Vísir - 19.06.1928, Síða 3

Vísir - 19.06.1928, Síða 3
VI S 1 H stíl liún er, og vegna þess, að allur kostnaður verður meiri i byrjun. Nú er alt kapp lagt á, að gera flugið sem ódýrast, og miðar hugvitsmönnum vel áfram á þeirri braut. Hinar léttu vélar með styrklitlum hreyflum, eru altaf að fullkomnast, og mönn- um hefir tekist að gera vélar, sem lyft geta tvöfaldri þyngd sinni. Eftir þrjú til fimm ár má gera ráð fyrir, að afköst vél- anna hafi tvöfaldast frá því sem nú er, og kostnaður við flug lækkað að sama skapi.Það eru ekki nema tíu ár, síðan far- ið var fyrir alvöru að hugsa um að gera vélarnar að sam- göngutæki, og hæri þá nýrra við, ef þær ætti að vera þeim lögum liáðar, að þær hættu alt í einu að fullkomnast. Þó er kostnaðurinn við að fljúga ekki meiri en svo, að oft getur fólki verið beinn sparnaður að því, að nota loft- leiðina í stað skipa, þesta eða bifreiða. Landferðalag héðan norður til Akure>Tar verður t. d. tvímælalaust dýrára en með flugvélum, þó ekki sé talinn timasparnaðurinn. Og póst- flutningur á hestum til fjar- lægra staða sömuleiðis. Samkepnin við bifreiðar á stuttum leiðum verður erfiðust. En menn gæta þess ekki, að þær samgöngur eru óbeinlínis studdar af ríkisfé. Vegirnir, sem bifreiðarnar fara, kosta svo mikið fé, að ef bifreiðaeig- endurnir ættu að greiða lagn- ingar- og viðhaldskotstnað sjálfir, mundu bifreiðarnar ekki samkepnisfærar. Og þeg- ar þessa er gætt, mælir öll sanngirni með því, að rikið styrki flugsamgöngurnar rif- lega, þvi annars er þeim gert órétt til. Hvar mundu íslensk- ar samgöngur staddar, ef ríkið hefði ekki lagt miljón á mil- jón ofan fram, til þess að gera vegi og byggja brýr, og greiddi styrk sem nemur hundruðum þúsunda á ári, til strandferð- anna. Það mætti óefað nú þeg- ar vera hægt að koma á sæmi- legum flugferðum landshorn- anna á milli — við mjög hóf- legu fargjaldi, — með styrk sem aðeins næmi litlu broti af þeim upphæðum. Sumir virðast vilja krefjast þess, að flugsamgöngur geti annað þungavöruflutningi fyr- ir sæmilegt verð; menn hafa talað um mjólkurflutninga austan úr Flóa og þess háttar. Þetta er ekki tímabært ennþá. Menn hafa ekki enn þá séð sér hag i því, að flytja rúgmjöl eða kol í pósti, en engum dett- ur í liug að amast við póstsam- göngum fyrir því. En flugsam- göngur liafa nægt verkefni fyr- ir því. Og meira verkefni liér en annarstaðar. fsland er viðáttu- mikið og strjálbygt, og það er landinu um megn að tengja saman allar bygðir með járn- brautum og akvégum. Erfið- leikarnir eru svo miklir, að þjóðin hefir eigi að svo komnu séð aðra leið færa, til þess að koma sér upp járnbrautar- spotta milli Iiöfuðstaðarins og þéttbýlustu sveitanna en þá, að fela það útlendingum og gefa þeim sérréttindi í staðinn. Hér á íslandi er aðstaðan alveg ein- stök að þessu leyti. Flugvélin er hið eina, sem komið getur samgöngunum í viðunanlegt horf í nálægri framtíð. Því hún er óháð vegum, brúm og stál- teinum. Veðrinu er hún liáð, en það eru allir. Sk. Sk. Allsherjarmótið. 2. dagur Allsherjarmótsins var i gær, og var kept í þessum iþróttum: Langstökk. 1. varð Svein- björn Ingimundarson, stökk 6,55 m. (nýtt ísl. met), 2. Reid- ar Sörensen 6,27 m., 3. Helgi Eiriksson 5,55 m. — Sveinbjörn stökk öll gild stökk sín yfir gamla metið og bar svo af keppinautum sínmn, að segja má, að hann hafi staðið þeim langtum framar og að eins Sörensen komst þar með tærn- ar sem Sveinbjörn hafði hæl- ana - bókstaflega talað. Stökk- lengd Sveinbjörns byggist aðal- lega á þvi tvennu, live góðri hæð hann nær í stökkið og sprettinum; kemur sprettliraði hans honum að góðu haldi í þessari íþrótt umfram allar aðrar, enda er langstökk og spretthlaup þær tvær íþróttir, sem skj'ldastar eru og heppi- legast að sameina. Það er ætíð gleðilegur atburður, þegar met- in okkar mjakast eitthvað áfram; nógu langt eru þau samt á eftir metum stórþjóð- anna enn þá, en það eykur þó ánægjuna, þegar þau afrek eru unnin á þann hátt, að ekki er um neina tilviljun eða heppni að ræða, lieldur byggjast á 'stöðugri þroskun og þjálfun líkamans. Það, livað öll stökk Sveinbjörns voru jöfn, gefur góðar vonir um að liann teygi eiln meira úr metinu, því það bendir á, að þetta séu meðal- stökklengdir hans nú. Hvað skyldi liann komast langt, ef hánn næði sérstaklega góðu stökki? 5000 m. hlaup. 1. varð Geir Gígja á 16 mín. 30,4 sek., 2. Jón Þórðarson 16, 34,2, 3. Bjarni Ólafsson 16, 45. — Geir hljáp fyrstur alla leið og Jón Þórðar- son altaf næstur. Tíminn er all- góður, svo að aðeins tvisvar áður liefir verið lilaupið á betri tíma liérlendis. Hástökk: 1. varð Helgi Ei- ríksson stöklc 1.615 m., 2. Svein- björn Ingimundarson 1.59 m., 3. Reidar Sörensen 1.515 m. — Stökkvararnir voru ekki vel upplagðir i þetta skifti og Helgi alveg óæfður; liafði ekki getað æft, vegna lasleika undanfarið. Kringlukast (beggja li. sam- anl.): 1. varð Þorgeir Jónsson, kastaði 64.43 m. (betri h. 35.50) 2. Ásgeir Einarsson 54.29 m., 3. Sigurjón Jónsson 50.44 m. — Þorgeir kastaði vel að vanda, en var þó ekki vel æfður nú; enda alllangt frá metum sín- um, bæði annarar og beggja li. Mótið heldur áfram í kveld, og verður þá kept í 800 m. lilaupi og reiptogi. Bæjarfréttir =»o Höfum fyrirliggrjandi; Rúgmjðl og Hálfsigtimjöl fpá Aalborg Ny Dampmölle. H. Beneditetsson & Co. Sími 8 (fjórar líniir). □ E1)DA. 59286246 - 1. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík n st., ísaf. io, Akureyri io, Seyðisf. 9, Vest- mannaeyjum 8, Stykkishólmi 7, Blönduósi 7, Raufarhöfn 5, Hól- um í HomafirSi 9, Grindavik .11, Færeyjum 8, Julianehaab 6, Ang- inagsaJik 13, Jan Mayen 4, Hjalt- landi 9, Tynemouth 9 st. (Engin skeyti frá Khöfn). Mestur hiti hér i gær 16 st., minstur 9 st. Grunn lægð fyrir sunnan land, hreyfist hægt austur eftir. Horfur: SuS - vesturland: I dag og nótt breyti- leg átt. Víðast suðvestan. Dálítil rigning. Faxaflói: 1 dag og nótt hægviSri. Skúrir sunnan til. Breiðafjörður, Vestfirðir, Norður- land: í dag og nótt hægur austan og norðaustan. Þurt veður. Norð- r.usturland: í dag og nótt austan átt. Þurt loft og dálítil rigning. Austfirðir og suðausturiand: 1 dag og nótt hægur austan. Sum- staðar skúraleiðingar. Prófessor Ágúst H. Bjamason var 17. þ. m. kjörinn háskóla- rektor næsta skólaár. Leikhúsið. „Æfintýrið" verður enn leikið á morgun og aðgöngumiðar seldir við lækkuðu verði (alþýðusýn- ing). Leikiö var i gærkveldi við svo góða aðsókn, að hvert sæti í húsinu var skipað og urðu ýmsir frá að hverfa. Síðustu hljómleikar Fritz Dietzmann og Folmer-Jen- sen verða í Gamla Bio kl. 7)4 í kveld. Kemur öllum þeim, er á þá hafa hlýtt, saman um, að þeir séu ágætir listamenn, sem verðskuldi mikla aðsókn. Verður þetta allra siðasta tækifærið til að hlusta á leik þeirra félaga, því að þeir halda heimleiðis á Islandi annað kveld. Aðalfundur Hins islenska Bókmentafélags var haldinn 17. þ. m. að kveldi. Stjórnin skýrði frá gerðum félags- ins siðastliðið ár. Nú eru i félaginu rúmlega 1700 félagar og höfðu 78 bætst við á árinu. Félagið gefur út á þessu ári: Skími, Fornbréfa- safn, Annála og Safn til sögu Is- lands. Heiðursfélagi var kjörinn Sigurður Kristjánsson bóksali. Birt voru úrslit stjórnarkosningar cg höfðu þessir verið endurkosn- ii : Dr. Guðmundur Finnbogason forseti, Matthías Þórðarson vara- forseti og Dr. Hannes Þorsteins- son og Sigurður Kristjánson. Sjómannafélag Reykjavíkur og Sjómannafélag Hafnarfjarð- ar tilkynna: Samningar um kaup- greiðslur við síldveiðar í sumar hafa strandað, fyrir þá menn, sem verða á togurum og línubátum. Félögin auglýsa í dag aðvaranir til félaga sinna og annara verk- lýðsfélaga, að ráða sig ekki á nefnd skip, fyrr en samningar hafa tekist. títgerðarmenn hafa snúið sér til stjórnarinnar um sáttatil- BARNAFATAVERSLUNIN Klapparstig 37. Sími 2035. Fjftlbreylt úrval af barnanær- fatnaöi, sérlega hentu«um fyrir sumarið. Hjarta-as smjQrið er vlnsælast. 4sgaröar. Fiður nýkomiöJ raun og hefir hún sett Georg Ól- afsson bankastjóra til þess að vera sáttasemjara í stað Björns Þórðar- sonar, sem nú er staddur erlendis. Brúarfoss var í Leith í gær á leið hingað. Flann mun hafa farið þaðan í nótt. Fylla og óðinn komu úr Borgarnesi í nótt meö ráðgjafarnefndina dansk-íslensku. S. R. F. í. heldur fund á fimtudagskveld kl. 8y2 í Iðnó. Hæstaréttardómari Páll Einarsson flytur erindi um „Skrif Cleóphasar" (Postulasög- una, sem rituð hefir verið ósjálf- rátt). Umræður verða á eftir. Reykvíkingur kemur út á morgun. Gjöf í samskotasjóð „Jóns Forseta" afhent Vísi: kr. 886.25 frá Leikfé- lagi Reykjavíkur; Áheit á Strandarkirkju, afh. Vísi: 2 kr. (gamalt áheit) frá P., 2 kr. frá konu í Grindavík, 10 kr. (upp í gamalt áheit) frá A. J. Prinsessan sem er vinnukona. Trjáviður mannamatur, Fyrsta fjarsýnisstöð reist, Blóðhefnd á Korsíku, Fluga veldur dauða, Maðurinn sem vildi í tugthúsið, Hvor verð- ur á undan til suðurpólsins, Wilkins eða Byrd?, Gullstássi dreift um stræti, Samkepnis- grein um kvenfólkið, Slysið á Breiðamerkurjökli, Skradd- arinn sem skaut manninn, Kemur inflúensan til Reykja- víkur í sumar ?, og margt fleira í „Reykvíking", sem kemur á morgun. Seldur frá Laugaveg 24 B og afgreiðsl- unni í Tjarnargötu, rétt hjá Herkastalanum. Há sölulaun og verðlaun fyrir ])á sem selja 30. Stór tttsala # I 33% 20% og iO°/o afsláttur frá hinu lága verði á hinum ágætu hreinlaatis- vörum lyfjabúðarinnar, svo sem: Andlitscream, andlits- púður, tannpasta, sápur, svampar, greiður, burstár, kvastar, Cutex vörur, hár- vötn, ilmvötn frá kr. 1,00 o. m. fl. Komið og gerið góð innkaup. íóocoooooo; x x x xxíooqooooooc XSOOOOOOOOOOÍ X X X ÍOOOOOOOOQC Stdrt úrval af fataefnum fypipliggjandi, af öllum teg. Komið sem fyrst. Guðrn. B. Vikar Sími 658 Laugaveg 2. ÍOOOOOOOOOÍ X X X xxxxxxxxxxxx

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.