „Líkn“
heldur skemtun í Nýja Bíó kl. 2 í
dag. Eins og venja er til um góð-
gerðafélög, á ,,Líkn“ við þröngan
liag að búa og væri æskilegt, að
skemtunin yrði svo vel sótt, að
ekkert sæti væri óskipað. Vandað
verður til skemtunarinnar eftir
föngurn. Meðal annars les Einar
H. Kvaran þar upp nýja skáld-
sögu eftir sjálfan sig. Er nú nokk-
uð umliðið, síðan er ný saga hefir
komið frá hans hendi. Mun
„Móri“ vera eitt hið síðgsta, sem
úv hefir komið eftir hann af því
tæi, en um þá sögu hafa staðið
miklar deilur, svo sem kunnugt er.
„íslandshús“ í Osló.
Um nokkur undanfarin ár
liafa ýmsir áhugasamir menn
í Osló unnið að þvi, mest fyrir
forgöngu I. Eyjólfssonar, ljós-
myndara, að komið yrði upp
„íslandshúsi“ þar í borginni.
Allmargir Islendingar eru þar
nú (og víða í Noregi) og sækja
þangað árlega ýmsir til náms,
er hafa ekki átt að ákveðnum
stað að hverfa og þykir for-
göngumönnunum það ilt. Vilja
þeir koma upp i Osló sæmilegu
húsi„ er orðið geti miðstöð ís-
lensk félagslífs þar, og ódýrt en
skemtilegt hæli þeim íslending-
um, sem þar eru á ferð. Telja
þeir réttilega að gagn nokkurt
mætti að slíku verða og gam-
an og hafa ýmislegt gert til að
vinna fyrir þessa liugmynd sína
í Noregi og safnað allálitlegri
uppliæð. Hér hefir þessu síður
verið sint, enda i mörg liorn að
lila lieima fyrir, en nú munu
forgöngumennirnir sækja um
nokkurn styrk til fyrirtækisins
liéðan. peir eru áhugasamir og
maklegir þess, að þeim yrði ein-
liver viðurkenning veitt.
Ó. S.
Mosfellsprestakall
í Grímsnesi er auglýst laust
til umsóknar. Umsóknarfrestur
til 24. mai n. k. — Síra Ingimar
Jónsson, sém þar hefir verið
prestur, hefir fengið lausn frá
embætti.
Dýralæknisembættið
í Reykjavík er auglýst til um-
sóknar. — Umsóknarfrestur til
I. júlí.
Síðasti sunnudagur í vetri
er í dag. Sumardagurinn fyrsti
er á fimtudag.
Öndvegistíð
hefir verið um land alt að
undanförnu, svo að menn muna
varla aðra eins. Tún eru farin
að grænka og víða farið að
að vinna á þeim.
Selfoss
fór á miðnætti i nótt vestur
og norður um land til útlanda.
Meðal farþega til Stykkishólms
var Hannes Jónsson dýralækn-
ir.
Trúlofun.
Nýlega hafa birt trúlofun
sína ungfrú Unnur Hildiberg og
porsteinn J’órarinsson, Melum
við Sellandsstíg.
Þingfréttir
frá í gær verða aö b'rða næsta
blaðs. — Telja má víst, ab þingi
veröi lokið næstk. miSvikudag.
»ÍX500000O00tXXXXXXXXXXiO0CS«0000Q0000000QO0000QO0QO00«
Sumargjafir
Alt sem eftir er af
Messingvörum, Veggmyndum, Mynda-
römmum, Barnaleikföngum og fl. verður
selt næstu daga með miklurn afslætti.
Þópunn Jónsdóttip
Klapparstíg 40.
SOOOOOOOOOÍiOOOÍXXÍOOOOOOOOÍXSOOOOOOOOOOÍXiOtiOOOOOOOOOOÍ
FERMINGARGJÖFIN:
Framsýnir foreldrar gefa börnum sín-
um ekki hjólhesta, fögur klæði eða því
um líkt,-muni sem eru ekki lengur til
eftir nokkur ár. Þeir velja því aðeins það,«
sem endist til að ylja og þroska göfugustu*
kendir anda þess, vera förunautur þess
jafnt í gleði og sorgum alt lífið út x gegn,
það sem heldur þakklátri minningu gef-
andans ávalt sí-úngri. Þeir velja
STEINWAY.
Avalt fyrlrliggjandl hjá:
Sturlaugur Jónsson & Co.
Hafnarstræti 19. Sími 1680.
ÍOOOOtlOtXÍOOtiQOOOOOÖtÍOOeOOOtÍOOtXiOOtÍCOOOtÍtÍtXiOOOOOtÍOOOtlOC
Skinn og tanhanskap
í fjölbpeyttu úrvali.
| VersL B]ó2*n Kpistjánsson,
Jón Björnsson & Go,
iooíiooootioetiotxxiixiooooöotxxioaotitxiooooooootiooooootiooooi
Aðgöngumiðar
að söngskemtun Jóns Guð-
mundssonar verða seldir í Gamla
Bíó eftir kl. i.
Stúkan Einingin
lieldur dansleik í G. T.-húsinu
í lcveld kl. 9.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 6 kr. frá þremur
piltum, 3 kr. frá S., io kr. frá Th„
2 kr. frá X., 25 kr. frá N. N„ 1 kr.
frá N. N„ 2 kr. frá „Laufer“.
Gjöf
til fátæku ekkjunnar 4 kr. frá
Þ.
Gjöf
til gömlu koniumar í Bjarna-
borg 10 kr. frá Þ. B.
Góður eiginmað-
ur gefur konunni
Singers
saumavél.
Magnðs Mimrn«Co.
íleykjavik.
Notuð lslensk
fíímerki
keypt hæsta
verði í
Bókabáölnnl
Laugaveg 46.