Vísir - 27.11.1928, Blaðsíða 4
VISIR
Lausasmiðjnr
steðjar, smíðahamrar og smíðatengur.
BLlappax*stig 29.
VALD. POULSEN.
Simi 24.
Nýkomið fyrsta fiokks
átsúkkulaðl og konfekt.
Fjöllireytt úrval.
A. OBENHAUPT
Landsins mesta úrval af rammalistum.
Myndir inaraxnmaðar fljótt og vel. — Hvergi eins ódýrt.
Guðmunúur Áshjörnsson.
Laugaveg r.
Nýkomid :
Maccaroni
- veröið lækkað. —
I. Brynjólfsson & Kvaran.
XXXÍOOÖÍSOtÍÍÍSSíXÍÍStÍíiOOOOOOOOÍ
f? o
ii
Obels
st
munntóbak i
i7
er best. 1
Kvenúr tapaðist frá Grundar-
stig inn á Hafnarfjarðarveg. —
Skilist á Grundarstíg 4. (630
Koparlóð af reislu týndist í
gær frá pórshamri að*Bárunni.
Skilist á Vegámótastíg 9. (628
Tapast liefir gull-eyrnalokk-
ur með perlu. Skilist á afgr.
Vísis. (627
Brjóstn'æla fundin. Vitjist í
Nýju FiskbúSina, Laufásveg 37.
(653
r
HUSNÆÐI
Stór stofa með aðgangi að
eldhúsi og baði, geymsla fylgir,
til leigu á Njarðargötu 29. (629
Góð 2—3 lierbergja ibúð ósk-
ast snennna í des., helst fyrsta.
Tilboð, merkt: „19“, sendist af-
greiðslu Vísis. (625
Tveir nemendur óska herbergis
meö húsgögnum í miöbænum, urn
2 mánuði. Sími 1152. 637
Gott herbergi til leigu fyrir
kvenmann. Ljós fylgir. Hverfis-
götu 59B. • (633
P
VINNA
1
Stúlka óskast. LFppl. gefur
porbjörg Sigurðardóttir,Lauga-
veg 64, uppi. (632
Stúlka óskast i vist strax. —
Tvent í heimili. Sölvhólsgötu 12,
niðri. (631
2 rnenn vantar við skepnu-
hirðingu. Hringið i síma 1613.
Guðm. Sigurðsson, klæðskeri,
Hafnarstræti 16. Sími 377.
Saumar ódýrast. Fljót af-
greiðsla. — Fataefni: Blá, svört
og mislit. — Lægsta verð í
borginni. (177
Siðprúð stúlka óskast í vist
sökum veikinda annarar. Uppl.
á Bræðraborgarstíg 15. (652
Stúlka óskast i vist á gott
heimili á Akureyri. Uppl. i dag
á Fjólugötu 3- (650
Stúlka óskast 1. des. — Uppl.
Bragagötu 23, eftir kl. 6. (647
Stúlka óskast í grend við
Reykjavík, á fáment heimili.
Hátt kaup. Uppl. í smiðjunni
á Bergstaðastræti 4 til kl. 7, en
eftir 7 á Ilverfisgötu 76 B. Simi
1495., (646
Stúlka óskar eftir að sauma
i húsum. Uppl. á Grettisgötu 43.
(645
Unglingsstúlka, 15—16 ára,
óskast i vist, Miðstræti 5, uppi.
(642
Stúlka óskast til Keflavíkur,
strax eSa um nýar. Gott kaup.
Uppl. á Óðinsgötu 5 (uppi) frá
kl. 4—7 síðd. (654
lW' Roskinn kvenmaður óskast
á lítið heimili, hálfan eða allan
daginn. Aðeins 2 í heimili. Þarf
að sofa annarsstaðar. A. v. á. (640
Stúlka óskast til að saurna jakka-
föt. Uppl. í sima 1662. (638
Stúlka óskast í sveit, má haía
ungbani. Uppl. á Kárastíg 2. (635
Stúlka óskast hálfan eða allan
daginn á Þórsgötu 20. (634
Teknir saumar á Njálsgötu
18. Gengið um forstofuna. (655
r
KAUPSKAPUR
Munstruðu prjónapeysurnar
og h.úfurnar komnar aftur.
Verslunin Snót, Vesturgötu 16.
(601
Af sérstökum ástæðum eru nýir
lakkskór nr. 38 til sölu með tæki-
færisverði. Til sýnis í Tóbaksbúð-
inni, Laugaveg 43. (624
Hefi fyrirliggjandi fallegar
hárfléttur, við íslenskan og út-
lendan búning. Vinn einnig úr
rothári. Kr. Kragh,Bankastræti
4, simi 330. (1337
W'pjgjp— Margar tegundir af legu.
béltkjum, með mismunandi
verði. Stoppuð húsgögn tekiis
til aðgerðar. Grettisgötu 21. —
(1135
fSLEKSK FRÍMERKI keypt á
Urðarstig 12. (34
Fallegur upphlutur og mjög
fáséð silkisvunta til sölu á
Laugaveg 44. Tækifærisverð.
(651
Svört plusskápa tii sölu á
Hverfisgöu 98. Sími 1898. (649
Steyputimbur til sölu á Sól-
vallagötu 21. (648
Brún, stór skinnkápa og önn-
ur svört minni til sölu með
tækifærisverði. Saumastofan,
]?ingholtsstræti 1. (644
Stigin saumavél til sölu. —
Verð kr. 100,00. Saumastofan,
pingholtsstræti 1. (643
„Morgunn“, 5 fyrstu árg., tii
sölu í ágætu skinnbandi, mjög ó-
dýrt. Njálsgötu 52. Gunnar Björns-
son. (639
Rúmstæði, dýna, ferðakista i
ágætu standi, til sölu á Vatnsstíg
16, uppi. (63Ó
Fóthjúkrun (Fodpleje). Gert
við líkþorn og skemdar negl-
ur. Farið heim til þeirra,v sem
óska. — Sími 643 og 808. (483
Athugið ' áhættuna, sem er
samfara því að hafa innan-
stokksmuni sina óvátrygða. —
(1175
,Eagle Star“. Sími 281.
pýðir ekki að hringja í síma-
viðvíkjandi einkatimum í dansi
— þessa viku vegna annríkis. —■
Sig. Guðmundsson, danskenn-
ari. (641
FélagsprentsmiBjan.
FRELSISVINÍR.
ar fyltust tárum. Sjóliðsforinginn urigi spjallaði um alla
heima og geima við hina tignu landstjórafrú. Llún féklc
því ekkert tækifæri til þess, að hugga Myrtle né styrkja
eVida þótt vesalings barnið þarfnaðist þess sárlega.
Að lokum komu þau aftur að bryggjunni. Einn af há-
setunum hélt bátnum föstum við bryggjuna, en liðsforing-
inn ungi var afar stimamjúkur og studdi konurnar, með-
an þær stigu á land.
Og þar stóð þá óboðinn gestur — Mandeville höfuðs-
maður —!
Llann tók stóra þríhyrnda hattinn ofan, og laut þeim
dj úpt.
„Eg vissi ekki til þess, að hin tigna landstjórafrú legði
stund á skemtisiglingar.“
„Eg geri það ekki að jafnaði," svaraði hún aðstoöar-
foringjanum. „En Thornborough höfuðsmaður bauðst til
að sýna okkur Myrtle skipið. Og blessað barnið hefir ald-
rei komið um borð í herskip fyr. — Eg vona, að við tefj-
um ýður ekki, höfuðsmaður,“ bætti hún við. Hún hugsaði
til bátsins, sem þeir Llarry voru í, — og hún óskaði ekki,
að höfuðsmaðurinn sæi þá.
„Nei, nei, alls ekki,“ svaraði hann. „Eg á ekki annríkt
sem stendur. Eg ætla að eins að bregða mér út í Johnson-
vígið. Eg var einmitt að svipast um eftir einhverjum sem
gæti ilutt mig þangað. — Jæja, Myrtle, það er vonandi
að þú hafir ekki orðið fyrir vonbrigðúm, er þú skoðaðir
skipið.“
„Sei-sei-nei!“ sagði hún og leit niður fyrir sig. Hún
vildi forðast augnaráð hans, er var hvásst og rannsakandi,
— en augu hennar voru tárvot.
„Þú ert ekki afskaplega hrifin, sýnist mjer,“ sagði hann
stríðinn og brosleitur.
En landstjórafrúin kom henni þegar til hjálpar.
„Komdu nú, Myrtle, — við verðum að halda áfram.
Annars tefur hann okkur allan daginn.“
„Bíðið augnablik — gerið svo vel! Þetta er ef til vill
eina tækiíærið, sem eg fæ fyrir kvöldið, — fyrir dans-
leikinn!“
„Tækifærið? — Tækifæri til hvers?“
„Til þess að biðja Myrtle um þann dansjnn, sem eg
óska helst að fá — fyrsta menúettinn. Viltu veita mér
þá ánægju, Myrtle, að dansa hann við mig?“
.■ „Já, — auðvitað, Robert!“ sagði hún og rétti honum
höndina.
Hann stóð og horfði á eftir þeim, þangað til þær hurfu
í mannþröngina hjá kauphöllini. Því næst setti hann hatt-
inn á höfuð sér, hægt og gætilega. Hann hleypti brúnum
og starði hvasseygur á bátinn úti á víkinni, og hafði hann
komið auga á hann fyrir löngu. Hann náði sér i lítinn
bát, en bar ekki við að fara ofan í hann, fyr en hinn bát-
urinn var kominn að bryggjunni og hann hafði séð, að
Latimer og Tom Izard stigu á land. Þeir lmeigðu sig allir
hátiðlega og fálega, en enginn þeirra mælti orð frá munni.
Og var það þó undarlegt, því að aðstoðarforinginn og bróð-
ir landstjórafrúarinnar voru mestu mátar — eða höfðu
verið það. Þá steig Mandeville niður í bátinn og settist
í skut.
„Ytið frá!“ skipaði hann stuttur í spuna.
„Hvert þóknast yður að láta flytja yður?“ spurði blökku-
maðurinn, sem næstur honum sat.
„Út í ,Tamar‘!“ sagði hanii.
Þegar hann kom út i skipið, var Thornborough skipherra
kominn undir þiljur. En hann brá þegar við og kom upp,
er honum var sagt, að aðstoðarforingi landstjórans værí
kominn á skipsfjöl.
„Nei, þetta var óvænt heimsókn — góðan daginn Mande-
ville!“ sagði hann.
Mandeville bauð honum góðan dag, harla stuttur í spuna.
„Eg þarf að tala fáein orð við yður — i einrúmi, Thorn-
borough skipherra!“ ,
Thornborough starði á hann og undraðist framferði hans
og viðmót.
„Gerið svo vel að koma með mér, niður í farrými mitt
— aftur í skut!“ sagði hann og gekk á undan.
Mandeville settist á skipskistu og sneri baki að glugga,
er vissi út að skutnum. Á borðinu lá þykk bók. Vínflaska