Vísir - 17.09.1928, Blaðsíða 2
Ví SIR
saltaðar og ósaltaðap.
FypMiggandi:
Milka og Velma hið óviðjafnan-
lega átsúkkulaði frá Suehard og
svissno ostur .Crpand St. Berahaíd1.
A, Obenliaupt.
Látið yður ekki falla úr minni
þessa nanðsynlegu setningu:
TEOFANI er orOið
- 1.25 á borðið.
A
Umbcösmenui Geo«ral Motors bifreiSa: Jóh. ólafsson & Co., Rvík.
KáGKKrMMSÍKKVt 6? Sí Í5 MKWQIKKMMHMÍjj
Brunatrygoingar §
Sími 254.
Sjóuátryggingar |
Sími 542. §
HMKKMXáOðKKKMIMKMXXMMíCtíÍQKKV
Bnðm. Kr. Ölafsson.
—o—
1 fyrrinótt vildi þaö sorglega
slys til á botnvörpungnum Ólaíi,
aó Guömundur Kristinn Ólafsson,
fyrrum skipstjóri, féll útbyröis og
druknaði. — Guðmundur var fullra
sjötíu ára aö aldri, fæddur í Litla-
Seli hér í bænum 6. desember 1857.
Hann fór 13 ára aö stunda sjó
með föður sínum og varð formaö-
ur á opnum bátum, þegar hann.
haföi aldur til, en um 20 ára skeið
var hann skipstjóri á þilskipum og
botnvörpungum. Iionum hlektist
aldrei á í formensku sinni, var
heppinn aflamaöur, hjálpfús mjög
og vinsæll.
Hiö sviplega fráfall hans er mik-
iö sorgarefni eftirlifandi ekkju
hans og öörum vinum.
Jón M. Sigurðsson.
—o—
Aðfaranótt sunnudagsins varö
f>að sorglega slys úti í bátnum
Víkingi, að maöur féll þar niöur i
lestina og beið þegar fmna. Hann
bét Jón Marteinn Sigurösson, 43ja
ára aö aldri, ættaöur sunnan úr
Leiru, en haföi veriö mörg ár á
Akranesi, en bjó nú á Bárugötu 4
hér í bænum. Hann var ókvæntur
maður, en bjó meö systur sinni.
Hann var mjög vel látinn maður,
duglegur og reglusamur.
' Víkingur og Svanur lágu síbirt
hér við hafríarbakkann, og var einn
vökumaður í báöum skipunum.
Jón heitinn var háseti á Svan og
var á veröi þessa nótt. Lestin á
Vikingi var aö nokkuru leyti op-
in, en sleipt á þilfarinu, og hefir
manninum orðið þar fótaskortur
og falliö á höfuðið niöur í lestina.
Engir sjónarvottar voru aö slysinu,
en auðsætt þótti, að hann heíði
þegar beðiö bana.
Símskeyti
Khöfrt, 16. sejit., F.B.
Stjórn Frakklands ræðir um heim-
sendingu setuliðsins.
Frá París er símað: Ráðherra-
fundur var haldinn í gær. Um-
ræðuefnið í sambárídi við Genfar-
fundinn sem haldinn er í dag, til
þess að ræöa uni heimsendingu
setuliðsins úr Rinarbygðunum.
Fkkert hefir frétst um hvaða
ákvarðanir voru teknar á fundin-
um.
Ráðherrafundur í Þýskalandi.
Frá Berlin er símað : Ráðherra-
fundur var haldinn í gær út af
Genfarfundinum í dag. Ekkert
ábyggilegt frétst um ákvarðanir
fundarins.
Loftvarnir Parísarborgar ónógar.
Frá Paris er simað: Flugvéla-
de.ildir hersins hafa verið á æfing-
um seinustu dagana. Tilgangurinn
með æfingunum var að ganga úr
skugga um, hvort Parísarborg
myndi geta varist árásum flúg-
vélaflota óvinaþjóðar. Blöðin
segja, að æfingarnar hafi leitt það
í Ijós, að loftvarnir Parísarborgar
séu algerlega ófultnægjandi.
Hvirfilvindur í Bandaríkjunum.
Frá New York City er símað:
Hvirfilvindur fór yfir ríkin Ne-
braska, Illinois og Suður-Dakota.
Aö minsta kosti fjörutíu og þrír
menn fórust. Fjöldi manna meidd-
ist, mörg hús brunnu. Ætla menn,
að eignatjónið af völdum hvirfil-
bylsins nemi tveimur miljónum
dollara.
Annar hvirfilbylur.
Frá PortoRico er símað : Hvirtil-
bylur hefir farið yfir Porto Rico.
Mikill skaði á ökrum, vatnsleiðsl-
ur eyðilagst. Tugir þúsunda hafa
mist heimili sín af völdum hvirfil-
bylsins, og eiga íbúamir á svæði
því, semi hvirfilbylurinn fór yfir,
við matvælaskort að stríða og
ýmsa aðra erfiðleika.
(Porto Rico#er eyja, sem Banda-
ríkin eiga, fyrir austan Haiti. Eyj-
an er 180 km. löng og 60 kim.
breið).
Áfengismál á Genfarfundinum.
Frá Genf er símað: Finnland
hefir lengi barist fyrir því, að
Þióðabandalagið taki áfengísmálið
ti! meðferðar, en tillögur Fínna
hafa mætt mótspyrnu vinyrkjtt-
landanna. Nefnd, sem Þjóðabanda-
lagið kaus, til þess að atlmga máf-
íð, hefir samþykt miðlunartillögu,
þess efnis, að Þjóðabandalagið
ákveði að safna hagfræðilegum
upplýsingum viðvíkjandi skaðlegri
ueyslti slæms áfengis og rannsaki
möguleikana til þess, að k0111,1 í
veg fyrir áfengissmyglun.
Gyðlngar í Rússlaiidi.
—o—
Fljótt var þvi veitt athygli
eftir byltinguna i Rússlandi,
hve margir Gyðingar voru þar
í embættum, háum sem lágunr.
Var þetta lagt út á ýmsa vegu,
og spunnar út af því margvís-
legar kenningar, sem sumar
virtust raunar seilast um hurð
til lokunnar til að skýra þetta.
Njýlega hirtist grein 11111 þetta
efni i „The Nineteenth Century“
merku ensku tíma-riti. Sýnist
þar skynsamlega á málinu tek-
ið og biriist hér hluti af grein-
inni, í lauslegri' þýðingu:
Hin augljósa og einfalda skýr-
ing á þessu kann að virðast
nokkuð liversdagsleg, en hún
er sú, að léynifélagsskapur
hplsevika fekk Gyðingum þess-
ar æðri stöður fyrir þá sök, að
ekki var aðra að fá í stöðurn-
ar. Sá hluti fólksins, sem ekki
var Gyðingaættar, hefði með
engu móti getað fullnægt kröf-
unum um meim í þann her af
erindrekum, forsetum og ráð-
gjöfum við stofnanir, sem voru
að meira eða minna Ieyti undir
opinberri stjoni,- og þörf varð
á vegna ráðstjórnarfyrirkomu-
lagsins, sem þjöðnýtti mikinn
hluta af versrun og iðnaði
i Rússlandi. Hjá Gyðingum ein-
um var menn að finna með
nægum hæfileikum og mentun.
Með þviUgunarlogum og reglu-
gerðum liafði Gyðingum verið
varnað að senda nema hlutfalls-
lega mjög fáa stúdenta til há-
skóla og æðri mentastofnana,
en þeir höfðu ekki verið sviftir
undirstöðumentun,. og liún var
mikfu almennari i þeirra lióp,
en meðal annara liluta þjóðar-
innar. En þrátt fyrir hetri und-
irstöðumentun, sátu Gyðingar
ekki í áibyrgðarstöðum, svo sem
'því svaraði. pvert á móti settu
lögin alstaðar steina i götu
Gyðinga, á leiðinni til mann-
virðinga.
Nú tóku bolsevikar völdin í
sínar hendur, og gerði það
hvorttveggja í senn, að fjölga
embættum og fækka mönnum
í hinni mentuðu stétt, en aðeins
þaðan var menn að fá í embætt-
in. J?annig. fór svo um þann
hluta rússnesku þjóðarinnar,
sem keisarastjórnin var vön að
sækja sína embættismenn til,
að hann gat ekki orðið við
„eftirspurninni“, er myndaðist
við aukna embættismannastjórn
bolsevika. Aftur á móti voru til
miljónir af skrifstofuþjónum,
smákauinnönnum og liandiðn-
aðarmönnum Gyðingaættar,
sem gátu þó a. m. k. lesið, skrif-
að og reiknað bæði fljótt og
rétt, og; þar að aulcí höfðtt til
að bera skarpl'eika þann og
þrautseigju, sem almenn er Iijá
þjóðflökki þeirra. Enn má því
við liæta, að Gyðingár höfðu
enga lileypídóma í trú, stjórn-
móliim né þjöðfélagsskoðunum,
gegn því að þjóna stjórn bolse-
víka. Iveisarastjórnin hafði aft-
ur á móti farið dólgslega með
þá, og því höfðtt þeir ætíð lagt
marga liðsmenn til, eigi að eins
í flokk bolsevíka, lieldur og alla
aðra byltingaflokka.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 8 st„ ísafirði
4, Akureyri 9, Seyðisfirði 10,
Vestmannaeyjum 7, Stj7kkis-
hólmi 8, Blönduósi 8, Raufar-
höfn 8, Hólum í Hornafirði 8,
Grindavík 8, Færeyjum 9, Juli-
anehaalb 5, Jan Mayen 6, Hjalt-
landi 11, Tynemoutli 12, (eng-
in skeyti frá Angmagsalik og
Kaupmannahöfn). — Mestur
hiti hér i gær 10 st„ mipstur 8
st. Urkoma 12,3 mm. Lægð
(743 mm.) yfir suðvesturlandi.
Hreyfist hægt austureftir. Önn-
ur lægð vestur af Skotlandi á
norðausturleið. Horfur: Suð-
vesturland og Faxaflói: í dag og
nótt allhvass norðaustan og
norðan. Minkandi skúrir. Senni-
.lega þurt á morgun. Breiða-
fjörður og Vestfirðir: I dag
Iivass norðan og norðaustan.
Úrkoma og kalsaveður. I nótt
og á morgun minkandi norðan-
vindur. Norðurland: 1 dag vax-
andi norðan og norðaustan átt.
Sennilega allhvass með kvöld-
inu. Úrkoma. Ivaldara. Norð-
austurland og Austfirðir: í dag
breytileg átt. Úrkomulitið. í nótt
vaxandi norðan átt. Úrkoma.
Kaldara. Suðausturland: í dag
suðvestan gola. Skúrir. í nótt
vestan og norðvestan átt. Senni-
lega þurt á morgun.
Fermingarbörn
fríkirkjusafna’ðarins komi í frí-
kirkjuna á morgun, þriöjudag, kl.
5 siödegis.
H austf ermingarbö rn
komi í dómkirkjuna til síra
Friöriks Hallgrímssonar þriöju-
daginn kl. 5, og til síra Bjarna
Jónssonar miövikudaginn kl. 5.
Sigurður Skagfeld,
söng í fríkirkjunni í gærkveldi,
meö aöstoö Páls ísólfssonar. Aö-
sókn var góð, og má fullyrða, að
áheyrendúr hafi farið heim mjög
hrifnir og ánægöir.
Dronning Alexandrine
kom hingað kl. 7 í morgun frú
Kaupmannahöfn. Meöal farþega
voru: Lárus H. Bjarnason hæsta-
réttardómari, Ingibjörg IT. Bjarna-
son, Haraldur Árnason, frú Anna
Friðriksson, frú Ásta Pétursdóttir,
frú Unnur Ólafsdóttir, frk. Rok-
stad, H. E, Schmidt, Schellhorn