Vísir - 20.02.1934, Blaðsíða 2
V1SIR
Símskeyti
Briissel 19. febr.
Unitcd Press. — FB.
Jarðarför Alberts konungs
fer fram á fimtudag n. k.
Lík Alberts konungs var í dag
flutt úr konungshöllinni í kapellu,
þar sem það á að liggja á börum
til fimtudags, en þá fer jarðarför-
in fram. Á gangstéttum gatnanna
að kapellunni stóð fólk í þúsunda-
tali á meðan á líkflutningnum stóð
og lét í Ijós viröingu sína og ást
tii hins látna' þjóðhöfðingja.
Viðstaddir jarðarförina verða
ýmsir konungbornir menn og kon-
ur og fulltrúar allra helstu JijóSa.
Eru ýmsir hinna tignu gesta þeg-
ar hinga'S komnir.
Porlsmouth, 20. febrúar.
United Press. — FB.
Aukakosning í Bretlandi.
Aukakosning hefir farið fram
hér og lilaut kosningu Keyes
aðmiráll, frambjóðandi Ihalds-
flokksins, með 17.582 atkvæð-
um, en Humby, frambjóðandi
verkamanna, hlaut 11.901 atkv.
I seinustu almennum þingkosn-
ingum hlaut frambjóðandi I-
' háldsflokksins 14.149 atkvæði
fram yfir keppinautinn.
Vínarborg, 20. febrúar.
United Press. — FB.
Herlög feld úr gildi. Jafnaðar-
mannaleiðtogi hengdur.
Herlög hafa verið feld úr
gildi í Carinthia. — Wallisch,
einn af leiðtogum jafnaðar-
manna, sem dæmdur var til líf-
láts, liefir nú verið hengdur í
Leuben.
Madrid, 20. febrúar.
United Press. — FB.
Ókyrðar vart á Spáni.
Barrios innanrikisráðherra
hefir í viðtali við United Press
látið svo um mælt, að nokkurr-
ar ókyrðar liafi orðið vart sum-
staðar í landinu, einkanlega í
sambandi við fundahöld, en
stjórnin ali engar áhvggjur, eins
og stendur, um að gerð verði al-
varleg tilraun til þess að hrinda
af stað miklum óeirðum eða
byltingu.
Utan af landi.
Akureyri, 19. febr, FÚ.
Skákþingið.
Áttunda umferö Skákþingsins
fór þannig: Ásmundur Ásgeirsson
vann Stefán Sveinsson, Þráinn
Sigurðsson gerði jafntefli við Jóel
Hjálmarsson, Aðalsteinn Þor-
steinsson vann Pál Einarsson,
Guöbjartur Vigfússon gerði jafn-
tefli við Guðmund Guðlaugsson,
Sveinn Þorvaldsson vann Sigurð
Lárusson, Eiður Jónsson vann
Jónas Jónsson.
Hjálparstarfsemi
á Italía.
ítalska stjórnin hefir stofnað ti>
víðtækrar og vel skipulagðrar
istarfsemi fyrir fátækt og at-
vinnulaust fólk.
Eins og kunnugt er hefir ií-
alska stjórnin með höndum
víðtæka hjálparstarfsemi, sein
veikt fólk, börn og atvinnuleys-
ingjar eru aðnjótandi. Höfðu
ýmsar stofnanir hjálparstarf-
semi Jíessa með höndum tíl
skamms tíina, en fvrir nokkuru
var sú breyting gerð, að einni
stofnun liefir verið falin yfr-
stjórn allrar lijálparstarfsem-
innar (Ente Opere Assistenzi-
ali). Nokkura hugmynd gefur
það um hve víðtæk starfsemi
þessarar stofnunar er, að hún
liefir með höndum að koma á
fót og stjórna sjúkrahúsum,
lækningastofum, fæðingarstofn-
unum, dagheimilum fyrir ung-
börn, svefuskálum fyrir fátækt
og atvinnulaust fólk, lyfjaút-
hlutunarstöðvum o. m. fl. Auk
Jjessa liefir verið komið upp
stöðvum viða við sjó frammi og
upp lil f jalla, þar seni verka -
menn og fjölskyldur þeirra
geta verið sér til hressingar og
hvildar. Þá fer loks fram mikil
og víðtæk úthlutun matvæla og
fatnaðar, og framannefnd stofn-
un hefir fjölda starfsmanna,
sem hafa það með liöndum að
safna skýrslum um þá, sem
þarfnast slíkrar hjálpar. Fyrir
s. 1. jól var stofnuð sérstök
deild (La Befana Fascista) inn-
an vébanda hjálparstofnunar-
innar, sem.áður var nefnd, og
er hlutverk hennar að úthluta
gjöfum og' matvælum til barna
og unglinga. Um s. I. jól fengu
yfir 1.500.000 börn jólapakka
frá þessari deild. S. 1. ár lét E.
O. A. úthluta 42 milj. matvæia-
sendinga. Auk þess voru látnar
af liendi ókeypis 500.000 vættir
af kolum og 1.195.000 klæðnað-
ir. I V2 miljón líra var varið til
kaupa á lyfjum, sem var út-
lilutað ókeypis, en 373.625
manns fengu ókeypis aðstoð
lyf- og skurðlækna. — Þá lét E.
O. A. „bera inn“ aftur 34.000
fátækar fjölskyldur, sem höfðu
verið bornar út, vegna van-
greiðslu á húsaleigu. Var því
næst séð um, að fólk þetta fengi
atvinnu eða séð fyrir húsaleigu-
greiðslu lil bráðabirgða. — E.
O. A. úthlutaði og i peningum
til hágstaddra 7 milj. líra, en
raunar líta forráðamenn stofn-
unarinnar svo á, að hyggilegast
sé að hjálpa mönnurn á annan
liátt en ineð peningagjöfum, og
smám saman verður lijálpar-
starfseminni hagað meira i þá
átt, að peningagjöfum verður
liætt að meslu. — Nú eru hvild-
ar og lircssingarstöðvar fyrir
verkamenn, konur jæirra og
börn á 500 stöðum við sjóinn
og 323 slíkar stöðvar í fjalla-
héruðum. Á þessum stöðvum
voru 385.637 börn verkamanna
í sumar, lengri eða skemri tíma.
Af þvi, sem hér hefir sagl
verið, má Ijóst vera, að fasista-
sljórnin ítalska, lætur mannúð-
armálin sig miklu varða, en
„Laugardaginn 20. febr.
1909 var stofnfundur settur og
lialdinn á veitingahúsinu
,Iiekla‘ kl. 6 e. m.“ Þannig
hljóðar fyrsta málsgrein í fyrstu
fundargerðabók Gufuvéla-
gæslumanriafélags Reykjavikur.
(Veitingahúsið ,Hekla‘ var þá
inni á Grettisgölu).
í stjórn voru kosnir: For-
maður Sigurjón Kristjánsson:
ritari Sigurbjarni Guðnason og
féhirðir Ólafur Jónsson. f vara-
stjórn voru kosnir: Jón Steina-
son, Magnús S. Daðason og
Sigurður Arnason.
Sem ábyrgðannenn fyrir fé-
lagssjóð voru tilnefndir þeir
Eyjólfur Björnsson og Jakob
Bjamason.
Þessí stofnfundur var merki-
legur að því leyti, að sex menn
voru i stjórn og tveir ábyrðgar-
nicrtn fyrir sjóðum félagsins,
þvi fleiri en álla menn voru
ekki í þessir félagi á stofnfundi;
cr það án efa sjaldgæfl, að
stétlarfélag sc stofnað svo fá-
inent, að félagið sé ekkí annað
en stjórnin og 2 ábyrgðarmenn,
en svona var það nú sanit um
þetta félag.
Þegar á öðru ári breylti fé-
lagið um nafn og var nefnt
Vélstjórafélagið „Eimur“. Það
var svo ekki fyr en árið 1915,
að breytl var aftur um nafn á
félaginu og það nefnt Vél-
sljórafélag Islands,. og svo heit-
ir það enn.
Þótt 25 ár séu ekki hár ald-
ur á félagsskap, þá er það svo
uin þetta félag eins og raunar
mörg fleiri, að sögu þess er ekki
hægt að skrá í stuttri blaða-
grein. Mun eg þvi fara i stórum
skrefum yfir starf þessa félags.
Þótt stofnendur þessa íélags-
skapar hafi verið fámennur
liópur, stækkaði hann smátt og
smátt. Á fyrsta ári gengu i fé-
lagið 7 menn og liefir árleg við-
bót verið nokkuð jöfn síðan, en
flestir hafa félagsmenn orðið
162.
Fyrsta mál, sem tekið var
fyrir á stofnfundi, var frum-
varp til Iaga um atvinnu við
vélgæslu á íslenskum gufuskip-
um; liendir það til þess, að
Jiessir fáu menn, sem hér voru
að verki, mörkuðu sér þegar i
byrjun faslar línur til að vinna
eftir og tóku þetla sem önnur
mál föstum tökuin; þeir liafa
því ekki bygt stétt þessa á sandi
heldur á bjargföstum grund-
velli.
Þetta frumvarp varð ekki
einungis bjargvæltur þessarar
einu stéttar, lieldur alls lands-
ins; það skapaði þann mögu-
leika, að jafnliarðan sem skip
vor og vélar fullkomnuðust,
gátum vér senl úl á þau menn,
sem bæði höfðu kunnáttu og
hæfileika til vélstjómar; er
skamt að minnast, þegar land
vort sté það stærsta spor i átt-
ina til sjálfstæðis með stofnun
Eimskipafélags íslands. Þáð
var ekki lítils virði að geta
mannað skip jiessa félags með
íslenskum mönnuin.
andstæðingar fasista i ýmsum
löndum liafa borið þeim á brýn
harðýðgi og menningarleysi, en
sannleikunnn er sá, að á seinni
árum hafa fasistar á Italiu unn-
ið mörg mannúðar og menn-
ingarleg stórvirki.
Þegar frumvarp Jietta var á
döfinni, komu margar skrítnar
mótbárur fram, jafnvel frá
þeim mönnum, sem ætla mætti,
að síst myndu vcra andvígir
slíkum málum; en það er ekki
rúm til að fara út í þá sálma
hér.
Frumvarpið var samþ. á'Al-
þingi 1911, og um leið veitt fé
til kenslu i vélfræði; var þá um
liaustið stofnuð vélfræðideild
við Slýrimannaskólann. Kenn-
ari við þá deild var ráðnn M. E.
Jessen. Hann hefir því verið
kennari allra vélstjóra, scm
nám hafa stundað liér.
Árið 1915 var námið aukið
að miklum mun, og Vélstjóra-
skóli íslands stofnaður, og hefir
hann starfað síðan með aukinni
aðsókn undir stjórn hins ágæla
kennara M. E. Jessen.
Annar merkur viðburður í
sögu vélsljórafélagsins skeði
einnig á árinu 1915; það var
slofnun Styrktarsjóðs Vélstjóra-
félags íslands; liann var stofn-
aður með kr. 200.00 stofnfé.
Árstillög voru lítii í fyrstu, en
fyrir 10 árum voru gjöldin tii
sjóðsins liækkuð og liafa verið
þau söniu síðan.
Eftirtektarvert er það, að
þessi sjóður skuli nú nema
rúmum 100 þúsund krónum og
hafa á síðustu 10 árum varið
vfir 20 þúsundum króna i
slyrki, þegar á það er litið, live
iðgjöld hafa verið lág og félag-
ar fáir.
Um itðra slarfsemi Vélstjóra-
félagsins mætti mikið skrifa ef
rúm leyfði, cn eitl mál er |k) ó-
nefnt, sem félagið liefir að
sjálfsögðu unnið að sem stéttar-
félag; það eru launamálin og
eru þau án nokkurs vafa ein
hin viðkvæmustu mál, sem höfð
eru ineð höndum; en Vélstjóra-
félagið hefir altaf í þessi 25 ár
borið gæfu til að geta leyst þau
á friðsamlegan hátt: það hefir
verið þess markmið, að gera
alt, sem í þess valdi hefir stað-
ið til að halda þeim, sem öðrum
málum, innan heilbrigðra tak-
marka, og forðast, að þau dræg-
ist inn í liringiðu óskyldra og
skaðlegra mála. Væri vel, að svo
gæti haldist á komandi tímum.
V.
Heyhlada
brennui*.
Eldur kviknatSi í gær í heyhlööu
á prestssetrinu Stað í Súgandafirði.
Brann hlaSan til kaldra kola og
varð engu bjargað úr henni af
heyi, en þa'ð mun liafa veriö nokk-
uð á anná'ð hundrað .hestar. Fjós
var áfast við lilöðuna og eyddist
það af eldinum, en gripum þeim,
sem í því voru, var bjargað.
Prestur á Stað er síra Halldór
Kolbeins og hefir hann orðið fyrir
miklu tjóni.
Hvept stefnip
í Austur-Asíu?
Það er alkunnugt, að Japanar
telja það eitt sitt höfuðhlutverk að
vinna á móti kommúnismanum í
Austur-Asíu. Heima fyrir urðu
þeir að grípa til ærið víðtækra
ráðstafana í þcim efnum, og síðan
er þeir settust að í Mansjúríu,
hafa þeir vitanlega' reynt með öllu
móti að uppræta kommúnismann,
sem farinn var að þrífast þar, eigi
siður en í Kina. Er eigi nema
eðlilegt, að kommúnistiskum und-
irróðursmönnum hafi orðið mikið.
ágengt í kinverskum löndutn, þ.ví
að ástandið þar hefir lengi verið
slæmt, hver borgarastyrjöldin hef-
ir komið á fætur annari, í sumum
héruðum vaða ræningjaflokkar
stöðugt uppi o. s. frv. I Kina hef-
ir ekki verið öflug stjú|rn, sem
hefir getað beitt sér til varnar
gegn kommúni'smtmum. En |nú
skyldi menn ætla, að Japanar, sem
ráða öllu í Mansjúriu og hafat þar
mikinn herafla, mætti verða betur
ágengt, en ef dætna skal eftir sein-
ustu ársskýrslu, stjórnar kínverska
kommúnistalýðveldisins, er komrn-
r.nistninn að festa rætur í Man-
siúriu. Sttm eríend blöð draga
mjög efa, aö horfurnar í Mansjú-
rítt séu þær, sem rauðliðarnir kín-
versku halda fram i skýrslu sinni,
en birta þó útdrátt úr henni eigi
að siður.
í skýrslunni er því haldið fram,
að kommúnistum í Mansjúriu
(Mansjúkó-ríkinu) hafi veriö
veittur margháttaður stuðningnr
að undanförnu af þeim, sem ráð-
atidi ertt í aðalstöð kínverskra
kommúnista í Kiangsi-fylki, m. a.
hafa þeir fengiö aðstoð til þess að
stofna undirróöursfélög meðal
verkamanna og bænda, og sé nú
svo komið, að kommúnistasinnaðir
bændur i Mansjúriu séu farnir að
nndirbúa uppreist gegn Japönum.
Kinverskir kommúnistar ala mjög
á ódugnaði kinverskuKuomintang-
stjórnarinnar gagnvart Japönum,
henni sé um að kenna, að þeir
hafi lagt undir sig Mansjúríu og
Jeholhérað. Og vitanlega hvetja
þeir einnig1 til þess í baráttu sinni,
að kínverskir verkamenn og bænd-
ur i Kína og Mansjúríu sameinist
og varpi af sér japanska okinu.
Þegar „stundin mikla“ komi, eigi
þeir visa aðstoð Rússa, sem aSS
sjálfsögðu er jafnilla við Japana
og kommúnistum í Kína og Man-
sjúriu.
Nú hefir Kuomintang-stjórninni
kinversku, sem kunnugt er, orðið
litið ágengt í baráttu sinni, gegn
kommúnistum heima fyrir. Komm-
únistar haía stofnað lýðveldi í
Kina, sem nær yfir stórt svæði, og
herdeildum Kuomintangstjórnar-
innar, sem sendar hafa verið gegu
kommúnistum, hefir ekkert orðiö
ágengt. Auk Jiess hefir nú verið
komið á fót kommúnistastjórn í
Fukien-héraði og hefir þvi að-
staða kínverskra kommúnista eflst
ti’ muna.. Kinverskir kommúnistar
halda þvi fram í ársskýrslu sinni,
að þeir hafi árið 1933 náð miklu
herfangi frá liði Kuomintang-
stjórnarinnar, m. a. 100.000 rifflurn.
og 1000 vélbyssum. Auk þess hafi
þeir tvístrað öllum herdeildum
stjórnarinnar, sem sendar voru
gegn þeim. Þeir segjast lrafa náð
á sitt vald níu héruðum á árinu í
Kiangzi-fylki og tiu í Szechuan-
fylki^
Þegar Hitler komst til valda «
Þýskalandi virðist hafa verið fyr-
ir það girt með öllu, að kommún-
isminn breiddist út vestur á bóg-
inn. í flestum löndum álfunnai'
vex nú einræðisstefnum fylgi.
Rússneskir kommúnistar hafa ekkí
lengur góða aðstöðu til undirróð-
Vélstjórafélag íslands
25 ára.