Vísir - 29.04.1929, Blaðsíða 2
VISIR
9KILVIND AN
Domo
cr traustari, cndiugarbctri og
skilur betur en fleslar aðrar
skilvindur.
Otvegum hana beint frá
verksmiðjunni, A/B Salenius
Werkstáder, Stockhobn.
Einnig Domo strokka.
Frn Regína Tliorodtlsen
kona Guðmundar Thoroddsen
prófessors andaðist í fyrrinótt
á heimili Katrinar læknis
Thoroddsen,þar sem hún hafði
verið sér til hressingar. Eldur
kom upp i svefnherbergi henn-
ar um nóttina, og varð ekki
vart fjrrr en herbergið var fult
af reyk, og hafði hún andast.
|>ar inni áður en að var komið.
Frú Regína Thoroddsen var
dóttir síra Benedikts sáluga
Kristjánssonar prófasts á
Grenjaðarstöðum og frú Ástu
Þórarinsdóttur, sem nú býr
hér í bænum. Hún var að eins
41 árs að aldri, fædd 23. júní
1887, gáfuð kona og fríð sýn-
um, en heilsulítil hin síðustu
muni falla, þótt enginn árangur
verði af starfi skaðabótanefndar-
innar. Dawes-samþyktin ákvetSur
sem sé, að Þýskaland skuli hætta
skaðabótagreiðslunni um stundar-
sakir, ef færsla skaðabótanna frá
Þýskalandi til Bandamanna skaði
gengi marksins.
Gerðardómur í máli skipsins
„I’m alone“.
Berliner Tageblatt skýrir frá
því, að það hafi orðið að sam-
komulagi á milli stjórnanna í
Bandaríkjunum og Canada, að láta
gerðardóm útkljá ,',1’nt alone“-
málið.
Utan af landi.
Vestm.eyjum 28. apr. FB.
gegn veði í jörðum, erfðafestu-
löndum og hverskonar fast-
eignum, sem ætlaðar eru til
framleiðsiu landbúnaðaraf-
urða. Var rikisstjóm heimiluð
lántaka, alt að 3 milj. kr., til
kaupa á vaxtabréfum flokks-
ins.
Jóu Baldvinsson kom með
till. um að stofna nýja deild
við bankann: Lánadeild smá-
býla við kaupstaði og kaup-
tún. Þótti forsætisráðherra það
mál helst til litið athugað, og
taldi miður asskilggt að hrapa
að því að samþykkja það.
Hinsvegar lofaði hann að at-
liuga málið milli þinga og
leggja frumvarp um slíka
deild fyrir næsta þing. — I
trausti til þess loforðs tók Jón
tiilögur sínar aftur, en Halldór
Steinsson tók þá nokkurar
þeirra upp aftur og voru þær
samþyktar með atkvæðum
íhalds- og jafnaðai-manna.
Til lánadeildar á ríkissjóður
að leggja fram 50 þús. kr. á
ári. Ríkisstjóminni er auk þess
lieimilt, að taka alt að 2 milj.
kr. lán handa deildinni. Lán
úr deildinni má að eins veita
til smábýla í grend við kaup-
tún og kaupstaði, og er það
skilyrði, að býlið geti veitt
meðalfjölskyldu þriðjung þess,
er hún þarf til framfærslu sér.
Hámark lánsfjárhæðar má
vera 15 þús. kr.
Þær af till. Jóns, er Halldór
tók ekki upp, og því ekki komu
til atkvæða, voru um vaxta-
ívilnanir til lántakenda og
kvaðir á sölu og leigu veðsettra
býla; koma þær væntanlega
fram aftur við 3. umr.
NEÐRI DEILD.
ár.
Símskeyti
—o----
Khöfn 28. apríl. FB.
Priðarmálin í Genf.
Frá Genf er símað : Afvopnun-
arnefnd Þjóðabandalagsins hefir
byrjaÖ á annari umræðu um af-
vopnunar-uppkastið frá árinu 1927.
í gær var rætt um takmörkun land-
hers. Cushendun, fulltrúi Bret-
lands, og Gibson, fulltrúi Banda-
ríkjanna, lýstu yfir þvi, að Bret-
land og Bandaríkin hefði ákveðið
að hætta mótspyrnu gegn þeim
kröfum frakknesku stjórnarinnar,
að áformaður samningur viðvíkj-
andi takmörkun herbúnaðar ákveði
ekki tölu æfðra varaliðs-hermanna.
Fulltrúi Þýskalands andinælti
kröfum frakknesku stjórnarinnar.
Kvað hann nauðsynlegt að tak-
marka eirtnig stærð varaliðsins.
Búist er við, að tilslakanir Bret-
lands og Bandarikjanna viövikjandi
varaliðinu, leiði til þess, að hægt
verði að Ijúka við starf nefndar-
innar, og kalla saman alþjóða af-
vopnunarfund fyrr en hingað til
hefir véríð búist við. Tilslakanirnar
minka hins vegar vonir manna um
verulegan árangur viðvíkjandi tak-
mörkun landhers. '
Skaðabótagreiðslur Þjóðverja.
Frá Berlín er símað : Talsverðr-
ar viðskiftatruflunar hefir orðið
vart vcgna gullútflutningsins. Sam-
komulagshorfurnar í skaðabóta-
málinu eru slæmar og hafa valdið
mikilli eftirspurn eftir dollurum á
kauphöllinni hér. Gengi marksins
hefir fallið dálítið. Sérfræðingar
fullyrða, að ríkisbankinn se fær
um að koma í veg fyrir að markið
falli til jnuna. Þar að auki sé
ástæðulaust að halda, að markið
Botnvörpungur tekinn í landhelgi.
Óðinn kom í morgun með þýsk-
an botnvörpung, Island, frá Cux-
haven. Var botnvörpungurinn tek-
inn með veiðarfæri ólöglega um-
búin, skamt austur af Eyjum. Rétt-
arhöld byrja í íyrramálið.
Wvá Alþingi
á laugardag.
EFRI DEILD.
Nokkurum frv. er komin
voru frá neðri deild, var vísað
til nefnda og öðrum til 3. umr.
Salci Hvanneyrar. — Dóms-
málaráðh. kom með brtt. við
frv. um sölu Hvanneyrar til
Siglufjarðarkaupstaðar. Vildi
hann undanskilja sölunni
sjálfa kaupstaðarlóðina, Siglu-
fjarðareyri. Það var felt. En
hitt var samþykt, að óheimilú
bæjarstjórn að afhenda öðrum
til eignar eða umráða, það
land, er bærinn fengi keypt,
nema til leigu um ákveðinn
tínia, og skulu reglur uin leigu
á landinu staðfestar af at-
vinnumálaráðherra.
Búnaðarbankinn var til 2.
umr. og stóðu þær umræður
fram á kveld. Hafði landbún-
aðarncfnd haft málið til at-
hugunar og mælti hið ein-
dregnasta með frv., þrátt fyrir
mismunandi skoðanir nefnd-
armanna á einstökum ákvæð-
um.
Björn Kristjánsson bar fram
nokkrar breytingalillögur, er
allar voru feldar. Hin veiga-
mesta þeirra var sú, að fella
skyldi veodeild bankans nið-
ur. í stað þess átti að stofna
nýjan veðdeildarflokk við
Landsbankann, samkv. veð-
deildarlögunum frá því í fvrra,
er hefði það starfsvið að lána
Fjárlögin. — Þriðju umr.
fjárlaganna lauk á laugardags-
kveld. Yfir 90 hækkunartillög-
ur komu fram við fi-v. og náði
fæst af þeim samþykki. Þó
mun nokkur tekjuhalli vera
kominn á frumvarpið.
Hér skulu taldar nokkurav
þær till. er samþyktar voru:
Styrkur til byggingar á Kol -
viðarhóli 6000 kr. Til loft-
skeytastöðvar í Papey 10.000
kr. Til Geirs Gígju kennara, til
að þullnuma sig í skólasmíði
og lesa náttúrufræði i Khöfn
1500 kr. Til Skáksambands ís-
lands 1500 kr. Til Ingibjargar
Steinsdóttur til leiknáms er-
lendis 2000 kr. Til norræns
stúdentamóts í Reykjavik 1930
10.000 kr. Til Karlakórs Rvík-
ur, til þess að fá sér kenslu
lijá söngkennara^ 2000 kr. Til
að rarinsaka og gera tillögur
um raforkuveitur til alménn-
ingsþarfa utan kaupstaða,gegn
fimtungs framlagi frá hlutað-
eigándi héruðum, alt að 15.000
kr. Til að bua til bráðapestar-
bóluefni 5000 kr. Til að varpa
út veðurskeytum á erl. málum
3500 kr. Til landmælinga
45.000 kr. Til mælinga og
rannsókna vatnasvæðis Þver-
ár og Markarfljóts 10.000 kr.
Til Dýraverndunarfél. íslands
1800 kr. Til slysavarna 18.000
kr., þar af 8000 kr. til vegar,
er flytja megi eftir björgunar-
bát milli Sandgerðis og Staf-
ness. Til Stórstúkunnar 10.000
kr. (hækkað úr 8000 kr.).
Ríkisstjórninni var heiiriil-
að: Að veita Jóhannesi Jósefs-
syni gjaldfrest í 3 ár á tollum
af nauðsynlegum innanstokks-
munum og áhöldum til gisti-
húss hans. Að skipa 3 menn til
að at.huga ástand Skeiðaáveit-
unnar og fjárhagsgetu bænda
á áveitusvæðinu lil að standa
straum af áveitukostnaðinum.
Það af áveitukostnaðinum,sem
ææææææææææææææææææææææææææ
"W ebster s
jápnsklpamálning
fy rirliggj andi.
Þörður Sveinsson & Co.
bændum telst um megn að
ber.a, er ríkisstjórninni heimilt
að létta af þeim, með þrf að
ríkissjóður taki að sér að þ'eiiu
liluta lán þau, er á áveitunni
hvíla. Xð lána Auðkúluhreppi
í Vestur-lsafjarðarsýslu 10.000
kr. hallærislán. Að láta reisa
byggingu á Arnarhóli fyrir
ýmsar skrifstofur landsriis, ef
sýnt ])}kir, að með því megi
lækka til muna köstnað við
skrifstofuhald í Reykjavík, og
taka í þvi skyni lán, alt að 225
þús. kr. Að taka lán til hús-
byggingar handa landsíman-
um og til nýrrar bæjarsíma-
miðstöðvar í Reykjavik. Að
kaupa til handa ríkinu Reyki
og 4 aðrar jarðir í ölfusi fvr-
ir 100 þús. kr. og taka til þess
lán. Mun ætlunin að stofnsetja
þar síðar hressingarhæli fyrir
berklasjúkt fólk.
Tillögur þær er feldar voru
skulu ekki taldar hér og voru
þó margar þeirra merkar.
Námsstyrkir til stúdenta er-
lendis voru allir feldir. Á að
láta nægja þær 8000 kr. er
'Mentamálaráði var falið að
miðla milli þeirra. En á nú-
gildandi fjárlögum munu 15
stúdentar njóta styrks, 1000
kr. hver. Hafa þeir flestir sótt
um að fá .styrkinn áfram, og
margrr nýir i viðbót.
Allmargar till. komu fram
frá einstökum þingmönnum
um auknar vegagerðir’og brúa
í kjördæmum þeirra. Náðu
þær ekki fram að ganga, enda
mun nú meira fé áætlað til
slíkra framkvæmda en á nokk-
urmn fjárlögum áður, eða nær
ein miljón króna.
Minningarorð.
—o—
Friðþjófur Kr. Skagfjörð,
versluriarmaður, sonur Krfst-
jáns' J. Skagfjörð, nnirara (dó
1918) og Maríu Jónsdóttur, and-
aðist á heimili móður sinnar,
Bergstaðastræti 53, þ. 23. þ. m.,
að eins rúmra 17 ára að aldri,
fæddur 30. janúar 1912. Hann
var félagi Goodtemplarastúk-
unnar „Freyja“ nr. 218. Þar
kyntist eg honum fyrst.
Eg minnist nú þessa friða og
prúða æskumanns, sem í fram-
komu sinni sameinaði svo ynd-
islega saklausa glaðværð æsk-
unnar og glöggan skilning liins
bráðþroska unglings á alvöru-
efnum lífsins.
Með prúðmensku sinni og lip-
urð, skyldurækni og ötulleik
ávann hann sér traust verslun-
areiganda og velvild viðskifta-
manna.
Sem góðtemplari reyndist
hann áhugasamur og ósérjilæg-
inn liðsmaður, sem mikils mátti
af vænta. Móður sinni reyndist
hann ástúðlegasti sonur og
bræðrum sinum hinn bcsti
bróðir og félagi. — Með um-
hyggju og ræktarsemi endurgalt
hann móður sinni umönniiH
bennar og ástriki. Með glaðværð
sinni og bjartsýni átti hann —
ásamt bræðrum sínum — drjág-
an þátt i að létta móður þeirra
sorg og söknuði eftir missi
tveggja sóna hennar fyrir
skömmu. Við þennan efnilega
unga mann voru margar og
bjartar framtíðarvonir tengdar
— en ár hans eru talin, saga
hans á enda. En góð minning
lifir og græðir sár þeirra, er
sakna.
H. 8r.
Dánarfregn.
Ekkjan Margrét Siguröardóttir
andaðist í gær á heimili tengdason-
ar sins, Guðbjörns Björnssonar,
Bergstaöastræti 39, nær 88 ára að
aldri. Hún var ekkja Þórðar
Ingjaldssonar, og bjuggu þau aS
Eyhóli í Kjós. Þau eignuðust 7
börn, en nú er að eins eitt þeirra
á lífi, Ingjaldur, Njálsgötu 40 B.
Veðríð í morgun.
Hiti i Reykjavík 7 st., ísafirði
—r- 3, Akureyri o, Seyðisfirði o,
Vestmannaeyjuni 4, Stykkishólmi
o, Blönduósi 2, Raufarhöfn 2,
Hólum i Hornafirði 4, Grindavik
4, Færeyjum 1, Julianehaab 2,
(engin skeyti frá Jan Mayen og
Angmagsalik), Fljaltlandi 5, Tyne-
mouth 6, Kaupmannahöfn 4 st. —
Mestur hiti hér í gær 6 st., minst-
ur 3 st. -— Grunn lægð yfir suð-
austurlandi á suðurleið. Önnur
lægð um 1000 km. suðvestur af
Reykjanesi á austurleið. — Horf-
ur: Suðvesturland, Faxaflói:' í
dag vestan og norðvestan gola,
sumstaðar smáskúrir. í nótt senni-
lega suðaustan eða austan. átt.
Breiðaf jörður: I dag og nótt hæg-
ur austan og norðaustan. Úrkoniu-
laust. Vestfirðir, Norðurland, norð-
austurland, Austfirðir: í dag og
nótt hæg norðan og norðaustan átt.
Dálítil snjóél í útsveitum. Suð-
austurland: í dag og nótt norð-
austan og norðan gola. Víðast úr-
komulaust.
Drengjahlaup Ármanns
var háð í gærmorgun kl. lojý.
Keppendur voru 25, frá 3 félöguni.
í flokkakepninni sigraði K. R. með
30 stigum; átti 2., 3., 5., 9. og II.
mann að marki. Næstur varð Ár-
jnann með 32 st.; átti 1., 6., 7., S.
og 10 mann. Þriðja íþróttafél.Rvik-
ur með ca. 80 stigum. — Fljótastur
að marki varð Grímur Grímsson á
8 mín. 27,2 sek. (nýtt met) ; hann
sigraði líka í fyrra. Næstur varð
Ólafur Guðmundsson 8 min. 40
sek. Þriðji Hans Hjartarson 8 mín.
44 sek. — Hlaupaleiðin var sú sama
og áður: Byrj að austast í Austur-
stræti, hlaujiið Aðalstræti, Suður-
götu, kringum gamla íþróttavöllinn,
niður Skothúsveg, inn Frikirkjuveg
og endað nyrst i Lækjargötu. Veð-
ur var gott og margt manna að
horfa á drengina.