Vísir - 29.06.1928, Page 2
VISIR
Nýkomið:
Laiikur í pokum.
Kaptðflumj el.
Nýkamíö j
Baunir, Snittebaunir, Carot-
ter, Champignons, Tomat
pureé, Spinat, og Epla geleé.
A. Obenlismpt.
Ný uppskera.
Nýjar ítalskar kartöflur komu
nú meS síöasta skipi, og verða
seldar í pokum og lausri vigt, sér-
staklega ódýrar á þessum tíma árs-
ins.
Ton og Brokkustíg i.
Símskeyti
Ivhöfn, 28. júní. FB.
Frá Nobile. — Nánari fregnir.
Frá Rómaborg er simað: Nán-
ari skýrsla hefir verið birt frá
Nobile. Segir hann, að vólar-
maðurinn, Pomalla, liafi meiðst,
þegar gondóll loftskipsins rakst
á ísinn. Pomalla andaðist
skömmu síðar. Rétt á eftir að
loftskipið sveif á brott frá
Nobileflokknum, sást reykjar-
mökkur mikill. Giskar Nobile
á, að kviknað hafi í benzín-
geymi loftskipsins.
Pilsudski beiðist lausnar.
Frá Varsjá er símað: Pilsud-
ski hefir beðist lausnar frá því
að vera forsætisráðherra, vegna
beilsubrests. Hefir Bartel tekið
við forsætisráðherraembættinu.
Pilsudski verður áfram her-
málaráðberra.
Utan af landi.
—o—-
Akureyri, 28. júní, F. B.
í fyrrakveld lagði KriStján
Kristjánsson bifreiðarstjóri, á-
samt tveimur aðstoðarmönnum,
af stað héðan í gamalli Ford-
bifreið, og komust lil Húsavik-
ur. J^aðan í gær til Skútustaða
við Mývatn, og komu aftur
bingað kl. 21/* í nótt. Ferðin
gekk vel. Er þetta í fyrsta skifti,
sem þessi bifreiðarþraut er
leyst.
Akureyrarskþíin eru að búa
sig á síldveiðar. Sjöstjarnan og
Reginn eru farin. Síldarvart um
allan sjó.
Söngiix*
frú Dóru Sigurðsson í Gamla Bíó
í gærkveldi mun lengi verða minn-
isstæður hinum mörgu, senr á hann
hlýddu. Frúin hefir oft sungið vel
áður hér í Reykjavík, en liklega
aldrei eins vel og í gær. — Eg býst
við, að margur hafi í byrjun söng-
námsins haft hetra efni en hún,
þegar tillit er tekið til raddarinnar
sjálfrar, eu fáum tekst að ná því
valdi yfir röddinni, sem frú Dóra
hefir náð. Þó hefir tónn hennar
stundum verið dálítið á reiki, ekki
fullkomlega nógu skýr. I gær gætti
þess þó ekki. En hún hefir í þess-
stað fengið í vöggugjöf andlega
sönggáfu svo næma, að manni er
mikil gleði aÖ kynnast henni. Það
er óhætt að segja, að frúin gefi
manni sínum ekki eftir á ])ví sviði,
og er ])á mikið sagt. ’
Frúin færðist mikið í fang, er
hún, í minningu ioo ára dánaraf-
mælis Schuberts, tókst á hendur
að túlka sönglagaflokk Schuberts,
,,Die schöne Múllerin“, en eg hýst
við, að hún hafi leyst af hendi
hlutverk sitt eins vel og nokkur af
aðdáendum hennar gerði sér i hug-
arlund. Söngur hennar var í alla
staði svo snildarlegur, að hann er
einsdæmi í músíklífi Reykjavíkur.
Henni tókst með sínum fágæta
söng, að veita áheyrendum sínum
músíknautn, sem sjaldfengin er
leitendum hennar, — hvar sem vera
skal (vil eg leyfa mér að segja).
Frúin hefir með söng sínum í gær
hafið mannsröddina til þeirrar
virðingar meðal vor, sem henni ber,
sainanliorið við önnur hljóðfæri í
höndum hinna hestu manna, sem
íbúar þessa bæjar hafa heyrt fyrr
og síðar. En það skal þá einnig
tekið fram, að þrátt fyrir vandann,
sem verkefninu fylgdi, lágu öll
þessi lög, 20 að tölu, prýðilega fyr-
ir rödd hennar og skapgerð, eins
og flest lög Schuberts (og Schu-
manns) með allri sinni viðkvæmni.
Það var einmitt líka þessi vandi,
sem varð til ])ess að færa mönnum
heim sanninn um gáfur frúarinnar,
smekkvisi og kunnáttu í söng. In-
tonation, andardráttur, samfeldni,
hljóðbrigði, tempo, takt og áhersl-
ur, alt var þetta gert af fullþrosk-
uðuni skilningi, og alt var ]rað með
einkennum hinnar sönnu listar. Á
nokkrum (sárfáum) stöðum í enda
setninga hefði frúin mátt hætta
söngnum fyrr, —- draga sig í hlé
fyrir millispili. Óhætt er að segja,
að öll hafi lögin yerið jafn vel
sungin, (þó voru þau ánægjuleg-
ust, þar sent undirleikarinn lét á
sér bera og þar sem hlutverk hans
var vandasamast), og hins hesta
samræmis gætti í framflutningi
þeirra, og gaf söngkonan ekki eftir
tónskáldinu að því leyti. Varð það
til ])ess að gera sönginn enn áhrifa-
meiri.
Enn er sagan ekki nema hálf-
sögð, þvi að Haraldur Sigurðsson
er nú fyrst nefndur á nafn, en að
segja sögu um hann er óþarft. —
Söguna um hann kunna allir.
Jón Halldórsson.
Sænsk og íslensk
leikfimi.
-O—
Athyglisverö ummæli.
Svíar bafa lengi verið miklir
íþróttamenn, og leikfimi þeirra
er víða kunn. peir liafa þótt
nokkuð fastheldnir við fornar
venjur og eru ekki vanir að
lilaupa eftir livers konar nýung-
um, sem berast frá öðrum lönd-
um.
íþróttamaðurinn Ling, sem
bæði var skáld og lærdómsmað-
ur,- befir verið kallaður „faðir
sænskrar leikfimi“.Við hann eru
kendar liinar svo kölluðu „Ling-
vikur“, en það eru íþróttamót,
sem haldin bafa verið árlega um
tíu ára skeið í Gautaborg. í fyrra
var sérstaklega mikil viðböfn á
Ling-mótinu þar, með því að þá
voru 150 ár liðin frá fæðingu
Lings. Komu þá til Gautaborgar
íþróttafélög frá öllum Norður-
löndum, þ. á. m. kvennaflokkur
í. R. undir stjórn Björns Jak-
obssonar. Hlaut bann binar
ágætustu viðtökur, sem kunn-
ugt er, og vakti á sér stórmikla
atbygli.
í vor var baldið Ling-mót í
Gautaborg, og er frá þvi skýrt
í 5. befti sænska tímaritsins
„Tidskrift í Gymnastik“, en það
er opinbert málgagn sænska
leikl'imissambandsins og gefið
út af félagi leikfimiskennara.
Ritstjóri þess, Agne Hobn-
ström, ritar um nytsemi þessara
móta og segir, að margt liafi
mátt læra af þeim, bæði nú og í
fyrra, með því að þangað komi
margir utanbæjar flokkar.
„petta kom greinilegar í ljós
en nokkru sinni áður,“ segir rit-
stjórinn, „í Circus-sýningunum í
fyrra og nú, þvi að þar mátti sjá
framúrskarandi aðkomuflokka,
sem margt mátti læra af. Sann-
aðist það greinilega á síðasta
móti. Jafnvægisgangurinn á
þessu móti var til muna full-
komnari en í fyrra, og má með
mikilli vissu þakka það að nokk-
uru leyti þeirri atliygli, sem
jafnvægisgangur ísl. stúlkn-
anna vakti bér í fyrra. Að þessu
sinni reyndu tveir flokkar með
nokkurum árangri að sýna
jafnvægisæfingar á þverslá, en
þær voru bið mikla aðdáunar-
atriði i leikfimi ísl. kvenna bér
í fyrra, og höfðu ekki sést liér
áður.“
pessi ummæli eru augljós
M
n
Nýjar tegundir af VEEDOL bifreiðaolíum eru komn-
ar á markaðinn. þær eru gerðar fyrir miklu hraðgeng-
ari vélar en alment gerist og þola því miklu meiri liita
en aðrar bifreiðaolíur.
pessar olíur er hyggilegt að nota, enda mæla stærstu
bifreiðaverksmiðjurnar með þeiin eftir að liafa reynt
þær á bifreiðurum og á efnarannsóknarstofum sínum.
Jóh. Ólafsson & Co.
Síml 584.
Reykjavík.
vottur þess, live leifkimiskerfi
Björns Jakobssonar hefir vakið
mikla athj7gli í Gautaborg í
fyrra, þar sem saman var kom-
ið úrval leikfimisflokka frá öll-
um Norðurlöndum.
Stfidenta-afmæll
Brauð! Brauð!
Ennþá eru brauðin á Berg-
staðastræti 14 seld fyrir 60
aura, og send heim, ef
óskað er. Sími 67.
50 ára stúdentar
eru tveir á lífi, þeir prófessor
Finnur Jónsson og Bjarni Jens-
son, læknir, en látnir eru þess-
ir: Sira Kjartan Einarsson. Geir
T. Zoega rektor, Jóliannes Ól-
afsson, sýslumaður, Páll Briem,
amtmaður, Ásgeir Blöndal,
læknir, síra Árni porsteinsson,
síra Halldór porsteinsson og
síra Eiríkur Gíslason, prófast-
ur.
40 ára stúdentar
eru þessir á lífi: Síra Bjarni
Símónarson, Steingr. Jónsson,
bæjarfógeti, Gísli ísleifsson,
skrifstofustj,. Guðm. Jónsson,
ibankagjaldkeri ísafirði, síra
Ludvig Knudsen, Björgvin Vig-
fússon, syslumaður, sira Bjarni
Hjaltested, Jón porvaldsson,
læknir, Ólafur Finsen, læknir,
Jón Jónsson læknir. — Látnir
eru þessir: Bjarni Jónsson frá
Vogi, Valdemar Tborarensen,
síra Hans Jónsson, Eiríkur S.
Sverrisen, síra Emil Guðmunds-
son, síra þorvarður Brynjólfs-
son, Guðmundur Ásbjörnsson,
fríkirkjuprestur og síra Eyjólf-
ur Kolbeins Eyjólfsson.
25 ára stúdentar
Bogi Brynjólfsson, sýslumaður.
Geir G. Zoéga, vegamálastjóri.
Georg Ólafsson, bankastjóri.
Gísli Sveinsson, sýslumaður.
Guðmundur Hannesson,. bæjar-
fógeti.
Guðmun'dur Ólafsson, bæsta-
réttarmálaflm.
IJaraldur Sigurðsson, verslunar-
stjóri.
Síra Jóhann Briem á Melslað.
Konráð Stefánsson, kaupmaður.
Lárus Sigurjónsson, cand.tbeol.,
búsettur í Cbicago.
Ólafur iþorsteinsson, læknir, og
Vigfús Einarsson, skrifstofu-
stjóri.
Látnir eru:
Jónas Einarsson, cand. polit, að-
stoðarmaður í íslenskustjórn-
arskrifstofunni í Kaupmanna-
böfn (dó 1914)..
Guðmundur Vestmar, cand.
phil., bókavörður á Akureyri
(d. 1918).
Jóbann G. Möllcr, kaupmaður
á Sauðárkróki (d. 1927).
70 ára reynsla
og vísindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
cnda er hann heimsfrægur
og hefir 9 s i n n u m hlot-
ið gull- og silfurmedaliur
vegna framúrskarandi gæða
sinna.
Ilér á landi hefir reynslan
sannað að VERO er miklu
betri og drýgri en nolckur
annar kaffibætir.
Notið að eins V E R O.
það marg borgar sig.
í heildsölu hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI
Hafnarstæti 22. Reykjavík.