Vísir - 06.04.1938, Qupperneq 3
- VlSIR
,
Bloðy^lurnar a. Frani'
sókn.ar'ilolzkxiiixxi..
Bænd&fulltrúarnir styðja útgáfn Þjóð-
viljans og landLpáðastarfsemi kommúnista.
f síðustu Alþingiskosningum
háði Sjálfstæðisflokkurinn
harða baráttu úti um bygðir
landsins, við rauða liðið sam-
einað. Þar, sem rauðu flokkarn-
ir þrír voru i kjöri körpuðu þeir
að vísu lítið eitt sín á milli um
það, hvort kommúnistar styddu
Framsókn eða ekki í kosning-
unum, og var þá sagan sú, að
framsóknarmennirnir afneit-
uðu í gríð og ergi ,en kommún-
istarnir nudduðu sér upp við
þá eins og lúpulegir hundar.
Stundum fór það svo, að full-
trúar framsóknar urðu þreytt-
ir á að afneita og viðurkendu
það hreinlega að þeir nytu í
ýmsum kjördæmum stuðnings
kommúnistanna og þökkuðu
fylgið. Má fullyrða að úti um
bygðir landsins hafi þetta sam-
starf vakið megna óánægju
meðal gætnari framsóknar-
manna, þótt þeir að þessu sinni
segðu sig ekki úr lögum við
flokkinn.
Eins og kunnugt er urðu úr-
slit kosninganna þau að fram-
sókn og sósíalistar fengu nægi-
legt þingmannalið til að sitja
áfram að völdunum, án stuðn-
ings kommúnistanna innan
þingsins.
En gjöf skal gjaldast, ef vin-
átta á að haldast, og framsókn
hlaut að launa kommúnistum
stuðninginn. Eins og kunnugt er
gefa kommúnistar út blað hér
í bænum, sem kallast Þjóðvilj-
inn. Er það aðallega gefið út til
að lofsyngju múgmorðin í
Rússlandi, og sanna það þjóð-
inni, að þar í landi liafi síðustu
20 árin setið að völdum einhver
einstakasti glæpalýður, sem sög-
ur fara af. Þar sem blaðið er
stutt af Moskvastjórninni talar
það að sjálfsögðu máli Stalins
og lofsyngur múgmorðin. Hinn
erlendi styrkur einn nægir hins-
vegar ekki til að halda blaðinu
úti, og hafa þvi forystumenn
kommúnista fengið styrk úr
annari átt til blaðaútgáfunnar.
í Þjóðviljanum 3. mars er grein-
arkorn um vinsældir blaðsins,
en þar segir svo:
„.... Traust * blaðsins hefir
ekki verið bundið við Kommún-
istaflokkinn einan. Fjöldi
manna, bæði í Alþýðuflokknum
(og það meira að segja í hópi
þeirra manna, sem Alþýðublað-
ið myndi telja til hægri manna
flokksins) og framsóknar-
flokksmenn hafa séð nauðsyn
þess, að Þjóðviljinn geti komið
út framvegis og unnið áfram
að því marki, sem hann hefir
unnið að að undanförnu. Þessir
menn hafa slegið skjaldborg
um Þjóðviljann og stofnað með
sér félagsskap í því skyni.“
Frekar þarf ekki vitnanna
við.
Sumir hægri menn Fram-
sóknarflokksins hafa réttilega
haldið því fram, að starfsemi
kommúnista hér á landi væri
hrein landnáðastarfsemi, sem
gjalda bæri varliuga við, og
þóst vera allir af vilja gerðir til
að halda þessum mönnum niðri.
Ef þessir menn meina eitthvað
með slíkum ummælum, stuðlar
vinstri armur flokksins — rauð-
flekkóttu mennirnir — að því
að hinir ala snák við barm, sem
getur orðið framsókn skeinu-
liættur.
Aðstaða Framsóknarflokks-
ins er þannig, að enginn getur
mikils vænst úr þeirri átt. Með-
an sósíalistar áttu fulltrúa í rík-
isstjórninni og töldu sér það
lífsnauðsyn, var aðstaða fram-
sóknar miklu sterkari en hún er
nú, þegar sósíalistar liafa dregið
fulltrúa sinn út úr rikisstjórn-
inni.
Nú eru það sósíalistar, sem
hafa ráð ríkisstjórnarinnar í
hendi sér, og líf hennar verður
ekki selt litlu verði. Framsókn-
arflokkurinn hefir á sér tvær
blóðyglur, sósíalista og komm-
únista. Blóðtakan er þegar orð-
in það tilfinnanleg, að Fram-
sóknarflokkurinn er gersamlega
magnþrota og getur enga
storma staðið af sér. Blóðygl-
urnar eru orðnir hlutir af lík-
ama flokksins og nærast á hans
kostnað, og þótt framsókn vilji
undir og niðri losa sig við þá er
þetta ófénaður, sem þeir eru
vanir, og svo má illu venjast að
gott þyki.
Karlakórinn
Fóstbræður.
Samsöngur í Gamla Bíó í gær.
Ef til vill hefir aldrei lieyrst
hér glæsilegri karlakórssöngur
áður , ef undan er tekinn söng-
ur sænska stúdentakórsins, sem
hér var fyrir tveim árum, vel
að merkja, eins og sá kór söng
þá fyrsta kvöldið, þvi hin kvöld-
in var söngur kórsins lakari, af
skiljanlegum ástæðum (veislur,
dansleikir).
Um „Fóstbræður“ (áður karla-
kór K. F. U. M.) hefi eg oft rit-
að áður. Eg hefi minst á hina
björtu tenóra, mjúku og hljóm-
fögru bassa, og tæra kórhreim.
Áður var jafnvægið milli radd-
anna ekki nóg, þvi það var yfir-
vigt í tenórröddunum. En nú
rikir hið besta jafnvægi milli
raddanna, enda hafa kórnum
bæst nýir söngkraftar, aðrir far-
ið o. s. frv. Raddgæðin í kórn-
um er eins og best verður kosið;
þar er valinn maður í hverju
rúmi. Kórinn hefir á valdi sínu
mjög veikan og mjúkan söng,
hinn blíða blæ í söngnum og
karlmannsþrótt, og hin mörgu
styrkleikastig þar á milli. Af
þessu er ljóst, að kórnum má
líkja við gott hljóðfæri.
Jón Halldórsson söngstjóri er
sérlega vandvirkur og nákvæm-
ur. Hljóðfallsvitund hans er sér-
lega þroskuð og leggur hann
mjög mikla áherslu á þetta at-
riði í söngnum. „Ohne Rythme
keine Musik“, segja Þjóðverjar.
Án hljómfalls engin músilc. Við
íslendingar höfum yfirleitt
slappari liljómfallsvitund en
margar aðrar þjóðir. Það px
sjálfsagt vegna þess, að lengi
var harmoníum úthreiddasta
hljóðfærið hér á landi. En þegar
hljóðfallið er slapt, kemur held-
ur ekki fram göfgi og tign í
söngnum. Um meðferðina á
söngnum af söngstjórans hálfu
er það að segja, að þar gætti list-
rænna tilþrifa, og mörg lögin
voru þannig sungin, að hvorki
var á blettur né hrukka (t. d.
„Sólrún og Hringur“, „Yndið
mitt“ o. f 1.).
Á söngskránni voru 16 lög,
þar af 12, sm ekki hafa verið
sungin hér áður. Söngstjóranum
hefir verið legið á hálsi fyrir
að láta kórinn syngja sömu lög-
in frá ári til árs. En þetta er
rangt. Bæði í fyrra sumar og
elns núna voru flest lögin alveg
ný. Ennfremur hefir söngstj.
verið legið á hálsi fyrir að velja
lög, sem ekki ganga í fólkið.
En sannleikurinn er sá, að þeg-
ar hann velur lög handa kórn-
um, þá miðar hann ekki við
það, sem sá getur rnelt úr fyrstu
heyrn, sem ekki hefir tamið
söngsmekk sinn. Hann miðar
eldvi við óþroskaðan smekk
fjöldans, heldur við mentaðan
músiksmekk, og þeim fjölgar
stöðugt, sem taka slík lög fram
yfir hin. Eg ætla ekki að telja
hér upp lögin, en mörg þeirra
voru perlur. Þó vil eg minnast á
nýtt lag eftir Sigfús Einarsson,
„Ingólfs bær“, texti eftir Einar
Benediktsson. Sjálft tónskáldið
stjórnaði söngnum, þegar þetta
lag var sungið. Varð að endur-
taka það.
Einsöngvarar kórsins voru
Einar Sigurðsson, sem söng
baritónhlutverk í skoska lag-
inu alþekta „Loch Lomond“. —
Röddin er hreimfögur og all-
mikil og hlaut söngur hans á-
gætar viðtökur, svo að endur-
taka varð lagið. Eins fór, er
hassasöngmaðurinn Amór Hall-
dórsson söng einsöngshlutverk-
ið í liinu undurfagra lagi „Sáv,
sáv susa“, eftir Karl Wohlfart.
Mikil hrifning var rneðal á-
lieyrenda, en liúsið var fullsetið,
og varð kórinn að endurtaka
mörg lögin og syngja tvö auka-
lög. Söngstjóranum var mikið
fagnað og hlaut marga blóm-
vendi. B. A.
Skólasel Mentaskðlans.
Eins og lesendum Vísis mun
kunnugt hafa nemendur Menta-
skjlans unnið að því, að koma
sér upp skólaseli austur í Ölfusi
í vetur. Var vinna við selið haf-
in þ. 21. september s.l. og er nú
svo langt komið, að verið er að
leggja hitalögn í húsið. Vísir
hefir áður flutt ítarlega lýsingu
af því.
Á morgun munu nemendur
Mentaskólans hefja sölu á happ-
drættismiðum í fjársöfnunar-
skyni fyrir skólaselið. Það mmi
kosta fullgert 35—37 þús. kr.,
en búið er þegar að safna um
20 þús. og liafa nemendur safn-
að þvi fé.
Vinningar í happdrættinu eru
10 og hver öðrum betri og gagn-
legri. Fyrsti vinningurinn er far
lil Kaupmannaliafnar, báðar
leiðir, og 300 kr. í erlendri
mynt. (Sá vinningur einn er um
600 kr. virði). Annai’ vinningur
er útvarpstæki, 3. vinn. viku-
dvöl að Laugarvatni í júlímán-
uði, fjórði saumavél, fimti
hundrað kr. í peningum, sjötti
3 smál. af kolum, sjöundi raf-
suðuvél, áttundi skiði, niundi
málverk eftir Finn Jónsson og
tiundi vinningurinn er oliu-
tunna. Alls munu vinningarnir
vera meira en tveggja þúsunda
króna virði.
Er þess að vænta að Reykvík-
ingar taki þeim vel á morgun,
nemendunum í Mentaslcólanum,
þegar þeir bjóða miðana til
sölu.
IRADDIR
frá Iesöndunum. I
GUÐMUNDUR GÓÐI
OG ÞJÓÐVILJINN.
1 blaði því er Rússar gefa út
hér í bænum er greinarkorn
þar sem reynt er að fetta fingur
út í síðasta útvarpserindi próf.
Guðbrands Jónssonar, sem var
um Guðmund góða, biskup. —
Trúarlegar deilur um þetta mál
mun eg leiða hjá mér, enda þótt
eg efist ekki um það, að liollara
muni að trúa á hinn blessaða
Gvend góða en morðvargana
Stalin & Co., eða hvað þeir
nú heita þessir hálfviltu Slavar
austur þar. —- En hitt var, að
eg vildi fræða blaðið um það,
að próf. G. J. er vafalaust ein-
hver vinsælasti maður er nú
flytur erindi í Útvarpið og er
það svo um alt land. Hann hefir
nefnilega flesta þá kosti, sem
þarf til þess, sem sé: Hann talar
skýrt og greinilega, hann er
allra manna fróðastur og vand-
ar vel undirbúning erinda sinna.
Hann er algerlega ópólitískur í
málflutningi sinum og lætur
dægurþras engin áhrif hafa á
skoðanir sínar á málum þeim
og þjóðum er hann ræðir um.
Að því Ieyti er hann, auðvitað,
ótækur í þeirra eyrum, sem
aldrei geta ómalandi verið um
pólitík og nota hvert tækifæri
til þess að hæla sínum mönnum
en ata andstæðingana út í aur
loginna og lubbalegra getsaka.
Eg tel mikið happ fyrir Ut-
varpshlustendur ef próf. G. J.
heldur áfram að flytja erindi í
Utvarpið, því ópólitískt lituð er-
indi frá útlöndum eru fremur
sjaldgæf frá Jíeirri stofnun —
því miður.
Þorst. Jónsson.
Bcbjop
fréttír
Föstumessa
í fríkirkjunni í kveld kl. 8%:
Prófessor Ásmundur GuSmunds-
son prédikar.
Föstuguðsþjónusta
í dómkirkjunni í kveld kl. 8.15,
síra Fri'örik Hallgrímsson.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 2 stig; mestur hiti
í gær 6 stig, minstur i nótt 2 stig.
Úrkoma í gær 0.8 mm. Sólskin í
o.2 stundir. — Heitast á landinu í
morgun 5 stig, í Papey, kaldast —1,
stig, í Bolungarvík. Yfirlit: Læg'S
fyrir norðan og norSaustan land á
hreyfingu austnorSaustur. Grunn
lægð yfir Grænlandshafi. Horfur:
Faxaflói: Vestanátt með allhvöss-
um eljum eSa slyddu.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er í Reykjavík. GoSa-
foss fer frá Grimsby í dag, áleiS-
is til Hamborgar. Lagarfoss er í
Kaupmannahöfn. Brúarfoss er á
leið til Leith frá Kaupmannahöfn.
Dettifoss er viS NorSurland.
Bæjarstjómarfundur
verSur á morgun kl. 5 í Kaup-
þingssalnum. Á þar m. a. að kjósa
tvo inenn í fasteignamatsnefnd og
tvo menn til aö framkvæma fast-
eignamat.
Gæfta- og aflaleysi.
Gæftir hafa veriS mjög slæmar
aS undanförnu. Togararnir flestir,
sem á þorskveiöum eru, hafa veriö
úti 10 daga eöa vel þaö sumir, en
aö eins 3 komnir af veiöum. En
eigi er eingöngu slæmum gæftum
um aö kenna. Sjómönnum ber
saman um, aö fiskur sé lítill á tog-
aramiöum. Færeyingar, sem inn
hafa komiö, hafa sömu sögu að
segja. Afli á skip hjá þeim aö eins
2000—3000 fiskar.
Höfnin.
Otur kom af ufsaveiðum í morg-
un meö dágóöan afla. Bragi kom
af þorskveiöum í gær með 76 föt.
Kolaskipið Felix fór í gær.
an
Minn hjartkæri sonur,
Jón Straumfjörd Ólafsson,
andaðist i gær.
Þóra Björnsdóttir, Hverfisgötu 83.
Frú Ásthildur Thorsteinsson
verður jarðsungin föstudaginn 8. þ. m. og liefst atliöfnin kl.
1 e. h. í dómkirkjunni.
Aðstandendur.
Jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður,
Guðmundar Guðmundssonar,
Njálsgötu 16, fer fram frá frikirkjunni og hefst með hús-
kveðju á heimili hans fimtud. 7. apríl kl. 1 e. h.
Kransar afþakkaðir. —
Dagbjört Jónsdóttir,
Guðm. Guðmundsson. Guðlaug Grímsdóttir.
Engilbert Guðmundsson. Ebba Jónsdóttir.
Karlakór Akureyrar
hélt söngskemtun í Flensborgar-
skólanum í fyrrakveld við húsfylli
og ágætar viðtökur og endurtók
mörg lögin, Að söngnum loknum
ávarpaöi Stefán Jónsson, formað--
ur söngkórsins Þrastar í Hafnar-
firði, söngstjórann, Áskel Snorra-
son, og kórinn og þakkaði honum
komuna. (FÚ.)
Heimdallur.
Aðalfundur félagsins verður í
kveld í Varöarhúsinu og hefst kl.
8jú. Jóhann G. Möller mun fyrst
ræöa um stjórnmálaviðhorfið á
Alþingi, en síðan verður gengið til
aðlfundarstarfa.
Gamla Bíó
hefir sýnt nokkrum sinnum
myndina „Við kyntumst í París“
og hefir hún þótt fjörug og skemti-
leg. Aðalhlutverkin leika Claudette
Colbert, Robert Young og Melvyn
Douglas.
Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir stórkost-
lega ameríska kvikmynd, er nefnist
„Horfin sjónarmið" og gerist hún
að mestu leyti i dal einum i Tibet.
Leikurinn er ágætur, en sviðsetn-
ing og taka myndarinnar gefa hon-
um ekkert eftir. Aðalhlutverkin
leika Ronald Colman, Jane Wyatt,
Margo, John Howard o. fl.
Póstferðir
fimtudaginn 7. apríl: Frá Reykja-
vík: Mosfellssveitar-, Kjalarness-,
Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Esja vestur um í
Hringferð og Lyra til útlanda.
Fagranes til Akraness. — Til
Reykj avíkur: Kjalarness-, Kjósar-,
Reykjaness-, ölfuss- og Flóapóst-
ar. Fagranes frá Akranesi.
íþróttasamband lslands
hefir skipað Iþróttaráð Austur-
lands þannig: Sira Marinó Krist-
insson, Vallanesi, formann; Ásgeir
Einarsson, dýralækni varaformann,
Thulin Johansen kaupmann Reyðar-
firði, Þórarinn Sveinsson, iþrótta-
kennara, Eiðum, og Þórarinn Þór-
arinsson, kennara, Eiðum (F.Ú.).
Áheit
á Hallgrímskirkju í Saurbæ, af-
hent Vísi: 10 kr. frá X-þY, gam-
alt áheit.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá J. ÍB„ 5
kr. frá í. S„ 10 kr. gamalt áheit.
Góðtemplarafundurinn,
sem stúkurnar Morgunstjarnan
og Daníelsher héldu síðastl. mánu-
dagskveld, var fjög fjölsóttur. Auk
félaga þessara stúkna, sóttu og
fundinn embættismenn stúlkunnar
Frón, hér í bænum, og nokkurir
fleiri gestir. Fundinum stýrði Gísli
Sigurgeirsson, verkstjóri, og flutti
hann ávarp, er fundur hafði verið
settur eftir siðum og venjum góð-
templara. Meðal annara ræðu-
manna voru: Fyrir hönd st. „Frón“
Ludvig C. Magnússon, skrifstofu-
stj., f. h. st. .„„Daníelsher" Krist-
inn Magnússon, málaram., og f. h.
st. „Morgunstjarnan“ Sigurgeir
Gíslason, verkstjóri. —Að loknum
fundi hófst skemtisamkoma og lagði
stúkan Frón til skemtikrafta. Fund-
ur þessi var hinn áhrifaríkasti og
þeim, er að honum stóðu, til mik-
ils sóma.
Hestamannafélagið Fákur
hélt aðalfund sinn fyrsta þessá
mánaðar. Varaformaður félagsins,
Björn Gunnlaugsson, setti fundinn
og stýrði honum. Mintist hann for-
mannsins, Daníels Daníelssonar,
sem látist hafði á árinu, en hann
hafði verið formaður félagsins frá
stofnun þess. Risu fundarmenn úr
sætum, til virðingar við minningu
hins látna formanns. Stjórn félags-
is skipa: Björn Gunnlaugsson for-
maður, Einar E. Sæmundsen ritari,
dr. Björn Björnsson gjaldkeri, en
meðstjórnendur eru Sigurður
Gíslason og Þorgrímur Guðmunds-
son. Varaformaður var kosinn
Matthías Matthíasson. (FÚ.)
Hafnarfjarðartogararnir.
1 gær komu til Hafnarfjarð-
ar af veiðum: Sindri með 111
föt lifrar, Júpíter með 80 föt
— og Rán með 52 föt lifrar eft-
ir fimm sólarhringa útivist. —>
(FÚ).
Happdrætti Háskóla
íslands
1 hverjum flokki, þegar
dregið er, gleyma nokkurir
menn að endurnýja og missa
þá oft af stórvinningum.
Það er hygginna manna
ráð að vera með frá byrjun,
þvi að menn geta í islenska
happdrættinu unnið mörgum
sinnum á sama miðann á ár-
inu.
I Frá starfsemi
happdrættisins.
43. Vildi ekki endurnýja.
í hitt eð fyrra kom það fyrir
um borð í togara daginn fyrir
drátt, að sjómenn voru að spyrja
hver annan, hvort þeír væru
búnir að endurnýja. Einn þeirra,
sem átti 3 miða, kvað sér standa
á sama, hvort liann endurnýjaði
eða ekki, hann ynni hvort sem
er aldrei. Daginn eftir komu tvö
númerin upp með vinninga og
misti hann þannig af 750 kr.
44. Bannaði barni sínu
að endurnýja.
Fyrsta árið, sem happdrættið
starfaði, bannaði kona ein i
Reykjavík barni sínu að endur-
nýja, því að ekkert ynnist, það
væri sama og að kasta pening-
unum á glæ. Miðinn var ekki
endurnýjaður, en kom upp með
5000 krónur.
Gleymið ekki að endurnýja.
Nú eru að eins þrír söludag-
ar eftir fyrir 2. flokk.