Vísir - 10.01.1938, Page 2

Vísir - 10.01.1938, Page 2
vísrK VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Páll Steingrímsson. Skrifstofa i , „ } Austurstræti 12. og afgreiðsla I S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Útrýming. grein, sem birtist í Alþýðu- blaðinu daginn eftir að fulltrúaráð verkalýðsfélaganna ákvað að leita samkomulags við kommúnista, um sameigin- legan lista í bæjarstjórnarkosn- ingunum, er sagt frá því, að aðalritari alþýðusambands kommúnista hafi nýlega látið svo um mælt, i ávarpi til franska kommúnistaflokksins, „að leiðtogar socialistaflokk- anna standi í þjónustu auð- valdsins“ og að Stalin hafi haft á réttu að standa, þegar hann hafi sagt, „að það væri ómögu- legt að útrýma auðvaldinu án þess að útrýma fyrst jafnaðar- stefnunni í verkalýðshreyfing- unni.“ Daginn eftir að „samfylking1' Alþýðuflokksins og Iiommún- istaflokksins í bæjarstjórnar- kosningunum var ákveðin, og samkomulag fengið um bæjar- fulltrúaefni flokkanna, lét blað kommúnista svo um mælt í forustugrein sinni, að með þeirri samfylkingu væri „stígið veigamesta skrefið í átt fram- tíðarstarfsins, unninn einn af þýðingarmestu sigrum í alhliða baráttu verkalýðsins.“ Markmið „framtíðarsíarfs- ins“ er samkvæmt ummælum Stalins og aðalritara alþjóða- sambands kommúnista, að „út- rýma auðvaldinu“, en það er „ómögulegt án þess fyrst að út- rýma jafnaðarstefnunni í verka- lýðshreyfingunni“. Og einmitt þess vegna er „samfylkingin“ „veigamesta skrefið“ og „einn af þýðingarmestu sigrum i verkalýðsbaráttunni, að henni er ætlað að „útrýma jafnaðar- stefnunni í verkalýðshreyfing- unni“. í forystugrein þeirri í blaði kommúnista, frá 8. þ. m. sem að framan er getið er að sjálf- sögðu lögð meiri áhersla á það, að samfylkingin sé „fyrst og fremst sókn og vörn gegn íhaldinu“. Enda segir blaðið, að alþýðan skilji það, að féndur hennar séu ekki fyrst og fremst í hópi alþýðunnar. Hinsvegar er blaðið svo sem ekki í nokk- urum vafa um það, að alþýð- unni sé það full-ljóst, að hún eigi einnig féndur í sinum liópi, og þeir féndur hennar eru vit- anlega „leiðtogar socialista“, eða forvígismenn jafnaðarstefn- unnar, sem Stalin segir að óhjá- kvæmilegt sé „að útrýma fyrst“, óður en röðin komi að auðvald- inu! Alt þetta hefir mönnum lengi verið Ijóst. Hinir gömlu „leið- togar socialista“, eða Alþýðu- flokksins, hafa ekki gengið þess duldir, að markmiðið með sam- fylkingarbaráttu kommúnista væri það, að „útrýma jafnaðar- stefnunni í verkalýðslireyfing- unni“, og þeim er það ljóst, að sá „grundvöllur að sameiningu verkalýðsflokkanna í framtið- inni“, sem kommúnistar ætla að skapa með „samfylking- unni“ er kommúnisminn. Og að sjálfsögðu er leiðtogum konnn- únista það ekki síður ljóst, að „samfylkingin“ er ekki fyrst og fremst „sókn og vörn gegn ihaldinu“, heldur liljóti hún ein- mitt að tryggja sigur „íhalds- ins“ í svipinn. Hinir gömlu leiðtogar soci- alista hafa orðið undir í sam- fylkingarbaráttunni. Allir fylg- ismenn þeirra, sem nokkurn greinarmun kunna að gera á „jafnaðarstefnunni“ og komm- únismanum, skoða ósigur þeirra í þessari baráttu sem sinn ósig- ur. Það er þvi mjög fjarri sanni, að samfylkingin hafi vakið nokkurn þann „eldmóð“ i brjósti þess hluta Alþýðu- flokksins, eins og blað komm- únista talar um. Og eins og for- maður Alþýðuflokksins hefir látið strika nafn sitt út af sam- fylkingarlistanum, eins munu þeir flokksmenn hans, sem mest traust hafa til hans borið, af öllum leiðtogum flokksins, margir hugsa sig tvisvar um, áður en þeir greiða listanum at- Icvæði. 1 blaði kommúnista er gert ráð fyrir því, að „með sameig- inlegum lista fari ekkert at- kvæði forgörðum. hjá verka- lýðsflokkunum“. Og svo mundi það líka reynast, ef flokkurinn væri einhuga um listann og um samvinnuna. En af þvi að svo er ekki, er hætt við því, að van- höldin verði mikil. En það er lika algert aukaatriði í augum kommúnista. Þeir vita að engin von er um sigur þeim til lianda í kosningunum. Sá sigur, sem þeir keppa að, er „útrýming jafnaðarstefnunnar í verkalýðs- hreyfingunni“, útrýming liinna gömlu leiðtoga socialista, og þann sigur þykjast þeir nú þeg- ar hafa unnið að hálfu leyti. Italir fá ekki aS kafa toiarastöi í Þírshflfa. Fréttaritari útvarpsins í Kaup- mannahöfn telur sig hafa orðið þess vísari í dag, að danska stjórnin hafi endanlega neitað að gefa samþykki sitt til þess, að ítalski fiskikaupmaðurinn Gismondi fengi leyfi til þess að að setja upp bækistöð fyrir ítalska togara í Þórshöfn í Fær- •cyjum. FÚ. Kalundborg 9. jan. FÚ. Eins og áður hefir verið frá skýrt, hefir danska stjórnin nú neitað að gefa samþykki sitt til að Italir fengju bækistöð fyrir fimm togara í Þórshöfn. Jafn- framt hefir það orðið að sam- komulagi milli rikisstjórnarinn- ar og fulltrúa Færeyinga, að lögþingið og ríkisstjórnin setj- ist á rökstóla til þess að finna færar leiðir til að bæta Færey- ingum það atvinnutjón, er þeir telja sig hafa beðið við þessa ráðstöfun stjórnarinnar. Hefir stjórnin þegar undirbúið ýmsar tillögur í þessu efni, sem meðal annars miða að því, að veita Færeyingum aukinn styrk til fiskniðursuðu, veita aukið f jár- magn til kolavinslu á Færeyj- um, hjálpa með lánum og styrk- veitingum til þess áð auka skipastólinn og gera hann ný- tískari, og auk þess veita fé til þess að hlynna að landbúnað- Rúmenski stj óphíh ep ekki eix&pæOisstjóPD, segir Kapl konungui*. „Verdi ég óánægðup með gerdip hennap kpefst ég breytingap44 EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Daily Herald birtir í morgun viðtal við Karl Rúm- enakonung, og er viðtalið vegna stjórnar- skiftanna þar |í landi. Karl segir m. a. við blaðið: Stefna stjórnarinnar hef- ir engin áhrif á bandalag Rúmeníu eða stefnu i utan- ríkismálum. Hver einasta af ríkisstjórnum mínum verður að hafa samþykki mitt. Sama dag sem eg verð óánægður með stjórn þeirra JAPANIR TÓKU TSINGTAO. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. LONDON 1 MORGUN. Frá Tokio er símað, sam- kvæmt fregnum frá Tsien- tsin, að japanskir sjóliðar hafi verið settir á land í Tsingtao í gær. SIó þegar í bardaga milli þeirra og kín- verskra hersveita, en Kínverj- ar hörfuðu undan áður en langt um leið. Japanir fást nú við að leita uppi leyniskyttur og hermenn, er hafa falist í húsum borgarinnar. United Press. Di tleno bakkar hetjunum í Teruel, sem vörðust, þar til þeir voru að verða hungurmorða. — London 10. jan. FÚ. I útvarpi frá Sevilla réðist de Llano með mikilli heift á upp- reistarforingjann i Teruel, sem gafst upp ásamt liði sinu á laug- ardaginn. Hann nefndi hann „þrjótinn, sem gafst upp án þess að ráðfæra sig við yfirboð- ara sína“. Samkvæmt heimildum spönsku stjómarinnar hafa flestir særðir hermenn meðal uppreistar- manna, sem gáfust upp í Tem- el, verið sendir í sjúkrahús í V'alencia. Stjórnin hefir gefið fyrirskipanir um að fylstu mannúðar skuli gætt i meðferð fanganná. NÝ MÁLAMIÐLUN ÁRANGURSLAUS. Enn þá liafa menn það fyrir satt, að sendiherrar Þjóðverja í Tokíó og í Kina séu að reyna að koma á vopnahléi, og vissa er fyrir því, að þýsku stjórninni er það mikið áhugamál að endir verði bundinn á styrjöldina í Kína. Þessar málaleitanir virðast þó ekki bera neinn verulegan árangur, því að í dag lýsir sendilierra Japana í Iíína opinberlega yfir því, að engin von sé um frið af liendi Japana meðan stjórn Chiang Kai Sheks situr að völdum og sú stefna sé ríkjandi í landinu sem hann hafi haldið fram. Japanir séu þegar búnir að setja fram lág- markskröfur sínar, en þeim hafi ekki verið sint að neinu. Stjórn sú er Japanir liafa selt á stofn í Peiping hefir skipað sérstaka nefnd til þess að rannsaka fjármál og gjaldeyrismál Norður-Kína með það fyrir augum að stofna nýjan gjaldmiðil og gjaldeyrisfyrirkomulag er hvili að öllu leyti á hinu japanska yen. — FÚ. FJÁRHAGSÖNGÞVEITI YFIRVOFANDI í JAPAN. Fjármálaráðherra japönsku stjórnarinnar hefir á ráðherra- fundi leitt stjórninni fyrir sjónir, að styrjöldin í Kína hljóti að hafa í för með sér stórkostleg útgjöld svo að ekki verði hjá því komist, ef syrjöldin heldur áfram, að taka stór lán. 1 sambandi við þetta varar ráðherrann stjórnina við því, að stórkostlegar lántökur geti vel leitt til gengishruns, svo að Japan komi til að standa í svipuðum sporum eins og Þýskaland eftir ófriðinn mikla. —• FÚ. FRANCO VIÐURKENNIR ENGAR VERÐBRÉFASÖLUR SPÆNSKU STJÓRNARINNAR. London, 8. jan. — FÚ. Franco hersliöfðingi birtir opinberlega tilkynningu í dag, þar sem hann viðurkennir ekki neinar verðbréfasölur spænsku stjórnarinnar, útflutning hennar á verðbréfum og verðmætum, né neitt annað er hún hafist að af slíku tagi og kveðst skoða það lögleysu eina, með þvi að hún hafi ekkert vald til þess að ráðstafa opinberu fé Spánverja. á málefnum þjóðarinnar, mun eg kref jast breytingar. Þegar hann var spurðuí um ráðstafanirnar gagn- vart Gyðingunum, sagði liann, að þær væri að eins gegn þeim Gyðingum, sem hafa komist inn i Rúmeníu á ólöglegan hátt, frá Galisíu í Póllandi eða Rússlandi, en þeir eru í hæsta lagi 250 þúsund. Karl sagði að þessir Gyðing- ar hefði gert innrás í landið, ekki komi til mála að vísa þeim úr landi, en ómögulegt sé að veita þeim stjórnmálaleg rétt- indi. Bætti Iíarl því við, að eng- ir þyrfti að óttast það í öðrum löndum, að ekki yrði á allan hátt komið vel fram við þessa menn. Karl neitaði því algerlega, að hann hefði í hyggju að stofna til einræðis í landinu, en hvað framtíðinni við kemur, sagði hann þetta: „Ákvörðun mín mun fara eftir því, hvað eg álít koma sér best fyrir hina rúm- ensku þjóð.“ — United Press. KONUNGLEGT BRÚÐKAUP. Kalundborg 9. jan. FÚ. í Aþenu hefir verið mikið um dýrðir í dag. Páll krónprins á Grikklandi gekk í dag að eiga liejrtogainnuna af Brunschvig- Liineburg. Voru þau gefin sam- an eftir gríslc-kaþólskum hjú- skaparformála með stórkost- legri viðhöfn og aðstoðuðu 30 biskupar við hjónavígsluna. — Fjöldi útlendra gesta voru við- staddir, fulltrúar frá flestum ríkisstjómum og konungsfjöl- skyldum í Evrópu. Fyrir hönd dönsku konungshjónanna mættu Knútur prins og kona hans, Karoline Matthilde prin- sessa. inum meira en undanfarið, m. a. með auknum styrkveitingum til fjárræktar. Stjórnin hefir og fleiri tillögur og ráðagerðir í fórum sínum, sem komið geta til framkvæmda, ef forráða- menn Færeyinga fallast á. Bretar eg Banda- ríkjamenn smiða mðrg 46000 smá- lesta herskip. Fregnirnar frá Rómaborg um að Mussolini hafi ákveðið að auka herskipaflotannn um tvö ný orustuskip, tvö önnur or- ustuskip, 8 beitiskip og tugi lundurspilla og kafbáta, vekja alheimsathygli. Þegar þessi á- form liafa verið framkvæmd, hafa ítalir mesta kafbátaflota heims, svo fremi, að önnur stórveldi grípi eklci þegar í stað til ráðstafana til þess að auka kafbátaflota sína. En svo horfir nú, vegna flotaaukningaáforma ítala og Japana, að Bretar og Bandaríkjamenn hefji þegar í stað stórfelda aulcningu her- skipaflota sinna. Ensku blöðin skýra frá því, að Bretar og Bandaríkjamenn ætli að smíða mörg 46.000 smálesta beitiskip, vegna flotaaukningaáforma Japana. NRP—FB. Forsætisráðherra Frakklands hefir boðað fulltrúa verka- manna og atvinnurekenda á ráðstefnu í því markmiði, að leysa deilumál þeirra og koma á vinnnufriði í landinu. NRP— FB. aðeins Lofíur. Un\mM i Kellis- sandi. Sandur 9. jan. FÚ. I dag liófst verkfall hjá há- setum á Helhssandi. — Hafa undanfarið staðið þar yfír samningaumleitanir milli full- trúa liáseta og útgerðarmanna um lilutaskifti á vertíðinni, en ekki náðst samkomulag. Grein- ir á um hálfan hlut. Nokkrir út- gerðarmenn, sem standa fyrir utan Útgerðarmannafélag Hell- issands, hafa þegar gengið áð kröfum háseta. Skíiaftrilr nm belgina Skíðafélag Reykjavíkur fór i gærmorgun í skíðaför úpp & Hellisheiði. Tóku þátt í förinni um 120 manns. Sumir fóru 1 Innstadal, aðrir voru í Gíghól og í Reykjarfelli, en aðalliópur- inn var í brekkunni við Skiða- skálann, enda var snjórinH mestur þar. Annars var snjólít- ið á Hellisheiði. Veður vár ágætt allan daginn.austan kaldi, nokkurra stiga frost og gott skíðafæri. x Framboð sjálfstædis- manna út um land., Seyðisfirði, 9. jan. FÚ. Á lista Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjómarkosninga á Seyðisfirði eru 10 efstu menn: Jón Jónsson, Firði, Halld. Jóná son kaupmaður, Gísli Jónsson verslunarmaður, Einar Bland- on, Benedikt Jónasson forstjóri, Benedikt Þórarinsson bankarit- ari, Jónas Jónsson verslunar stjóri, Kári Forberg símritari, Jón Stefánsson kaupmaður og Einar Hihnar lyfsveinn. Listinn er skipaður 18 mönnum. Vestmannaeyjm. FÚ Sjálfstæðisflokkurinn hefir lagt fram lista sinn til bæjar- stjórnarlcosningar í Vestmanná- eyjum. Tíu efstu menn listans eru: Ásæll Sveinsson útgerðar- maður, Ástþór Matthíasson for- stjóri, Guðlaugur Gíslason for- stjóri, Haraldur Eiríksson raf- virki, Ólafur Auðunsson út- gerðarmaður, Þorsteinn Jóns- son útgerðarmaður, Hinrik Jónsson lögfræðingur, Tómas Guðjónsson afgreiðslumaður, Ólafur Jensson póstafgreiðslu- maður og Eirikur Ásbjörnsson útgerðarmaður. KULDARNIR Á MEGINLANDI ÁLFUNNAR. FÓLK HELFRÝS Á VÍÐAVANGI. Kalundborg 9. jan. FÚ. Daglega eru að berast fregn- ir um fannfergi og illviðri, og er frostgrimdin svo mikil, að fólk finst helfrosið á víða- vangi. í þorpi einu suður við Svartahaf fundust 6 manns hel- frosnir í morgun, á vegarbrún skamt utan við þorpið og var því líkast, sem þeir hefðu sest niður til þess að hvíla sig, en frostið yfirbugað þá. í Konstanz er víða þriggja metra djúpur snjór og öskrandi hríðarbylur í dag. Hafa tveir menn orðið þar úti í úthverfum borgarinnar. I Bukharest var 36 stiga frost á Celsíus í gær.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.