Vísir - 10.12.1928, Blaðsíða 3
VTSIR
spyrja. Nóg að segja, að sumt
varð að endurtaka og áskoran-
jr lcomu strax um endurtekn-
jng tónleiksins í heild sinni, og
;jnun í ráði að gera það n.k.
'fiintudag. — Sjálfsagt sitja
■söngvinir sig ekki úr færi að
-sjá og lieyra stjórn Veldens á
Hljómsveitinni, einlcum ef svo
er, að hann sé þegar á förum.
ftáðningartími hans var bund-
jnn við stjórn á einum lconsert
cOg kenslu til nýárs. En auðvit-
,að megum við ekki missa hann
;Svo fljótt, ef nokkur ráð væru
ítil annars.
Svat*
Jíl Sigurðar Jónssonar.
Herra slcólastjóri Sigurður
Jónsson befir ritað alllangt mál
4 „Vísi“ 2. þ. m. um refsidóm
Jóns Högnasonar skipstjóra, og
er eg honum þakklátur fyrir,
■vegna þeirrar óánægju sem
hann lætur þar í Ijós yfir skiln-
ingi Hæstaréttar á 2. málsgrein
•27. gr. aðflutningsbannslag-
anna. ]?að sem okkur slcilur í
þessu máli er það, að liann áfell-
|st Hæstarétt, en eg áfellist lög-
In, sem neyddu réttinn til að
dæma Jón Högnason til fang-
ælsisrefsingar.
Eg tek það ekki nærri mér,
þótt Sigurður Jónsson áfellist
jnig fyrir afskifti mín af þessu
máli. Eg liefi aðeins gert skyldu
mína, bæði sem verjandi Jóns
og leikmaður í þessu þjóðfélagi.
Eg get fúslega viðurkent það, að
honum er aðdragandi laganna
og tilætlun betur kunn en mér
og um liitt blandast engum
hugur, scm grein hans les, að
hann standi mér fnllkomlega
á sporði sem „prokurator“ þess
málstaðar, sem hann vill verja.
það er að vísu margt í grein
Sigurðar Jónssonar sem ástæða
væri til að gera athugasemdir
iim, en út i það vil eg ekki fara,
því það var ekki tilgangur minn
íneð grein minni í Morgunblað-
inu 21. f. m. að lcnda í blaða-
deilum um svo augljóst mál,
sem hér liggur fyrir.
pað sem scrstaklega gladdi
mig í grein Sigurðar Jónssonar
Þvottadagarnir
hvítd'o’daqai*
Látið DOLLAR
vinna fyrir yður
3'oo ^
rr ^5 5
> x> > á
3 ■- .E ’öj
*
Fæst viðsvegiuv
í heildsMu hjá
Halldórl Eirikssynl
Simi 175.
IIjíi iiii m ails slréa
er hin ótviræða yfirlýsing hans
um, að það hafi aldrei verið til-
ætlun Templara að ákvæði 2.
málsgr. 27. gr. œtti að skiljast
á þann hátt, sem Hæstiréttur
nú hefir slegið föstu, vegna hins
„álcveðna og fortakslausa orða-
lags“ málsgreinarinnar.
Þetta var einmitt það, sem
við Jón Ásbjörnsson vildum
lialda fram, við sókn og vörn
málsins, og eg fyrir mitt leyti
liafði ekkert við það að at-
liuga, að málinu væri visað
heim til frekari rannsóknar,
en nú liefir Hæstiréttur slegið
því föstu ,um alla framtið, að
engin heimild sé til að skilja
orðalag málsgreinarinnar á
þann hátt, sem tilætlunin þó
virðist hafa verið samkvæmt
yfirlýsingu Sigurðar .Tónsson-
ar. Dómar Hæstaréttar eru
endanlegur úrskurður um efa-
sama lagastaða, og því er það
skylda þeirra, sem hafa beitt
sér fyrir aðflutningsbannslög-
um frá 1928 að gangast fyrir
því, að þeim sé breytt í viðun-
andi horf þegar á næsta þingi.
Slcólastjórinn ámælir Hæsta-
rétti fyrir dóminn, eg áfellist
áfengislögin; dómi Hæsíaréttar
vcrður elcki breytt, en áfengis-
lögunum er auðvelt að breyta
og eg vona að við Sigurður Jóns-
son getum báðir unnið áð
því. Úr þvi að Sigurður Jóns-
son, f. h. templara, hefir lýst
yfir því, að það liafi aldrei
verið tilgangur þeirra með
orðalagi 2. málsgr. 27. gr.
áfengislaganna, að saklausir
jafnt sem sekir eigi að dæmast
til fangelsisrefsingar, þá er
mér ánægja að taka aftur um-
mæli mín um „ofstæki“ af
þeirra liendi, en ófimlega hefir
þá verið komist að orði i lög-
unum, úr því að Hæstiréttur
taldi sér skylt að dæma á þann
liátt, sem nú er fram komið.
Eg veit ekki á hverju Sig-
urður Jónsson byggir það, að
eg sé andbanningur, þar sem
eg einmitt hefi lýst yfir því í
grein minni, að eg sé banni
hlyntur, en vitanlega fer þar
um mig líkt og Jón Högnason;
eg get ekki sannað saldeysi
mitt, úr því að framburður
minn er eþki tekinn til greina.
Hitt er annað mál, að eg get
ekki, að ýmsu leyti, fallist á
þær leiðir, er ráðandi menn
meðal templara liafa valið, en
eg tek það fram, að það var
ekki af fjandslcap við bannlög-
in eða af politiskum livötum,
að eg fór að rita um dóm Jóns
Högnasonar; það var réttlætis-
tilfinning mín, sem knúði mig
til að gera mitt, til þess að fá
lögunum breytt.
Grein mína sendi eg „Morg-
unblaðinu“, af því að ritstjóri
þess blaðs hafði gert dóminn
að umtalsefni.
Reykjavík, 6. des. 1928.
Lárus Fjeldsted.
Bæjarfréttlr
Jálavörar!
Jólave í!
□ Eöf)A. 592812 16l/2 =
Veðrið í morgun.
í Reylcjavík frost 0 st., ísa-
firði 2, Akureyri 0, Seyðisfirði
hiti 2, Vesímannaeyjum 0,
Stykkishólmi 0, Blönduósi
frost 5, (vantar skeyti frá
Raufarliöfn, Hólum í Horna-
firði, Grindavík, Angmagsalik
og Klföfn), Færeyjum hiti 7
st., Hjaltlandi 8, Tynemouth 2,
Jan Mayen frost 2, Juliane-
liaab 7 st. —- Mestur liiti hér í
gær 1 st., minstur -h- 4 st. —
Djúp lægð suðvestur af Fær-
eyjum, á noi’ðausturleið. Hæð
yfir Grænlandi. — Horfur:
Suðvesturland: í dag og nótt
Léttskýjað. Faxaflói og Breiða-
fjörður: í dag og nótt alllivass
norðaustan og norðan. Sum-
staðar snjóél. Vestfirðir, Norð-
urland, norðausturland og
Austfirðir: Stormfregn: í dag
og nótt hvass norðaustan. Hrið-
arveður. Suðausturland: 1 dag
og nótt allhvass og livass norð-
austan. Snjókoma austan til.
Eldur kviknaði
kl. 10 í gærkveldi á gas-
slöngu í húsi biskupsins, og
komst lítilsháttar í þiljur við
eldfærið. Tókst að slökkva áð-
ur en slöklcviliðið kom, og
urðu eklci teljandi skemdir.
íslands-mynd
Lofts Guðmundssonar er ver-
ið að sýna um þessar mundir i
Kaupmannahöfn. Konungur
vor, drotning, prinsarnir, sendi-
lierra íslands, konungsritari og
margt stórmenni annað var við-
statt fyi-stu sýninguna. Síðar
héfir Lofti Guðmundssyni bor-
ist heillaóskaskeyti frá ungfrú
Emmy Langberg og Dr. Knud
Rasmussen í tilefni af þcim á-
gætu viðtökum, sem myndin
liefir hlotið. — Ungfrú Lang-
berg tók kvilcmynd af Græn-
landsleiðangri Rasmussen’s og
kann því vel að meta góðar
kvikmyndir.
Hjúskapur.
Gefin voru saman í hjónaband
á Útskálum i. des. s.l. ungfrú Guð-
björg Bjarnadóttir og Sigurður
Guðmundsson. Síra Eirikur Brynj-
ólfsson gaf þau saman.
Skipafregnir.
Gullfoss fór frá Kaupmanna-
höfn i gær.
Goðafoss fór frá Hull á laug-
ardag.
Brúarfoss kemur til Akur-
eyrar i dag.
Lagarfoss var á Eskifirði í
morgun.
Selfoss er á leið til Englands.
Esja er á Djúpavogi.
Mikið fjölmenni
var á götum bæjarins í gær-
kveldi að skoða jólasýningar í
búðargluggum, sem bæði voru
inargar og skrautlegar.
Næturlogar
lieitir kvæðabók eftir Iíjart-
an J. Gíslason frá Mosfelli, sem
nýlega er lcomin út. Hennar
verður síðar getið hér í blaðinu.
Kaffi-, Matar-, Þvottastell — Blómsturvasar —
Myndastyttur — Silfurplettvörur — Ávaxtaskálar og
Hnífar — Manicure-, Bursta- og Saumasett — Spil —
Kerti — Dömuveski — Kuðungakassar — Spilapening-
ar — Skautar — Jólatrésskraut og mög hundruð teg-
undir af Leikföngum, flest nýkomnar vörur, áreiðan-
lega lægsta verð borgarinnar.
K Eiaarssoa &8jörnssoa.
Bankastræti 11.
Timarit pjóðræknisfélags ís-
Iendinga í Vesturheimi, IX ár,
er nýkomið, fjölbreytt að efni,
sbr. umsögn Vísis síðastl. föstu-
dag. Verðið er eins og áður, 6
kr. árgangurinn. Aðeins 100 ein-
tök koma af árganginum til
landsins,og’ getur hann því fljót-
lega þrotið. — pjóðarbrotið
vestra kaupir nolckur liundruð
eintök af hverju af isl. tímarit-
unura, og væri þá lélegt, ef við
hér heima keyptum ekki eitt
hundfað af þessu eina tímariti
þaðan, sérstaklega þegar það ef
hinum fyllilega sambærilegt.
Um böð og baðstofur
flytur Ásg. Ásgeirsson fræðslu-
málastjóri fyrirlestur annað
kveld kl. 8 í Nýja Bíó fyrir al-
þýðufræðslu U. M. F. Velvak-
andi. Má þar búast við fróðlegu
erindi og skemtilegu.
St. Framtíðin
heldur fund í kveld.
Karlakór K. F. U. M.
söng í Nýja Bíó í gær og var
liúsfyllir, sem vænta mátti.
Kórinn syngur enn í Gamla Bíó
á miðvikudagskveld 12. þ. m.
ld. 71/2 og þá í síðasta sinn.
Málfundafélagið Óðinn.
Sveita og kaupstaðalíf.
E.s. Vestri
fór héðan i gærmorgun áleið-
is til útlanda.
Farfuglafundur
er í kveld ld. 8% í Iðnó
(uppi). par verður meðal ann-
ars rætt um þjóðernisstefnu og’
alþjóðastefnu, og liefjast þær
umræður með stuttu erindi um
þau mál; Jóhanncs skáld úr
Kötlum les þar upp, og fleira
verður til skemtunar. Allir ung-
mennafélagar sem í bænum eru,
hvaðan af landinu sem er, eru
velkomnir.
„Einvaldsldærnar í Hornafirði“
heitir ritlingur, sem Vísi hefir
verið sendur, eftir Einar Eiríks-
son frá Hvalnesi í Lóni. Fjallar
hann um viðskifti höfundarins viö
kaupfélagið í Höfn í Hornafirði.
eru komln.
Sendið pantaal?
i tíma.
Jóu Hjartarson & Co.
Sími 40. Hafnarstræti 4,
Ávalt
nægap bipgðip af
Eræameti-
Jðn Hjartarson&Co.
Sími 40. Hafnarstræti 4.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 25 aurar frá X., 3
kr. frá M. K., 3 lcr. frá S. og T..
10 kr. frá N. N.