Vísir - 14.06.1934, Side 4

Vísir - 14.06.1934, Side 4
VISIR Her foringj aráðskortið yfir miðvesturland (Aðalkort Blað 2) nœr frá Borgarfirði um Snæfellsnes til Gilsfjarðar, er komið, kostar kr. 2,50, fæst í Bókaverslon Sigf. Ejmnndssonar og Bókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 34. en tókst þó ekki aÖ skora mark fyr en um miðjan hálfleikinn, aS hægri útframherji þeirra, Bj. Guðbj., skaut knettinum fyrir markiS beint fram fyrir fæturna á Oskari Jóns- syni og varð mark úr. Skömmu seinna sendi B. G. knöttinn mjög laglega fyrir markið og náði Hólm- geir Jónsson honum með höfðinu og „skallaði" í mark. Hálfleiknum lauk með 2 :o. — í seinna hálf leik bjuggust menn við, að K. V. myndi sækja nokkuð á, því að nú höfðu þeir vindinn með sér. En að und- anskildum nokkrum upphlaupum á vinstra ,,kanti“ K.V., hafði Valur nú, sem í fyrra hálfleik, mestalla sóknina og skoraði 4 mörk. Það fyrsta skoraði Agnar Breiðfjörð- eftir upphlaup á vinstra ,,kanti“, en hin þrjú „skoruðu þeir Jóhannes Bergsteinsson, Hólmgeir og Óskar. Eftir leikinn var Vestmannaey- ingunum haldið kveðjusamsæti á Skjaldbreið. í kvöld kl. 8J4 keppa Fram og Víkingur, og er það næstseinasti kappleikur mótsins. D. tJ tva ppsfr étti i». Fellibylurinn. 3000 menn fórust. London 13. júní. FU. Þrj.ú þúsund manns hafa farist í fellibyíjunum i Mi‘S-Ameriku, i San S'alvador og Honduras, að því, er áætlað er. Borgin San Salvador Og margar aðrar borgir hafa ver- iS ljóslausar og vatnslausar í nokkra daga, og hernaðarástandi hefir verið lýst yfir í landinu, til j'.ess að hakla uppi reglu. Roosevelt forseti hefir beöið stjórnarvöldin í löndum þeim, sem hafa oröiS fyrir- slysunum, að skýra honum frá þvi á hvern ljátt Bandaríkjamenn geti best.hlaupið undir bagga. Fellibylurinn er nú á vesturleið, til Mexico. Fellur markið? Kalundborg 12. júní. FÚ. Menn bíða þess með óþreyju, hvaö gerist á fundi bankaráðs þýska ríkisbankans á rnorgun. Þar mun eiga að ræða um ríkisskuldir Bílar. Hefi til sölu nokkra notaða bíla 5 og 7 manna. Verðið mjög lágt. Egill Tilhjálmsson. Harðfiskur þessi ljúffengi er kominn aftur. Yersl. Yisir. Til Borgarf jarðar fer bíll frá Bifreiðastöðinni Heklu n. k. laugardag kl. 5 síð- degis. Nánara augl. á morgun. Þjóðvarja og greiðslufresti, um aukna notkun á þýskum frarn- leiðsluvörum heima fyrir, og um gjaldeyris- og gengismál, einkum það, hvort fella eigi markið eða ckki. I Kaupmannahöfn er skráning á jjýsku marki i dag óbreytt frá því, sem jjað var í gær (kr. 169). Nazistar í Austurríki bera sig illa. Berlín, kl. 8, 14. júní — FÚ. Nazistar í Austurriki kvarta undan því, að hin nýju ákvæði stjórnarinnar um vopnaðar sjálfsvarnarsveitir bafi þegar haft það í för með sér, að þeir séu lagðir í einelti að ósekju, og að ]>að hafi ekki óvíða komið fyrir, að vopnaðir flokkar hafi ráðist með ofbeldi að alsaklaus- um mönnum. Eitt af blöðunum i Wien, sem er hlynt stjórninni, sagði frá þvi i gær, að komist hefði upp um aðalforsprakka hryðjuverk- anna, og væru það Nazistar. Þessi fregn hefir síðan verið borin til baka. Aldrei hefir verið betra að versla en nú í Yersl. Brynja. Tryggingin fyrir því að bakst- urinn nái tilætlaðri lyftingu, er að nota Lillu-gerduftið. Hf. Efnagerð Reykjavíkur. Blöm & Ávextir Hafnarstræti 5. Sími 2717. Daglega ný afskorin blóm: Rósir, Gladíólur, Túlipanai’, Levkoy, IÍmbaunir, Morgunfrú. Blómvendir á 1 kr. og á 75 aura. Nýkomið: Vatnsglös frá .................. 0.25 Borðhnífar, í’yðfríir, frá . 0.75 Barnaboltar, frá ............... 0.75 Barnabyssur, frá ........ 0.65 Raksápa í hulstri, frá . . . 1.00 Rakkústar, frá........... 0.75 Kökuföt, gler............ 1.25 Vatnskönnur, gler .........2.00 Skálar, gler, frá .............. 0.45 Desertdiskar,' gler, frá . . . 0.45 K. [\mm ð inc Bankastræti 11. | LEIGA | Sölubúð fyrir mjólk og brauð eða annað, til leigu. Uppl. síma 3]44- (352 Verkstæðispláss sem næst miðbænum óskast strax. Tilboö merkt: „Verkstæði" sendist af- gr. Visis. (362 VINNA Unglingsstúlka óskar eftir góðri vist hálfan daginn og sér herbergi. Tilboð sendist afgr., merkt: „A“. (349 Ivaupakonu vantar að Sáms- stöðum í Fljótshlíð. Uppl. kl. 3—6 siðd. á morgun i Búnaðar- félagi Islands. (375 Stúlka óskast i matvöruversl- un strax. Uppl. i síma 3932, eft- ir 7. (368 Stúlka vön buxnasaum getur fengið atvinnu við Álafoss nú þegar. Uppl. á afgr. Álafoss. (367 Góð stúlka óskast í sveit sem fyrst. Hátt kaup. Uppl. á Sunnu- hvoli. (366 Hraust stúlka óskast strax. Matsalan, Hafnarstræti 18. (365 1 -----------------------------| Ungur sjálfstæðismaður ósk- j ar eftir atvinnu. Svarað i síma 4042 frá kl. 7y2 lil 9. (363 j Duglega stúlku vantar 2—4 vikna tíma nú þegar. Gott kaup í boði. A. v. á. (379 HÚSNÆÐI Mann í fastri stöðu vantar 3-—4 ! herbergja íbúð með nútíma l)æg- indum 1. okt., heist í suður eða suðvesturhluta bæjarins. Eitt her- bergjanna má vera lítið. Húsa- leigan greiðist skilvíslega fyrir-' fram mánaðarlega. Tilboð auðkent „A.T.“, sendist afgr. Visis. (359 Sumaríbúð til leigu nú þegar skanit frá Reykjavik. A. v. á. (348 Herbergi til leigu nú jiegar. — Guðsteinn Eyjólfsson, Laugaveg 34. Sími 4301. (347 Hérbergi óskast. Uppl. i síma 2285 kl. 8—9 í kvöld. (378 Lítið herbergi til leigu, hús- gögn gætu fylgt. Sólvallag. 7, uppi. (364 | Lyklakippa tapaðist i gær úr Austurstræti 14 til póststofunnar og Landsbankans. Skilist í versl- unina Baldursbrá. (358 Gylt víravirkisnæla lapaðist á Ivambabrún. Finnandi geri að- vart í síma 4239. (370 t gær tapaðist armandsúr sunnanvert við Elliheimilið. — Skilist á Elliheimilið. (360 J... KAUPSKAPU^^ 5 manna, fjögra dyra, drossía til sölu með sérstöku lækifærisverði. Uppl. gefur Agúst Brynjólfsson Landssmiðjunni. Heima eftir kl. 6 Bræðraborgarstíg 21 C. (357 Kvenreiðhjól til sölu á Rauðar- árstíg 13 C. (356 Miðstöðvareldavél til sölu. Tæki- færisverð ef samið er strax. A. v. á-_______________________(355 Reiðföt sem ný til sölu með tækifærisverði á Bárugötu 21. — _________________________(354 Nokkur ný og vönduð eikar- skrifborð til sölu á 125 kr. með góðum greiðsluskilmálum. Uppl. Njálsg. 78, miðhæð. (353 Tveir litlir miöstöðvarkatlar (nr. 3), til sölu með tækifærisverði. Bergstaðastr. 27. Sími 4200. (351 Barnakerra til söl.u, Bárugötu 32. Sími 1942. (350 Barnavöggur á hjólum, verð 23 krónur. Körfugerðin. (218 Vörubilar til sölu með tæki- færisverði. Uppl. hjá B. M. Sæ- berg, Hafnarfirði. Sími 9271. (291 Mótorlijól í góðu standi til sölu. Verð kr. 350. Til sýnis Njálsgötu 6, kl. 71/2—9. (377 Kvenhjól til sölu með tæki- færisverði. Uppl. á Baldursgötu 22, eftir 7 i kvöld. (374 Góður klæðaskápur og 2 ný rúm til sölu á Vesturgötu 11. (373 Ivlæðaskápur og einsmanns- rúmstæði til sölu afar ódýrt. Framnesv. 6 B, kjallara. (372 Nýlenduvöruverslun á ágæt- um stað til sölu nú þegar. Litl- ar vörubirgðir. Væntanleg til- boð merkt: „K. 10“ leggist inn á afgr. Vísis fyrir 17. þ. m.(371 Mótorhjól 2ja cyl. Raleigh til sölu. Uppl. á Laugaveg 64, kk 7—9 i kvöld. (369 |tuÍ^ynn!n^™| I. O. G. T. DRÖFN nr. 55, fundur i kvöld kl. 8V2. Ýmislegt varðandi stúkuna. Æ. t. (361 FÉLAGSPRENT SMIÐ J AN. JMUNAÐARLEYSINGL unni honum aftur á móti — eða peningunum lians að minsta kosti. — Mér er kunnugt um, að henni þykja jarðeignir herra Rochesters mjög eftirsóknar- verðar. — En eg vil ráða honum til þess, hinum dökkhærða, ástfangna manni, að liafa gát á henni. — Komi annar biðill enn þá ríkari, þá er liætt við, að ástin til Rochesters kólni fljótlega og lilutverki hans í ástaleiknum verði skyndilega lokið“. „Eg kom liingað til þess, að leitg frétta um frafn- tið mína, en ekki herra Rochesters“, sagði eg og var nú orðin leið og þreylt á rausi kerlingarinnar. — „En þér hafið ekki sagt mér neitt um hana, enn sem komið er“. Örlög yðar eru með öllu óviss að svo stöddu, góð- in mín. — Þegar eg rannsakaði andlit yðar, sá eg undir eins, að þar var binn mesti glundroði í öllum merkjuin og teiknum. Það var eins og alt rækist á eða væri bvað upp á móti öðru. Þér getið vafalausl orðið aðnjótandi mikillar hamingju, ef þér gætið yð- ar og látið hana ekki ganga úr greipum yðar. Yður er ællað að vera á verði og grípa rétta augnablikið. En lofið mér nú að virða yður fyrir mér enn á ný. — Það gæti viljað til, að mér auðnaðist að lesa and- íits-svip yðar, Iivort yður muni hepnast að handsama 'gæfuna, eða hvort þér látið hana fara leiðar sinnar.“ Hún einblindi framan i mig lengi-lengi og lalaði i sífellu, mestmegnis við sjálfa sig. „Eg sé blossann i augum yðar —■ tindrandi blossa! En þessi augu geta döggvast, þá er minst varir. Þau eru mild og gáfuleg. Stundum brosa þau fagurlega, en þess á milli er líkast því, sem hönd sórgarinnar fari um þau. Nú líta þau undan og vilja ekki láta rannsaka sig nánara. — En hvað er nú? Það er eins og þau vilji neita sannindum þeirra uppgötvana, sem eg liefi gert. En það lánast ekki. Undanbrögðin styrkja mig i trúnni. Munnur yðar er fagurmg koss- ar yðar munu vera mjúkirog góðir. Þérbrosið fagur- lega. Þér hafið ekkert á móti því, að segja það, sem vður býr í brjósti — nema eitt. Þér viljið ekki opna , hjarta yðar. Þér eruð ekki fæddar til þess, að búa við einlifi og einstæðingsskap. — Þér eruð fæddar til þcss, aö lifa og njóta. Eg sé það á munni yðar og vorum, ekki síður en augunum. — En á enni yðar situr einhverskonar smápúld, sem væntir þess„ að honum auðnist að gera yður van- sælar. Þér skiljið mig, vona eg, þó að eg .tali óljóst? Það er eins og enriið vildi segja (fyrir yðar hönd), cða einliver sem þar býr: „Eg get unað lífinu alein — án alls stuðnings — án skilnings — án ástar“. Þetta segir hann, litli karlinn, sem situr á enninul Og ennfremur segir hann: „Eg sel ekki sál mína til ])ess, að kaupa það, sem við köllum hamingju skammvinna ævi. Eg á f jársjóð hið innra með mér og hann mun halda i mér lífinu, þó að mér verði alla, stund neitað um hina ytri gleði eða hamingju svo nefnda — neitað með öllu eða þá lieimtað því- líkt verð, að eg geti ekki gengið að kaupunum. —- Margt kemur f}Trir á langri leið og miskunarlaus öfl geta verið að verki. En eg hlýði þeim ekki — eg hlýði engu boði, nema hinnar góðu samvisku!“ — Og enn mælti nornin: „Eg ber virðingu fyrir orðum þínum og met þau mikils. Eg hefi gert fasta áætlun, sem eg ætla mér ekki að vikja frá og hún er öll miðuð við kröfur sam- viskunnar. Æskan er skammvimi og fegurðin verð- ur að engu. I bikar gæfunnar má ekki drjúpa liin minsta ögn af eitri háðungarinnar, þvi að þá leggur hin sanna gleði hjartans á flótta og hamingjan fer méð henni. Fyrirlitnihg og reiði eru frá „hinum vonda“. Eg óska ekki eftir neinskonar fórnum — elcki sorgum — ekki ófriði. Alt þessháttar er fjarri huga mínum og hjartalagi. Eg óska eftir nýjum gróðri, en elcki tortimingu. Eg vildi óska, að þetta augnablik liði aldrei — aldrei, en eg þori ekki að bera fram neinar óskir. Enn þá er alt i lagi og hvergi of langl gengið. Eg get forsvarað verk mín — eg gel forsvarað orð og gerðir. — — — En færi eg enn

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.