Vísir - 31.01.1938, Side 3
VlSIR
Kosningarúpsiit -
in í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn vinnur
níunda sætið í bæjarstjorn
Reykjavíkur.
Úrslit bæjarstjórnar-
kosninga hér í bænum urðu
sem hér segir:
A-listinn (Samfylkingin)
hlaut 6464 atkv. og kom að
5 mönnum.
B-listinn ( Framsóknar-
fl.) lilaut 1442 atkv. og
kom að 1 manni.
C-listinn (Sjálfstæðisfl.)
hlaut 9893 atkv. og kom að
9 mönnum.
D-listinn (Þjóðernissinn-
ar) hlaut 277 atkv. og kom
engurn að.
154 seðlar voru auðir, 50
atkv. ógild. Atkvæðaseðlar
komu frá 18280 kjósend-
um.
Hlutfallstala níunda
mannsins á C-listanum varð
1099 % en sjötta manns á
A-listanum 1077V3- Skorti
þannig að eins 132 atkvæði
á að A-listinn kæmi að
Á Akureyri fóru leikar þann-
ig, að listi sjálfstæðismanna og
óháðra iiorgara kom að fjórum
mönniim, framsóknarmenn 3,
kommúnistar 3 og sósíalistar 1.
Atkvæði féllu þannig:
A-listi (A.) .................... 230
B-listi (F.) .................... 708
C-listi (K.)..................... 566
D-listi (S.)................... 898
í kosningunum 1934 fengu
sjálfstæðismenn 3 fulltrúa (410
atkv.), framsóknarmenn tvo
(377), sosíalistar tvo (210),
(406). Þá kom auk þess listi
Jóns Sveinssonar bæjarstjóra
að tveim mönnum (355) og listi
iðnaðarmanna einum (154).
í Hafnarfirði urðu úrslitin
þau, að samfylkingin liélt velli,
en hefir þó tapað frá bæjar-
stjórnarkosningunum 1934. —
Nu fengu listarnir þessi at-
kvæði:
A-listi (A.).................. 983
B-listi (S.) ................ 969
Árið 1934 fengu sósíalistar
og kommúnistar samanlagt
1029 alkv., en sjálfstæðismenn
823 atkv.
Siglufjörður. Þar urðu úrslit-
in þau, að sjálfstæðismenn
fengu 3 menn kosna, fram-
sóknarmenn 1 og rauðliðar 5.
A-listi (rauðliðar) ...... 672
B-listi (Framsókn) ...... 253
C-listi (Sjálfstæðisfl.) .... 386
Sú atkvæðagreiðsla, hvort
sérstakur bæjarstjóri slcyldi
verða, fór á þá leið, að 671 voru
með því en 419 á móti. 1934
fóru kosningar svo í Siglufirði
að sjálfstæðismennirnir höfðu
3 fulltrúa (366), framsóknarm.
2, (210) séisialistar 2 (204) og
kommúnistar tvo fulltrúa (225).
1 Vestmannaeyjum urðu úr-
sjötta manninum.
Talning atkvæða var lok-
ið um kl. 6Y2 í morgun.
Nokkuð var um breytingar
á atkvæðaseðlum, en ekki
eru líkur til þess að þær
breytingar hafi áhrif á úr-
slit kosninganna.
Af C-listanum náðu kosn-
ingu: Guðm. Ásbjörnsson út-
gerðarmaður, Bjarni Bene-
diktsson prófessor, Jakob Möll-
er alþm., Guðrún Jónasson frú,
Guðm. Eiríksson húsameistari,
Valtýr Stefánsson ritstj., Helgi
Hermann Eiríksson skólastj.,
Jón Björnsson kaupmaður og
Gunnar Thoroddsen lögfr.
Af B-Iista náði kosningu
Jónas Jónsson skólastjóri.
Af A-lisla voru kosnir Stef-
án Jóh. Stefánsson hrm.. Ár-
sæll Sigurðsson bókari, Soffía
Ingvarsdóttir húsfrú, Jón Axel
Pétursson frkvstj. og Björn
Bjarnason iðnverkamaður. —
Iiéðinn Valdimarsson var
sjötti maður listans, Einar 01-
geirsson sá sjöundi, Har. Guð-
mundsson sá áttundi o. s. frv.
slitin þau, að sjálfstæðismenn
háru sigur iir hýtum og fengu
fimm fulltrúa. Tölur eru þessar
þaðan:
A-listi (rauðl.) ............ 655
B-listi (Frams.) ............ 195
C-listi (Sjálfst.) .......... 866
D-listi (Þjóðerniss.)....... 62
Samfylkingin kom að þrem
mönnum, tapaði einum til
Framsóknar. Atkvæði féllu
þannig 1934: Sjálfstæðismenn
808 atkv., kommúnistar 449, so-
cialistar 276.
ísafjörður. Þar eru hlutföllin
óbreytt, hvað fulltrúatölu á-
hrærir.
Sjálfstæðismenn fengu 570
atkv. og 4 fulltrúa, en rauðliðar
725. Við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar fengu sjálfstæðis-
menn 498 atkv., en rauðliðar
samtals 678 atkv.
Seyðisfjörður. Þar hafa sjálf-
stæðismenn fjóra fulltrúa eins
og áður og er jafnframt stærsti
flokkurinn. Sósíalistar liafa 3
menn, Framsókn 1 og komm-
únistar einn.
D-listi (S.) ......... 166 atkv.
A-listi (A.) ......... 148 —
B-listi (F.) ......... 68 —
C-listi (K.) .......... 46 —
Við siðustu kosningar í bæj-
arstjórn (1934) höfðu sjálf-
stæðismenn 203 atkv., samfylk-
ing socialista og framsóknar-
manna 233 atkv. (5 fulltrúa) og
kommúnistar 34 atkv.
Nes í Norðfirði. Þar fengu
sjálfstæðismenn tvo fulltrúa,
framsóknarmenn 1 og socialist-
ar 6.
A-listi (F.) .......... 84 atkv.
B-listi (S.) ......... 141 —
C-listi (A.) ..........331 —
Patreksfjöfður. Þar voru 390
a kjörskrá, en 325 kusu. Sjálf-
stæðismenn fengu 128 atkv., og
tvo fulltrúa. Samfylkingin fékk
132 atkv. (2), og Framsókn 62
(!)• —’
í Stykkishólmi urðu úrslitin
þau, að sjálfstæðismenn fengu
161 atkv. og fjóra fulltrúa í
hreppsnefnd, en samfylking so-
cialista og framsóknarmanna
fékk 131 atkv. og 3 menn
kosna.
Á Húsavík fengu sjálfstæðis-
menn 95 atkv. og einn mann í
hreppsnefnd. A-listinn (F.)
fékk 131 atkv., 2 menn, B-listi
(A) 74 atkv., 1 mann. C-listi
(K) 158 atkv. og 3 menn.
í Keflavík fengu sjálfstæðis-
menn 3 menn í hreppsnefnd,
335 atkv., en lisli sjómanna- og
verkamannafélagsins 214 atkv.
og tvo menn. í Keflavík voru
776 á kjörskrá, en 549 kusu.
Á Eskifirði var lélegust kjör-
sókn á öllu landinu. Aðeins 126
manns kusu af 400 á kjörskrá,
eða 31,5% og var það vegna
þcss, að sjálfstæðismenn buðu
ekki fram og sátu heima.
A-listinn (samfylkingin) fékk
86 atkv. og fimm menn kosna,
en Framsókn 40 atkv. og tvo
fulltrúa.
I Borgarnesi voru 344 á kjör-
skrá, en 303 kusu. A-listinn,
listi sjálfstæðismanna, hlaut
144 atkv., 2 menn, en samfylk-
ingin 145 atkv. og 3 menn. C-
listi, óháðir, fengu sjö atkvæði.
Á Blönduósi voru 223 á kjör-
skrá, en 191 kusu. B-listi, sjálf-
stæðismenn fengu 105 atkv. og
þrjá menn, en A-listi, socialistar
og Framsókn, 86 atkv. og tvo
menn.
Á Akranesi féllu atkvæði sem
hér segir:
C-Iisti (S.) 356 atkv., 3 menn.
A-listi (A.) 274 atkv., 3 menn.
B-listi (F.) 145 atkv. 1 mann.
Á Eyrarbakka sigruðu sjálf-
stæðismenn og hlaut listi þeirra:
B-listi (S.) 154 atkv., 3 menn
A-listi (Vmfél. Báran) 154 atkv.
3 mcnn.
Hlutkesti réði úrslitum.
Á Stokkseyri urðu úrslit þessi:
C-Iisti (S.) 140 atkv., 3 menn.
A-Iisti (alþfl. og framsfl.) 98
atkv., 3 menn.
B-listi (Iv.) 1 atkv. einn mann.
Hreppsnefndarkosning
í Ólafsvík.
I Ólafsvík kom fram aðeins
einn listi til Iireppsnefndarkosn-
inga og náðist samkomulag
allra flokka um skipun listans
og málefnagrundvöll fyrir
starfi lireppsnefndar næsta
kjörtímabil. — Fimm efstu
menn listans eru: Jónas Þor-
valdsson skólastjóri, Magnús
Guðmundsson sóknarprestur,
Jón Gíslason póstafgreiðslu-
maður, Gunnlaugur Bjarnason
oddvili og Jóhann Iíristjánsson
Kosningarúrslit út á landi
formaður. —- Fyrsti og sjötti
maður er frá Framsóknar-
flokknum, annar, þriðji, sjö-
undi og áttundi frá Sjálfstæðis-
flokknum, og fjórði, fimti, ní-
undi og tiundi frá Alþýðu-
Hokknum. Sömuleiðis var sam-
comulag allra flokka um skip-
un skólanefndar og kom fram
einn listi og eru efstu menn
hans sömu menn og áður liafa
verið kosnir af hreppsbúum í
kólanefnd.
Var livorki kosið í lirepps-
nefnd eða skólanefnd, en aðeins
sýslunefnd. (FÚ).
Slys.
Jarðarför systur okkar og móðursystur,
Bjargap Havsteen
fer fram þriðjudaginn 1. febrúar frá dómkirkjunni. —
Athöfnin hefst kl. 1 með bæn á Laugavegi 37.
Jarðað verður í Fossvogi.
Iíristín Havsteen, Anna Havsteen, Emma Guðjónsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns, föður okkar og bróður,
UlPiebL Hansen,
Stefanía G. Hansen, börn og systkini.
30. jan. FÚ.
I gærmorgun vildi það slys
til á Jarlsstöðum í Aðaldal er
Björn Sigtryggsson bóndi ætl-
aði að slcjóta liund, að skotið
hljóp aftur úr byssunni i andlit
mannsins. Maðurinn lieldur lífi,
en hefir hættulega áverka á
höfði.
Hrakninoar á fróðárhii
Pósturinn á leiðinni milli Ól-
afsvíkur og Grafar í Milda-
lioltshreppi, Ágúst Ólason,
bóndi að Máfahlíð, lenti í
hrakningum á Fróðárheiði í
gær. Með honum var Björn
Nikulásson bóndi, að Böðvars-
holti og fóru þeir frá Ólafsvík
í gærmorgun kl. 8, en þegar
þeir voru komnir upp á lieið-
ina skall á þá norðaustan liríð-
arveður. Voru þeir með' 3 hesta,
en þegar þeir komu á lieiðina
var Ágúst orðinn svo þreyttur
af að brjóta fyrir hestun-
um, að hann ætlaði að reka þá
niður eftir. Þá varð hann þess
var, að hestarnir vildu slá sér
undan veðrinu, svo að hann fór
fyrir þá og beindi þeim í veðr-
ið. — Litlu síðar hröpuðu báðir
mennirnir og tveir hestanna
fram af snjóhengju. Var þetta í
svonefndu Egilsskarði og höfðu
þeir lirapað um 100 metra liæð.
Sakaði þá ekki vegna þess að
snjór var mikill. Þeir urðu að
yfirgefa hestana og komast til
bæjar — Knarrar i Breiðuvík -
kl. 20 i gærkveldi og var veður
þá svo vont, að enginn heima-
manna þar treysti sér til þess
að leita liestanna. Kl. 3 i nótt
birti hríðina og þá fundu þeir
báða liestana og einnig hinn
þriðja, sem að líkindum hefir
lirapað síðar. t morgun hélt
pósturinn áfram ferð sinni, þá
í björtu veðri. (FÚ. í gær.).
Samvinnubátar Seyðisfjarðar
— fjórir að tölu — lögðu af
stað til Keflavíkur aðfai’anótt
27. þessa mánaðar. — í gær
lágu bátarnir veðúrteptir í
Hornafirði. (FÚ í gær).
Ör Skagaflrði.
MÆÐIVEIKIN.
Mæðiveikin liefir borist á tvo
bæi i Skagafjarðarsýslu — Hól-
kot í Staðarhreppi og Halldórs-
staði i Seylulireppi. í Hólkoti
hefir öllu fé þegar verið lógað
og að sögn fréttaritara er talað
um að lóga einnig öllu fé á
Ilalldórsstöðum. Er eiganda það
í sjálfsvald sett meðan hann
liefir féð i strangri gæslu. Nýja
varnargirðingu er verið að und-
irhúa í liéraðinu og hafa staur-
ar verið reknir niður með vest-
anverðum Héraðsvötnum eystri
norðan frá sjó óg suður um
Akra. Komið hefir til orða að
leggja girðinguna þaðan um
Vatnsskarð vestur í Blöndu, en
ekki er það fullráðið.
Ágætur þorskafli
hefir verið i allan vetur i Skaga-
firði innanverðum og nokkur
millisíld. Fiskur hefir einnig
verið þar tvo undanfarna vetur
en í vetur hefir fiskurinn verið
vænstur og talsvert af fiskinum
er með þroskuð hrogn og svil.
Til skamms tíma liafa úti-
gangshross i héraðinu verið i
haustlioldum og víða hefir
sauðfé litið verið gefið annað
en síldarmjöl með beitinni. FÚ.
Vígbúnaðor Banda-
rlkjamanna fagnað-
arefoi.
London 30. jan. FÚ.
1 ræðu, sem hann flutti í
London i gær, sagði Duff-Coo-
per, fyrverandi hermálaráð-
herra Breta, að Englendingar
yfirleitt fögnuðu mjög þeim
fréttum, að Bandaríkin ætluðu
að auka herafla sinn að mikl-
um mun. Sterkur amerískur
her, sagði hann, væri ein besta
tryggingin fyrir frið og öryggi
í heiminum.
Bænarskrár
trá Gyðingnm.
London 30. jan. FÚ.
Þjóðabandalagsráðinu liafa
borist fjórar bænarskrár frá
Gyðingum í Rúmeníu. Forseti
ráðsins sagði i gær, að hann
myndi mæla með því, að full-
trúar Breta og Frakka skipuðu
ásanit sér, nefnd til þess að
ræða um ,meðfe!rð (þéirra og
rannsókn á máli rúmenskra
Gyðinga.
fleimilisiínaðarféiag
Norðnriands
Heimilisiðnarfélag Norður-
lands hélt aðalfund sinn á Ak-
ureyri 23. þ. m. Skýrslur fé-
lagsins sýndu, að veittur hafði
verið styrkur til 18 námskeiða
á liðnu ári og til þess varið kr.
1390,00. Stjórn félagsins skipa
frú Elísabet Friðriksdóttir, Jón
Jónatansson, Bernhard Laxdal,
Magnússína Kristinsdóttir og
Guðrún Ólafsdóttir.
Sprengingin við Róm.
Það var opinberlega tilkynt
í gærkveldi í Róm, að 9 menn
hefðu farist við sprenginguna,
sem átti sér stað í hergagna-
verksmiðju um 30 enskar mil-
ur fyrir utan horgina í gær.
— Þetta er tala þeirra, sem
fundist liafa líkin af, en þeir,
sem voru sjónarvottar að at-
burðinum, fullyrða, að 50
mann, að minsta kosti, liafi
farist. í hinni opinberlegu yfir-
lýsingu er sagt, að um 200
manns hafi særst, en aðrar
fregnir herma, að þeir séu á
fjórða hundrað.
Ljósmyndarafélag Islands
hélt aðalfund sinn síðastlið-
inn föstudag. — í stjórn félags-
ins cru: Ólafur Magnússon, Carl
Ólafsson og Þorleifur Þorjeifs-
son og fulltrúi í Iðnráði er Sig-
urður Guðmundsson. Félagið
var stofnað 1926 og er stéttar-
félag ljósmyndara hvar'sem er
á landinu. Félagið vinnur að
hagsmunamálum Ijósmyndara
og gegn öllu, sem brotið getur í
bága við hagsmunasamband
þeirra. Félagið hefir á undan-
íörnum árum komið i fram-
kvæmd ýmsum áhugamálum
og kjarabótum fyrir stéttina og
má þar til nefna: Sameiginlegt
verðlag á myndum og lokunai’-
tíma í vinnustofum. Sérstaklega
hefir félagið vakandi áhuga á
þvi, að framfylgt sá ákvæðum
Iðnlaganna, gagnvart atvinnu-
réttindum lærðra Ijósmyndara.
(FO).
Samandregnar fréttir
Mesta skipaútgerðarborg Norð-
urlanda.
Seinuslu siglingamálaskýrsl-
ur leiða i ljós, að Oslo er nú
mesta skipaútgerðarborg Norð-
urlanda með 1.613.000 smálest-
ir brutto. Þar næst kemur Berg-
en, Ivaupmannahöfn, Gauta-
borg, Tönsberg, Stokkhólmur,
Haugasund, Stavanger, Sande-
fjord og Arendal. NRP—FB.
50 ÁRA STARFSAFMÆLI
HERSINS í OSLÓ.
Fimtíu ára starfsafmæli
Sáluhjálparhersins i Oslo var
hátíðlegt lialdið í gær með sam-
komu í samkomusal Háskólans„
Meðal viðstaddra voru lconungs-
hjónin, Olafur konungsefni og
Martha krónprinsessa, Ny-
gaardsvold forsætisráðherra og
kirkjumálaráðherrann, Kirkju-
málaráðherrann fluttí ræðu og
óskaði Hernum til liamingju
með afmælið og blessunar í
framtiðinni. NRP. — FB.
Furuseth, Bandarikjamaður
af norskum ættum, fyrrum for-
seti Alþjóðasjómannasambands-
ins, er látinn í Washington, 84
ára að aldri. Sjöfartstidende,
sem skrifar um lát hans, segir
að hann hafi verið mesti sjó-
mannaleiðtogi, sem uppi hafi
verið nokkuru sinni. Enginn
liafi gert sjómannastéttinni líkt
því eins mikið gagn og hann.
— Koht utanríkismálaráðherra
hefir simleiðis heðið norska
sendiherrann í Washington að
færa amerísku sjómannafélög-
unum samúð Norðmanna i til-
efni af fráfalli Furuseths. —
NRP. — FB.