Vísir - 20.02.1934, Síða 4
VISIR
lagSar til hliðar fyrir töpum. Vara-
sjóður bankans er 14 milj. kr.
Oslo, 19. febr. FÚ.
Ókyrð á Spáni.
A Spáni hafa komið upp allmikl-
ar óeirðir og róstur að nýju, og er
talið, aö þær standi í sambandi við
atburðina i Austurriki. Hafa jafn-
aðarmenn unnvörpum haldið mót-
mælafundi, og fariö i kröfugöngur
til þess, aö mótmæla meðferSinni
á jafnaðarmönnum í Austurriki.
Kalundborg, 19. febr. FÚ.
Atvinnuleysingjum fækkar í
Danmörku.
Atvinnuleysingja talan i Dan-
mörku lækkaði um 6 þús. síðustu
viku, og eru nú taldir 129 þús. at-
vinnulausir menn.
Kalundborg, 19. febr. FÚ.
Ofviðri í Danmörku.
Mikiö óve'öur var í Danmörku
síðastliðna nótt, og seinkaði mjög
skipaferSum fram eftir deginum.
Á höfninni i Kaupmannahöfn er
vatnsborð 40 cm. hærra en venju-
Iegf er.
Oslo, 19. febr. FÚ.
Enskur 'togari ferst.
X gær fórst enskur togari við
Bjarnarey. Fórust allir skipsmenn,
13 að tölu. SkipiS er nú aö liöast
sttndur af brirrii.
Kalundborg, 19. febr. FÚ.
Afkoma danskra bænda.
Stauning forsætisráðherra hefir
skipað þá próf. Axel Nielsen og
pófessor Sindballe og 3 aðra i
nefnd, tii þess að rannsaka með
hverjum hætti lagður yrði traustur
grunnur undir fjárhagslega af-
komu bænda. Nefndinni er faliö;
að skila áliti fyrir 1. sept. n. k.
IXitari nefndarinnar hefir verið
skipaður ráðuneytisfulltrúi K. J.
Cþristensen.
Dómsmálaráðuneytið danska
hefir tilkynt, að ráðstöfun muni
verða gerð til þess, að vextir af
fasteignaveðlánum muni verSa
lækkaðir um
LRP. 19. febr. FÚ.
Viðskiftamál Breta og Frakka.
Svar Frakka viðvíkjandi orS-
sendingu Englendinga um tolla-
og viðskiftamál þessara þjóða, er
komið, og er þess þar farið á leit,
að hið fyrsta verði byrjað á und-
irbúningi nýrra viðskiftasamninga,
sem svipaðastra hinum fyrri. Svar
við þessu verður sent á ntorgun,
og altalaS, aö þess mundi verðafar-
ið á leit af Englendingum, að
franska stjórnin láti flytja á þingi
frumvarp til laga um lækkun
innflutningstolla.
Allur fjöldinn af bíla- og báta-
mótoraverksmiðjum notar AC
kerti í vélarnar i upphafi. Það
er vegna þess, að ekki er völ á
ábyggilegri kcrtum og ending-
arbetri. —
Endurnýið með AC, svo vélin
gaugi vel og sé bensínspör. —
Allar mögulegar gerðir oftast
fyrirliggjandi og verð mjög hóf-
legt. — AC kertin eru búin til
hjá General Motors, eftir allra
fullkomnustu aðferð er þekkist.
Jóh. Olafsson & Co
Hverfisgötu 18, Reykjavik.
Berlín i morgun. FÚ.
Japanar og Bandaríkjamenn.
í ræðu, sem Saito, sendilierra
Japana í Washington, hélt í út-
varp i gær, sagði hann m. a.,
að vandalaust væri fvrir Japana
og Bandaríkjamenn, að halda
góðu samkomulagi. Að þvi er
flotamálum viðkemur kvað
hann Japana fúsa til að gera
Bandaríkjunum ívilnanir, þeg-
ar núgildandi samningar eru út-
runnir. Um innflytjendamálin,
sem mestri misklið hafa valdið
milli Japana og Bandaríkjanna,
sagði liann, að Japanar mundu
gera sig ánægða með það, að
þeim yrði ekki gert lægra und-
ir höfði en öðrum þjóðum.
Berlín i morgun. FÚ.
Árekstur. Sextán menn farast.
Járnbrautarlest ók á sporvagn
nálægt Livorno i Ítalíu i gær-
kveldi. Mölbrotnaði sporvagn-
inn og brann til kaldra kola. 16
menn fórust, en allir hinir far-
þegarnir, 15 að tölu, meiddust
meira eða minna.
Berlin í morgun. FÚ.
Bæjar- og sveitastjómakosning-
ar í Búlgaríu.
Bæjar- og sveitastjórnakosn-
ingar fóru fram i 2000 kjör-
dæmum í Búlgariu i fyrradag.
Sljórnarflokkurinn vann stór-
kostlegan sigur og lilaut 65%
allra atlcvæða. Kommúnistar
fengu nú 7% og er það að eins
helmingur Jæirra atkvæða, er
þeir hlutu við siðustu kosning-
ar, árið 1932.
PappírsvOr&r
og ritfönp:
cm
ELDURINN
TEOEANI
Cicjarettum
er altaf lifandi
20 stk -125
f
TAP AÐ - FUNDIÐ
1
Ungur köttur, grábröndóttur
að lit, í óskilum á Spitalastíg
IA, uppi.
Gullhringur fundinn. Vitjist
Öldugötu 52, uppi. (350
r
KAUPSKAPUR
Amerískt skrifborð og til-
heyrandi stóll til sölu. —
Kostaði 700 kr., selst fyrir
ákveðið vei'ð 320 kr. —
A. v. á.
Til sölu (kven)leðurreiðstíg-
vél nr. 39—40. Tækifærisverð.
Túngötu 16, uppi, kl. 5—8 í
kvöld. (348
Tófuskinn óskast keypt. —
A. v. á. (342
Nokkrir tilbúnir karlmanna-
fatnaðir til sölu með verk-
smiðjuverði. Skólavörðustig 16
(portið). (341
Tilboð óskast i ágætt hangi-
kjöt norðan úr Skagafirði. —
Uppl. í síma 3236. (354
SOOOC? KÍÍK ÍOOOOÍX SttOOCÍÍOCÍtí
| Notudstólkerpa §
po óskast til kaups nú þegar. x
H Enn fremur óskast stúlka, j?
B 14-—16 ára, til að gæta að £
í; barni. Uppl. í síma 2490. g
xí; scíx iíxiíxxi? í?ííí?í;x í;;íí?x
Nýkomið skinn i herra- og
dömuhanska. Sniðið eftir máli.
S. Björnsdóttir, Fjölnisveg 1,
niðri, sími 2927, og Verslun Au-
gustu Svendsen. (351
r
VINNA
Stúlka óskast i létta vist í
marsbyrjun. Gott kaup. A. v. á.
(344
Vinnumiðstöð kvenna, Þing-
holtsstræti 18, hefir ágætar vist-
ir fyrir stúlkur, bæði í bænum
og ulan bæjarins. Opið frá kl.
3—6.
Vanur sjómaður óskast. Uppl.
Laugaveg 75 frá kl. 5—8. (356
Stúlka óskast i vist. Uppl. á
Grettisgötu 67, uppi. (352
Tek að mér fjölritun og vél-
ritun skjala, einnig allskonar
lögfræðilega skjalagerð. Pétur
Jakobsson, Kárastíg 12. (208
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
Dugleg saumakona getur feng-
ið vinnu strax. Klæðskcraverk-
stæðið, Grettisgötu 2. (353
Stúlku vantar í forföllum ann-
arar. Uppl. í sirna 4269. (349
Stúlka óskast hálfan eða all-
an daginn. Uppl. í síma 4922.
(358-
Vánan matsvein vantar á
mótorkútterinn Minnie frá
Akureyri. Uppl. milli 1—7 í
fiskifélagshúsinu við Ingólfs-
stræti, herbergi nr. 1. (362
Stúlka óskast í létta vist.
Tvenl í heimili. Uppl. Kláppar-
stíg 42. (361
r*
HÚSNÆÐI
íí Handa danskri fjölskyldu g
g er eg beðinn um að útvega
j? nýtísku ibúð 2. eða 14.
« maí, 3—‘1 herbergi cða
helst lítil villa með garði.
g — Uppl. um verð og legu
5? hússins sendist afgr. Vísis,
merkt: „Kbh.“.
Herbergi með liúsgögnunt
óskast nú þegar i miðbænum
eða sem næst honum. Uppl. i
síma 4107 eftir kl. 7. (347
Nýgift hjón (maðurinn í
fastri stöðu) óska eftir 2ja her-
bergja ibúð, helst í vesturbæn-
um. A. v. á. (345
2 herbergi og eldliús óskast
nú þegar eða 1. mars, i stein-
húsi, helst kjallarahæð. A. v. á.
(346
Til leigu 3 stofur og eldhús.
frá 14. maí, neðst á Laugavegi.
fyrir barnlaust fólk. Umsókn
sendist Vísi, merkt: „3 stofur“..
(357.
4 herbergja íbúð óskast, lielst
strax eða 14. maí. Uppl. í síma
2008. (359.
Stórt kjallarapláss, fyrir
verkstæði eða hreinlegan iðn-
rekstur, til leigu. — Uppl. gefur
Sveinn Þorkelsson. Sími 1969 og
2420. (357
14. maí lil Ieigu á Sólvöllum
3ja til 4ra herbergja íbúð með
öllum þægindum. — Uppl..
Ljósvallagötu 18, uppi. (361
KENSLA
Brynjólfur Þorláksson kennir á
Orgel-Harmonium og stillir píano.
Ljósvallagötu 18. Simi 2918. (297
MUNAÐARLEYSINGI.
í okkur stálinu. Hinar kenslukonumar virtust svo af
sér gengnar, að þær áttu fult í fangi með að komast leiS-
ar sinnar, þær gátu þvi ekki veriö öörum til hughreyst-
ingar.
ViS hugsuöum til arineldsins í skólanum og hlökkuö-
um mjög til þess, að komast heim og í nánd við ein-
hverja hlýju. En kuldinn heima var svo mikill að litlu
telpunum var sjaldnast orðið heitt fyrir háttatíma. Stærri
stúlkurnar ruddust í bestu sætin við arineldinn og skeyttu
ekki um okkur hinar, sem vorum minni máttar.
Á sunnudagskvöldum var jafnan lesið í Biblíunni.
Sátum við telpurnar hljóðar, en ungfrú Miller geispaði
í sífellu og þótti mér furðulegt hversu stórkostlega hún
gapti.
Eg hefi ekki sagt ennþá frá fyrstu heimsókn Brockle-
hurst, eftir að eg kom til Lowood, enda var hann fjar-
verandi fyrstu vikurnar sem eg dvaldist ];ar. Eg var
mjög fegin fjarvist hans og kveið því sáran, aö sjá hann
aftur. — Eg bjóst ekki við neinu góðu og óttaðist, að
skólasystur mínar og kenslukonurnar mundu líta mig
öðrum augum eftir komu hans, en áður. Að lokum kom
hann, þessi leiðinlegi maður.
Þegar eg hafði dvalist í Lowood liðugar þrjár vikur,
bar það við einn daginn, er áliðið var orðið, aö eg sat
yfir reikningstöflunni minni og glímdi við reiknings-
dæmi, sem eg botnaði lítið í og sá ekki fram úr. Dyrnar
voru þá opnaðar skyndilega og ungfrú Temple gekk í
stofuna. í fylgd með henni var hár maður, kranglegur
og ljótur. Kannaðist eg þegar við manninn og mintist
hins nístandi kalda augnaráðs, er hann hafði átt tal við
mig síðast. Þarna var þá kominn, ógeðslegi steindrang-
inn frá Gateshead!
Hr. Brocklehurst, var kominn — um það var ekki að
villast. Mér var illa við komu hans og bjóst ekki við
neinu góðu. Mér voru ekki liðin úr minni orð þau hin
Ijótu, er frú Reed hafði haft um lund mína, og mér var
ekki úr minni liðið að hr. Brocklehurst hafði heitið
því, aö segja ungfrú Temple og hinum kenslukonunum
frá skapbrestum mínum og illu upplagi. Dag hvern hafði
eg kviðið því, að hann kæmi, og nú var stundin upp-
runnin! Hann stóð við hliðina á ungfrú Temple og þau
töluðust við hljóðlega. Eg cfaðist ekki um þaö npkkurt
augnablik, að þau væri aö tala um mig.
Eg var þegar óvenjulega æst í skapi, en auk þess
hrædd, og starði án afláts á ungfrú Temple. Eg bjóst við
því á hverju augnabliki, að henni yrði litið til mín, og
aö hin dökku, fögru og góðlegu augu hennar mundu
virða mig fyrir sér með vanþóknun og jafnvel fyrirlitn-
ingu. En það brást. Ungfrú Temple var ekki þannig gerð.
að hún tryði öllu sem aðrir sögðu, og síst þvi, sem ljótt
var.
Þau gengu saraan út að glugganum. Eg sat ekki all-
langt frá glugganum og heyrði glögt hvað þeint fór á
milli.
„Eg sé á þvottareikningunum, að nokkurar af telp-
unum hafa fengið tvær hreinar svuntur um vikuna. Það
er of mikið. Og þaö stríðir algerlega á móti reglunum,“
heyrði eg hann segja.
„Agnes og Katherine Johnstone vom boðnar til vina-
fólks síns fimtudaginn annan er var, og eg leyfði þeim
að fara,“ svaraði ungfrú Temple.
Hr. Brocklehurst kinkaði kolli.
„Látum svo vera í þetta sinn, — En aðeins i þetta sinn.
Gætið þess, ungfrú Temple, að slík óþörf eyösla komi
ekki fyrir aftur! En það er annað, sem eg undrast meira.
Eg sá í vikuskýrslunum, að- nemendurnir hafa fengið
aukamáltíð einu sinni. Ost og brauð. — Hvernig stendur
á því ?“
„Það var gert á mína ábyrgð,“ sagði ungfrú Temple
„Morgunverðurinn var þannig tilbúinn, að fullkomin
ósanngirni hefði verið aö ætlast til þess, að telpurnar
gæti borðað hann. Eg þorði ekki aö takast á hendur þá
ábyrgð, að láta þær svelta þangað til miðdagsverðurinn
væri tilbúinn.”
„Leyfið mér aö segja nokkur orö, ungfrú Temple. —
Þér vitið, að það er ætlan mín — ófrávíkjanlegur ásetn- ■
ingur, gæti eg sagt, að ala þessar telpur upp við nægju-
/