Vísir - 07.04.1934, Side 4
VISIR
ISLENZKAR
SMÁSÖGUR
HÖFUKDAK:
Hallgrirasson. Jón Thoroódsen.
Þorgila Gjallandi. Geatur Páiason. St.
G. Stephansson. Þorst. Erlingsson. E.
H. Kvaran.. Sigurjón FriSjónsson.
Guiim. FricSjónsson. Jón Trausti.
Krstín Sigfúsdóttir. Jóh. Sigurjóns-
soo. Hulda. Sig. Nordal. Jakob Thor-
areaten. Fr. A Brekkan. Helgi Hjörv-
mr. Gunnar Gunnarsson. GutSm. G.
Hagalín. DavíÖ Þorvaldsson. Krist-
mann Guðmundsson. H. K. Laxness.
Bókin er 300 bls. og íb. í fallegt band
Fœst hjá bólcsölum.
Mest úrval — lægst verð.
E' « ! /fS
m i h
:etss
Qácn
SportTöruhús Reykjavíkur.
íslensk
f rimerki
kaupir hæsta verði
Gísli Sigurbjörnsson,
Frimerkjaverslun.
Lækjartorgi 1.
(Áður Lækjargötu 2).
Innkaupsverðlisti sendur ókeyp-
is þeim er óska.
Sími: 4292.
Eggert Claessen
hæstaréttamiálaflutmugsmaður
Skrifstofa: Oddfellowhúsinu,
Vonarstræti 10, austurdyr.
Sími: 1171.
Viðtalstími: 10—12 árd.
TrDlofonarhringar
altaf fyrirliggjandi.
Haraldup Hagan.
Símí’: 3890. Austurstræti 3.
^ \ MILDAR OG ILMANDl
20stkI-25
I ásí- hvarvelrna
r
TILKYNNING
1
Bamastúkufundur. —- Vegna
vorþings Umdæmisstiikunnar
geta engir barnastúkufundir
verið hér í bænum á morgun,
Bema i stúkunni „Iðunn". Hún
hekjui'fund kl. 10 árd. (230
2 samliggjandi sólarlierbergi
ineð miðstöðvarhita og forstofu-
inngangi, eldhús gæti komið til
mála, eru til leigu frá 14. maí,
á Nönnugötu 16B. (205
Einhitypur eldri kvenmaður
í fastri stöðu, óskar eftir her-
bergi með cldunarplássi í ausl-
urhænum. Uppl. Laugaveg 57,
búðinni. (200
1 herbei’gi og aðgangur að
eldhúsi, óskast frá 14. maí til
1. október. TiUx>ð, merkt: „13“,
sendist Vísi fyrir mánudags-
kvöld. (199
V ÍSIS KAFFIÐ gerir alla glaða. 3 herbergi og eldhús til leigu 14. mai. UppI. Bergþórugötu 21, uppi. (231
Ung hjón óska eftir tveimur litlum, sólrikum herbergjum cða einni stofu ásamt eldhúsi. — IJppl. Ægisgötu 26, kjallara. (182
| TAPAÐ - FUNDIÐ Skinnhanski tapaðist. Skilist á Fjölnisveg 6. (189
2 herbergi og eldhús til leigu 14. maí. Njálsgötu 52JÍ. (181
Tapast hefir kassi af þurkuð- um eplum. Uppl. í pakkhúsi Eimskipafélags Íslands, sími 4743. (206
Til Ieigu forstofulierbergi fyrir karl eða konu uú strax eða 14. mai. Vesturgötu 17. Pétur M. Bjariiarson. (147
Fundið karlinannsúr. Uppl. i Selbúðum 3. (197
3 herbergi og eldhús til leigu. Grettisgötu 46, neðstu hæð. (109
GonkÍin lindarpenni tapaðisl i morgun, i eða frá Landsbank- anúm að Bankastræti 3. Skilist Bankastræti 3. Sími 4020. (228
2 herbergi og eldhús óskasl til leigu, helst strax. — Uppl. i síma 1508. (163
Fundist hefir merktur silfur- blýantur. Bakaríið Þingholts- stræti 23. (226
Sólrík stofa og önnur með að- gangi að eldhúsi, til leigu. — Meira 14. maí. — Laugaveg 11. (218
Lyklakippa skilin eftir i Verslun Jóns Þórðarsonar. (220
Tvö lierbergi og eldhús ósk- ast 14. maí. Má vera í góðum kjallara. Tilboð, merkt: „27“, sendist Visi. (216
| KENSLA | Vélritunarkensla. -— Cecilie Helgason. Sími 3165. Til við- tals kl. 12—1 og 7—8. (186
Til leigu 14. maí 4 lierbergi og eldhús i timburhúsi. Leiga 120 kr. á mánuði. Uppl. í síma 4701 milli kl. 8—9 i kvöld. (214
f HÚSNÆÐI 1 1—2 stofur og eldliús óskast 14. maí. Má vera í kjallara og i útjaðri bæjarins. Til mála gæti komið pláss sem innrétta mætti sem íbúð. Tilboð, merkt: „SkiÞ vis“, sendist Vísi. (195
3 herbergi og eldhús til Ieigu og forstofuherbergi á sama stað. Laugaveg 24B (útbyggingin). (210
Maður í fastri stöðu óskar eftir 2 herb. og eldhúsi 14. maí í Vesturbænum. Hclst við Öldu- götu. Uppl. i síma 4898. . (209
Lítið hcrhergi með húsgögn- um og aðgangi að síma, óskast 15. apríl. Tilboð, merkt: „Sól- rikt“, sendist Vísi fyrir 10. þ. m. (194
3 herbergi og eldhús óskast 14. maí. Tilboð sendist afgr. Visis, merkt: „111“. (203
2—1 herbergi með nýtísku þægindum óskast 14. maí. — Sími 4540 og 2940. (187 Eitt herbergi og eldhús óskast 14. maí. Áreiðanleg borgun. — Uppl. Hverfisgötu 92. (201
2 herbergi og eldhús (helst í
Austurbænum) óskast frá 11.
mai n.k. Tilboð, merkt: „íbúð“,
leggist inn á afgr. Vísis. (198
2—3 herbergi óskast. Uppl. í
sínia 4816. (196
2—3 herbergi og eldhús ósk-
ast 14. maí. Tilboð, merkt:
„Þægileg ibúð“, sendist Vísi.
(225
Til leigu stofa fyrir 1 eða 2
einhleypa i Tjarnargötu 3. Sími
2218. (221
Tvö samliggjandi herbergi,
helst með sérinngangi, i eða við
miðbæinn, óskast 14. mai. Upp-
lýsingar i síma 3285. (219
Sólríkar íbúðir, einstök her-
)ærgi og hentug sölubúð til
leigu. Uppl. í síma 3144. (229
r
VTNNA
Tek að mér að búa til garða.
Sanngjarnt verð. — Alfreð
Schneider garðyrkjumaður,
Grafarholti (Landssimi). (192
Myndarleg stúlka óskast
hálfan cða allan daginu. Freyju-
götu 42, efstu hæð. (190
Ungur maður óskar eftir
ráðskonu, má hafa með sér
barn. Uppl. Freyjugötu 27 A.
(185
Ábyggilcg stúlka óskar eftir
^atvinnu sem fyrst, helst i kon-
fektgerð eða hakarii. — Uppl.
i sima 2950, til kl. 4. (184
Tek að mér allskonar hrein-
gerningar eins og að undan-
förau. Guðmundur Valdimars-
son, Skólavörðustíg 33. (39
Unglingsstúlka óskast strax
hálfan daginn. Hellusundi 6. —
(217
Stúlku vantar hálfan eða all-
an daginn um mánaðartíma. —
Uppl. Sölfhólsgötu 10. (212
Stúlka óskast í vist nú þegar
eða 14. maí. ■— Frú Einarsson,
Laugaveg 31. (202
Unglingsstúlka, 14—16 ára,
óskast liálfan daginn. O. Bene-
dikts. Sími 3-722. (227
Stúlka óskast á gistihús úti á
landi. Uppl. á Njálsgötu 12. (224
Unglingsstúlka óskast í vist
á Bergþórugotu 29, uppi. (222
r
KAUPSKAPUR
Falleg svefnherbergishús-
gögn til sölu. Sýnd á morgun á
Mímisvegi 4, uppi. (193
Barnakerra með himni til
sölu. Vei’ð 20 kr. Baldursgötu
23. (191
Til sölu íremur stór húseign
\ið bestu verslunargötu bæjar-
ins. Agæt sölubúð og góðar í-
búðir. Tilboðj merkt: „Verslun-
arstaður“, sendist Vísi fyrir 15.
þ. m. (87
Nýtt eða notað karlmanns-
reiðhjól óskast til kaups gegn
því að seljandi taki Ixíkbands-
vinnu sem greiðslu. Fyrsta
flokks vinna. Tilboð, merkt:
„Reiðhjól“, sendist Vísi. (188
Ódýr barnavagn til sölu á
Njálsgötu 25. (183
Haraldur Sveinbjarnarson
selur bílalyftur (dúnkrafta).
Margar stærðir, góðar og ódýr-
ar. — (157
Barnavagn, Íítið notaður, til
sölu með tækii'æ'risverði. Uppl,
á Laufásveg 4. (213
Djúpur barnávagn óslcast.
Sinú 3757. (213
Vörubílar til söíu. Uppl. hjá
B. M. Sæbcrg, Háfnárfirði. Sími
9271. (211
Einn tvísettur klæðaskápur'
og byrgi, selst níeð tækifæris-
verði. Uppl. í sínia 2773. (208
Gott kvenreiðhjóí óg ferða-
kista til sölu. A. V. a.
(207
EmaiIIeruð cldavél óskast til
kaups. Uppl. i símá 3724, milli
4—7. (204
Leiknir, Hverfisgötú 34. Tæki-
færiskaup á lítið nótuðti kven-
hjóli. Besta tegund. (223
FÉLAGSPRENTSMIÍÍ'TÁISÍ.
MUNAÐARLEYSINGI.
„Bíða eftir hverju?“
.Álfunum, vættunum! Hvað annað! Varð eg kannske
ekki íyrir því óláni, að rekast inn í seiðhringinn? Hest-
tirinn minn clatt þarna á sléttum vegi þó aö færðin væri
góð! - Hann er ekki vanur því, að detta kylliflatur
á sléttum vegi.“ %
Eg hristi höfuðið alvarleg í bragði. Frú Fairfax leit
upp, bersýnilega undrandi. Henni féllust héndur við
vinnuna í bili.
„Þér segist ekki eiga foreldra á lífi. Látum svo vera.
En þér eigið þó væntanlega einhverja ættingja á lífi —-
einhverja nána frændur, — föður- eða móðnr-systkin?“
mælti hr. Rochester ennfremur.
„Nei, eg veit ekki til þess, að eg eigi neina ættingja á
66 — að minsta kosti ekki nána ættingja."
„Einmitt það! —- Og livað er um heimili yðar?“
„Eg á ekkert heimili.“
„Hvar eru systkini yðar?“
„Systkini! Eg á engin systkini.“
„Með hvaöa hætti komust þér hingað? — Hver át-
vegaði ySur kemiarastöSu hérna?“
„Eg auglýsti eftir kennarastöðu og frú Fairfax svar-
aSi auglýsingu minni.“
,,Já,“ sagði frii Fairfax og var bersýnilega fegin, aý
fá ástæðu til þess að taka til máls. „Og eg er forsjón-
inni sannarlega þakklát fyrir, aS mér skyldi detta i hug
að svara auglýsingunni. Eg hefi líka sannarlega — það
veit sá sem alt veit — haft mikla og margvíslega ánægju
af því í einverunni hérna, aS umgangast ungfrú Eyre.
Og Adele hefir fengið góSa kenslukonu, ástúSIega og
umhyggjusama, þaS er mér óhætt að segja.“
„LátiS allar lofræður eiga sig,“ sagði Rochester og
skar niður umræSurnar. „Eg hefi sjálfur mynd-
að mér skoSanir í ]>essu efni og eg býst við aö eg meti
þær meira en skoðanir annara. Kynni okkar ungfrú
Eyre hoftist á þann hátt, að hún bylti hestinum miínum
flötum.“
,Guð varSveiti mig! Hver ósköp eru afi heyra þetta!
— OgÆvernig getiö þér fengiS af ySur aS tala svona
hr. Rochester!“ sagði frú Fairfax, bar ört á og var
mikiS niSri fyrir.
„ÞaS er alt hennar sök, að eg meiddi mig i fætinumÁ
Gamla konan varö öidungis forviða og botnafii ekkert
í þessu.
„Ungfrú Eyre! Mætti eg spyrja: HafiS þér nokk-
urntíma átt heima í stórri borg?“
„Nei, það hefi eg ekki.“
„HafiS þér þá aldrei veriS í fjölmenni? — Aldrei
hringsnúist i margmenninu ?“
„Eg hefi litil kynni haft af öSnt fólki, en nemöndun-
um og kenslukonunum í Lowood.“
„HafiS þér lesiS mikiS um æfina?“ •—
„Eg hefi lesiö allar þær bækur, sem eg hefi haft uhdir v
höndum. En þaS er hvorki mikiS aS vöxtum, né held
nr neinar sérlegar vísindabækúr."
„Þér hafið ])á lifað svona eins" og hálfgerðu klaustur'
lífi, skilst mcr. Og þér eruö vafalaust prýðilega aö yður
i helgisiðum og öllu þvi, er viðkemur trúmálunum. Brock-
lehurst sá, sem stjórnar skólanum, eða hefir yfirumsjón
með honurn, er vist prestur. — Er ekki svo?“
„Jú, þaö er hann.“
,,Og þið ungu stúlkumar hafið vafalaust tilbeðiS hann
— svona hér um hil eins og hann væri guð? —
„Nei, —• ]taS gerðum við ekki.“
„Svo! —• Svo aö þið tilbáðuð hann ekki! I’að eí
skritið.“
„Mér var litið um hr. Brocklelnirst gefið, og margaf
stúlkurnar, ef ekki flestar, voru alveg sama sinnis. Hann
var leiðinlega strangur og harðlyndur. Hann lét okkur
ganga snoðkliptar fram eftir öllum aldri. Og alt, sem
okkur var fengið til handavinnunnar, svo sem nálar og
tvinni, var úr svo lélegu efni, aö það mátti heita ónýtt
og ónotaúdi. En það var ódýrt — fjarska ódýrt — og
þess vegna fanst: honum sjálfsagt aö nota það."
„En sá búmaður! Þessháttar sparnaður Ixirgar sig