Vísir - 24.08.1928, Síða 2
VISIR
A
u
Höfum fengið:
Þurkuð epll,
Döðlur,
Ferskjur,
Nýjar kartöflur.
Nýkomið:
Svissneskur oatur „Grand
St. Bernhard“ i 227 gr.
ðskjum — fyrsta flokks.
A« Obenliaupt,
Símskeyti
Julianeháab, 23. ág. F .B.
Nýjar fregnir af Hassel.
Hann hefir komist til Græn-
lands og er nú verið að leita
hans þar.
Landstjóri Suður-Grænlands
tilkynnir í dag, að flugvél hafi
sést fljúga yfir „Fiskenæsset“.
Enginn vafi leikur á, að liér var
um flugvél að ræða og um aðra
flugvél en Hassels getur ekki
verið að ræða. Allir þorpsljúar
og eins íbúar þorpsins Lichteii-
fels sáu flugyélina á sunnudags-
morgun kl. 10,30, flaug hún úr
norðri norðvestur og fór lágt
yfir Fiskenæsset, eins og flug-
mennirnir væri að svipast um
eftir lendingarstað. Flugmenn-
irnir sáust greinilega, voru þeir
að liorfa í kring um sig með
sjónauka. Siðan sást það til
flugvélarinnar, að hún livarf
austur á tbóginn, en fór sér liægt.
Leit er hafin að flugvélinni í
mótorbátum frá Godthaab og
Fiskenæsset.
Khöfn, 23. ág. F. tí.
Parísarför Stresemanns.
Frá París er símað:
Stresemann, utanrikismála-
ráðherra pýskalands, kemur
hingað einlivern naístu daga, til
þess að undirskrifa ófriðar-
bannssáttmála Kelloggs. Frökk-
um þykir koma Stresemans eigi
iþýðingarminni en undirskrift
.samningsins. Búast inenn við,
að Stresemann lireyfi við heim-
köllun setuliðsins úr Rínarbygð-
unum, en ókunnugt er mönnum
um það, livort hann ætlar sér
að heimta það að svo stöddu, að
setuliðið verði kallað heim úr
öllum Rínarbygðunum eða að-
eins úr Koblenzbeltinu nú.
Bráðleg heimköllun setuliðs-
ins úr Koblenzbeltinu hugsan-
leg, þar eð samkvæmt Versala-
friðarsamningunum á að flytja
setuliðið þaðan innan 18 mán-
aða. Mundi þá lieimköllun selu-
liðsins þaðan fara fram án end-
urgjalds, að þvi er ætlað er.
Hinsvegar búasl menn ekki við,
að setuliðið alt verði kallað
heim úr öllum Rínarbygðum,
nema í staðinn komi víðtæk
þýsk öryggisloforð.
Hoover fær lausn frá ráð-
herrastörfum.
Frá Superior Wisconsin er
símað: Coolidge forseti hefir
fallist á að veita Hoover versl-
unarmálaráðherra lausn frá
embætti sínu, en liann baðst
láusnar nýlega til þess að geta
tekið þált í undirbúningi undir
forsetakosninguna. Whitting,
pappírsverksmiðjustjóri, hefir
verið skipaður eftirmaður
Hoovers.
Konungskjör í Albaníu.
Frá Berlín er simað: Ákveðið
liefir verið að Zogu forseti í
Albaniu verði kosinn konungur
Albaniu á fundi albaniska
þingsins á laugardaginn kemur.
Frá Sigínfirði.
—o—
(Einkaskeyti til Vísis).
Siglufirði, 23. ágúst.
Mikil síldveiði undanfarið
hjá hcrpinóta- og reknetaskip-
um þangað til 2 siðustu daga að
áustanstormur hefir hamlað
veiði. Saltað hér til hádegis í
dag 53,463 tunnur, kryddaðar
16,764, annarstaðar á landinu
ca. 17,000 saltaðar og 3,000
kryddaðar. Menn giska á að
veiði Norðmanna sé um 100,000
tunnur. Herpinótaskipin Nam-
dal og Langanes hafa hér hæst-
an afla, um 5000 mál livort,
línuveiðararnir Pétursey, Pap-
ey, Ath, Eljan, Olafur Bjarna-
sou, Anders um 4000 mál liver.
Hæstu reknetabátar eru Ilösk-
uldur 1600 tunnur, þorgeir goði
1500. Hæstur af herpinótamót-
orbátum er Hermóður frá
Akranesi, um 6000 lunnur. —
Síldarbræðsla Goos liefir ekki
haft undan að afgreiða siðustu
daga, og hafa því mörg skip
orðið frá að hverfa.
Eftir að véfengingardómur
bæjarfógeta á stjórnarrá'osúr-
skurði um móttöku síldar af
norskum skipum var kvcðinn
upp, hafa mörg norsk skip
landað hér bræðslusíld i slcjóli
dómsins. Mikil óánægja yfir
því, þar sem íslensk skip verða
frá að hverfa. Einnig er óánægja
yfir því, að stjórn síldareinka-
sölunnar leyfir nokkrum lit-
gerðarmönnum hér að kaupa
síld af Norðmönnum til sölt-
unar.
Farmurinn úr norska gufu-
skipinu Lövöy, sem færeyski
kútterinn Haffari bjargaði, var
metinn 30,000 kr. Kafari frá
Reykjavík kom með Drotning-
unni til að skoða skipið. Senni-
lega fá Fsfreyingarnir að minsta
kosti % af matsverðinu í björg-
unarlaun.
Útflutningnr hrossa.
Hr. Gunnar Sigurðsson hefir
tjáð mér þakkir fyrir smágrein,
sem eg ritaði nýlega í Vísi.
Hann hefir sjálfur gerst tals-
maður dýraverndunar á Al-
þingi og liefir réttilega skilið,
að mér gekk ekki nema gott
til með grein minni, þó að ekki
yrði hjá því komist, að vita þá
aðferð, sem höfð liefir verið
við útflutning hrossa í sumar.
Gunnar telur þó ýmislegt
ranghermt í grein miuni, og get
eg þakkað lionum það, sem
hann leiðréttir réttilega, en það
er tala folaldanna, sem eftir
voru skilin á Mógilsá. Geng eg
að þvi visu, að Iiann viti betur
en heimildarmaður minn, hve
mörg þau voru. Hitt þykist eg
hafa farið rétl með, að folöld-
in væri tvo daga, en ekki einn,
á Kolvíðarlióli, því að þau voru
þar i tvo sólarhringa, þ. e. einn
heilan dag og tvo dagparta.
Viðskilnaðinum við folöldin á
Mógilsá var svo lýst þar efra,
sem eg liefi áður frá skýrt, en
við Gunnar höfum þar báðir
við annara sögusögn að styðj-
ast, og verður hver að trúa því,
sem lionum þykir sennilegast í
því efni. —- Gunnar getur þess
ekki, hvaða bifreiðastöð það
liafi verið, sem brigðaði við
hann samningi um að sækja
folöldin að Ivolviðarlióli, og
skiftir það ekki miklu máli. En
þegar eftir þeim var farið, urðu
tvö eftir, vegna þrengsla í
vagninum, og fór um þau að
öðru leyti eins og eg liefi áður
sagt. En það er rétt, að Sig-
urður á Kolviðarhóli annaðist
vel um folöldin, á meðan þau
voru geymd i lians liúsum, og
var honum vel trúandi til að
taka það upp hjá sjálfum sér.
Gunnar spyr, hversvegna eg
hafi ekki hafist lianda, þegar
Sambandið „skipaði út í sum-
ar“, þ. e. skipaði út folaldsmer-
um. Því er fljótsvarað. Dýra-
verndunarféláginu hafa eng-
ar kærur eða kvartanir borist
um það, að Sambandið liafi
skipað út folaldsmerum í sum-
ar, og ef því er til að dreifa,
þá befir það verið gert án vilja
eða vitundar útflutningsstjóra
Sambandsins, því að hann er
andvígur slíkum útflutningum,
að því er eg best veit. Ilins-
vegar bárust Dýraverndunarfé-
laginu kærur og kvartanir um
útflutping folaldsmeranna í
stóði G.S., og stjörn Dýravernd-
unarfélagsins fól mér þess
vegna að vekja máls á því at-
ferli. — Mér er ljóst, að bæði
Hveiti
ýmsar tegundir.
Haframjel
(Flaked Oats).
Fyripliggjandi.
ÞðRÐUR SVEINSSON & CO.
má fegra og ófegra málstað G.
S., en eg hefi enga löngun til
þess að ''gera honum óþarfa
skapraun út af þessu.
Við Gunnar erum víst sam-
mála um, að stóðliross sé
mesti vonarpeningur íslenskra
hænda, og að yfir þeim vofi
fellir, ef liarður vetur kæmi.
Þvi fer þess vegna fjarri, að
eg amist við því, að þau sé
seld úr landi, en skoðun mín á
því máli er i fám orðum þessi:
Þegar nauðsyn ber til þess
að senda út folaldsmerar, þá
fer best á þvi að draga það sem
lengst fram eftir sumri, og mér
finst það brýn mannúðar-
skylda, að venja folöldin und-
an þeim i tæka tið, i stað
þess að reka þau með þeim
langar leiðir og eiga á hættu,
að þau gefist upp, livar sem
vera skal. Og eg leyfi mér að
skora á hr. G. S. að fara fram-
vegis að mínum ráðum í þessu
efni.
G. S. bendir á illa meðferð
lamba og nautgripa, sem oft
hefir verið vítt, en eg fæ ekki
séð, að hún fegri málstað hans
og læt liana þvi liggja á milli
hluta að þessu sinni.
Eg skal að lokum geta þess,
að eg teldi æskilegt, að þeir
menn léti til sin heyra um
þetta, sem eldri eru og reynd-
ari í þessum efnum en við G. S.
B. S.
Gefjunar'Vörur
nýkomnar 1 stóru
lirvali á
Laugaveg 45
(komið og skoðið, — það kostar
ekkert.)
70 ára reynsla
og vísindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
enda er hann heimsfrægur
og hefir 9 s i n n u m hlot-
ið gull- og silfurmedalíur
vegna framúrskarandi gæða
sinna.
Hér á landi hefir reynslan
sannað að VERO er miklu
betri og drýgri en nokkur
annar kaffibætir.
Notið að eins VERO.
J?að marg borgar sig.
í heildsölu hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI
Hafnarstæti 22. Reykjavík.