Vísir - 16.04.1938, Síða 2

Vísir - 16.04.1938, Síða 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F: Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Austurstræti 12. S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Lántakan. Erfiðleikar hafa orðið meiri á því að fá lán til hitaveitunn- ar en gert liafði verið ráð fyrir. Þegar borgarstjóri kom heim úr Englandsför sinni, í byrjun desembermánaðar s.I., var það talið fullvíst, að lánið niundi fást í Englandi. Leyfi breskra stjórnarvalda til lánveitingar- innar, var að vísu ófengið, en lánveitendumir töldu öllu ó- hætt um að það mundi fást al- veg á næstunni. En jafnvel þó að ekki fengist leyfi til að bjóða lánið út, eins og fyrirliugað var, þá var gert ráð fyrir, að lán- takan mundi eigi að síður geta komist í kring, en aðeins með öðrum hætti. — En þetta hefir nú farið á annan veg. Bresk stjórnarvöld hafa með afskift- um sínum af málinu komið al- gerlega í veg fyrir það, að lánið fáist í Englandi að sinni. Frá þesstnn málalokum hefir nú verið skýrt hér í blöðun- um, eftir heimkomu borgar- stjóra úr síðari utanför hans og samkvæmt frásögn hans sjálfs. Og eftir alla þá bið, sem orðið liafði á því, að endanleg svör fengist um það, hvort leyfi yrði veitt til lántökunnar í Englandi, komu þau málalok raunar eng- um á óvart. En hinsvegar er það öllum ljóst af sögu málsins, livílik endemisfjarstæða það er, sem nú er haldið fram í blöð- um framsóknarmanna og kommúnista, að þessi málalok hafi mátt sjá fyrir „þegar í des- emberinánuði“, og að borgar- stjóri og blöð sjálfstæðismanna hér í bænuin hafi visvitandi gefið almenningi „rangar upp- lýsingar um málið“. Þegar eftir heimkomu sína í desember lagði borgarstjóri fram í bæjarráði öll skjöl og skilríki, er níál þetta snertu, og fékk þau þar fulltrúuin minni- hluta bæjarstjórnar í hendur til athugunar. Var það ljóst af þeim gögnum, að lánveitend- urnir töldu engan vafa á því, að lántakan mundi komast í kring, og var það á engan hátt véfengt af andstæðingum borg- arstjóra í bæjarráðinu. En þeg- ar lengra leið frá, og farið var að grenslast nánara eftir því, hvað málinu liði, virtust lán- veitendurnir enn hafa hinar bestur vonir um að samþykki bresku stjórnarinnar til lánveit- ingarinnar mundi fást að lok- um. Og þegar borgarstjóri kom aftur til Lundúna, í febrúar- mánuði, gerðu þeir sér enn von- ir um að það mundi geta tek- ist, og héldu áfram að vinna að því. Þrátt fyrir það, að þeim var þá orðið kunnugt um að ráðunautar stjórnarinnar höfðu lagt á móti þvi. En ef lánveit- endurnir sjálfir, sem þessum hnútum voru kunnugastir, gátu gert sér vonir um það í febrú- arlok, að leyfið fengist, hvernig gat þá borgarstjórinn og aðrir liér heima séð það fyrir „þegar í desember“, að það mundi ekki fást? Það má að sjálfsögðu finna að því, að of lengi hafi verið þreytt við það, að fá lánið í Eng- landi, þar sem vitað var að þau vandkvæði voru á, að stjórnar- leyfi þurfti til lántökunnar og að það leyfi lá ekki alveg laust fyrir. Það hefir jafnvel verið fundið að því, að eklci skyldi þegar í upphafi hafa verið leit- að til Svíþjóðar, af því að þar mundi fyrirstaða hafa orðið miklu minni á því að fá lán, og féð jafnvel vera alveg til reiðu hvenær sem um það væri beðið. En á lántöku í Svíþjóð eru önnur vandkvæði, sem sið- ur koma til greina í sambandi við ensk lán, og var því ekki áhorfsmál að reyna fyrst til þrautar í Englandi. En eins og nú er komið, verður að sjálf- sögðu að reyna aðrar leiðir, enda hefir j>egar verið hafist handa um það. Skíöavikan á Isafipdi* Súðin fékk heldur slæmt veð- ur vestur aðfaranótt skírdags og um morguninn og var kom- ið til ísafjarðar kl. 4 um dag- inn. Höfðu margir verið sjó- veikir á leiðinni, en þegar kom- ið var til Isafjarðar voru menn ahnent búnir að jafna sig. Hálftíma eftir komuna vest- ur áltu allir að mæta við Góð- templaraliúsið og var mönnum skift í flokka, en vegna óhag- stæðs veðurs var ekki meira að- hafst þann daginn, nema um 20 Reykvíkingar komu sér fyrir í Birkihlíð. í gær var veður og færi sæmi- legt og héldu flokkarnir upp að Skíðheimum. Fóru þangað um 250 manns, þar af 120 Reyk- víkingar — en flokkarnir voru ellefu. I dag er ágætt veður, sólskin og nýr snjór og lítur vel út með framhald vikunnar. (Skv. símtali við fréttaritara Yísis á Skíðavikunni). fiíl stolið — ekið út af, Milli kl. 2 og 3 aðfaranótt skírdags var bíl stolið og hon- um ekið út af veginum fyrir sunnan Kennaraskóla. Á þeim tima sem að framan getur stóð bíllinn R 1235, ljós- brúnn Studebaker, fyrir utan Oddfellowhúsið. Hafði ökumað- urinn, sem ekki var eigandinn að þessu sinni, brugðið sér frá augnablik. Meðan hann var í hurtu kom þar að drukkinn unglingur og ók honum á brott. Ilélt liann suður Tjamargötu og yfir Tjarnarbrúna, en á leið- inni ók liann utan í bílinn nr. R 1098 frá Bifröst. Þótti bíl- stjóranum akstur R 1235 grun- samlegur auk þess sem bíllinn var ljóslaus. Tók hann þvi það ráð að fylgja honum eftir og þegar komið var rétt suður fyr- ir Kennaraskóla kom hann að bílnum út af. Hafði honum ver- ið ekið í grjótlirúgu, er stendur vinstra megin vegarins og skemdist hann mikið að neðan. Bílstjórinn á R 1098 ók bil- þjófnum niður að Aðalstöð — þaðan er R 1235 — en síðan hafði lögreglan tal af honum. Miaja gerOur eiuræOisherra rauOliOa á Spáni aO Kataioniu undantekiuui. Sókn jjjúðernissinna heldur áfram og stöðngur stranmur fldttamanna af svæöinu kring- nm Ebrofljót. Miaja. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Miaja hershöfðingi, sem frægur er fyrir hina löngu vörn sína við Madrid, hefir raunveru- lega fengið einræðisvald í hendur í þeim hluta Spánar, sem rauðliðar ráða yfir, að Kataloníu undan- tekinni. Bendir þessi ráðstöfun ótvírætt til þess, að nú þyki mikils við þurfa að gera alt sem hægt er, til þess að koma í veg fyrir sigur þjóðernissinna. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í gær. Miklar orustur voru háðar á skírdag á svæðinu milli Lajara og Vinaroz. Hefir stjórnarherinn hörfað úr Vinaroz. — Flug- lier þjóðernissinna gerði loftárás á ýmsa bæi á stönd Kataloníu í gærkveldi. Varpað var niður prentuðum miðum, sem á var letrað, að þjóðernissinnar mundu „fara í kirkjur í borgunum við Miðjarðarhaf á páskadaginn“. United Press. London, í morgun. Stjórnin í Barcelona hefir viðurkent í opinberri til kynningu, að þjóðernissinnar hafi náð Vinaroz á sitt vald. Hinsvegar seg- ir stjórnin í þessari tilkynningu sinni, að sókn þjóðernissinna hafi stöðvast skamt frá Winaroz, en einnig hafi árásum þeirra á Forcallsvæðinu verið hrundið. Þá er því haldið fram, að rauð- liðar haldi áfram sókn sinni nálægt Lerida fyrir sunnan Wall- fogona. Eru rauðliðar fjölmennari á þeim slóðum og neyddust þjóðernissinnahersveitirnar til þess að hleypa vatni á allstórt svæði til þess að hefta framsókn þeirra. Frá Tarragona berast fréttir um það, að stöðugur straumur flóttafólks sé á leið norður á bóginn, aðallega af svæðinu kring- um Ebrofljót. Fólkið streymir norður á bóginn úr öllum þorp- um í nánd við vígstöðvarnar og jafnvel úr þorpum langt fyrir norðan vígstöðvarnar. Óttast fólkið því, að þjóðernissinnar muni hertaka þarna stór svæði á næstunni. United Press. Chiang Kai-shek talinn hafa særst í loftárás sem gerð var á Changsa. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í gær. Ýmsar fregnir herrna, að Chiang-Kai-shek, yfirhershöfðingi kínverska hersins, hafi særst á báðum fótum, er Japanir gerðu loftárásir á Changsa þann 10. apríl. — Fulltrúi í utanríkismála- ráðuneytinu hefir svarað fyrirspurn frá United Press hér að lútandi á þá leið, að samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefði Chiang Kai-shek særst, er loftárásin var gerð á Changsa. Enn- fremur væri líklegt, samkvæmt sömu heimildum, að Soong fjármálaráðherra hefði verið þarna líka og hefði hann einnig særst. Fulltrúinn vildi ekki skýra frá því hverjar heimildir jap- önsku stjórnarinnar væru. — Stjórnin í Hankow neitar því, að Chiang Kai-shek og Soong hafi verið í Changsa þ. 10. apríl. — 1 United Press. Breska stj órnin semur viö amepiskar verksmiöj ur um fiugvélakaiip. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í gær. 1 tilefni af upplýsingum þeim, sem Winterton lávarður gaf í neðri málstofunni fyrir hönd bresku stjórnarinnar viðvíkj- andi flugvélakaupum í Bandaríkjunum og Canada, segir í fregn til United Press frá Ottawa, að breska stjórnin eigi í samning- um við að minsta kosti þrjár flugvélaverksmiðjur í Canada. Að því er United Press hefir fregnað hefir canadisku stjórn- inni verið tilkynt um samningaumleitanirnar, en hún mun ekki taka neinn þátt í þeim. — í yfirlýsingu þeirri, sem Winterton gaf í neðri málstofunni sagði hann, að breska stjórnin hefði í huga að leita aðstoðar Bandaríkjamanna og Canadamanna um flugvélakaup vestra í stórum stíl, en um þessar fyrirætlanir stjórnarinnar væri rætt allítarlega í skeyti frá United Press, og hverjar undirtektir þær hefði fengið í Bandaríkjunum, en am- eríska stjórnin hét Bretum, sem kunnugt er, að greiða fyrir þessu eftir því sem í hennar valdi stæði, og jafnvel láta flug- vélasmíðar handa Bretum sitja fyrir flugvélasmíðum handa ameríska hemum og flotanum. United Press. Hernaðarbandalag Frakka og Englendinga Bpesk-ítölsku samningarnir undir- ritaðir í dag. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í gær. Um leið og tilkynt er, að uppkastið að bresk-ít- alska samningnum verði birt jafntímis í Lon- don og Rómaborg á laugardag, birtir Daily Express í London fregn, sem vekur fádæma eftirtekt, um hernaðarbandalag milli Frakka og Breta. Það er að vísu svo, að af öllum er gert ráð fyrir, að Bretar komi Frökkum til hjálpar ef á þá yrði ráðist, og Bretar hafa margsinnis lýst því yfir sjálfir, og seinast Chamberlain í ræðu sinni á dögunum, en sú hernaðarlega samvinna, sem rnilli Breta og Frakka er eða verður í ófriði, á nú eftir því sem Daily Express segir, einnig að ná til alls hernaðarlegs undirbúnings á friðartímum, og verður raunverulega um hernaðarbandalag að ræða milli Breta og Frakka framvegis, jafnt á friðar sem ófriðartímum, ef samkomulag næst um þessi mál, er frakknesku ráð- herrarnir, Daladier forsætisráðherra og hermálaráð- herra, Chautemps og Bonnet, koma til London bráð- lega til viðræðna við bresku stjórnina. M. a. er ráðgerð full „teknisk“ samvinna milli her- foringjaráða Breta og Frakka, og yfirstjórnenda flota og flugliðs. Ef til ófriðar kemur verður sameinaði bresk-franski landherinn undir stjórn frakknesks marskálks, en breskur flugmarskálkur hefir með höndum yfirstjórn flugherja beggja þjóðanna. Þá er gert ráð fyrir því, ef til styrjaldar kemur, að frakkneski flotinn verði til varnar á vissu svæði, þar sem hagsmunum Breta kynni að vera hætta búin (í Miðjarðarhafi), en Bretar annarstaðar og hafi bresk herskip frjáls afnot af frakkneskum höfnum hvarvetna United Press. Starfsmaður anum játar á J árnbrautar- slys. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Cairo-fregnir herma, að átján menn hafi farist, en fimtán særst, er árekstur varð nálægt Suez milli járnbrautarlestar og vöruflutningabifreiðar, sem á voru margir verkamenn. I járn- brautarlestinni voru járnbraut- arlagnin^ga- og vegavinnumenn, sem eru að vinna að lagningu herflutningabrauta. United Press. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Blöðin í Rómaborg láta mikla ánægju í ljós yfir því, að bresk- ítölsku samkomulagsumleitan- irnar hafa gengið svo vel, sem reyndin varð, og að undirskrift getur farið fram þegar í dag. Mesagero segir, að samnings- gerðin marki tímamót í sögu álfunnar. Undanfarna mánuði bafi sú hætta stöðugt verið yfir- vofandi, að ófriður brytist út, en þetta hættutímabil sé nú á enda. United Press. aðeins Loftur. í Landsbank- sig fjárdrátt Ú fyrir bænadagana játaði * Brynjólfur Þorsteinsson, fulltrúi í Landsbankanum, á sig allverulegan fjárdrátt, og van hann þegar settur í gæsluvarð- hald. Fjárdrátturinn mun hafa farið þannig fram, að maður einn hér í bænum liafði feng- ið lán hjá Landsbankanum út á húseignir, og skyldu lánin greiðast niður með húsaleig- unni, en Brynjólfi Þorsteins- syni var falið að veita henni móttöku fyrir bankans hönd. Brynjólfur innheimti húsa- leiguna, en skilaði lienni ekki til bankans, og mun hann þannig hafa drcgið sér milli 10—20 þús. kr. Virðist þessi fjárdráttur liafa átt sér stað um all-langt skeið, og öll lán á húseignunum eru fyrir löngu komin í vanskil. Með þvi að rannsókn á mál- inu er ekki lokið, verður ekki sagt með vissu, live miklu fjár- dráttur þessi kann að nema. Yfirheyrslur stóðu yfir i morgun, og liefir hinn setti lögreglustjóri, Jónatan Hall- varðsson, rannsókn málsins sjálfur með höndum. Af veiðum komu í nótt og í rnorgun: Bragi meS 95 tn., Tryggvi gamli með 72, Hilmir me'S 75, Ólafur meS 85, Gyllir með 100 og Geir meS 102 tunnur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.