Vísir - 08.05.1934, Blaðsíða 2
VlSIR
Símskeyti
—o—
London, 7. maí. FB.
Atvinnuleysið á Bretlandi fer
stöðugt þverrandi.
Atvinnuleysingjar í Bretlandi
voru þ. 23. april 2.148.195 tals-
ins eða 53.382 færri en i mars-
mánuði um sama leyti. í flesi-
um atvinnugreinum jókst at-
vinna talsvert. (United Press).
Barcelona, 7. maí. FB.
Öspektir og verkfall.
Óeirðir brutust út í gærkvöldi
(sunnudagskvöld) fyrir framan
liús það, sem í eru skrifstofur
blaðs syndikalista. Lenti syndi-
kalistum og lögreglunni þar
saman og beið einn maður
bana, en margir særðust. Á að
giska 70% verkamanna í Barce-
lona liafa liafið mótmælaverk-
föll út af óeirðum þessum, en
starfsmenn á sporvögnuin,
strætisvögnum og neðanjarðar-
brautum taka ekki þátt i verk-
fallinu. (United'Press).
London 8. maí. FB.
Roosevelt og ófriðarskuldirnar.
x Fullyrt er, aö Roosevelt hafi á-
form á prjónunum um a‘S leiða
skuldamálin við erlend riki til
lvkta að fullu og öllu við þau riki.
sem lán tóku i Bandarikjunum
vegna heimsstyrjaldarinnar. Fyrir
forsetanum vakiö, að áætlun sú,
sem hann býst við a'S geta fengi'ð
skuldunautana til þess að fallast
á, geti orðið til fyrirmyndar að því
er tekur til lausnar á skuldamál-
um milli ríkja yfirleitt. Talið er,
cf áform Rooseveltshepnast.aðþáð
inuni mjög greiða fyrir viðskift-
um og örva kaupskap og atvinnu-
lif. — Nánari fregnir eru ekki fyr-
ir hendi um hvernig Roosevelt
hugsar sér áætlun þessa, (United
Press).
New York 8. maí. FB.
Miklir hitar í Bandaríkjunum.
Mestu hitar sem sögur fara af í
New York i maímánuði standa nú
yfir. Undanfarnar fimm vikur hef-
ir ekki konúð dropi úr lofti á stór-
um svæðum í Bandaríkjunum. Tal-
ið er að mjög illa horfi um jarð-
rækt vegna þurkanna. Vegna
vatnsskorts hefir mjólkurfram-
leiðslan minkað mjög víða. í
Chicago er mikill mjólkurskortur.
(United Press).
Vegavinnukanpið.
—o—
Verklegar framkvæmdir ríkisins
og kaupkröfur socialis'ta.
—o—
Fregnin um, að stjórn Alþýðu-
sambands Islands hefir látið
stöðva útskipun á efni, sem fara
átti til brúargerðar í Skaftafells-
sýslu, hefir vakið mikla undrun
mánna í sveitum landsins. Þær
fregnir berast hvaðanæfa að af
landinu, að sveitabændur telji
]>essa ráðstöfun hið versta óþokka-
bragö. Þeir muiiu ekki liafa áttað
sig á því fyrr en nú, sveitabænd-
urnir íslensku, hverskonar vinir í
raun socialistarnir hér í höfuð-
staðnum eru. En „fátt er svo með
öilu ilt, að ekki boði nokkuð gott,“
]jví að ekkert mun betur vekja
bændur til umhugsunar um þessa
vini sína en ákvörðunin um að
stciðva alla opinbera vinnu, til þess
a.ð knýja fram hækkun kaupgjalds-
ins í sveitunum. Þeir höfðu glæpst
til þess að trúa sveitablöðum rauð-
liðanna (Tímanum og Degi og
vikuútgáfu Alþýðublaðsins sem nú
er sögð sáluð), en nú sannfærir
framkoma socialistabroddanna ])á
um hvernig þeir eru inn við bein-
ið. — Sveitabændurnir íslensku
mega héðan af vita á hverju þeir
eiga von úr þessari átt. Aldrei hafa
erfiðleikar íslenskra bænda veríð
meiri en nú. Þeir segja sem satt
er, að ástandið sé nú þannig, að
engin von sé til þess að halda bú-
skapnum áfram nema -með þvi aö
verði á aðkeyptri vinnu sé stillt
í hóf. Nú er það öllum vitanlegt,
að kaupgjald í sveitum miðast alt
af að mestu leyti við kaupgjald
í ]>eirri opinberu vinnu, sem fæst
í sveitunum, og afleiðingin af mik-
iili kauphækkun við vegavinnu og
brúargerðir mundi óhjákvæmilega
Iciða áf sér kauphækkunarkröfur
við heyskaparvinnu og jarðrækt.
Afleiðingin mundi verða sú, að
fæstir bændur gæti nokkra vinnu
keypt að, og erfiðleikar bænda
verða meiri en þeir hafa nokkru
sinni verið.
Það er viðbúið, að socialistar
haldi því fram, að sveitabændur
muni njóta góðs af kauphækkun
í opinberu vinnunni. En sú við-
bára er gagnslaus, þvi að flestir
þeirra, sem fara í vegavinnu í
sveitunum, eru bændasynir og
lausamenn. Sveitabændpr geta
fæstir horfið frá búum sín-
um til þess að takast á hend-
ur vinnu utan heimilanna. í mörg-
um sveitum lands er nú svo ástatt,
og ])að er meðfram afleiðingin af
óstjórninni á þeim árum, er Tíma-
menn og socialistar báru ábyrgð
? ríkisstjórninni, að ekki er næg-
ur mannafli til nauðsynlegustu
verka.
Kauphækkunarkrafa socialista er
hnifstunga í bak fátækra bænda.
Og þeir munu svara fyrir sig sem
vert er á kjördegi. * *
Frá jökulförunum.
Fylgdarmennirnir komnir til
Nielsen og félögum
Útvarpið átti tal við Kálfa-
fell uni miðaftan í dag, og voru
jökulfararnir þá ekki komnir
til bygða, og vonlaust talið, að
þeir kæmu i kvöld, því mað-
ur hafði farið í dag langleiðis
upp að tjaldstaðnum og ekki
séð til ferða þeirra. Mikil ný
fönn virðist hafa fallið á jök-
ulinn síðustu daga, og búast
menn við, að færi sé slæmt.
Færð er einnig mjög slæm á
leiðinni upp að tjaldstaðnum.
og er sú leið dalin illfær með
hesta. Á jöklinum eru, sem fvr
er getið, 7 menn alls, þeir dr.
Niels Nielsen og Jóhannes Ás-
kelsson og 5 menn úr Fljóts-
hverfi. Sumir eru farnir að ótt-
ast um leiðangursmenn, aðrir
ekki. Farið er að tala um að
gera út leitarleiðangur, en er
talið miklum vandkvæðum
bundið. Vantar flest þar evstra,
til slíkrar farar, og færi er
slæmt. (FÚ., í gærkveldi).
Kálfalelli 8. april. FÚ.
Þrír af fylgdarmönnum jökulfar-
anna komu til bygða síðla í gær-
kvöldi, þeir Helgi Pálsson, Rauða-
bergi, Guðlaugur Ólafsson, Blómst-
urvöllum, og Sigmundur Helgáson,
Núpum.
Þeir segja þannig frá:
„Fyrra laugardag, þann 28. april,
skildum vi'Ö viÖ dr. Nilesen, Jóhann-
es Áskelsson, Kjartan Stefánsson
frá Kálfalelli og Jón Pálsson, Selja-
landi, vi'ð tjaldstaðinn við Pálsfjall.
Ætluðu þeir ]iá áfram austur að
gig, en við snerum við, til þess að
sækja skíði og matvæli, til tjald-
staðarins neðan við jökulinn. Höfðu
jökulfararnir þá vistir til sex daga,
eða til þess 4. þ. m.
bygða. Engar fregnir af dr.
hans síðan 28. apríl.
Þegar við komum til tjaldstað-
arins undir jöklinum, skall á bylur,
og lágu við þar á sunnudaginn, og
I fram til hádegis á mánudag, 30.
apríl. Lögðum við ])á af stað upp
á jökulinn, með það, sem við höfð-
um farið að sækja, og komumst
þann dag upp á móts við Hágöng-
ur. Þar lágum við allan þriðjudag-
inn. en fórum svo áfram á mið-
vikudaginn, 2. maí, þar til bylur
skall á. Á fimtudaginn héldum við
enn nokkuð lengra áfratu, ]iar til
bylur skall aftur á, og stóð hann
fram á föstudagskvöld, 4. maí.
Klukkan 10 um kvöldið fórum við
svo áfram, og komumst að tjald-
staðnum við Pálsfjall, þar sem við
höfðum skilið við jökulfarana. kl. 4
á laugardagsmorguninn. Var ])á
tjaldið á kafi í snjó. Biðum við
þar, þangað til á sunnudaginn var,
að við lögðum af stað til bygða, í
hríðarbyl. Tjölduðunl við um kvöld-
ið, án þess að vita, hvar við vorum,
en er létti til í gærmorgun, sáum
við, að við vorum stacklir á móts
við Hágöngur. Lög'Sum vi'S ])á enn
af stað, og komum til bygða í gær-
kvöldi."
Fylgdarmenn eru þreyttir, eftir
erfiða ferð, en annars liður þeim
vel. — Eins og sjá má af frásögn-
inni. voru jökulfararnir búir að vera
9 daga á jöklinum, með 6 daga vist-
arforða, eftir að þeir fóru frá tjald-
staðnum við Pálsfjall, þegar fylgd-
armenn fóru þaðan á sunnudaginn.
—o—
Fregn þessa her að skilja
svo, áð jökulfararnir 4, dr.
Nielsen og félagar hans, hafi
ekki verið í tjaldinu á Pálsf jalli,
1 er fylgdarmennirnir komu
i þangað.
„Sterkastl raaðnr
heimsins."
Hann hefir nú sagt skilið við
„Tuppa Halten Pálsson Konsert-
bureau“ að fullu og öllu, en
Hljóðfærahúsið tekið að sér fyr-
ir þrábeiðni hans, að auglýsa
skemtanir, sem hann mun
reyna að efna til hér. — Vísir
hefir látið til leiðast fyrir beiðni
Hljóðfærahússins, að birta í
dag auglýsingu um sýningu hins
sterka manns, en vill jafnframt
láta þess getið, alveg ótvírætt,
að hann álítur að slíkar skemt-
anir sem þessar eigi að banna
vægðarlaust, og átelur stjórnar-
völdin harðlega fyrir að hafa
ekki aftekið með öllu að veita
óvöldum útlendingum skemt-
analeyfi, eins og nú standa sak-
ir hér á landi — ekki síst þeg-
ar skemtanir þær, sem í boði
eru, verða að teljast alisendis
ómerkar í menningarlegu tilliti,
og engum til gagns, sem á þær
hiustar eða horfir. — En auk
þess ber og á það að líta, að
gjaldeyrisvandræðin eru slík
sem stendur, að kaupsýslustétt
landsins og aðrir verða dags
daglega að kalla má fyrir óþæg-
indum og tjóni af þeim sökunt.
Ætti stjórnarvöldin að líta á
hag þjóðarinnar fremur en
þarfir útlendra farandmanna.
ötan af iandí
Stykkishólmi, 7. maí FÚ.
Frá sýslufundi Snæfellinga og
Hnappdæla.
Sýslufuncli Snæfells- og Hnappa-
dalssýslu lauk á laugardagskvöld-
ið.
Helstu samþyktir voru þessar:
Skoraö var á rikisstjórn að láta
I vélbátinn Baldur í Stykkishólmi
njóta áfram þess styrks, sem veitt-
ur á þessa árs fjárlögum til mótor-
bátsferða um innanveröan Bréiða-
fjörð.
Skorað var á rikisstjórn og Al-
þingi að láta fara fram næsta vet-
ur útrýmingarböðun á sauðfé, í
þeim landshlutum, ]iar sem fjár-
kláða hefir orðið vart. Skorað á
þing og stjórn að leggjafram nægi-
legt fé til þess, að fullgera Stykk-
ishólmsveg á næstu þrem árum.
Þá voru 520 kr. áætlaðar til þess
að styrkja börn og unglinga til
sundnáms í heitri la'ug. Áætlaðar
eru 10 kr. á nemanda. Kosin var
sundnefnd er starfi milli funda, og
úthluti styrknum. í nefndina voru
kosnir þeir Jón Steingrímsson
sýslumaður, Stefán Jónsson skóla-
stjóri og Vilhjálmur Ögmundsson
á Narfeyri. — Til samgöngumála
voru veittar 4825,00 kr., til búnað-
armála 1490,00 kr., og til menta-
niála 1120,00 kr.
Niðurstöðutölur áætlunar, tekju-
Káputölur
og punthnappar. Einnig niiki#
úravl af taulinöppum.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
P E R L A
Bergstaðastræti 1.
Sími: 3895.
NINON
selur nýkomna kjóla
í stórum stærðum frá 12
kr. tískuefni og gott snið.
MINOM
Austurstræti 12.
Opið 2—7.
og gjaldamegin eru 32.633,05 kr.
Hagur sýslusjóðs hefir engum
breytingum tekið á árinu.
Búnaðarsamband Dala og Snæ-
fellsness.
Aðalfundur Búnaðarsambands
Dala- og Snæfellsness hófst í dag,
og sitja hann stjórn og fulltrúar
frá búnaðarfélögum beggja sýslna,
en auk þess Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri og Guðmundur
Jónsson frá Torfalæk. Sambandið
hefir nú starfað í 20 ár. Stjórn
þess skipa nú Magnús Friðriksson
formaður, og sýslumennirnir Jón
Steingrimsson og Þorsteinn Þor-
steinsson. FÚ.
Ljárskógum 7. maí. FÚ.
Frá sýslufundi Dalamanna.
Sýslufundur Dalasýslu var hald-
inn í Ásgarði 1. til 3. þ. m. Ákveð-
ið var lágmark sýsluvegasjóðs-
gjalds. Gert var ráð fyrir, að hér-
aðsmenn vinni að vegagerð í vor
í Vesturlandsvegi, gegn greiðslu
í ríkisskuldabréfum. Sýsluma.nni
var heimiluö lántaka fyrir sýsluna,
til þess að kaupa bréfin af þeim,
er ekki geta selt þau.
Eignir sýslusjóðs voru við síð-
ustu áramót 41809 kr., og skuldir
32454 kr. Áætluð útgjöld þetta ár
nema tæplega 13 þús. kr.
Hólmavík, 7. maí. FÚ.
Nýtt félag sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðisfélag var stofnað hér
i gær, meö 32 félagsmönnum. For-
maður er Karl Magiiússon, héraðs-
læknir,
Utacfór
forsætisráðherra.
Eins og frá var skýrt í blaðinu
í gær var Ásgeir Ásgeirsson for-
sætisráðherra meðal farþega á
Dettifossi. Hefir Vísir haft tal af
honum um árangurinn af för hans
og er hann, samkvæmt upplýsing-
um frá forsætisráðherra, í stuttu
máli þessi:
Lán var tekið í Lundúnum til
nýju sílaarverksmiðjunnar. Var
það tekið fyrir milligöngu. Ham-
bros Bank. Lánið er að upphæð-
45000 stpd. eða um 1 milj. kr. Það
er tekið til 20 ára með 5% vöxt-
um og fullri útborgun. Veröur
hægt að byrja á framkvæmdum,
Jiegar er nægum undirbúningi er
lokið.
Þá er forsætisráðherra var kom-
inn til Danmerkur lagði hann
stjórnarskrána og kosningalögin
fyrir konung til staðfestingar. —
I Danmörku tók hann nokkur lán
með ábyrgð ríkisins, samtals að
upphæð kr. 350,000. Eru lánin öll
með 5% vöxtum affallalaus.
Ennfremur hefir forsætisráð-
herra haft nokkur afskifti af lán-
%
/
I