Vísir - 09.06.1928, Blaðsíða 2

Vísir - 09.06.1928, Blaðsíða 2
VIS L R Möfum fengið: Ullapballa 7 lbs Oaddavíp Gaucháda. Vírlykkjup do. Fy piplig g| an dis Ríó-kaffi. Hpísmj el. A. Obenliaupt, fæst hvarvetna af mOrgum tegundum. Menja sokkin. Skipverjar bjargast. Botnvörpuskipið Menja sökk kl. 4 í nótt vestur á Ilalamiði. Skipverjar björguðust allir og komust í Imperialist, en siðar tók Surprise við þeim og kem- ur með þá til Hafnarfjarðar í nótt. Óstöðvandi leki liafði komið að skipinu alt í einu, en að öðru leyti er ókunnugt umþetta slys. Menja var eign lilutafé- lags liér í bænum. Skipstjóri var Kolbeinn Þorsteinsson. Símskeyti Kliöfn, 8. júní. F. B. Poincaré flytur ræðu. Frá París er símað: Poincare hefir haldiö stefnuræSu sína í þ'ingjnu'. Fór hann fram á, aS stjórninni yröi veittur stuöningur til þess a'S leiöa til lykta viöreisn fjármálanna. Kvað hann Frakk- land reiðubúiö til þess að rétta óvinum sínum höndina, ef ]>eir héldu samningana. Frá Genf. Frá Genf er símað: Ráösfund- urinn hefir haft til umræðu deil- una milli Pólverja og Lithauen- rnanna. 'Fulltrúar sltórveldanna létu í ljós vonbrigði yfir þvi, að samningatilraunimar á milli þess- ara þjóða hefði hingað til ekki borið neinn árangur. Skoruðu þeir á báða aðila málsins að jafna deil- una áður en ráð bandalagsins kemur aftur saman, en það verður í septembemránuði. Frekari að- gerðum ráðsins frestað til þess fundar. Rússar leita að Nobile. Frá Moskwa er símað: Rúss- neskir flugmenn hafa verið sendir af stað að leita að Nobile. Eru þeir komnir til Arkangelsk, en halda þaðan til Franz Jósefslands. Utan af landi. Þjórsá 8. júní. FB. Tíðarfar ágætt uudanfarið, en menn kvarta alment undan of miklum þurkum. Útlit með spretlu er þó ágætt á túnum og valllendi, en miður á mýr- um. Yfirleitt má telja, að kom- inn sé Jónsmessugróður. Sauðburður gekk ágætlega hér eystra. Heilsufar gott. Ákvörðun var tekin á sýslu- fundi Árnessýslu í vor, að odd- vitum hreppanna í sýslunni yrði skrifað viðvikjandi fjár- framlögum og samskotum til væntanlegs skóla. — Fundur sá, sem ráð var fyrir gert, að sýslunefndir beggja sýslnanna liéldi um skólamálið, hefir enn ekki verið haldinn. Keflavík 8. júní. FB. Tíðarfar goít og ágætis fisk- þurkur. Fimm bátar komu að i gær og fyrradag, en höfðu eng'a síld fengið, og því ekkert aflað. Einn 'bátur hefir farið tvær ferðir til skerjanna við Eldey og aflað vel. Tveir bát- ar farnir norður til fiskveiða og 2—3 í undirbúningi að fara. Skálholti 8. júní. FB. Bliðviðri, sólskin og þurkar undanfarið. Spretta góð, en framfarir heldur litlar vegna þurka. Raklend tún ágætlega sprottin. Næturfrost hafa verið alt til þessa, en afar miklir hit- ar á daginn, svo þess eru ekki dæini síðan 1907, og þó seinna á vorinu. — Sláttur mun vart hyrja hér fyrr en í fyrsta lagi viku fyrr en vanalega. Fyrir nokkru var byrjað að grafa fyrir skólabyggingunni á Laugarvatni. Siglufirði 8. júní. FB. • Fiskafíi góður, 8—12 skip- pund á hát. Óvenju mikil liaf- síldarveiði, meðalafli 30—40 tunnur á bát. — Fremur köld veðrátta. — Nýlega er tekið til starfa kúahú, er bæriiin rekur með 22 kúm. Förin til Calais. Fimleikaflokkur Björns Jak- obssonar kominn heim. Gullfoss var kominn hér að hafnarmyrininu kl. 8 í gæé- kveldi, og var það nokkru f>Tr en húist var við. Nokkurir menn stóðu þá á liafnarhakk- anum, en þegar skipið lagði að landi, hálfri stundu síðar, höfðu þúsundir manna safnast þar saman og leyndi það sér ckki, að flestir voru komnir til þess að sjá fimleikaflokkinn, sem var að koma heim frá Ca- lais. „Nú ætti flugvélin að koma,“ voru þeir að segja, sem fyrstir komu á hafnarhakkann, og það var „eins og við manninn mælt“! Úti við sjóndeildar- liring sást dökkur depill, sem óðum færðist nær. Það var Súlan að koma úr Stykkis- hólmi. Hún sveif inn yfir hæ- inn, fór tvo liringa og settist skamt frá Gullfossi, og var komin inn í höfn á undan hon- um. Þegar fimleikaflokkurinn gekk á land, kom Ben. G. Waage, forseti í. S. I., móti honum og flutti stutta ræðu, og mannfjöldinn hrópaði fjórfalt húrra. Vísir hitti Björn Jakohsson að rnáli í gærkveldi, og farar- stjóra Tryggva Magnússon, og létu þeir afbragðsvel af förinni. Viðtökurnar voru hinar hcstu, eins og þegar er kunnugt orðið af skeytunum. Flokkurinn liélt fvrstu sýninguna í Aherdeen, en fór þá til Calais. Þar var honum tekið ágællega, fyrst í skrúðgöngunni um borgina og síðar, þegar hann sýndi íþróttir sínar. Hlaut hann stöðugt lófa- klapp, og af kvenflokkum, sem þar voru, var engum jafnvel tekið. Það sem hér.fer á eftir er haft eftir lauslegu samtali við fararstjórann. í Calais komst flokkurinn í kynni við hreska fimleika- kennara, sem vildu greiða götu lians, þegar til Lundúna kæmi, og létu þeir ekki lenda við orð- in ein. Þar voru haldnar tvær sýningar, og voru þar viðstadd- ir lielstu leikfimiskennarar Englands, sem sumir höfðu komið langar leiðar, til þess að horfa á flokkinn. Luku þeir mjög miklu lofi á leikfimis- kerfið, og þótti það fegurra en önnur kvennaleikfimi, sem nú tíðkast. Mikill fjöldi mynda var tek- inn af flokkinum, og hirtust þær í öllum helstu hlöðum horgarinnar. Eftir fjögra daga dvöl í Lundúnum fór flokkurinn til Edinhorgar og hélt þar eina sýningu og hlaut ágætar við- tökur. Voru þar viðstaddir leikfimiskennarar viðsvegar að úr Skotlandi, og má svo að orði kveða, að flokkurinn sé nú kunnur orðinn leikfimisfröm- uðum um alt Bretland og mundi eiga þar visar góðar viðtökur öðru sinni. Ekki varð nema einn íslend- ingur á leið flokksins. Það var Bergur,sonur Garðars Gislason- ar stórkaupmanns. Hann er í London, og sá myndirnar í hlöðunum og spurði flokkinn uppi. Margir sérfræðingar í leik- fimi létu í ljósi aðdáun sina á leikfimiskerfinu, og ætluðu að skrifa um flokkinn, og má vænta blaðaummæla með næstu skipum. Öruggara að fljúga. —O-- Dr. Frederick L. Hoffmann, einn af hagfræðingum liins al- kunna líftryggingafélags í Bandaríkjunum, „The Pruden- tial Life Insúrance Company“, hefir safnað skýrslum um flug- slys í Bandaríkjunum undan- farin ár. Er frá þessu sagt nokkuð í „The Daily Science News Bulletin“. Árið 1926 komu fyrir í Bandaríkjunum 160 flugslys, sem fólk beið bana í, en 1927 biðu 164 menn hana í flugslysum, og var þó flogið langtum meira það ár en árið á undan. Tiltölulega fátt þess- ara manna voru farþegar. — Árið 1927 voru á að giska 1500 flugvélastýrimenn í Bandaríkj- unum, sem höfðu opinber flug- skírteini. Ellefu þeirra biðu bana í flugslysum, eða sem svarar 7 af þúsundi, en það þykir lág tala, þegar tekið er tillit til þess, hve flugferðir hafa aukist, og margar nýjar flugleiðir eru kannaðar. Sam- kvæmt skýrslum Dr. Hoffmans er stöðugt að verða öruggara að fljúga. Flugslvs verða nú flest í reynsluflugferðum, æf- ingaflugferðum (i her og flota) og rannsóknaflugferðum, á áð- ur lítt könnuðum svæðum. Hoffmann segir, að árin 1925 1926 og 1927 hafi breska flug- félagið „Imperial Airways“ flutt 52.000 farþega 2.500.000 mflur, án þess nokkurt alvar- legt flugslys yrði af. Til sam- anbúrðar getur hann þess, eft- ir „London Times“, að árið 1842, á bernskuárum járn- brautanna, hafi 10.000 manns ferðast á járnbrautum Bret- lands alls 3.500.000 mílur, en 22 menn beðið bana af völd- um járnbrautarslysa. I skýrslu frá flugmáladeild verslunarráðuneytisins amer- íska er sagt, að af 200 alvar- legum flugslysum hafi aðeins sex orðið á áætlunarleiðum flugfélaga; af völdum þessara sex flugslvsa liafi sjö menu heðið bana, en aðeins einn þeirra verið farþegi. (FB.). Messur á morg-un. í dómkirkjunni kl. 11, síra Friðrik Ilallgrímsson. Kl. 5 safnaðarfundur. í fríkirkjunni hér kl. 5 sira Árni Sigurðsson. í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2, síra Ólafur Ólafsson. í Landakotskirkju: Hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd. guðs- þjónusta með predikun. — í spitalakirkjunni í Hafnarfirði: hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd. guðsþjónusta með predikun. í Hafnarfjarðarkirkju kl. 1, síra Bjarni Jónsson dómkirkju- prestur. — Safnaðarfundur eftir messugjörð. Sjómannastofan: Guðsþjón- usta kl. 4 (ekki kl. 6). Allir vel- komnir. Hjálpræðislierinn. Samkoma á morgun kl. 11 árd. og kl. 8% síðd. Sunnudagaskóli kl. 2 e. h. sss» Hin mjög þekta og brautryðjandi 2 GLERAUGNASALA SJERFRÆÐING8IN8 LAUGAVEG 2 er einasta gleraugna-sérverslun á íslandi, þar sem eigandinn og stjórnandinn er sérfræðingur. Hann hefir fyrstur allra hér stofn- aiS hina framúrskarandi góðu og nýju aðferð: „SJERSTÖK RANNSÓKNAR- & SKOÐUNARBORÐ". Þar (Laugav. 2) verða gleraugu mátuð með nýtísku áhöldum, nákvæmt og ÓKEYPIS. Með fullu trausti geti'S þér snúiS ySur til elsta og þektasta sér- fræðingsins: AÐEINS LAUGAVEG 2. — FariS ekki húSavilt!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.