Vísir - 26.10.1928, Side 2
V I S I R
)) Hm™ I ÖLSENl
OG>
æ
æ
æ
æ
Höfum tils
Kaptöflup.
i "
Lauk í pokum.
SKADTAR, 3 tegundir, fyrirliggjandi.
A. Obenliaupt,
frii ]iia iiíasilir
kona Ásgeirs Eyþórssonar
káupmanns, andaðist hér i
bænum í gærmorgun, 63ja ára
að aldri, fædd 1. október 1865.
Frú Jensina var fríð kona sýn-
um og liugljúfi allra þeirra, er
kynni höfðu af henui, skyldra
og vandalausra. Þeim hjónum
varð 9 harna auðið, og eru þessi
6 þeirra á lífi: Ásgeir fræðslu-
málastjóri og alþm., Ragnar
garðyrkjumaður, Ásta, gift
Hjalta Gunnarssyni, Árni,
byggingameistari í New York,
Matthías, Kormákur, málari,
nú í Vesturheimi.
Símskeyti
Horan, fréttaritara Hearstblað-
anna skjalið viðvíkjandi frakk-
nesk-breska flotasamningnum.
Skiptapi og manntjón.
Frá Boston er símað: Ame-
rikst flutningaskip hefir senni-
lega farist með allri áhöfn,
fjörutiu og fimm mönnum, um
miðhik þessa mánaðar. Heyrð-
ust S O S-skeyti frá skipinu, er
kváðu skipið vera að sökkva.
Var það þá á miðju Atlants-
hafi. Síðan liel'ir ekkert frést
til skipsins.
Síra þormóður Sigurðsson
hefir verið kjörinn prestur að
þóroddsstaðaprestakalli, með
133 atkv. af 136 ,sein greidd
voru.
teknir voru frá handa þeim.sem
sækja vilja einstaka fyrirlestra,
fást við innganginn. — Húsinu
verður lokað þl. 5 mín. yfir 8.
X.
I.O.G.T.
Minerva nr. 172. Fundur í
kveld kl. 8% stundvíslega. —
Ejnbættismannakosning. Hús-
næðismálið. Komið öll, Minerv-
ingar! ÆT.
Áheit á Hallgrímskirkju
í Reykjavík, afhent síra
Bjarna Jónssyni: 10 kr. frá
stúlku, 5 kr. frá Guðmundi, 5
kr. frá N. N.
St. Æskan nr. 1.
Félagar stúkmmar eru beðn-
ir að koma til viðtals í gull-
smiðjuna Málmey, Laugaveg 4
í kvöld kl. 5—8. — Gæslum.
Merkjasölu
hafa Goodtemplarar á morg-
un á götum bæjarins og rennur
ágóðinn til úfbreiðslu bindindis.
Merkin kosta 25 aura.
Stúkan Frón
heldur dansleik i G.T.-hús-
inu annað kveld.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur fjölbreytta skemtun i
Iðnó i kveld og hefst hún kl.8ý2.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Iðnó frá kl. 2 og þar til er
skemtunin hefst.
ísfisksala.
Geir seldi afla sinn (550 ,kit‘)
í Englandi í gær fyrir 1550 sterl-
ingspund, og Hávarður Isfirð-
ingur (607 ,kit‘) fyrir 1414
sterlingspund.
Draupnir >
kom frá Englandi í morgun.
Brúarfoss ,
er væntanlegur frá útlöndum
í dag'.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 5 st., ísa-
firði 3, Akureyri 4, Seyðisfirði
6, Vestmanhaeyjum 5, Stykkis-
hólmi 5, Blönduósi 4, Hólum i
Hornafirði 5, Grindavík 4, Fær.
eyjum 4, Julianehaab 2, Ang-
magsalik 0 (skeyti vanlar frá
öllum öðrum útlendum stöðv-
um). Mestur hiti hér í gær 7 st.,
minstur 5 st. Úrkoma 1,9 mm.
— Erlendar veðurfregnir hafa
ekki fengist í morgun, og gildir
veðurspáin því aðeins í dag. -—
HORFUR: Suðvesturland, Faxa-
flói, Breiðafjörður: Allhvass
norðan. Jhirt veður. Vestfirðir,
Norðurland: Allhvass norðaust-
an, heldur minkandi. Úrkomu-
litið. Norðausturland, Austfirð-
ir: Allhvass norðaustan; víða
rigning eða bleytulirið. Suð-
austurland: Allhvass norðaust-
an. purt og bjart veður.
„Búmannsklukkan“.
Vísir hefir fengið nokkurar
fyrirspurnir um það, hvort
klukkunni yrði ekki seinkað í
haust, eins og „að undan-
förnu“, en því her að svara
neitandi. Klukkunni var aldrei
flýtt í ár, og er því ekki ,að
ræðá um að seinka lienni nú.
— I ófriðnum og ilokkur ár á
eftir, var klukkunni flýtt um
eina stundu að vorinu, og síð-
an seinkað að sama skapi að
liaustinu, en þetta mæltist
heldur illa fyrir, aðallega af
verkstjórum og verkafólki við
fiskþurkun. Var þá liorfið frá
þessu aftur, enda minkaði
þörfin eftir að ljósmeti lækk-
aði i verði, eftir styrjöldina.
Sumar þjóðir halda þó þessari
reglu enn, og til sveita liér á
landi helst liún og, enda hefir
það verið talið til ráðdeildar,
að hafa klukkuna fljótav og
þaðan stafar nafnið „búmanns-
klukka“, sem að jafnaði mun
vera tveimur stundum á und-
an réttri klukku, sem nú er
víðast til sveita kölluð shna-
klukka.
Skipafregnir.
Gullfoss er í Stykkisliólmi.
Kemur hingað á morgun.
Goðafoss kom til Hamborg-
ar í fyrradag.
Basar.
Verkakvennafélagið „Fram-
sókn“ liefir ákveðið að lialda
sinn árlega basar um miðjan
næsta mánuð. Eru því allar fé-
lagskonur beðnar um að gera
nú skyldu sina og styrkja þessa
starfsemi félagsins. — Eins og
þeim er kunnugt, verður ágóð-
anum varið til styrktar veikum
konum innan félagsins. Er
þakksamlega tekið á móti gjöf-
um jafnt frá körlum sem kon-
um er lilyntir eru þessum fé-
lagsskap. — pessar konur veita
gjöfum móttöku: Gíslína Magn-
úsdóttir, Njálsgötu 36, Steinunn
þórarinsdóttir, Barónsstíg 12,
Jóhanna Árnadóttir, Bergstaða-
stræti 45, Jónína Jónsdótlir,
Baldursgötu 20, Kristjánsína
Bjamadóttir, Bergþórugötu 23.
Sjómannakveðja.
FB 25. okt.
Legið inni síðan fórum að
heiman, nú á Önundarfirði.
Velliðan. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna.
Skipshöfnin á Ver.
Áheit á Strandarkirkju.
afhent Vísi: 100 (hundrað)
kr. frá ónefndum í Reykjavík,
afh. af síra Ólafi Ólafssyni, frí-
kirkjupresti, 2 kr. frá L. P., 4
kr. frá A. J., 5 kr. frá M. L., 5
kr. frá H. L.
Hitt Ofl þetta«
Mr. T. P. O’Connor
varS áttræSur 5. þ. m. og var hon-
um þá sýndur margvíslegur sómi.
Hann er elsti þingmaöur í neSri
deild breska þingsins og kallaSur
„faSir deildarinnar“. Hann hefir
stundaS blaSamensku frá æskuár-
um og veriS þingmaSur í 48 ár.
Hann er írskur aS ætt og hafa
fáir barist lengur eSa betur fyrir
sjálfstæSi írlands en lrann.
Flotamálastjómin í U. S. A.
er að láta smíða tvö loftskip.
pati eiga að kosta 8 miljónir
dollara og verða stærstu loft-
skip í lieimi. pau verða smíðuð
lijá The Goodyear Zeppelin Co.
í Akron, Ohio. Hvort loftskipið
um sig hefir 4 litlar flugvélar.
Útbúnaður verður á loftskip-
unum til þess að flugvélarnar
geti liafið sig til flugs og lent á
loftskipunum, þegar þau eru á
flugi. Loftskipin verða útbúin
með vélbyssum. Á þeim verða
12 yfirmenn og 30 undirmenn.
Lágmarkshraði loftskipanna
verður 72 sjómílur og flugsvið
(cruising radius) 10.000 enskar
mílur.
(F. B.).
Rauði krossinn
hefir siðan ofviðrið kom í Porto
Rico fætt á inilli 5Q0 óg 600 þús.
manns þar i landi. Lét rauði
krossinn flytja þangað frá
Bandarikj unum 1,000 til 1,500
tonn af matvælum á viku fyrstu
vikurnar á eftir ofviðrinu. peg-
ar Missisippiflóðin urðu, hjálp-
aði Rauði krossinn 600 til 700
þús. manns um mat, klæði o. fl.
(F. B.).
FB. 25. okt.
Alheimssamband ungra jafn-
aðarmanna hefir boðað til al-
heimsfundar með ungum jafn-
aðarmönnum dagana 12.—17.
júni. Verður alheimsfundur
þessi haldinn í Vínarborg. Ung-
ir, íslenskir jafnaðarmenn, sem
mundu vilja fara á alheims-
fundinn, geta fengið allar
nauðsynlegar upplýsingar lijá
Félagi ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík (utanáskrift: Al-
þýðuhúsið, Rvík).
Khöfn 25. okt. FB.
Nýtt radíótæki.
Frá Leningrad er símað:
Prófessor Petrovski hefir búið
til radíótæki, sem gerir mönn-
um mögulegt að nota rafsegul-
bylgjur til þess að finná málm-
lög í jörðu. Tilraunir í Trans-
kaukasiu hafa sýnt, að málm-
lög hafa fundist á þeim.stöð-
um, sem radiótækin visuðu á.
Vatnsflóðin í Alpadölum.
Frá Grenoble er síinað:
Vatnsflóðin i frakknesku Alpa-
dölunum aukast. Sumstaðar er
þriggja metra djúpt vatn á ökr-
um. Ibúarnir hafa víða verið
til neyddir, að flýja frá heim-
ilum sínum. Sumstaðar hef-
ir verksmiðjuvinna stöðvast
vegna flóðanna og hrýr á Yser-
fljótinu liafa eyðilagst.
Eftirleikur Horan-málsins.
Frá París er simað: Frakk-
neska stjórnin hefir ákveðið að
höfða sakamál á móti frakk-
neska blaðamanninum de la
Planque og embættismanni í
utanríkismálaráðuneytinu, No-
blet að nafni, en þeir útveguðu
Vilhjálmur Vigfússon
Bergstaðastræti 7. er fimtug-
ur í dag.
Hjúskapur.
Siðastl. laugardag voru gefin
saman í lijónaband af sr. Árna
Sigúrðssyni ungfrú Guðjóna
Nikulásdóttir frá Stokkseyri og
Guðmundur Guðmundsson,
Bræðraborgarstíg 10 B.
| Jóhannes Sigfússon,
• sonur Sigfúsar Daníelssonar
kaupmanns á Sauðárkróki,
hefir nýlega lokið prófi í lyfja-
fræði Kaupmannahöfn.
Lúðrasveit Reykjavíkur
ætlar að kveðja sumarið með
því að leika nokkur lög á Aust-
urvelli kl. 9 í kveld, ef veður
leyfir.
Annar fyrirlestur
alþýðufræðslu U. M. F. Vel-
vakandi er í kvöld kl. 8 í Nýja
Bíó. Flytur sira Ásmundur Guð-
mundsson, docent, liann, um
Amos spámann. Má þar búast
við fróðlegu og skemtilegu er-
indi, 'því að síra Ásmundur er
framúrskarandi ræðumaður. —
Nokkrir aðgöngumiðar, sem
DOLLAR,
Látið DOLLAR
vinrra fyrir yður
‘besta þvottaefnld, sem til landsins fly tst.
Þetta ágæta, margeflirspurða
þvottaefni er nú komið aftur.
DOLLAR-þvottaefni 6P i raun
og sannleika j sjálfvinn—
andi, enda uppáhald þeirra
sem reynt hafa.
DOLLAR er svo fjarri því að
vera skaðægt að fötin endast
betur séu þau þvegin að stað-
aldri úr þessu þvotlaefni.
Sparið yður útgiöld og erfiði og
notið DOLLAR, en notið það sam-
kvæmt fyrirsögninni, því á þann
hált fáið þér bestan árangur.
í helldsölu bjá:
Halldóri Eiríkssyni,
Hafnarstræti 22. Sími 175.
á meðan þjer sofið.