Vísir - 06.11.1928, Blaðsíða 3
VISIR
BARNAFATAVERSLUNIN
Klapparstíg 37. Sími 2035
Smekklegt úrval af telp kápum.
Verðið sanngiarut.
StúdentaMgai’ður.
Fyrir nokkrum árum var bygg-
'ing stúdentagarSs i Reykjavík aö-
,eins fögur hugsjón, sem íslenskir
stúdentar höföu tekiö ástfóstri við.
En uugum áhugasömum mönnum
nægja ekki fagrar hugsjónir. Þeir
vilja gera þær aö veruleika og
hefjast handa. Þá reynir á þolrifin.
StarfiíS sýnir hvort nokkuö er i
manninn spunniö. Ef barist er af
.ósérplægiii fyrir göfugu máli,
véröa oftast margir til aö rétta
hjálparhönd, en þeim vill engi
sinni veita, sem sjálfur vill engu
fóma.
Svo má heita, að hugsjónin
fagra sé nú aö veröa að veruleika.
Stúdentar hafa sýnt, aö þeir eru
færir um aö leysa þrekvirki, og aö
þeir vilja byggja fyrir framtiöina
,og fórna fúslega komandi kyn-
slóðum fé og fjörvi.
Eu sá, sem hefir náð þeim
þroska, að helga krafta sína göf-
ugu starfi, leggur ekki árar í bát,
þótt fyrsta þrautin sé unnin. Hann
finnur brátt annaö starfssvið og
svo koll af kolli. Sú hefir og orðið
raunin meðal íslenskra stúdenta.
Þegar hugsjónin um stúdeuta-
garð er að verða aö veruleika, hafa
þeir þegar eignast aðra djarfa hug-
sjón, sem vonandi verðurþeim jafn-
kær hinni fyrri, ekki síst þar eð
hún er skilgetið afkvæmi hennar,
en það er hugsjónin um stúdenta-
búgarð.
Fyr á öldum-, þegar hér voru
engir kaupstaðir eöa borgir, voru
allir skólar vorir í sveit. Þótti þá
miklu varða, að valdar væru góð-
ar bújarðir sem skólasetur, því
margra fanga þurfti við þar, sem
fæða átti fjölda ungra manna. Sú
mun enn raun á verða.
Gamalt máltæki segir: „Sjálfs
er höndin hollust", og mun engum
tjá í móti að mæla.
Stúdentabúgarður er einn meg-
inþáttur í sjálfstæðisbaráttu stú-
derrta. Hann myndi hafa margfalt
gildi. Hann veitir stúdentum ódýrt
Haframjöl
ágæg tegund,
mjög ódýrt
í heiluni pokum
Versl VÍ8ÍR.
kjarnfæði og suraum þeirra at-
vinnu. Stúdéntar úr kaupstöðum
m.yndu þar kynnast sveitalífi. Og
svo ættu stúdentar að geta fengið
að dvelja þar sér til skemtunar
gegn lágu gjaldi.
Stúdentabúgarðurinn ætti að,
byggjast í endurbættum íslensk-
um sveitabæjastil. Búskapinn ætti
að reka samkvæmt nýjustu og
bestu búvísindum. Hann ætti að
geta tekið á móti erlendum Stúdent-
um, sem kynnast vildu íslensku
þjóðlífi, og hann ætti að sýna þeim
bestu ntynd þess. Hann ætti að
verða fyrirmynd annara búgarða,
svo þangað streymdu áhugasamir
bændasynir úr öllum landsfjórð-
ungum, sem vildu vinna þar fyrir
fæði nokkrar vikur, svo að þeir
fengju tækifæri til að kynnast því
besta sem islenskur búskapur hefði
að bjóða.
En bújörðinl v.erður aö vera svo
uærri Reykjavík, að samgöngur
séu greiðar i milli alt árið. Hún
þarf að vera hlunninda jörð og
helst að liggja.í fallegu umhverfi.
Baldúr Sveinsson blaðamaður, sem
hefir víst fyrstur borið fram þessa
hugsjón, hefir stungið upp á Krýsi-
vík. Sú jörð virðist að mörgu leyti
vel til fundin. Landslag þar nær-
lendis er fagurt og tilkomumikið.
Þar er jarðhiti, ágæt ræktunárskil-
yrði og fuglatekja. En leiðin þang-
að er helst til löng’ og að nokkru
órudd, en myndi vera mjög skemti-
leg, ef farið væri upp hjá Kaldár-
seli og svo meðfram Lönguhlíðuro.
Hér er mikið verkefni fyrir
höndum, seifi ekki verður leyst í
skjótri svipan. En því fyr, sem
hafist er handa, þess skemur þurf-
um við að bíða eftir stúdentabú-
garðinum.
J. S.
LL AR
Látið DOLLAR
vinra fyrir yður
besta jþvottaefnið, sem til laadsies flytst.
Þetta ág’eta, margefiir-ipurða
þvottaefni er nú komið aftur.
DOLLAR-þvottaefni er i raun
og saonleika sjélfviiasi—
aadLI, enda uppáhald þeirra
sem reynt hafa.
DOLLAR er svo fjarri þv( að
vera skað egt að fötin endast
batur séu þau þvegin að stað-
aldri úr þessu þvottaefni.
Sparið ySnr utg öld og erfiði og
notið DOLLAR. en notið það sam-
kvæmt fyrirsögninni, því á þann
háit faið þér bestan árangur.
í beildsöiu hjá:
á meðan þjer sofið.
MalldóFi EiFíkssyni.
Hafnarstræti 22. Sími 17b.
□ EDDA. 59281167 —
Fyrirl/. Br.% M/. I*.-.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík i st., ísafirði
-4-2, Akureyri —.-5, Seyðisfirði 1,
Vestmannaeyjum 5, Stykkishólnú
1, Blönduósi -t-6, (engin skeyti frá
.Raufarhöfn og Kaupmannahöfn),
Hólum í Homafirði -4-1, Grindavík
o, Færeyjum 6, Julianehaab o,
Angmagsalik o, Jan Mayen -:~5,
Hjaltlandi 7, Tynemouth 8 st. —
Mestur hiti hér í gær 6 st., minst-
ur o st. — Djúp lægð rruilli Jan
Mayen og Lófóten. Hæð yfir Aust-
ur-(>r.nilandi og Islandi. Djúp
lægð og óveður suður af Græn-
landi á austurleið. — Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói: í dag hægur
austan, en vaxandi með nóttunni.
Bjart veður. Breiðafjörður: t dag
og nótt austan gola. Bjart veður.
Vestfirðir, Norðurland: í dag og
nótt austan átt, víðast hægur. Þykt
loft í útsveitum. Norðausturland,
Austfirðir: í dag og nótt norðan
og norðaustan átt. Sumstaðar dá-
lítil snjókoma. Suðausturland: í
dag og nótt austan og norðaustan
átt. Bjart veður.
Silfurbrúðkaupsdag
eiga á morgun frú pórdís
Friðriksdóttir og Kristján Krist-
jánsson, Álfheimum við Sund-
laugarnar.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman i lijónaband Guð-
rún Guðmundsdóttir og Frið-
berg Kristjánsson, Grettisgötu
43. Síra Árni Signrðsson gaf þau
saman.
Trúlofun.
Nýlega bafa opinberað trúlof-
un sína á Akureyri ungfrú Ás-
dis Jónsdóttir, Stórabólmi og
Hilmar Árnason.
Samkoma
verður lialdin á Njálsgötu 1 í
lcveld kl. 8. Allir velkom nir.
Timburskip
kom í gær til li.f. Völundar.
Á hlutaveltu Ármanns
komu upp þessi númer í happ-
drættinu: Farið til Hamhorgar
r,r. 2363 og hlaut það Sigurbjörn
Benediktsson, ungur maður úr
Reykjavík. Körfustóll nr. 2038 og
sauðkindin nr. 2931. Handhafar
þessara númera gefi sig fram við
form. Ármanns, Jens Guðbjörns-
son í Félagsbókbandinu, Farið
kringum land hlaut Þórarinn
Magnússon.
Gamla Bíó
sýnir enn hina miklu mynd
„Konung konunganna" við afar
mikla aðsókn. í dag kl. 4verður
inyndin sýnd börnum í fyrsta sinn,
en síðar verða fleiri barnasýning-
ar haldnar, m. a. á fimtudag og
laugardag.
Nýja Bíó
sýnir myndina „Alheimsbölið" i
kveld. Er það kvikmynd um heilsu
og velferð almennings. íslenskir
textar hafa verið settir í myndina.
Börn innan 14 ára fá ekki aðgang.
Fypirliggjandi:
Rúsínnr i pökkum á 9 og 15 onz „Guggenhimes".
H. Benadiktsson & Co.
Sími S (fjórar línur).
Opinbert uppboð verður haldið í fiskgeymsluhúsi h.f.
Dvergur, við Framnesveg, mið vikudaginn 7. þ. m. kl. 1 */2 e. h.
og verða þar seld 109 skippund af stórfiski.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 6. nóv. 1928.
Jóh. Jóhannesson.
K. F. U. M.
U-D-fundur annað kveld kl.
81/2* — SölvL
Piltar 14—17 ára velkomnir.
U.M.F. Velvakandi
heldur fund í kveld kl. 9 í
Iðnó (uppi).
Es. Island
fór ld. 10 i gærkveldi frá
Leitli áleiðis til Reykjavíkur.
Óðinn
kom frá Danmörku í morgun.
Af veiðum
komu i gær Hilmir og Barð-
iun, en Gyllir í morgun.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 2 kr. frá Sjönu, 2
kr. frá Árnesingi, 1 kr. frá konu
í Hafnarfirði, 10 kr. frá N. N.
Gengi erl. myntar.
Sterlingspund ....... kr. 22.15
100 kr. danskar ........— 121.77
100 — norskar ..........— !2i.83
100 — sænskar ..........— 122.20
Dollar .................— 4.57
100 fr. franskir .......— t7-96
100 — svissn............— 88.04
100 lírur ..............— 24-05
100 gyllini ............— tSj-S1
100 þýsk gullmörk ... — 108.89
100 pesetar ............— 73-98
100 belga.............. — 63.62
Solmpilinr
eru framleiddar úr hrein-
um jurtaemum, þær hafa
engin skaðleg áhrif á lík-
amann, en góð og styrkj-
andi áhrif á meltingarfær-
in.Sólinpillurhreinsa skað-
leg efni úr blóðinu. Sólin-
pillur hjálpa við vanliðan
er stafar af óreglulegum
hægðum og hægðaleysi. —
Notkunarfyrirsögn fylgir
hverri dós. Verð að eins kr.
1,00. — Fæst í
LAUGAVEGS APÓTEKL