Vísir


Vísir - 01.09.1928, Qupperneq 2

Vísir - 01.09.1928, Qupperneq 2
VISIR !» Marnan i Olsew C u Libtoy’s Niðupsodnip ávextip eru bestir allra. Höfum ferskjur, perur, kírsuber, jaröarber, apríkósur, ananas 09 blandaða ávextl. Verðið lágt. U Nýkomið: Milka, Velma og Magna hið óviðjafnanlega átsúkkulaði frá SUCHARD. A. Obenliaupt. fypirliggjandi. ÞÖRÐUR 8VEIN880N & 00 Þetta er venjulegur ,,Alþýðu- blaðs“-sannleikur. — Menn vita með vissu, að andstæðuflokkar mundu ríkin líða undir lok, landa- mærin hverfa úr sögunni og þjóð- ernin glatast. Símskeyti Kliöfn 31. ág. FB. Viðræða Stresemanns og Poincaré’s. Frá Berlín er símað: Ríkis- stjórnin hefir fengið skýrslu um viðræðu þá seni fram fór á milli Poincaré’s og Strese- manns í París nýlega. Sam- kvæmt Berl. Tagehlatt ístend- ur í skýrslunni að Poincaré hafi sagt, að heimköllun setuliðsius frá þriðja Rínarbygða-beltinu verði að bíða endanlegrar ur- lausnar skaðabotauiálsius, en hennar sé ekki að vænta fyr en þá er forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru um garð gengnar. Poincaré virðist til- leiðanlegri til þess að slaka eitthvað til viðvíkjandi heim- köllun setuliðsins úr öðru Rín- ar'bygða-beltinu, en álítur þó heppilegra að Frakkar eigi upp- tökin að heimköllun þess. Ráðsfundur pjóðabandalagsins. Frá Genf er símað: Ráðs- fundur pjóðahandalagsins liófst í gær. Vekur hann litla athygli í lieimsblöðunum, þar eð Bri- and, Stresemann og Chamber- lain eru fjarverandi. Briand er þó væntanlegur til þátttöku í fundinum í næstu vilcu. Engin stórxnál á dagskrá. Flotasamningur Breta og Frakka sendur stórveldunum. Frá London er símað: Sam- kvæmt fregn frá Genf er Reut- erfréttastofan hirtir, hefir Cus- hendum, fulltrúi Breta á ráðs- fundi pjóðabandalagsins lýst því yfir, að frakknesk-breski samningurinn viðvíkjandi flota- takmörkun hafi verið tilkyntur stjórnunum i Bandaríkjunum, Japan og Italíu. Khöfn, 1. sept. FB. Mannlausum skipum stýrt. Frá Berlín er símað: Tilraun- ir hafa farið fram í þýska her- skipaflotanum með að stýra mannlausum skipum með radio- tækjum. Hafa tilraunirnar hepnast vel. Brvnvarið herskip, 11 þús. smálestir að stærð, var skilið eftir mannlaust nálægt Helgolandi. Annað lierskip í töluverðri fjarlægð stýrði bryn- varða herskipinu og stjórnaði vélunum í því með radiotækj- um i fimm klukkustundir sam- fleytt. Flotasamningur /Breta og Frakka. Frá London er simað: Til- kynt hefir verið, að í samningi þeim, sem Frakkar og Bretar hafa gert sin í milli, um flota- takmörkun, séu engin leyni- ákvæði. Ennfremur, að um alls ekkert flotabandalag milli Frakklands og Bretlands sé að ræða. Utan af landi. FB. í ágúst. Úr Mýrdal. Tíðin liefir verið fremur góð, gerði vætukafla í júlíby^jun um viku tima, svo góðan þurk seinni hluta mánaðarins, vætu aftur í ágústbyrjun, en 5. og 6. ilt veður, regn og storm og síð- an deyfu. pó hefir töluvert náðst af heyjum. Sláttur byrjaði með seinna móti vegna gras- leysis, en nú mun víða vera orð- ið meðalgras á því, sem óslegið er, spratt vel um síðustu mán- aðamót. Flestir búnir að slá tún, lítið eitt óhirt hjá stöku bænd- um. Töðufengur bænda með minna móti og í lakasta lagi á stöku bæjum, jafnvel verra en 1918. Heilsufar: Kvef og kvillasamt, en lífið um stórveikindi. I júní andaðist Ólöf Finns- dóttir, kona Eyjólfs Jónssonar í Fjósum, eftir þunga og langa legu. Bifreiðaferðum hefir verið lialdið uppi við og við á milli Víkur og Seljalands og gekk sæmilega vel framan af sumri, á meðan litið var í vötnunum, en síðan fór að aukast í þeim hefir þetta verið erfitt og slark- samt ferðalag. pó fer Óskar frá Garðsauka enn þá fram og aft- ur og hefir liann sýnt mikla þrautseigju og dugnað í þessum ferðum. Vonandi koma brýr á þessar ársprænur, sem hér eru mestur farartálmi, í náinni framtíð, enda eigi vansalaust þjóð og þingi, ef eigi verður úr ba*tt hið brúðasta. Samhjálp og leiðtogar. —o— ,,AlþýðublaðiÖ“ klifar á því jafnan, að samhjálp jafnaðarmanna sé besta og bitrasta vopn al])ýðunn- ar. í baráttu hennar fyrir auknum réttindum. „Samhjálp" er ísmeygilegt orð, enda er það vafalaust valið með það fyrir augum. að það megi breiða huliðsblæju sakleysisins yfir fjárstyrkinn frá Dönum. Það hefir oft sannast á for- kólfa jaínaðarmanna, að þeir eru ekki vandir að rökum, en sjaldan hefir það sannast eins áþreifan- lega eins og í umræðum þeirra um danska styrkinn. I. „Alþýðublaðið“ stagast mjög á því, að gagnkvæmar styrkveitingar milli jafnaðarmannaflokka í ýms- um löndum sé nauðsynlegar og eðlilegar. Rökin; sem það færir fyrir þessari fullyrðingu, eru þau, að jafnaðarmenn um heim allan berjist fyrir sömu hugsjóninni: að kollvar]>a núverandi þjóðskipulagi og skapa „þúsundára ríkið“ lang- þráða. Þessi röksemdaleiðsla er næsta hjákátleg, — svo að ekki sé dýpra tekið í árinni. Jafnaðarmenn trúa því. að hið óreynda þjóðskipulag, sem þeir vilja stofnsetja í heiminum, muni skapa mönnum meiri hamingju en þeir eiga nú við að búa. Flestir andstæðingar jafnaðar- manna viðurkenna, að núverandi ])jóðskipulag sé ekki gallalaust, fremur en önnur verk manna, en þeir eru allir sannfærðir um, að það sé skárra og veiti einstakl- ingum og þjöðum meiri hamingju og blessun. en jafnaðarmannaríkið myndi geta veitt, því að í jafnað- arrikinu myiidi engum líða vel, nema ef til vill „forsprökkunum". Öllum öðrum mundi líða illá og þess vegna er nauðsynlegt að berj- ast gegn viðgangi jafnaðarstefn- unnar. Báðir þessir aðilar, jafnaðar- menn og andstæðingar þeirra telja sig berjast fyrir hinu sama: auk- inni hamingju fjöldans. Og ef það væri vítalaust af jafn- aðarmönnum. að þiggja fjárstyrki hjá skoðanabræðrum sínum í öðr- um löndum, ])á væri einnig víta- laust af andstæðingum þeirra, að gera slíkt hið sama. „Alþýðublaðið" lætur í veðri vaka annað veifið, að andstæðing- ar jafnaðarmanna í öllum löndum, séu að taka höndum saman gegn „öreigunum", eða hafi þegar gert það. jafnaðarmanna hafa ekki tekið höndum saman. Þeir hafa hvorki styrkt hver annan fjárhagslega. né veitt hver öðrum liðsinni á ann- an hátt. Og hver er ástæðan? „Alþýðublaðið“ segir í öðru orðinu, að úr slíkum samtökum geti að vísu aldrei verið, ])ví að ósamlyndið sé svo mikið á milli andstæðinganna. I hinu orðinu hef- ir ])að svo sagt, aS hagsmunamál og fjárgræðgi réði öllu hjá and- stæðingunum, en hagsmunum þeirra sé því aðeins borgið, að jafnaðarmenn komist ekki til valda. Kenningar ])essar virðast ekki sem best samrýmanlegar, svo að ástæðan til þess, að andstæðingar jafnaðarmanna hafa ekki tekið höndum saman er fráleitt sú, sem „Alþýðublaðið“ vill vera láta. Og ástæðan er vissulega engin önnur en sú, að andstæðingar jafn- aðarmanna hafa veigrað sér við að taka upp söniu bardagaaðferð og jafnaðarmenn hafa notað með hin- um gagnkvæmu styrkveitingum, af ])ví að ])eir hafa séð, hvílík van- sæmd væri að slíku hátterni og hvilikur háski gæti af því staðið. Og þetta vita jafnaðarmenn, eins vel og aðrir, ])ó að þeir liafi þagað yfir því. Og þögn þeirra er að vísu auð- skilin. Þeir hafa kveinkað sér við ])ví að viðurkenna, að „auðvaldið“ — jafnaðarmenn kalla alla and- stæðinga sína því nafni —• væri ])jóðhollara og mannúðlegra x þesstim málum, heldur en ])eir sjálfir. Ganxla slagorðið: „ Öreigar í öllum löndum sameinist!“ er í raun réttri áskorun, til jafnaðar- rnanna annarsvegar, og til and- stæðinga ])eirra hinsvegar um að taka höndurn saman. En eins og áður er sagt, hafa andstæðingar jafnaSarmanna ekki sint slíkum áskorunum. En gerum nú ráð fyrir, að svo óliklega færi, að andstæðingar jafnaðarmanna stofnuðu til slíks alþjóðabandalags. Hverjar nxundu verða afleiðingarnar af slíku hátta- lagi ? Alt mannkynið mundi skiftast í tvo harðvíttxga.' fjandsamlega flokka. Baráttan yrði vafalaust miskunnarlaus og grimm, ])ví að þá mundi hvorlci ráða réttlæti né mannúð. Afleiðingarnar fyrirsjáanlegar. Sá sigraði mundi verða að sætta sig við ált. í slíkri ógnarbaráttu Hér verður engu um það -spáS. hverjir halloka mundu fara, í þeirri viðureign. En ef það er rétt, að jafnaðarmönnuin sé í raun og verix ant um fátækari stéttirnar, og ef það er lika rétt að þeir búíst við illu einu af andstæðingum síh- um, ])á er augljóst mál, að áskor- anir þeirra tim gagnkvæmar styrk- veitingar ertt óverjandi tneð öllu. — Með styrkveitingunum hafa þeir gefið fordæmið, og geta þrí ekki haft á móti því með rökum, þótt andstæðingar þeirra tæku upp gagnkvæntar styrkveitingar sín á milli. Fordæntið er frá þeint koiu- ið og áskoranir til slíkra verka. Tæplega er ráð fyrir því ger- andi, að jafnaðarmönnum sé þetta ekki ljóst sjálfum. Hitt mun held- ur, að þeir treysti því fastlega, að andstæðingar jteirra sé þeirn ntun vandaðri en þeir sjálfir, að þeír grtpi aldrei til slíkra ráðstafana. Hver sá flokkttr, sem fé þiggur til undirróðurs og stjórnmálastarf- semi frá pólitískum flokkum ann- ara þjóða, fremur pólitískt óláns- verk, sem ekki getur gleymst. Á slíkan flokk mun b'ent verða til varnaðar æ síða. II. Það sem sagt hefir verið hér að framan um styrkveitingar alment, sýnir greinilega, að þær eru óverj- andi með öllu. — En þó er það enn þá verra, sem gerst hefir hér á landi, er ,,leiðtogar“ íslenskra jafn- aðarmanna hafa gerst ölmusumenn danskrar stjórnmálaklíku. Danir hafa alt of mikil ráð hér á landi. Með sambandslögunum fengu þeir jafnan rétt við íslend- inga á íslandi og í íslenskri land- helgi. Þeir fengu og umboð til þess, að fara með utanríkismál vor í 25 ár, frá 1918—1943. Sambandslögunum verður að segja upp, því að þau eru heng- ingaról urn háls þjóðar vorrar. En til þess að slíkt megi takast, þurfa nálega allir íslendingar að vera samtaka. Danir vilja auðvitaö halda þeim tökum, sem þeir hafa nú, á ís- lendingum. Þeir óska þess, að sam- bandslögin verði í gildi um aldur og æfi — eða þá einhver önnur lög — enn þá óhagstæðari í garð ís- lendinga. Og danskir jafnaðarmenn eru engin undantekning í þessu efní. Þeir eru að minsta kosti engu síð- ttr hneigSir til yfirráSa á íslandi en aSrir Danir. Þetta visstt menn aS vísu fyrir

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.