Vísir - 01.04.1938, Blaðsíða 2
V I S I R
VlSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Austurstræti 12.
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn '4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Ávarp.
ÆslNS og getiö var um i Vísi
i gær, tek eg við ritstjórn
blaðsins frá og með deginum
í dag að telja.
Páll Steingrímsson hefir,
sökum langvarandi heilsu-
brests, látið af ritstjórnarstörf-
um, og er mér það tjóst, að
sæti hans verður ekki auð-
skipað.
Páll hefir starfað við blaðið
í nálega lft ár, á breytinga og
byltingatímum, og að ýmsu
Páll Steingrímsson.
leyti þeim erfiðustu, sem yfir
land þetta hafa gengið. Með-
an að hann var heitl heilsu,
helgaði hann blaðinu óskifta
krafta sína og vann því vin-
sældir og álit. Enginn íslensk-
ur blaðamaður mun hafa skrif-
að fegurra né hreinna mál, og
munu það allir mæla, er til
þekkja. Stjórnmálaftutningur
og fréttaburður blaðsins und-
ir stjórn Páls Steingrímssonar
hefir einnig haft á sér annan
blæ, en tíðkast hefir hjá ýms-
um þeim blöðum, sem fremst
hafa staðið í sókn og vörn.
Ilefir þar gætt frekari sann-
girni, en sumir aðrir blaða-
menn hafa talið sér hæfa, en
einmitt þeirra hluta vegna hef-
ir Vísir unnið sér traust og not-
ið frelcara álits en önnur blöð,
hjá stórum hóp manna.
Á hinum síðustu og verstu
tímum, er utanaðkomandi ráð-
stafanir hafa gert allan blaða-
rekstur erfiðari en áður, og
heilsuleysi ritstjórans hefir
bæst þar ofan á, hefir reynt
á vinsældjr blaðsins, en það
hefir staðið af sér alldn öldu-
gang og ágjafir og ber fyrst og
fremst að þakka það Páli
Steingrímssyni, vinsældum
hans og trausti.
Þeir, sem blaðinu standa
næstir, kveðja Pál Steingríms-
son með óblandinni efíirsjá og
þakklæti, og hefðu kosið að
krafta hans mætti lengur njóta
heillra og ólamaðra.
Að þessu sinni hefir það
orðið mitt hlutskifti, að hefj-
ast handa, þar sem lxorfið var
frá, og vildi eg gjarnan eins
vel gera og Vísir verðskuldar.
Þótt tímarnir séu viðsjálir og
erfiðleikar á öllum sviðum
vona eg, að þetta elsta og vin-
sælasta dagblað tandsins megi
undir minni stjórn njóta vin-
sælda Páls Stcingrímssonar og
mun eg þá vel við una.
Tímarnir hafa breyst og
mennirnir með. Við ístending-
ar höfum komist í náið sam-
band við umheiminn, og lifum
og hrærumst í þeim atburðum,
sem slce í dag. Blöð verða að
uppfylla kröfur tímanna og
haga sér samkvæmt því, ef þau
eiga að verða hér eftir sem
hingað til leiðandi afl í hverju
þjóðfélagi.
Eg vil leitast við, eftir því
sem efni standa til, að verða
við kröfum lesendanna, og er
það óslc mín og von, að sam-
band blaðsins og þeirra verði
sem nánast og vinsamlegast.
Kristján Guðlaugsson.
ERLEND VÍÐSJÁ;
MAÐURINN, SEM BJARGAÐI
NANSEN.
Nýlega er látinn í London einn
af kunnustu „ævintýramönnum"
Breta, „Norðurpóls-Jackson" kall-
aður oft og tíSum. Daily Mail,
sem minnist hans í tilefni af and-
látinu kallar hann „manninn, sein
bjargaöi Nansen“. Jackson átti
heima í fljótsbát á ánni Thames
og lá báturinn viö festar hjá Vaux-
hall Bridge. Frederick G. Jackson
majór var 77 ára að aldri, er hann
lést i örmum konu sinnar, Margu-
erite, en bát sinn nefndi hann
sama nafni. Jackson var forystu-
niaður hins svo kallaða Jacksotf—
Harmsworths leiðangurs, sem á
árunum 1893—1897 fór margar
feröir til Franz Jósefslands og aö
lokum gerði tilraun til þess aö
komast til noröurheimskautsins. í
leiöangrinum voru 33 menn og
r.efndist skip þeirra Windward.
Höfuðtilgangur þeirra var aö
framkvæma rannsóknir á Franz
Jósefslandi og gera uppdrátt af
því. Þegar leiðangurinn var í norð-
urhöfum var Nansen að leitast við
að komast til norðurheimskauts-
ins í skipi sínu „Fram“. Var til-
gangurinn aö láta skipið reka með
ísnum til heimskautsins. Gekk svo
i sjö mánuði, uns Nansen og félagi
hans, Johansen, yfirgáfu skipið og
héldu norður á bóginn fótgang-
andi. Neyddust þeir, eftir mikla
erfiðleika, til að setjast að á eyju
nokkurri, frá því í ágúst 1895 þar
til í maí 1896. Ætluðu þeir þá að
komast til Spitzbergen, en Jack-
son, sem hafði séð til ferðar
þeirra frá bækistöð sinni á ísnum,
bjargaði þeim. Nansen gleymdi
aldrei Jackson 0g gaf landi, sem
hann fann, nafnið Fredrick Jack-
sons Land.
Margar sögur eru sagðar af því,
er Jackson komst í hann krappan.
Eitt sinn skaut hann á bjarndýr,
er hann var á Franz Josefs landi,
en særði það aðeins. Bjarndýrið
æddi að honum og ætlaði að rífa
hann í sig, en Jackson rak þá
byssuskeftið í gin bjarndýrsins og
drap það og bjarga'ði þannig lífi
sínu.
Stjðrsarskr ár-
brajtiog í Noregi
Osló, 31. mars.
Utanríkismálanefnd stór-
þingsins hefir einróma lagt til,
að samþykt verði tillaga til
breytingar á stjórnarskránni,
en tillagan er borin fram af
Henrik Ameln, og er þess efnis,
að kjörtímabilið verði lengt úr
3 í 4 ár. Leggur nefndin til, að
ríkisstjórnin beri fram frum-
varp um þetta efni. (NRP.-FB.).
Vörn stjornarhersins við Lerida er
afar hörð. Uppreistar-
menn ganga i gildru.
JafnaðarmanBastjörnlB
norska helmtar geroar-
dím í vegaviinudelln,
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Frá Barcelona herma fregnir, að vörn stjórnar-
hersins við Lerida sé afarhörð. Hefir þeim
enn tekist að verja borgina fyrir uppreistar-
mönnum, enda þótt foringjar þeirra í Salamanca hafi
hvað eftir annað sagt, að þeir hafi umkringt borgina.
I gær létst stjórnarherinn hafa yfirgefið borgina og
voru þó 15 þús. þeirra faldir í húsunum við aðalgöt-
urnar. Fjörutíu bryndrekar Francos, ásamt með fót-
gönguliði héldu þá inn í borgina. Stjórnarsinnar létu
alla fylkinguna komast í gott skotfæri, áður enþeirhófu
hina ægilegustu skothríð með hríðskotabyssum, hand-
sprengjum og fallbyssum, sem eru sérstaklega ætlaðar
til að granda bryndrekum. Mannfall varð afskaplegt í
liði uppreistarmanna, er þeir voru gengnir í þessa
gildru, en þeir komust þó út úr borginni aftur.
Um sama leyti hófu stjórnarsinnar sókn á Guadala-
jaravígstöðvunum og náðu smáborginni Ablandes úr
höndum uppreistarmanna. Þessi sókn er augsýnilega
gerð í þeim tilgangi, að fá uppreistarmenn til að flytja
meira lið þangað og þá veikja sókn sína við Lerida og
Kataloniu yfirleitt.
Hinsvegar segir í skeyt-
um frá Saragossa, að upp-
reistarmenn hafi næstum al-
gjörlega umkringt Lerida og
láti stórskotahríðina ganga
látlaust yfir borgina. Segir
auk þess í þeim fregnum, að
eldur sé kominn upp víðs-
yegar í borginni.
United Press.
300 kílómetra víg'lína.
Berlín 1. april. FÚ.
Víglínan í Aragóníu er nú um
300 km. á lengd og nær frá
Pyrennealandamærunum, rétt
austan við Jaca, til norðurliluta
Castiliuhéraðs. Norðan við
(Mspe segjast uppreistarmenn
vera komnir í 50 km. námunda
við Miðjarðarhaf. Frá Alcaniz
hafa þeir sótt fram alt til Ianda-
merkja Tarragónahéraðsins, og
má sjá Miðjarðarhaf frá þeim
stöðvum.
Flugvélar vörpuðu í gær milj-
ónum flugrita yfir Barcelona,
þar sem fólkið var livatt til að
gefast upp.
, HOOVER OG UTANRÍKIS-
( MÁL BANDARÍKJA.
r Einkaskeyti til Vísis.
London í morgun.
UERBERT HOVER, fyrver-
j ** andi forseti, hélt ræðu í
gær fyrir utanríkismálanefnd
Bandaríkjanna. í ræðu sinni
varaði hann nefndina við því,
að taka höndum saman við
stórveldin í Evrópu, eða eins
og hann orðaði það: Ganga í
varnarbandalag við Frakka
og Breta, sem gæti leitt til
f jandskapar við ítali og Þjóð-
verja.
United Press.
GULNES-MÁLIÐ.
Settur sendiherra spænsku
lýðveldisstjórnarinnar í Osló
hefir afhent Kolit, utanríkis-
málaráðherra ávísun að upp-
hæð kr. 167.782 kr. í skaðabæt-
ur til sjómanna þeirra, sem
urðu fyrir tjóni, er loftárásin
var gerð á norska skipið Gulnes
í spænskri höfn i desember
1936. — NRP—FB.
Meiri hluti sveitar- og bæjar-
stjórnarnefndar stórþingsins
hefir lýst sig mótfallna tillögu
ríkisstjórnarinnar um skipun
gerðardóms til þess að leiða
vegavinnudeiluna til lykta.
Meiri hluti nefndarinnar er
þeirrar skoðunar, að stórþingið
eigi ekki að leggja vald það,
sem það liefir í launadeilumál-
um, í hendur gerðardómstóls,
því að það geti haft álirif, að þvi
er snertir aðra verkamenn og
starfsmenn ríkisins. Vinstri
flokkurinn leggur til, að skipuð
verði nefnd til þess að taka deil-
una til athugunar, og verði nið-
urstaða hennar lögð fyrir stór-
þingið. Bændaflokkurinn hefir
lýst sig fylgjandi tillögu vinstri-
flokksins. Er málið rætt í stór-
þinginu í dag. Mörg blöð, sem
gera málið að umtalsefni, búast
við, að ríkisstjórnin muni gera
það að fráfararatriði.
(NRP.-FB.).
STYRJALDARAÐILAR Á
SPÁNI FÁ HERNAÐAR-
RÉTTINDI.
London 1. april. FÚ.
Á fundi hlutleysisnefndarinn-
ar, sem haldinn var i London í
gær, var samþykt með meiri-
liluta atkvæða, að veita báðum
striðsaðilum á Spáni hernaðar-
réttindi þegar 10 þúsund sjálf-
boðaliðar hefðu verið fluttir á
brott frá Spáni, úr liði hvors
um sig. Bretar, Frakkar, Þjóð-
verjar og ítalir hafa fallist á
þessa tölu en Rússum finst hún
of lág.
Þá var einnig rætt um gæslu-
starf við landamæri Spánar og
þeirra Ianda, sem að því liggja.
Plymouth lávai’ður skýrði frá
því, að innan skamms yrði að
leggja niður alt gæslustarf
nema eitthvað breyttist. All-
margir meðlimir hlutleysis-
nefndarinnar hafa ekki greitt
tillag sitt til viðhalds gæslustarf-
inu, þar á meðal Bretland.
Berlín 1. apríl. FÚ.
Franz fursti af Lichtenstein
(smáríki við landamærin milli
Sviss og Austurrikis) hefir af-
salað sér tign sinni, 86 ára gam-
all, til handa Franz Jósef fursta.
FRANCO Á VlGSTÖÐVUNUM.
Er liin mikla sókn uppreistármanna hófst á Aragóníuvígstöðvun-
um var Franco hershöfðingi þar sjálfur með her sínum. Á myndinni liér
að ofan, er hann með einum kunnasta herforingja sínum, Varela, o. fl.
Síttaseijara atbent
farmannadeilan til
meiferOar.
■ , ;; r>-
® Camkomulagsumleitanir
■ 'y milli sjómanna annars-
vegar og Eimskipafélags-
ins og Skipaútgerðar ríkisins
hinsvegar, hafa staðið yfir und-
anfarna daga, og margir fund-
ir verið haldnir, án þess niður-
staða hafi íengist.
Samningar voru útrunnir á
miðnætti síðastliðnu, en vænt-
anlega kemur ekki til þess að
siglingar skipanna stöðvist. Um
það verður þó eigi fullyrt að svó
stöddu.
Samkvæmt því, sem Visir
frétti í morgun, hefir deila stýri-
manna við skipaútgerðirnar
verið afhent sáttasemjara til
meðferðar. Mun liann að líkind-
um boða aðila á sinn fund þegar
í dag. Auk stýrimanna er deilt
um kaup annara sjómanna á
skipunum, háseta, kyndara o. s.
frv. Er alls um fimm launa-
flokka að ræða og því eðlilegt,
að samkomulagsumleitanir taki
nokkurn tíma.
B. v. Seddon teklnn að
landhelgisveiðnm f MiB-
nessjð.
TTarðskipið Ægir tók togar-
* ann Seddon frá Grimsby
í Miðnessjó í gær. Var
togarinn að veiðum um tæpa
sjómílu innan landhelgi. Kom
varðskipið með togarann hing-
að í gærkveldi.
Réttarhöld hófust í morgun,
en dómur fellur síðar í dag..
Skíðamótið á
Siglufirði-
Jón Stefánsson vann
skiðabikarinn.
Síðasti liluti landsmótsins fór
fram í Hvanneyrarskál í gær og
var kept í slalom (400 m.
brekku). Sigurvegari varð Jón
Þorsteinsson úr Skíðafél. Siglu-
fjarðar og annar Rögnvaldur
(Ólafsson, Skíðafél. Siglufjarðar.
í Slalom-kepninni tóku þátt
10 félög, alls 29 menn. Þar af
voi’u 8 frá Siglfirðingi, 5 frá
Skf. Siglufjarðar, 1 frá K. R.,
1 frá Ármanni í Reykjavik og
annar frá Ármanni í Skutils-
firði, einn frá Skíðafélagi
Reykjavílcur, 6 frá Iþróttafélagl
Ólafsfjarðar, 1 frá Einherjum á
ísafirði, 4 frá K. A. og einn frá
Knattspyrnufél. Þór.
Þessir fimm urðu hlutskarp-
astir í kepninni um skíðabikar
íslendinga (samanlögð stiga-
tala fyrir göngu og stökk):
1. Jón Stefánsson (Skf. Siglu-
fjarðar ,........ 427.5 st.
2. Ketill Ólafsson (Sldðafélag
Siglfirðingur) . . . 423.6 st.
3. Ásgr. Kristjánsson (Sldðaf.
Siglfirðingur) ... 420.3 st.
4. Rögnv. Ólafsson (Skíðafél.
Siglufjarðar) .... 414.6 st.
5. Þorkell Benónýsson (Sldða-
fél. Siglufj.) ... 412.95
Jón Stefánsson varð fimti f
18 km. göngunni á 1 st. 42 mín.
23 selc. En í stökkkepninni stökk
hann 33 mtr. í bæði skiftin. Á
Thule-mótinu hér fyrir sunnan
varð Jón annar í stökkinn.
aðeins Loftup.