Vísir - 27.06.1928, Blaðsíða 2

Vísir - 27.06.1928, Blaðsíða 2
VISIR Nýkomið: Laukup í pokum. Kartöíluinj el. Fyrata flolcks pianó Koaefa fjpá kongl. hollenskpl píanóvepksmlðju, mahogni, polep- að, 2 pedalar. Með afborgunum. A. Obenliaupt, + Frú Astrid Kaaber kona L. Kaaber, bankastjóra, andaðist síðdegis i gær eftir langvinnan sjúkleik, 44 ára að aldri. Æviatriða þessarar nierku konu verður síðar minst hér í blaðinu. Símskeyti Khöfn 26. júní. FB. Konungur Egipta rekur lands- stjúrnina frá völdum. Frá London er símað: Kon- ungur Egipta hefir sett stjórn- ina af með opinberri tilkynn- ingu. Er þar sagt að það sé vegna þess, að stjórnin hafi ekki nægilegt þingfylgi. En al- ment er álitið, að afsetning stjórnarinnar sé þannig til komin, að blöðin hafa birt á- sakanir um að Nasha stjórnar- forseti hafi lofað geðveikum prins að hann fengi aftur eign- ir sinar, er stjórnin liafði lagt liald á, gegn þóknun til Nasha. Lundborg hlekkist á. Frá Stokkhólmi er simað: Þegar Lundborg liafði bjargað Nobile, flaug hann af stað aft- ur, til að reyna að bjarga fleir- um. En þegar hann lenti aftur á ísnum nálægt Foyn-eyjunni hjá félögum Nobile, skemdist flugvélin og kemst Lundþorg þaðan ekki fyrr en hjálp kem- ur. Svíar hafa flutt Nohile í skip- ið „Citto de Milano“. iAmundsen ófundinn enn. Frá París er símað: Franska sljórnin liefir sent Pourqui pas? til að leita að Amundsen. Dr. Charcot fer með skipinu. Schubert'Söngvar. Frú Dóra Sigurðsson. Árin 1927 og 1928 marka bæði tímamót í minningu tónlistarinnar að því leyti, að liðin voru í fyrra 100 ár frá dauða Beethovens, en á þessu ári er 100 ára dánarafmæli Schuberts. Beethovens var rækilega minst um allan heim í fyrra með minn- ingargreinum og hljómleikum með tónsmíðum hans. Nú eru einnig hafin hátíðahöld í Wien og víðar í tilefni af Schuberts afmælinu, þó að dánardagur hans sé ekki fyr en í haust. Franz Schubert var einstökum gáfum gæddur. Hann er beinlínis brautryðjandi í sönglagagerð og náði þar þeirri fullkomnun og sk^ipandi, að aðrir hafa ekki fram úr honum farið. En einnig á öðr- um sviðum tónlistarinnar liggja éftir hann ódauðleg listavei’k, og má t. d. benda á symphoníurnar í h-moll og C-dúr o. m. fl. En mest- ur mun Schubert verða talinn á sviði sönglagagerðar. Þar bæði sameinar hann dásamlega lag og ljóð, svo að þau verða að listrænni heild, og auk þess leikur honum í hendi, að fá hljóðfærinu sjálfstætt hlutverk með söngnum i samræmi við efni og anda ljóðsins, og fer þar saman hjá honum lifandi hug- kværnni, ljóðræn tilfinning og óskeikul smekkvisi. Annað kvelcl (fimtudagskveld) eiga bæjarbúar von á að heyra sungið úrval af söngvum Schu- berts. Gerir það frú Dóra Sigurðs- son, samlandi Schuberts, sem kom- in er hingað til sumardvalar ásamt manni sínum, Haraldi Sig- urðssyni, pianoleikara. Frú Dóra cr kona hámentuð í sönglist. Hún er gædd þeim skilningi á anda söngvanna og frábærri smekkvísi á flutningi ljóðs og lags, að áheyr- endur eru leiddir inn í heima sem sannir listamenn einir geta opnað mönnum. Hér er oft kvartað yfir ]jví, bæði manna á milli og í blöðum, ef ekki er því meira sungið af íslenskum lögum á hljómleikum. Það er sjálfsögð skylda okkar að halda v.ppi þeim íslenskum lögum, sem ];að eiga skilið. En sönglagagerð okkar er enn svo skamt á veg kom- in, að okkur er hvað mest nauðsyn, cinmitt til þess að glæða skilning okkar í þessu efni og halda í átt- ina, að heyra sem mest af því, sem best hefir verið gert með öðriun þjóðum, sem okkur eru svo miklu íremri á því sviði. Og mönnum ælti að vera það sérstakt fagnaðar- efni, að eiga von á. að heyra svo ágæta list, sem .að þessu sinni, flutta af svo samhentum og ágæt- um listamönnum, sem þau eru bæði hjónin, Dóra og Haraldur Sigurðsson. Páll ísólfsson. Utan af landi. Úr Reykholtsdal 27. júrií, FB. Landsmálafundur var haldinn í ungmennafélagshúsinu hér í gær. Sótti margt manna fundinn, líklega verið 200—300 manns, þegar flest var. Var fundurinn fyrst haldinn úti. Fundarstjóri var kosinn Björn Jakobsson frá Stóra-Kroppi. Ræð- ur héldu þingmaður kjördæmisins, Pétur Ottesen, Bjarni Ásgeirsson, þingmaður Mýramanna, Jónas Jónsson dómsmálaráðherra og Jón Þorláksson verkfræðingur. Engar tillögur voru samþyktar. Ræðum manna var vel tekið, og fór fund- urinn friðsamlega fram. Ógerlegt að segja hvor flokkurinn átti meira fylgi á fundinum, þar sem engar ályktanir voru bornar undir at- kvæði, en hvorutveggja flokkarnir voru liðsterkir á fundinum og lík- lega áhöld um, hvor hefði haft meira fylgi, ef til atkvæða um á- lyktanir hefði komið. Slæm spretta, vegna mikilla þurka. Rigndi þó nokkuð fyrir lið- lega viku síðan, og bætti það mikið úr. Sláttur bvrjar vart hér uppi í dölunum fyrr en um likt leyti og vant er. — Heilsufar gott. Allsherjarmútið. 200 metra hlaup: 1. varð Svein- björn Ingimundarson á 24.1 sek., 2. Garðar S. Gíslason 24.8 sek., 3. Kristján L. Gestsson 25.1 sek. — Met Garðars er 23.4 sek., svo að tími Sveinbjörns er aíl-góður. 110 metra grindahlaup: 1. varð Reidar Sörensen á 19.2 sek., 2. íngvar Ólafsson 20.8 sek. (nýtt ís- lenskt met; hið gamla var sett 1911, 21 sek. réttar), 3. Sveinbjörn Ingimundarson, Sigursteinn Magi- ússon og Kristján L. Gestsson, all- ir jafnir á 21.0 sek. — Þessi íþrótt heíir litið verið iðkuð hingað til og grindurnar ekki einu sinni ver- ið til til skamms tíma, enda er met- ið eitt af allra lélegustu meturn okkar. 5000 metra kap,pganga: 1. varð Iíaukur Einarsson á 28 mín. 45.4 sek., 2. Óskar Bjarnason á 29.54.4, 3. Ottó Marteinsson. — Kapp- ganga er altaf mjög vafasöm íþrótt og má lengi deila um hvort rétt sé gengið eða ekki, þurfa dóm- CharlestoiiskóF fywp böpn og fullopðna uýkomfflip, Hvannbergsbræður. KXXXXMWQOtKXXtQOOQQQOOOOCN Sími 542. ><^XWinnaaOQ(XXXXXXXXXXXXKM Ef iennumar vantar gljáa. Gerið þá þetta.' 2081 A MABK ÓKEYPIS 10 daga túpa. A. H. RIISE, Bredgade 25 E Kaupmannahöfn K. Sendið Pepsodent-sýnishorn Hl 10 daga til Nafn.................................... Heimlli......'.......................... Aðeins ein túpa handa fjöiskyldu. jC.40v arar því, að hafa talsverða þekk- ingu á íþróttinni og æfingu í starfi sinu, til að geta felt rétta dóma. Gangan mun að þessu sinni, eins og reyndar oftar, hafa verið all- vafasöm, hvað lagið snertir. Kúluvam• t varð Þorp-eir Tóns- PEYN,Ð Þessa athugaverðu nýju aðferð ivu uvarp. i. \aiö po geu J IV eftjr fyriiniælum helztu sérfræðinga son, kastaði 19.66 metra saman- íjúfasta bros verður Ijótt, ef tenn- lngt með báðum höndum; 2. urnar eru dökkar. Nú gera vístndi vorra . ,T „. tíma blakkar tennur blikandi hvítar á ný. I rausti Haraldsson 18.35; 3- Sig- það hefur sýnt si& að blakkar tennur ursteinn Magnússon 17.88 m. — eru blátt áfram því að kenna, að á tönn- Það er næstn furðulep-t hve mikið unum mYndasthúð- Rennið tungunni um 1 ao ei næsta iurouiegt, n\e miKio tennurnar og þðr finnið þessa buð nú;það clnbogabarn „kúlan“ er hjá okkur er eins konar hál himna. íslendingum, og sýnist varla ein- Hun hefur í för með sér skemdir í tönn- , . ö . • . . , , um, kvilla í tannholdi og pyorrhea, sokum leikið, er miðað er við afrek ut- þess að sóitkveikjur þrífast í skjóli hennar. lendinga á þessu sviði. Varla er Nú hefur fundizt vísindaleg aðferð tii s,„ ómerkilegt svei.amó, haldió ^gjS&T'’ "* d. í Noregi eða Svíþjóð, að ekki Reynið það. Sendið miðann í dag og þér kasti einn eða fleiri menn yfir II munuð tá ókeypis sýnishorn til 10 daga. —12 metra með betri hendi og oft lengra. Skýringin á þessari gátu er þó að líkindum sú sania, sera svo oft á við hér: of lítil og einkan- lega of óreglubundin æfing. 400 metra hlaup: 1. varð Svein- björn Ingimundarson á 54.9 sek., 2. Geir Gígja á 57.1 sek., 3. Krist- ján L. Gestsson á 58.5 sek. — Illaupið var á sérbrautum og í riðlum; urðu því flestir þátttak- endur að hlaupa 2 og 3 sinnum; befir það auðvitað haft slæm áhrif á tímann í úrslitunum. í milliriðl- unum náði Stefán Bjarnarson betri tíma (56.6) en 2. og 3. maður í úr- slitunum, en það hefir engin áhríf á úrslitin. 2. maður í úrslitunum náði einnig betri tíma þar (55.9). 10000 metra hlaup: 1. varð Jón Þórðarson á 35 mín. 6 sek., 2. Bjarni Ólafsson á 35 mín. 6.6 sek., 3. Þorsteinn Jósefssón á 35 mín. 21.6 sek. — Hlaupið var vel hlaup- ið og fjörugt, enda var þátttaka óvanalega góð, en hefði þó mátt vera hraðar í byrjun. Þegar fyrri helmingur þolhlaups er hlaupinn á líkum eða lengri tíma en síðari helmingurinn, næst aldrei sá tími, sem maðúrinn getur best náð, i raun og veru. Ef svo hefði verið hlaupið nú, hefði sigurvegarinn varla orðið langt frá meti, en eigi er víst, að hann hefði orðið sá sami og nú varð. Bjarni Ólafsson bljóp fyrstur mestalla leið, en þeg- ar 250 metrar voru eftir að marki spretti Jón fram fyrir. Fimtarþraut: 1. varð Sveinbjörn Ingimundarson með 2062 stig, 2. Jens Guðbjörnsson 1998.225 st., 3. Ingvar Ólafsson 1800.000 stig. — Aðstaða var slæm; mótvindur við köstin, langstökk og 200 m. hlaup- 1 iö og spjótin slæni:. Iiafði þetta slæm áhrif á árangurinn í heild sínni 1500 metra boðhlaup: 1. varð K. R. (1. sveit) á 3 mín. 47.0 sek., 2. Ármann (1. sveit) á 3 mín. 51.7 sek., 3. I. R. á 3 mín. 59.0 sek., 4. K. R. (2. sveit) á 3,59.2 og 5. Ár- mann (2. sveit) á 4,24.0. — Hlaup þetta hefir eigi verið hlaupið hér aður, nerna á siðasta allsherjar- móti, og var þá byrjað á stystu vegalengdunum en nú á þeirn lengri og endað á þeirri stystu. Annara atriða mótsins hefir þeg- ar verið getið. Bæjaríréttir Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 st., ísafirði 9, Akureyri 7, SeyðisfirSi 7, Vest- mannaeyjum 10, Stykkishólmi 8, Blönduósi 5, Raufarhöfn 4, Hólum í Hornafirði 9, Grindavik 12, Fær- eyjum 7, Julianehaab 6, Angraagsa- lik 6, Hjaltlandi 9, Tynemouth 10, Kaupmannahöfn 13. Mestur hiti hér í gær 15 st., minstur 9 st. Úr- koma 1 mm. — Grunn lægð yfir sunnanverðu íslandi. Andsveipur vestur af Bretlándseyjum. — Horf- ur í dag og nótt: Suðvesturland og Faxaflói: Vestan átt. Skýjað loft. Sumstaðar dálítil rigning. Breiða- f jörður og Vestfirðir : Hægur norð- an og austan. Sennilega úrkomu- laust. Norðurland, norðausturland og Austfirðir: Hægur vindur. Víð- ast á norðan. Sumstaðar nætur- ])oka. Suðausturland: Hægviðri. Sumstaðar skúrir. 70 ápa reynsla og vísindalegar rannsóknir tryggja gæði kaffibætisins enda er hann heimsfrægur og hefir 9 s i n n u m hlot- ið gull- og silfurmedalíur vegna framúrskarandi gæða sinna. Iíér á landi hefir reynslan sannað að VERO er miklu betri og drýgri en nokkur annar kaffibætir. Notið að eins V E R O. J?að marg borgar sig. í heildsölu hjá HALLDÓRI EIRÍKSSYNI Ilafnarstæti 22. Reykjavík. t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.