Vísir - 24.12.1928, Qupperneq 3

Vísir - 24.12.1928, Qupperneq 3
Saga Reykjavíkur. Myndir sem sögiilieimildir. •—o- Þess liefir veri'ð getið í „Visi“ og öðrum blöðum, að nú eigi að fara að gefa út sögu Reykja- víkur, sem Klemens Jónsson liefir saman tekið. Hann er einn af fáum, sem vita og muna rnargt um fortíð þessa bæjar, sem allur fjöldi Reyk- víkinga liefir enga hugmynd um og lætur sig engu varða. Þó er sú tilfinning rik i ís- lendingum, og Reykvíkingum líka, að það, sem gerðist fyrir löngu, liafi verið merkilegt að mörgu leyti og þess vert, að það falli ekki með öllu í gleymsku. En aftur á móti hugsa fáir út í hitt, að það, sem er að ger- ast núna, einmitt í ár og í dag, það sé neitt merkilegt. Og menn eru undarlega blindir fyrir því, að nokkur þörf sé að varðveita það frá gleymsku. En dagurinn í dag gleymist fyrr en varir, og árið i ár fer burt með margt merkilegt, sem enginn setti á sig né lcann frá að segja, þó spurt væri um. Ýmislegur lagahókstafnr, samningar og réttargerðir liafa lengi verið aðal-heimild sagn- fræðinga, þegar þeir seint og síðar meir fara að rýna í liðna tíð. T. d. verða fundabækur bæjarstjórnar, reikningar bæj- arins, lóðamælingar og þess háttar alt, framtíðar-heimildir um sögu bæjarins, þá, sem nú er að gerast í dag og í gær; svo og blöðin, og margt fleira skráð og skrifað. En þrátt fyrir þetta glatast nrargt, sem engin orð ná: sjálf- ar manneskjurnar, daglega líf- ið, blærinn yfir bænum. Kem eg þá að erindinu með þessari grein: Engar sögulegar heimildir eru trúverðugri en góðarmynd- ir Enginn segir eins satt og rétt frá eins og Ijósmyndavél- in, ef vel er á henni haldið. Ein mynd getur sagt miklu meira en 10 blaðsíður prent- aðar; og annað er merkilegra: hún getur geymt margt og sagt frá mörgu, sem engum sam- tíðarmanni dytti í hug að bera orð á, en seinni tíðar menn sjá og þykir miklu inerkilegra en hitt, sem samtiðarmenn ætluðu að láta myndina segja og geyma. Þannig hefir margt merki- tegt leynst í riluðu máli, sem kom með, án þess að til stæði að segja frá því. Eitt besta dæmi, sem eg man, er sagan i Landnámu um Þóri dúfunef og veðreiðina á Kjalvegi, þar sem siðan heitir Dúfunefs- skcið. Þar segir: „í þann tíma kom út skip i Kolbeinsárósi, hlaðit kvikfé, enn þeim hvarf íBrimnesskógum ungliryssi eitt; enn Þórir dúfunef keypti von- ina og fann síðan.“ Því næst kemur sjálf sagan um Flugu, sem var allra hrossa skjótust, um veðreiðina á Kili, um Eið- faxa, son Flugu, „sem utan var færðr og varð sjau manna bani við Mjörs á einum degi, ok lézt hann þar sjálfr. Fluga týndist í feni á FIugumýri.“ — Miklu merkilegast af öllu þessu er sjálft uppliafið: að skip kom út í Kolbeinsárósi, „hlaðit kvikfé". Þarna liefir alveg óvart slæðst með óræk heim- ild um það, að á landnámstíð hafa verið fluttir hingað heilir farmar af kvikfé, sem liver önnur verslunarvara að lík- indum. Það liggur að vísu í augum uppi, að landnáms- menn hafa ekki getað flutt með sér sjálfir alt það kvikfé, sem þeir þurftu til viðurlífis, þeg- ar eftir komu sína liingað. En eg liefi ekki heyrt getið neinn- ar hcimildar eða frásagnar annarar um slíkan kvikfjár- flutning. Þessi fáu orð í Land- liámu hafa leynst i frásögn um alt annað. Hitt og þetta getur skotist .upp úr sögumanni aukreitis. En myndin tekur alt með og geymir. Tíminn líður hvergi eins fljótt og í Reykjavík. Hér er svo margt að gera. Árin siðan um aldamót eru þotin lijá eins og fáein misseri. En á þessum árum hefir saga landsins gerst að mestu leyti í Rej'kjavík. Hvergi á Norðurlöndum hafa orðið merkilegri hlutir, og þó víðar væri leitað. Vöxtur og viðgangur Reykjavíkur á þess- um árum, og síðasti aldarfjórð- ungurinn hér á landi, verða um æfilangan aldur merkasti kafl- inn i sögu þjóðarinnar, annar en landnámið sjálft. Bóklegar heimildir um þenn- an tíma eru ærnar, og munu geymast. En bylting mikil er í aðsigi um allan lieim. I staðinn fyrir þykkar bækur um það, sem ekki verður með orðum lýst, koma stuttar og glöggar film- ur, kvikmyndir. í stað þess að sitja liálfan mánuð yfir þungri bók, fara menn og liorfa á lif- andi mynd í klukkutíma, og vita meira eftir og skilja betur. Það er tími til kominn fyrir slíka söguþjóð og við erum, að taka myndagerðina og filmuna í þjónustu sagnfræðinnar, og gera það með forsjá og fullri ráðdeild, ganga að því skipu- lega. Það liggur beint við fyrir Reykjavík að byrja. Það á að taka glöggar og réttar myndir af öllu því gamla, sem liverfur með hverju ári, gömlu bæjun- um, gömlu húsunum, sem rifin eru, af holtunum og urðunum, sem rudd eru í götur og hús- stæði. Það á að taka myndir af því nýja, sem er að vaxa upp, götum og mannvirkjum, sem verið er að gera, bæjarhverf- um, þar sem fjöldi húsa stauda hálfsmíðuð i einu o. s. frv. Það á að safna þessum myndum og geyma í minjasafni Reykjavíkur. Það er ekki til. En það er tími til kominn að efna til þess. Ví SIR Reykjavik getur orðið einstæð meðal höfuðborga, eins og Is- lendingar meðal þjóða, að vita glögt sína sögu frá fyrstu tíð. Eg ætla ekki að tala liér um aðrar minjar en myndirnar. En myndir eru ódýrar sögu- heimildir, ef þeim er til liaga haldið i tæka tíð, og þær eru réttastar allra heimilda, það sem niynd getur náð. Nú er ekki liægt að arka á slað og taka myndir af liðna tímarium. En það eru til ó- grynni mynda frá seinni árum liér í Reykjavík. Þessar mynd- ir eru á víð og dreif, sumar i eigu ljósmyndara, aðrar hjá al- menningi, eða þeim, sem taka myndir sér til gamans. Það, sem gera þarf, er að bjarga myndunum i tæka tíð, ná-þeim saman, taka af þeim varanlegar eftirmyndir („kópí- ur“, ,,aftök“), raða þeim glögg- lega og gera við þær athuga- semdir og skýringar, sem með þarf. Það má og vernda plötur og filmur að myndunum, eftir því sem liægt er. Þar að auki á að ná í og vernda sem best þær kvik- myndir, sem til eru af hænum og bæjarlifinu; þær munu vera þó nokkrar. Siðan á að lialda verkinu á- fram. Ekki með neinum látum, tieldur með athygli og smekk- vísi og i kyrþey. En svo að eg nefni eitt dæmi: Kvikmynd af íbúum Reykja- vikur, þegar þeir koma sunn- an af Iþróttavélli og fylla Suð- urgötuna, það lierrans ár 1928, hún er miklu rneiri minjagrip- ur fyrir eftirkomendur okkar heldur en við getum gert okkur i hugarlund, sem sjálfir kom- um sunnan af vellinum. F.ða mynd úr dómkirkjudyrunum, þegar fólk gengur frá messu; eða af hafnarbakkanum, þegar skip fara; svo mætti lengi telja. Og eins og áður er sagt: eng- an getur grunað, hvað margt kann að dyljast okkar eigin augum, en seinna þykir merki- legt, í tækifærismynd, sem sýn- ir lifið, eins og það var á þvi augnabliki, ófegrað og séð með hlutlausu auga ljósmyndavél- arinnar. Nú eru Ijósmyndavélar i margra höndum, og feiknin öll eru tekin af tækifærismyndum. En allur fjöldi manna sækir mest í að taka myndirnar til þess að sjá þær næsta dag; sið- an gleymast þær og týnast. Þetta er menningarlaust fikt. Filmurnar glatast, og „kópí- urnar“ fara víðsvegar. Sjálfs sín vegna ætti fólki að lærast það, að lítil tækifærismynd liefir hundrað sinnum meira gildi eftir 10 ár, lieldur en 10 daga. — En livað þá eftir 100 ár! Þess vegna er það ágæt venja, að þeir, sem myndir taka, haldi þeirn til haga í röð og reglu, og skrifi við ár og dag og skýr- ing á atburðinum, sem myndin er af, eftir því sem við á. Slík myndasöfn geta orðið dýrgrip- ur fyrir seinni tíðar menn. En gleymið þá ekki því, að allar myndir, sem geymast eiga, verða að vera vandlega GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS óskar öllum Verslun G. Zo'éga. æ GLEÐILEGRA JÓLA óska eg öllum viðskiftavinum mínum, nær og fjær. Jes Zimsen. óska eg öllum mínum viðskiftavinum. Guðm. B. Vikar, klæðskeri. GLEÐILEGRA JÓLA óskar öllum viðskiftavinum símim Skóverslun Lárus G. Lúðvígsson. GLEÐILEGRA JÓLA óskar öllum sínum viðskiftavinum Jón Hjartarson & Co. tilbúnar, á gasljóspappír ein- göngu og vandlega afvatnaðar. Það er ekkert gagn í að geyma myndir á venjulegum dagsljós- pappír. Eg hefi hreyft hér því efni, sem eg liefi lengi undanfarið ætlað að vekja máls á. Nú beini eg því sérstaklega til þeirra manna, sem liafa þetta mál með höridum: sögu Reykja- víkur. Vera má, að eitthvað verulegt hafi verið að þessu efni gert (um myndirnar), þó að mér sé ekki kunnugt. En það er þá vel farið. Og þá menn, sem skráð liafa sögu Reykja- vikur og verndað frá gleymsku, bið eg að taka þessar tillögur minar sem stuðning og þakk- læti af minni hálfu. Helgi Hjörvar. Íjj GLEÐILEG JÓLI Verslunin KLÖPP. ÍOOÍÍOCÍXSCÍÍÍÍÍÍÍSÍÍÍXÍÍSOOOOOOOOÍ GLEÐILEG JÓL! s« Verslunin „Fram SOOCOCOOCÍKÍÍÍÍSÍSÍSÍSÍÍOOOOOOOOÍ SOCCOCOOCgSOOCXXXXSOOOOOOOO: y* — st % GLEÐILEG JÓLl X X jj Verslunin Brúai-foss. SOOOOOOOO<S<S< SíSíiíSíXSOOOOOOOÖt

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.