Vísir - 15.09.1928, Page 3

Vísir - 15.09.1928, Page 3
V I S I R BARN AFATAVERSLUNIN Klapparstlg 37. Stmi 2035. Nýkomið Nýtl úrval af barnaprjónakjólum og samstæðum fötum. borguðu hlutafé nærfelt 40,000 krónur, auk ágóða af útiskemt- uninni 2. sept., sem varð rúm- ar 1,400 kr., en byggingarsjóð- urinn þarf að komast upp í 60,000 kr„ áður en hægt er að byrja að byggja. ]?ær, scm vinna vilja fyrir málefni þetta, t. d. með því að hjálpa tíl við hlutafjársöfnun- ina, eru vinsamlega beðnar að gefa sig fram sem fyrst við eínhverja af oss undirrituðum. Reykjavik, 13. sept. 1928. 1 stjórn h. f. Kvennaheimil- ásins Hallveigarstaðir: Steinunn H. Bjarnason, form. Aðalstræti 7. Sími 22. Laufey Vilhjálmsdóttir, ritari. Suðurgötu 8. Sími 676. Guðrún Pétursdóttir, gjaldkeri. Skólavörðustíg 11. Sími 345. Inga L. Lárusdóttir. Sólvallagötu 15. Sími 1095. Kristín Guðmundsdóttir. Gróðrarstöð. Sími 72. Messur á morgua. 1 dómkirkjunni'kl. 11, síraBjarni Tónsson. í fríkirkjunni hér kl. 2, síra Gunnar Árnason. í fríkirkjunni í Hafnarfiröi kl. 2 síSd., síra Ólafur Ólafsson. í Landakotskirkju: Hámessa kl. 9 árd. og 'kl. 6 síöd. guöþjónusta meö prédikun. í spítalakirkjunni í Hafnarfiröi: PJámessa kl. 9 árd., og kl. 6 síöd. guösþjónusta meö prédikun. Sjómannastofan : Kl. 6 síöd. Hr. Nordheim talar. Allir velkomnir. Hjálpræöisherinn: Samkomur á morgun kl. 11 árd. og kl. 8 síöd. Sunnudagsskóli kl. 2 e. h. — Allir velkomnir. K. F. U. M. Guösþjónusta kl. Sþá- Síra Bjarni Jónsson talar. Veörið í morgun. Hiti i Reykjavík 10 st., ísafiröi 10, Akureyri 11, Seyöisfiröi 12, Vestmannaeyjum 10, Stykkishólmi 11, Blönduósi 10, Hólum í Horna- firÖi 10, Grindavík 11, Þórshöfn í Færeyjum 8, Julianehaab (i gær- kveldi) 5, Jan Mayen 6, Hjaltlandi 11, (engin skeyti frá Raufarhöfn, Angmagsalik, Tynemouth, Kaup- mannahöfn). — Mestur hiti hér í gær 12 st., minstur 7, úrkoma 1.0 mm. — Kyrstæö lægö viö Suöur- Grænland. Önnur lægö suöaustur af Nýfundnalandi á noröaustur- leiö. Austankul á Halanum. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói: í dag allhvass og hvass suðaust- au, rigning. í nótt allhvass suð- austan, skúrir. — Breiðafjörður, Vestfiröir : í dag vaxandi suöaust- an. Allhvass og rigning meö kveld- inu. — Norðurland: í dag suö- austan gola, bjart veöur. 1 nótt suðaustan stinningskaldi. Senni- lega rigning' vestan til. — Norð- austurland, Austfiröir: í dag og nótt sunnan og suðaustan gola. Bjart veöur. — Suðausturland: 1 dag og nótt vaxandi suðaustan. Allhvass og rigning meö kveldinu. Jón Þorsteinsson skósmiður, Aöalstræti 14, er 42ja ára í dag. 80 ára J er á morgun Kristján M. Þor- sieinsson Kúld í Laug'arnesi. Eidingar sáust héöan um miönætti i nótt i norðvesturátt, en engar þrumur heyrðust. Sigurður Skagfeld heldur kirkjuhljómleika í.Frí- kirkjunni annað kveld, með aöstoö F'áls ísólfssonar. Er því mjög fagnað af söngvinum, aö Sigurð- ur lætur enn á ný til sín heyra, því aö hann má nú teljast í fremstu röð íslenskra söngvara. Skipafréttir. Gullfoss fer kl. 12 í kveld vest- ur til Vestfjarða. Goðafoss fór i gær írá Hull til Hamþorgar. Brúarfoss kom til Leith í gær á leiö hingað. Lagarfoss kom til Leith i gær á leið hingað. Selfoss fór kl. 12 í dag frá Seyö- isfirði til útland'a. Esja fór í morgun frá Stykkis- hólmi til Búðardals. Úrslitakappleikurinn milli Vals og K. R. í 2. ílokki veröur á morgun kl. i)4. Þessi fé- lög standa nú jöfn að vigi, liafa ó v.inninga hvort. Öll síðastliðin ár hafa þessir flokkar barist um tignina og hafa oft verið svo jafn- ir, að þeir hafa orðið að keppa mörgum sinnum lengur en venja er til, áður en sigur hefir fengist, og hefir því mörgum áhorfendum þótt þessir kappleikir að mun skemtilegri og meira „spennandi' en kappleikar 1. flokks. Knatt- spyrnuvinir búast við mjög skemti- legum leik á morgun, ekki síst Vegna þess, að lcept er um „Knatt- spyrnumanninn", sem öll knatt- spyrnufélög liafa svo mikinn hug á að eignast. Að loknum leik verð- ur gripurinn afhentur sigurvegara. Knattspyrnumót 3. flokks hefst kl. 5 á morgun á íþrótta- vellinum. Keppa þá Valur og Vík- ingur. Að eins 3 félög taka þátt i mótinu og stendur það því stutt yfir. í þriðja flokki eru drengir innan 15 ára. Freymóður Jóhannsson, listmálari frá Akureyri, hefir dvalist erlendis að undanförnu og nú nýlega sýnt nokkur málverk eftir sig á sýningu í Kaupmanna- höfn. Á sýningu þesari eru um 90 myndir alls eftir 11 listamenn. Hefir Freymóður komið þar inu 10 málverkum eftir sig og hlotið lofsamleg ummæli í blöðunum Eru það bæði myndir af íslensku landslagi og andlitsmynd'ir. Hefir „Vísir“ séð ummæli tveggja blaða um sýninguna (Morgenbladet og Dagens Nyheder). Kallar „Mor- genbladet" Freymóö snjallan mál- ara og segir aö myndir hans veki mikla athygli á sýningunni og eigi þaö skilið. Nefnir blaöið sérstak- lega tvær myndir. Er önnur þeirra tekin á öræfum fram af Fljótsdalshéraði, með Snæfell í baksýn, en hin er af lítilli stúlku. Hitt blaöið (Dagens Nyheder) segir, að myndir Freymóðs vekji óhjákvæmilega einna mesta athygli allra þeirra mynda, sem þarna sé hafðar til sýnis. Freymóöur sé áreiðanlega duglegur listamaöur og viröingarveröur og megi jafn- vel kallast snillingur, þó aö firina megi aö vísu galla á málverkum hans, svo sem þann, að litirnir sé nokkuð íburðarmiklir. Landsiags- myndir hans sé yfirleitt ágætar og sama megi segja urn sumar manna- myndirnar. Aörar myndir hans sé lítilsverðari. — Fleiri blaðadótna um sýninguna hefir „Vísir“ elcki séö, enn sem komið er. — Frey- móöur Jóhannsson hefir fórnaö miklu fé og tíma til þess, að kon:- ast sem lengst í list sinni, en Jaun- in hafa verið smá, eins og gengur. Og hann hefir löngum átt all-örö- ugt uppdráttar hjá íslenskiun list- dómöndum. En hann hefir ekki látið þaö á sig fá. Hann hefir treyst sjálfum sér örugglega, unn- iö af miklu kappi, brotist áfrara með þrautseigju og dugnaði, og alt af verið að fara fram. Þýskur botnvörpungur 1 kom hingað í morgun. , , Suðurland fór til Borgarness í morgun. Björgunarskipið Geir kom hingaö í gær frá Græn- landi og hafði í eftirdragi danskt flutningaskip. • Þaö heitir Skin- faxi og strandaöi þar vestra í sum ar, en er lítiö skemt. Skeiðaréttir hafa stundum verið fyrir annað frægari en reglusemi eða hógværa framkomu þeirra, sem 'þar hafa komið. Einkum hefir þótt ábótavant um liegðun sumra utansveitarmanna. Sýslu maður Árnesinga mun nú vilja liafa alt óorð af þessum réttum, og auglýsir í dag, að allar veit- ingar verði bannaðar í réttun um og ekki leyft að setja þar upp nein tjöld. Er það leitt, ef ekki verður komist hjá þessliátt- ar ráðstöfunum, því að þær bitna fyrst og fremst á mönn um, sem ekkert liafa til saka unnið. Barnakennarar, sem liafa í liyggju að taka börn til heimakenslu í Vetur liér í hæ, þurfa að fá til þess skriflegt leyfi frá lögreglustjóra. Er þetta gert til að koma í veg fyrir, að þeir, sem liafa smit- andi berklaveiki, fáist við barnakenslu. Er þvi þess að vænta, að allir, sem hlut eiga að máli, lilýði þessum fyrirmæl- um. Ekki má heldur taka neinn nemanda í skóla né börn til kenslu, nema þau sýni læknis- vottorð um að þau hafi ekki smitandi berklaveiki. Sjá aug- lýsingu bæjarlæknis í blaðinu í dag. Áheit á Strandarkirkju, afh. Vísi: 2 kr. frá Pról., 10 kr. frá B. H. F„ 10 kr. frá I. S„ 10 kr. frá H. Áheit á elliheimiliö Grund, afh. Vísi: 10 kr. frá H. Í0000ti00000íit>tt00tiíi0{>c0t5íí0«íí5iísii00ts00ts0öö0íi00íí«!i5íti0»í>00í Bjódið vidskiftavinum yðar það besta, sem er: BLENDED TEA « í helldsölu hjá H, Benediktsson & Oo. iboooootitiooootioíioooooooootsootsooaooooeoootsoooaíiooooootít Ráðskonustaða. Stúlka óskar eftir ráðskonu- stöðu eða við matreiðslu á belri stöðum. Meðmæli frá erleudum skóla. Tilboð merkt: „Dcgg“ leggist inn á afgreiðslu Visis fyrir 15. þ. m. •Disiemper in ‘Pcnyder límfarfinn er bestur innanhúss sérstaklega í síeinhúsum. Calcitine má einnig mála vfir gamalt veggfóður. Calcitine- limiarfinn er sótthreinsandi, á- ferÖarfagur og auöveldur í notkun. Heildsölubirgðir hjá G. M. BJÖRNSSON, Innflutningsversl. og umboCssals, Skólavörðustíg 25, Reykjavik. B. COHEN 8 Trínity House Lane. Also 18 Fish Street. Hull. England. Býð sérstaklega öllum ís- lendingum, sem koma til Hull, að koma til min. — Þar sem eg er nýkominn heim úr ís- landsferð, veit eg gerla livers þér þarfnist, og eg fullvissa yður um góða og ábyggilega afgreiðslu. Takiö þaö nógu ;.v, snemma, Díðið ekki með að taka Fersól, þangað til þér eruð orðiti lasin Kyrsetur og inniverur hafa skaðvænleg áhrif 6 liffærin og svpkkja líltamshraftana. Það fer að bera á taugavciklun, maga og nýrnasjúkdómum, fligt * vöðvum og liðamótum, svefnleysi og þreytu og ot fljótum ellisljóleika. Byrjiö þvi straks í dag að nota Ferfifil, það tnniheldur þann lífskraft sem líkaininn þarfnast. Fersól 3. er heppilegra fyrir þá sem meltingaröröugleika. Varist eftirifkingar. Fæst hjá héraðslæknum, lyfsðlum og* Gólfteppi, rtór og srná, marí;ar tegundir, fallegir litir. TATOL Hia dásamlega TATOL-handsópa mýkir og hreinsar hörundiö og gefur fallegau bjartan litarhátt. Einkasalar: I. Briélin 5 Kuaran r KBNSLA 1 Berlitz skóli i tungumálum starfar frá októberbyrjvm í Veltusundi 1. Námskeið til jóla kostar 50 kr. 5 stundir á viku. Sími 472. (571 Anna Bjarnardóttir frá Sauða- felli tekur börn til kenslu. UppL á Bergstaðastræti 10 B, Sími 1190. (532 Frönsku kenni eg eins og að undanförnu. Svanliildur por- steinsdóttir, jbnglioltsstræti 33. Sími 1955. (588' Kenni börnum sem fyr, frá októberbyrjun. Samúel Eggerts- son, Bragagötu 26 A. (587 ENGLISH LESSONS. — G. Turville-Petre. Apply 2 Bók- hlöðustíg after 7 P. M. Tele- phone 266. (44

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.