Vísir - 07.04.1934, Blaðsíða 3
VISIR
Kemur Lindbergh i sumar?
Samkvæmt Bcrlingske Tidende
•cr Lindbergh væntanlegur tií
'Grænlands. og Danmerkur í sumar.
Opinberrar tilkynningar um þetta
•er ekki að vænta fyrr en seint í
jdirstandandi márnrði. Síðustu at-
huganir, sem fram íóru á flug-
leiðinni milli Ameríku og Evrópu
•og um Grænlatíd og ísland gefa
.góðar vonir, en enn hefir ekki
verið flogið nægilega mikið á
þcssum leiðttm, til þess að hægt sé
að ganga frá nokkrum framtíðar-
áætlunutn í einstökum atrrðum.
Botved kapteinn umboösmaður
Pan-American-Ainvays i Kaup-
ntannahöfn, heíir látið svo um
mælt, að hann gangi út frá því
sem gefntt, að tilraunaflugferðum
á þessari leið verði haldið áfram í
■sttmar.
I
Sjómannadeilan.
Sameiginlegur fundur um sjó-
anánnadeiluna bar engan árangur.
f
Sfmon lobnstn Oðrðarson
lögfræðingur.
—o—
Nýlega er látinn hér í bæhum
Símon Þórðarson, lögfræðing-
•ur, sem alment var kallaður
Símon frá Hól. Hann var fædd-
ur hér í Reykjavík 1. júlí 1888,
varð því að eins 45 ára gamall.
Hann gekk mentaveginn, kom
15 ára gamall í Lalínuskólann
og varð stúdent 1909. Fór það
liaust til háskólans í Kaup-
mannaliöfn, og tók að stunda
málfræði, ensku og frönsku, en
lauk ekki prófi. Var í Vestur-
heimi árin 1914—1(5, en kom
hingað heim haustið 1916. Gekk
á Lagaskólann, og lauk prófi
sumarið 1921. Eftir að hann
lauk prófi í lögum, var hann
starfsmaður i stjórnarráðinu
og var um t.íma settur sýslu-
maður í Vestmannaeyjum.
Með Símoni Þórðarsyni cr til
moldar genginn ósvikinn Reyk-
vikingur, enda könnuðust allir
gamlir Reykvikingar við hann,
ekki sist vegna þess, að hánn
var ágætur söngmaður, lærði
nð svngja hæði í Kaupmanna-
höfn og Bérlín. Símon Þórðar-
son var mikill gleðimaður, og
var mjög svo margt í fari hans
sem stuðlaði að því, enda þótti
okkur, sem þektum hann hest,
altaf mjög skemtilegt að vera
mcð honum, sökum lians ó-
sviknu mannkosta, og segi eg
það nú þegar hann er látinn, af
þvi að eg meina það líka, að
Simon var einn hinn dreng-
lundaðasti maður sem eg liefi
þekt, og ógleymanlegur og sér-
staklega jafn bæði i sorg og i
gleði. Þess vegna sakna eg ltans
og það gera áreiðanlega allir
sem þektu liann hest, þó vitan-
lega sé hans mest saknað af
eftirlifandi konu og 3 börnum,
háaldraðri móður og mörgum
systkinum.
Æskuvinur, margra ára fé-
lagi, Jielta er mín hinsta kveðja
eflir 36 ára góða vináttu. Þakka
þér innilega fyrir allan góðleik.
Nú hlýtur þér að líða vel því þú
varst svo góður drengur.
Jakob Guðmundsson.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni: Kl. tt, sira
Bjarni Jónsson (altarisganga). —-
Ivi. 5,. síra Friðrik Hallgrímsson.
1 fríkirkjunni: Kl. 2, síra Árni
Sigurösson.
í A'ðventkirkjunni kl. 8. Allir
velkomnir.
Leikhúsið.
Leikið verður annað kveld. Að-
gönguniiðar seldir í dag og á
tt’org'un.
Veðrið í ntorgun.
í Reykjavík 4, ísaíirði — 2, Ak-
ureyri o. Seyðisfirði — t, Vestm.-
eyjum 3, Grímsey — 3, Stykkis-
hólini 1. Blönduósi -— 3, Raufar-
höfn — 3, Hóltttn í Hornafirði —•
2, Grindavík 2, Færeyjum 1, Juli-
anehaab 1. Jan Mayen -—-14, Ang-
ntagsalik—■ 1, Hjaltlandi 5 st. Mest-
ur hiti hér i gær 10 st.. minstur
—■ o. Sólskin 11,1 st. — Yfirlit: '
Háþrýstisvæði yfir íslandi og
Græníandi. — Horfur: Suðvestur-
land: Brcvtileg átt og hægviðri.
Víðast úrkomulaust og léttskv’jað.
Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir,
Norðurland, norðausturland: Hæg-
viðri og bjartviðri. Austfirðir, suð-
austurland: Norðan og norðaustan
kaldi. Úrkomtilaust, en sumstaðar
skýjað ioft.
Umferðarbann.
Umferð um þingvallaveginn, frá
Köldukvíslarbrú að Þingvöllum,
er bönnuð fyrst um sitin. Sjá attg.
Skiftar skoðanir.
Undanfarna daga hefir eg lesið
i blöðununt dóma um „Við, sem
vinnum eldhússtörfin", og að mínu
áliti algcrlega óverðskuldaða, — eft-
ir að hafa horft á leikinn. Eg og
mitt kunningjafólk skemtum okkur
ágægtlega, jafnvel betur en á „film-
itnni“, þvi að i bíóinu skildi mað-
ur ekki nema sutnt, setn talað var.
Eg get ekki látið hjá líða, að ]takka
sérstaklega Gunnþórunni Halldórs-
dóttur fyrir hennár ágætu og'
skemtilegu meðferð á hlutverki
Lárensu, setn síst stóð að haki leik
sæn'sku leikkonunnar i „filmunni".
Ein, sc-m vinnnr cldhússtörfin,
Samsæti fyrir Guðmund skáld
Friðjónsson.
Guðmundur skáld Friðjónsson á
Sandi • verðttr 65 ára i nóvetnher
næstkomandi, en verður þá ekki
staddur hér syðra. Nú er Guðmund-
ur hér i hænum, og þar eð búast
tná við, að hina mörgu vini hans
hér syðra, karla sem konur, langi
til þess að sýna honum sérstakan
virðingar- og vináttuvott nú, með-
an hann er liér, þá gangast nokkr-
ir menn fyrir því nú, að honum
verði haldið samsæti með borðhaldi
áðttr en hann hverfur heini. Sam-
sætið verður haldið í Oddfellow-
húsinu fimtudaginn 12. aprilkl. 7,30
e. h. Eru menn beðnir.að skrifa
sig á lista fyrir miðvikudag (11.
april). Þeir liggja frammi í Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar
og í veitingasal Oddfellozuhússins.
Frá Hafnarfirði.
Garðar kotn af veiðum í gær
með 166 lifrarföt, (216 smál. fiskj-
av, þar af 20 ósaltaðar) og Sviði
með 109 lifrarföt (148 smál. fiskj-
ar, þar af 15 ósaltaðar). Venuskom
af veiðum i fyrradag með 93 lifrar-
föt (140 smál. fiskjar).
M.s. Dronning Alexandriue
er væntanleg hingað í fyrramálið
að vestan og norðan.
M.s. Skaftfellingur
hleður nú í íyrstu ferð sína til
Víkur á yfirstandandi ári.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss kom til Leith i gær. —-
Brúarfoss kom hingað i morgtin
frá útlöndum. Goðafoss fór frá
Hamhorg i dag. Dettifoss fór frá
Siglufirði í morgun áleiðis til
Isafjarðar. Lagarfoss er á leið
til Kaupmannahafnar. Selfoss kom
til Antwerpen í gær.
Af veiðurn
haía komiö Imperialist með 127
lifrarföt, Tryggvi gamli með 89
og Hilmir með 64.
76 ára
verður á morgun Steinunn
Jónasdóttir. Garðastræti 19.
Gullverð
isl. krónu er i dag 51.24, miðað
við frakkneskan franka.
Heimdallur.
Fund heldur félagið á morgun
(sunnudag) kl. 2 e. m. i Varðar-
húsinu. Til itmræðu verða félags-
tnál.
Fánalið Sjálfstæðisflokksins
fer að Álafossi á morgun. Lagt
verður af stað frá Varðarhúsiuu
kl. 10 f. h. stundvíslega og komið
aftur kl. 12)4.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó sýnir enn hina ágætu
söngvakvikmynd Jan Kiepura, við
góða aðsókn. — Gamla Bió sýnir
í fyrsta sinni i kveld kvikm.
.„Stúlkan frá Montparnasse“,
þýska söng- og talmynd.
Næturlæknir
er i nótt Bragi Ólafsson, Ljós-
vallagötu 10. Simi 2274. —■ Nætur-
vörður er i Laugvegs apóteki og
iiigólfs apóteki.
Betanía.
Á morgun sunnudag hefur smá-
meyjadeildin fund kl. 4 síðdegis.
Almenn samkoma kl. 8)4 að kveldi.
Jón Jónsson talar. Allir velkomnir.
Útvarpið í kveld:
18,45 Barnatími (Frú Ragnheið-
ur Jónsdóttir). 19,10 Veðurfregnir.
— Tilkynningar. 19,25 Tónleikar
(Útvarpstríóið), 19,50 Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Leikrit: „Lygasvipir", eftir Stell-
an Rye. 21,20 Tónleikar: Gratnm-
cfón-kórsöngur (Leðurblökukór-
itm). Danslög til kl. 24.
ötan af landi
Rafnseyri, 6. april. FÚ.
Aflabrögð.
Línubátarnir frá Bíldudal og
Þingeyri eru allir nýkomnir inn
með góðati afla: Ármann með
295 skippund, Geysir með 228,
Fróði með 196, Fjölnir með 180,
og Venus með 165.
Flateyri, 6. apríl. FÚ.
Héðan frá Flateyri hafa síðan i
janúar gengið 13 hátar, 5 til 13
smálestir að stærð. Afli stærri liát-
anna var á Páskum orðinn um 300
skp. Afli línuveiðaskipanna á
Þirigeyri, Fjölnis, Fróða og Ven-
usar var um sama leyti um 800
skp. á skip.
Frð Veslur-lslendlnDum.
--O--
Sigurður Skagfield
söngvari hefir verið ráðinn til aö
syngja í útvarp í Wiimipeg, viku-
lega fyrst um sinn, segir í Heims-
kringlu 28. febr. — Söng hans er
útvarpað frá CPR-gistihúsinu
(CJCR) kl. 7,30 Winnipegtími. —•
(FB.).
Norskar
loftskeytafregnir.
Oslo 6. apríl. FB.
Skipaútgerðartnálin.
Sendiherrar Noregs, Danmerk-
ur, Svíþjóðar og Hollands hafa
sm'tiö sér til hresku ríkisstjórnar-
innar viðvíkjandi erfiðleikum
þeim, sem skipaútgerðin á við að
stríða, en þeir eiga rætur sínar að
rekja til aninkandi viðskifta og þar
r.f leiðandi miimi flutninga landa
á milli, ofmiklutri. skipastól og
sámkepninni, setn leitt hefir af
Jteirri stefnu, að hið opinbera
veitir styrk til flutningaskipaút-
gerðar. Sendiherrarnir hafa tjáð
Bretastjórn fyrir hönd ríkis-
stjórna sinna, að þeir séu fúsir til
samvinnu við hana í þessum grein-
um. Ennfremur, að þær séu fúsar
tii ]>ess að senda fulltrita á skipa-
útgerðarmálaráðstéfnu, til ])css að
ræða um afnám eða takmörkun
stuðnings af hálfu stjórnarvalda
ti! skipaútgerðarinnar og til þess
yfirleitt að koma skipaútgerðar-
málum'í venjulegt (normalt) horf.
Oslo 6. apríl. FB.
Mikil selveiði.
Selveiðaskipiö Nordland er kom-
tð úr veiðileiðangri sínum norður
í Íshaí. Veiðin nam 2500 selum
og er mesta veiði á eitt skip á
vertíð ]>eirri, sem nú er um garð
gengin.
Oslo 6. apríl. FB.
Ný lagaákvæði um vinnudeilur.
Á ríkisráðsfundi i dag var rætt
um nýtt lagafrumvarp, sem inni-
heldur ákvæði u'm nýjar reglttr
viðvíkjandi málamiðlun og at-
kvæðagreiðslum i vinnudeilum.
Frumvarpiö hyggist á tillögum
hinnar svokölluðu „vinnufriðar-
nefndar,“ en í henni áttu sæti full-
trúar bæði atvinnurekenda og
verkamanna.
Frá stjðrn
íslensku riknnnar
i Suðnriamli.
Eins og kunnugt er byrjar ísl.
vikan að þessu sinni 22. þ. m„ og
eru þaö vinsatnleg tilmæli stjórnar
ísl. vikunar á Suðurlandi til skóla-
stjóra og kennara í skólum lands-
ins, að ]>eir noti tímann þar til
næstu ísl. viku er lokíð, til þess,
að glæða áhuga nemenda sinna
fyrir málefnum ísl. vikunnar með
ritgerðum, fyrirlestrum og um-
ræðum um þau.
Síöastliðið ár, var dálítilli fjár-
hæð varið til ]iess að verðlauna
bestu ritgerðir bama í barnaskól-
nnum í Reykjavík og Hafnarfirði
um málefni ísl. vikunnar.
Nú hefir stjórnin ákveðið að
verja alt að kr. 200,00 til verð-
launa fyrir bestu ritgerðir nem-
enda í Gagnfræðaskólum Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Verður
skólastjórum hlutaðeigandi skóla
síðar tilkynt um það, hvar og hve-
nær ritgerðirnar eiga að afhendast,
og hverjir fengnir verða til þess
að dæma um þær.
Pappírsvöror
og ritföng:
Ú tva rpsfré tti r.
London i gær. FÚ.
Óeirðir í Bandaríkjunum.
I dag lenti í bardaga milli at-
vinnuleysingja og lögreglunnar í
Minneapolis í Bandaríkjunum fyr-
ir framan ráðhúsið. Notaði lög-
reglan táragas til þess að dreifa
mannfjöldanum, cn þó tókst þaö
ekki fyr en nokkrir forsprakkar
atvinnuleysingja höfðu verið
liandteknir.
Ennfremur urðu nokkrar óeirð-
ir við kolanámu eina í West-Virgi'-
nia-rikinu, þar sem verkfall stend-
ur yfir, og lenti þar saman verk-
fallsbrjótum og verkamönnum.
Fornmmjafanðnr.
Cambridge, Mass. í mars. FB.
Vísindamenn frá Harvardhá-
skóla, sem verið liafa við forn-
minjarannsóknir í Panamaríki
ltafa fundið ýmsar foraminjar,
svo sein nmni úr gulli, leir og kop>-
ar, í dal nokkurum, sem bygðuf
ltefir verið löngu áður en Spán-
verjar lögðu undir sig landið.
Rannsóknir á grafhvelfingutn þar
í dalnurn leiddu i ljós, að nrikið af
dýrmætum ítiuntim hafði verið
borið t grafirnar, svo sem arm-
bönd, hringar, hálsfestar o. fl. úr
skíra gulli, ennfremur skálar, ker
og fleiri munir úr kopar. — Rann-
sóknir þessar hafa nú staðið yfir
i 3 ár og hefir yfirstjórn þeirra á
ltendi dr. S. K. Lothrop. — Forn-
minjafundur ])essi á rót sína a@
rekja til þess, að innfæddir menct
fundu verðmæta muni við Panama-
fljótið, en grafhvelfingamar eru *
nánd við það. — Talið er, að þeir
sem þarna voru grafnir, hafi ver-
ið höfðingjar af hinum svo kallaða
J Chioca-þjóðflokki í Colombia i
Suður-Ameríku, og er þess get-
ið til, að kvísl af þessum flokkí
hafi íarið til Panama og sest þar
að, sem fyrr segir áður en Spán-
verjar fyrst konm til landsins. —
(United Press.).
Hltt og þetta.
Lágmarkslaun hjá Ford
cru nú 5 dollarar á dag, að þvi er
segir í amertskum blöðmn. Starfs-
menn \ verksmiðjum hans í De-
troit eru um 70.000.
Chjfago-sýningin
mikla verður opnuð á ný í sutnar
og er búist við nrikilli þátttöku.