Vísir - 29.06.1928, Blaðsíða 3

Vísir - 29.06.1928, Blaðsíða 3
V I s i R > > töoococoaosxxxsoaoacöQocíjöttCíOöaööaacsxKiísaaöCööacc; > | Síldarneta-slöngur ) V ! fyrirliflBjandi. i Þörður Svelnsson & Co. | 1 , *sööíxkss>ög<xxxx3«C!Oqoi!>ow>»oíxx>öo«o;x5;í;:cö«ooqíxxxjöíÍ! V örusýningapáliöld. (Butiks Udstyr) Yms áhöld fyrir verslanir til vörusýningar í gluggum fyrirl. Ludvig Storr, Laugav. II. Símskeyti Kliöfn 29. júní. FB. Ný stjórn í Þýskalandi. Frá Berlín er símað: Her- tnann Miiller hefir myndað stjórn. Stresemann er ut'anrík- isráðherra, Gerard samgöngu- málaráðherra, Severing innan- ríkisráðherra, Iiilferding fjár- málaráðherra, Ivocli dóms- málaráðherra og Gröner her- mólaráðherra. Járnbrautarslys á Englandi. Frá London er símað: Far- Jtegalest og varningslest.rákust á nálægt Darlington. Tuttugu og tveir menn fórust, en þrjá- tiu meiddust. (Darlington er i Durham á Englandi). Bela Kbun dæmdur í fangelsi. Frá Vínarborg er símað: iBela Khun hefir verið dæmd- ur í þriggja mánaða fangelsi fyrir samsæri og afturkomu til Austurríkis, þrátt fyrir það, að bann hafði verið lagt við því, að hann settist þar að að nýju. Bela Khun kvað erindi sitt til Austurríkis hafa verið að vinna á móti bandalagi á milli Italiu og Ungverjalands, gegn Rúss- landi, en neitaði að gefa rétt- inum frekari upplýsingar. CSKJOOO* Bæjarír 'Veðrið í morgun. Hiti í Revrkjavik 10 st., ísa- firði 6, Akureyri 8, Seyðisfirði 7, Vestmannaeyjum 12, Stykk- ishólmi 8, Blönduósi 7, Raufar- liöfn 6, Hólum i Hornafirði 12, Grindavík 12, Færeyjum 11, Julianehaab 8, Angmagsalik 11, Jan Mayen 4, (engin skevti frá Hjaltlandi), Tynemouth 16, Kaupmannaliöfn 13 st. — Mest- ur liiti hér í gær 15 st., minstur 8 st. — Lægð fyrir suðaustan land, á austurleið. —- Iiorfur: Suðvesturland, Faxaflói: í dag og nótt norðan og norðaustan. Skýj.að loft. Sennilega úrkomu- lausl. Breiðafjörður.Vestfirðir: í dag allhvass norðaustan. Sumstaðar dálítil rigning. I nótt minkandi norðaustan. Úr- komulaust. Norðurland, norð- ansturland: í dag allhvass norðaustan. Rigning. í nólt minkandi norðaustan. Þoku- loft. Austfirðir: I dag og nótt austan og norðaustan. Dálítil rigning. Suðausturland: í dag og nótt austan og norðaustan. Víðast úrkomulaust. Rannsóknir á jarðhita. Mánudaginn 25. þ. m. var farið að rannsaka jarðliita hér við þvottalaugarnar. Var þá tekið að bora þar í jörð og hef- ir þvi verið haldið áfram á hverjum degi síðan. Tækin eru þó ekki svo fullkomin sem skyldi, en von er bráðlega á betra útbúnaði. Á miðvikudag var komið niður á 5,9 metra dýpi og var þá hitinn mældur á 5,3 metra dýpi og var hann 42 stig. í gær var mælt á 5,6 metra dýpi og var hitinn þá orðinn 48 stig. í morgun var mælí á tæpra 8 m. dýpi og var hitinn 82 stig. Þykir liklegt, að nú sé komið nálægt lieitri vatnsæð, úr því að liitinn vex svo ört. — Þeir Þorkell Þor- kelsson magister og' Steingrím- ur Jónsson rafmagnsstjóri sjá um þessar rannsóknir, og verð- ur þeim haldið áfram í sumar. Munu þær vafalaust leiða margt merkilegt í ljós um jarð- hita á þessu svæði, og verður smátt og smátt skýrt frá þess- um merkilegu rannsóknum liér í blaðinu. Ólafur Jónsson, fyrrum bóndi að Fellsöxl, nú til heimilis á Lindargötu 18, á 79 ára afmæli í dag. Kappróður verður í kveld kl. 8 milli sjó- liða af Nantucket og skipverja af 'Óðni. Hlakka margir til að sjá þá viðureign, og verður ugglaust margt áhorfenda. Leikhúsið. „Æ f i n t ý r i ð“ verður ekki leikið í kveld, sakir veikinda eins leikandans. Málverkasýning Eggerts Laxdal í Iðnskólan- um verður opin daglega fram yfir lielgi frá kl. 11 árd. til kl. 7 síðdegis. þessi ungi listamað- ur er mjög efnilegur, vel lærð- ur í list sinni, smekkvis og vandvirkur. Síðasti sýningar- dagur er á sunnudag. Ársbátíð Templara verður haldin sunnudaginn 1. júlí. Sjá augl. i blaðinu 27. fallegt úrval af tvisttauum. J). m. — Templarar! Munið að sækja farmiða fyrir kl. 8 ann- að kveld. Svar við grein prófessors Sigurð- ar P. Sívertsen hefir Vísi borist frá Garðari Þorsteinssyni, cand. juris, og birtist það bráð- lega. Súlan flaug til Isafjarðar í morgun. I fyrramálið kl. 9 fer hún til Hólmavíkur og á sunnudags- morgun ld. 9 til Borgarness. Silfurbrúðkaupsdag' eiga á morgun frú Guðbjörg Guðmundsdóttir og Finnbogi Finnsson, múrari, Hverfisgötu 83. íþróttafélög og knattspyrnufélög bæjarins Iialda dansleik í Iðnó annað kveld; verða þá aflient verðlaun frá allsherjarmótinu og knatt- spyrnumótinu, sem nú stendur yfir. Allir þátttakendur eiga að mæta þar. Laxveiði í Elliðaám hefir verið held- ur treg til þessa, en er nú að glæðast. I gær veiddust þar 15 laxar. Tjörnin. Eins og' menn vita, hefir tjörnin löngum verið vatnslítil í vor og er ástæðan sú, að gagn- gerð umbót hefir verið fram- kvæmd i syðra tjarnarendanum. Iiefir gangstígurinn verið hlað- inn upp þar við suðurendann, og pípum komið fyrir í ræsið sunnan úr Vatnsmýrinni. — En meira hefir verið gert þarna í vetur og vor. Sunnan við gang- stíginn hefir verið gerð ofurlít- il ný tjörn, fallega löguð, með grasi grónum bökkum og hólma nær miðju. Er ]?essi Skrifstofustapf. Stúlka, sem er vön öllum skrifstofustörfum, getur feng- ið atvinnu. Þarf helst að kunna hraðritun. — Umsóknir á- samt launakröfu og meðmælum eða nöfnum fyrri liús- bænda, seiidist strax til Visis, auðkent „1. júlV'. Lækkuð fargjöld. Elnar 6 kr. kostar fargjaldið austur að Torfa- stöðum og Felli í Biskugstungum, 5 kr. að Borg i Grimsnesi, 4 kr. í Þrastaskóg og að Öifusá. Afgreiðsla á Hverflsgötu 50. Símar: 1852 og 414. Björn Bl. Jónsson, Upp í Laugardal og Tungur er altaf bílferð kl. 6 e. h, á hverjum sunnu— degl frá Guðjóni Jónssyni Hverfisgötu 50* Símar 414 og 1852. Nýkomið: Eldspýtur. 1. Brynjólfsson & Kvaran. Málninagvðpup bestu fáanlegu, svo sem: Kvistalakk, fernis, þurkefni, ter- pentína, blackfernis, carbolin, kreólin, Titanhvitt, zinkhvítt, blýhvita, copallakk, krystallakk, húsgagnalakk, hvítt Japan- lakk, tilbúinn farfi í 25 mismunandi litum, lagað bronce. — Þurrir litir: Krómgrænt, zinkgrænt, kalkgrænt, græn umbra, brún umbra, brend umbra, kassel-brúnt, ultramarine-blátt, emaille-blátt, italskt rautt, ensk-rautt, fjalla-rautt, gull-okk- ur, málm-grátt, zink-grátt, kimrog, lím, kítti, gólf-fernis, gólf- dúkalakk, gólfdúkafægikústar. Vald. Poulsen. Notuð íslensk frímerki eru ávalt keypt hæsta verði í Bókðuersluninni, Lækjargötu 2. nýja tjörn og hólminn til mik- illar prýði, og gangvegur alt umhverfis. — En hætt er við að fuglar muni ekki þora að verpa í nýja hólmanum, sakir þess, liversu lítil tjörnin er. Vafa- laust verður og mikil umferð þarna og ónæðissamt fyrir fugla. Suma daga undanfarna liefir þó liólminn verið alþak- inn kríum. Áheit á Strandarkirkju, afh. Visi: 3 kr. frá ónefnd- um, 10 kr. frá Á. G. Garðslönpr í stóru úrvali fyrir- liggjandi. ísleifur Jónsson, Laugaveg 14. Sími 1280. aoQQoaooQcxxxMQcxæaacxxxxx I Mikið úrval af 1 Ik^rimanns-1 bindum u 9 | í ótal liturn og 1 | gerðum. f Laugaveg 5.! X o iocxxsooooeooí x x x xxxxxxíooqc

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.