Vísir


Vísir - 23.05.1938, Qupperneq 2

Vísir - 23.05.1938, Qupperneq 2
Ví SIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Tveir ráðgjafar. EGAR öll sund eru að lok- ast og erfiðleikarnir fara dagvaxandi vegna hinnar sér- plægnu, óviturlegu og óheilu stjórnmálastefnu Framsóknar- flokksins undanfarin ár, rísa tveir aðalmenn flokksins upp og tilkynna bjargráðin. Annar þeirra, Jón Ámason, vill ráða bót á afleiðingum óstjórnarinn- ar með þvi, að svifta þá mann- réttindum, sem vegna báginda verða að þiggja af sveit. Hinn, Jónas Jónsson, vill fullkomna skipulagsóskapnaðinn, sem sprottið hefir hér upp á vegum stjórnarflokkanna, með þvi að hanna landsfólkinu að flytjast úr einni bygð í aðra. Svo ger- samlega ráðþrota eru þessir menn gegn þeim erfiðleikum, sem þeir sjálfir hafa hjálpað til að skapa, að þeir hafa ekkert annað að bera á borð fyrir þjóðina. Svo gersamlega utan við sig er Framsóknarflokkur- inn orðinn í hinum pólitíska hagsmunadansi sínum við Al- þýðuflokkinn, að hann leitar aftur í miðaldirnar eftir bjarg- ráðum. Með ]>eirri óstjórn, sem hinn lækifærissinnaði Framsóknar- flokkur liefir leitt yfir þetta land, hefir liann að mestu skap- að grundvöllinn fyrir þeim erf- iðleikum, sem ofangreindar til- lögur eiga að ráða bót á. En þessar tillögur eru engin Iækn- ing. Þær mundu enga bót ráða á meininu. Þær ganga í berhögg við mannúðar og mannréttinda- hugmyndir tuttugustu aldarinn- ar. En hin „milda hönd“ Fram- sóknarflokksins getur leyft sér margt. Hin vanhugsaða og stórgall- aða framfærslulöggjöf á mik- inn þátt í vandræðunum. Þau lög eru ein af liinum svoköll- uðu ,hrossakaupa-lögum‘ Frarn- sóknar og Alþýðuflokksins, lög sem urðu til í deiglu stjórnar- samvinnunnar. Óheilindi Fram- sóknarflokksins urðu þá, sem oftar, þjóðinni æði dýr. Flokk- urinn hélt að hann sæi sér leik á borði að vinna atkvæði bænd- anna. Hann ætlaði að létta fá- tækrabyrði sveitanna með því að koma henni allri yfir á kaup- staðina, en það var gert með því að afnema alla erfiðleika um sveitfesti. Framsóknar- mönnunum var ósárt um að ó- magarnir kæmist á framfæri kaupstaðanna. En hér sannast hið fornkveðna, að sér grefur gröf þótt grafi. Hin nýju fram- færslulög, eins og þau eru úr garði gerð, hafa orðið að bjam- argreiða fyrir bændurna. Fólk- ið streymir úr sveitunum og bændur eiga erfitt með að fá kaupafólk eða vinnuhjú. Bú- skapurinn er víða að verða ein- yrkjahokur af þessum sökum. Svona gefast lög og fram- kvæmdir flokka, eins og Fram- sóknarflokksins, sem miðar alt við pólitíska hagsmuni flokks- ins og einstakra fylgismanna án tillits til þess hvert afhroð þjóð- in verður að gjalda þess vegna. Erfiðleikarnir við fátækra- framfærsluna; er það mál, sem nú er mest áliyggjuefni Reykja- víkur og annara kaupstaða. En það verður seint leyst með ráð- um, sem renna undan rifjum Framsóknarflokksins. Frá hon- um er einskis góðs að vænta. Frá honum stafar mikið af þeirri óhamingju, sem þjóðin hefir nú við að stríða. Lands- menn eru ekki enn búnir að súpa seyðið af ráðsmensku þessa flokks, sem meginhluti lands- manna ber ekkert traust til. Umferðarvikan UMFERDARVIKAN byrjaði í gær. Tuttugu skátar og tíu lögregluþjónar dreifðu sér um Austurstræti og gáfu fólki umferðarleiðbeiningar. Var þar þá margt um mann- inn og tóku menn þessu vel. Myndirnar í búðargluggunum (umferðarmyndir) vöktu mikla athygli. Fest voru upp þrjú skilti á gatnamótum i miðbænum, sem sýndu um- ferðarslys þar á staðnum s.l. ár. Eitt skiltið vakti sérstaka at- liygli. Var það skiltið við Lækj- artorg, en á skiltinu stendur, að við þessi gatnamót liefði orðið 111 umferðarslys árið sem leið. Sýnir ekkert betur liversu brýn þörf er á, að koma bíl- unum burt af Lækjartorgi. UMFERÐARVIKAN. ANNAR DAGUR. 1. Umferðarmyndir til sýnis í gluggum við Austurstræti. 2. Skilti á þremur gatnamót- um í miðbænum, sem sýna fjölda umferðarslysa, er þar urðu árið 1937. 3. Leiðarvísir í umferð fyrir gangandi fólk og hjólreiða- menn er gefinn á lögreglu- stöðinni og skrifstofu Slysa- varnafélagsins. 4. Guðlaugur Jónsson lögreglu þjónn flytur erindi i út- varpið kl. 7.20 um umferð- arslys í Reykjavík og ná- grenni. Maður íelliir al m skipunarliát oo drukuar. FÚ. 22. maí. Ivristján Rafnsson bóndi í Flatey á Skjálfanda druknaði 19. þ. h. Fór Kristján þennan dag að sækja hest og hey vestur að Látrum á Lálraströnd, — en það gerði hann fyrir mann, sem var að flytja þaðan til Flateyjar. — Hesturinn og hey- ið var sett í uppskipunarbát og átli Kristján að gæta hestsins, en vélbáturinn ætlaði að draga uppskipunarbátinn til Flateyj- ar. Þegar þeir voru komnir nokkuð á leið, sjá þeir, sem á vélbátnum voru, að uppskip- unarbáturinn hallast skyndi- lega, og í sama vetfangi eru Eorfnruar í álfnnni hafa stórlega batnað frá þvi á laugardag. Kosningar í Tekkoslovakin forn frið~ samiega fram. HENLEIN. London, í morgun. Fyrir helgina óttuðust menn um alla álfuna, aö til ófriðar mundi koma út af deilumálunum í Tékkóslóvakíu, er fregnir bárust um, að stjórn landsins hefði neyðst til þess að bjóða út herliði, þar sem Þjóðverjar og Pólverjar hefði sent lið til landa- mæra Tékkóslóvakíu. Það var að vísu látið uppi, að þetta væri ekki gert til annars en að æfa umrætt her- Iið, en Tékkum fanst lítt á það að treysta, að annað byggi ekki undir. Hver alvara hér var á ferðum sést glöggast á því, að Bretar lögðu hina mestu áherslu á, að fylgjast með öllu, sem gerðist, og kröfðust þeir svars um það hjá Þjóðverjum tvívegis, hver tilgangur- inn væri með herflutningunum. Nú eru sveitar- og bæjarstjórnarkosningarnar í Tékk- óslóvakíu um garð gengnar, án þess að til blóðsúthell- inga eða friðslita kæmi, enda hafa horfurnar um varð- veitslu friðarins í álfunni aftur batnað að miklum mun. Lundúnardagblöðin í morgun leggja öll áherslu á það, að fagna yfir því, að friðurinn hélst. — „Það kemur ekki til styrjaldar út af Tékkó- slóvakíu“, segja þau. Og blöðin fagna yfir því, að Bretar lögðu sig fram til þess að bera friðarorð í milli og telja, jic^það hafi borið mikilvægan árangur. Blöðin segja, að nú virðist brátt svo komið, að æs- ingar spilli ekki samkomulagsumleitunum um framtíð Tékkóslóvakíu. Telja þau heppilegast, að Henlein og fiokkur hans semji milliliðalaust við stjórn Tékkósló- vakíu, en aðrir styðji eftir megni friðsamlega lausn vandamáíanna. Símfregnir frá Prag herma, að í Tékkóslóvakíu sé nú miklu minni æsingar — yfirleitt megi segja, að alt sé með kyrrum kjörum í Iandinu. Kosningarnar fóru fram, án þess til alvarlegra óeirða kæmi. Samkvæmt seinustu fregnum fengu Sudeten-Þjóð- yerjar yfirgnæfandi meirihiuta atkvæða í Suo'eten- héruðunum. Fengu þeir, í 48 bæjum, þar sem megin- þoiri íbúanna er þýskur milli 75—95% greiddra at- kvæða. Hægfara tékknesku vinstriflokkarnir unnu á í tékknesku ogslóvakísku héruðunum, tinkanlega flokk- ur Benes ríkisforseta. Hægri flokkarnir, sem eru í and- stöðu við ríkisstjórnina, mistu fylgi. Fregnir haf a borist um, að Henlein, leiðtogi Sudeten- Þjóðverja, sé Iagður af stað heimleiðis, en meðan kosn- ingarnar stóðu yfir dvaldist hann í austurrísku Ölpun- um. Mun hann bráðlega hef ja umræður við tékknesku stjórnina. United Press. BENES. EINKASKEYTI TIL VlSIS þeir Ivristján og liesturinn fallnir útbyrðis. Virtist þeim Kristján lialda sér á floti að- eins örskamma slund, en hest- urinn synti lil lands. Þegar Kristjáni skaut aftur upp, náðu bátverjar í liann og gerðu þeg- ar lifgunartilraunir, og lengi á eftir, — en árangurslaust. Kristján sálugi var 55 ára, — kvæntur og átti mörg börn, vel látinn atorkumaður. Togaranjósnirnar; Mæstiréttur sýknap Geir Zoéga útgm. í Hafnapíifði og Aðalstein Pálsson skipstjóra af kærum vaidstf ópnapinnar. Flestum mun enn í fersku minni alt það, sem á gekk er upp komst um njósnir íslenskra manna í þágu enskra botn- vörpunga. Fjöldi manna flækt- ist inn í málið og yfirheyrslur og rannsóknir stóðu yfir mán- uðum saman. Flestir þeir menn, sem við mál þessi voru riðnir fengu þungar sektir og þungan dóm almenningsálitsins. Mál þessara manna eru nú komin áleiðis til Hæstaréttar og liafa nokkur þegar verið flutt. Hæstiréttur kvað í morgun upp dóm í málinu valdstjórnin gegn Geir Zoéga útgerðarmanni í Hafnarfirði, og var Geir sýkn- aður með öllu, en málskostnað- Skemdaverk nnnin á spönskn togurunnm í Frederiksbavn Kalundborg 22. maí. FÚ. Sprengjuárás var í nótt gerð á spönsku togarana tvo, sem liggja í Frederikshavn. Eru togararnir löngu fullsmíðaðir og eru taldir stærstu togarar í heimi. En í málaferlum liefir staðið -um eignarréttinn yfir þessum togurum, og vilja bæði spánska sljórnin og stjórn Francos telja sér þá, en þeir voru smíðaðir fyrir firma eitt í San-Sebastian. Sjjrengjan, sem noluð var, sýnist hafa ver- ið úthúin með úrverki, sem afmarkaði, hvenær hún skyldi springa, og virðist henni liafa verið komið fyrir milli stefna skipanna. En aðeins annar togarinn skemdist. Kom á hann eins meters stórt gat á kinnunginn, og allar plötur í annari liliðinni heygluðust. Er talið vafalaust, að skipið hefði gereyðilagst, ef sprengjan hefði sprungið miðskips. En skaðinn er metinn á 20 þús. krónur. Lögreglustjórinn í Frede- rikshavn kvaddi sér þegar til lijálpar sérfræðinga frá Kaup- mannahöfn, og komu þeir til Frederikshavn 2 stundum eftir að sprengingin varð. Spreng- ingin var svo mikill, að allar rúður nötruðu í bænum. — Væntir lögreglan að vera búin að fá yfirlit um það, livernig sprengjunni hefir .verið fyrir komið og árásinni hagað, í kvöld. Tveir menn fengu sér leigða bifreið í Frederiksliavn í nótt kl. 2, og óku til Aalborg. Vænt- ir lögreglan þess, að þeir geli gefið einhvejar upplýsingar um þenna atburð, og skorar á þá að gefa sig fram. Lýsingu á þeim var útvarpað. Lögreglu- stjórinn á staðnum hefir lofað 500 kr. þóknun þeim, sem gætu gefið upplýsingar, sem leitt gælu , til þess að verknaður þessi upplýstist og sölcudólg- arnir væru teknir fastir. ur greiðist af almanna fé. í lög- regluréttinum hafði Geir verið dæmdur til að greiða kr.3.000.00 í sekt og allan málskostnað, að sínum hlut, en sá kostnaður hafði numið æði miklu, með því að rannsókn málsins hafði verið mjög umsvifamikil, og hafði m. a. verið unnið úr f jölda skejda, og fastráðnir menn starfað að því verki mánuðum saman. Aðalsteinn Pálsson skipstjóri var einnig sýknaður með öllu af kærum valdstjórnarinnar, og málskostnaður greiðist af al- mannafé. Sekt hans í lögreglu- réttinum nam kr. 6,000.00, og skyldi hann einnig greiða máls- kostnað að sínum hluL Smygl- tilraun. Við leit í Dronning Alexan- drine, sem kom frá útlöndum í gærkveldi, fundu tollverðir 282 hálfflöskur af öli, sem voru vandlega faldar milli þilja i vélarrúminu. Málið er í rannsókn. Uppreistar- tilraun í Mexico. Kalundborg, 22. maí. FÚ. Vopnuð uppreistartilraun hefir brotist út í Mexíkó. Gerðu uppreistarmenn loftárás á flugflotastæðinu San Louis á vesturströnd Mexico. Stjórnin telur, að ekki sé um liættulega uppreist að ræða, og hafi hún þegar í öllum liöndum við upp- reistarmenn. Býður hún þó út miklu liði og lætur vígbúa loft- flotann. London 23. maí. FÚ. í opinberri tilkynningu, sem gefin var út í Mexíkóhorg í gær, segir, að Pedelio hershöfð- ingi, sem nýlega var vikið úr embætti sem fylkisstjóra í San Luis Pontoni, liafi staðið fyrir uppreistarlilraun, sem þar átti sér stað í gær. Hafi 15 sprengj- um verið varpað yfir flugvöll- inn þar, en þær elcki valdið neinu tjóni. Auk þess liafi nokkrir hermenn Pedelios ráð- ist úr launsátri á herdeild mexi- kanska liðsins og 15 menn fallið. Elsa Sigfúss heldur hljómleika í Dómkirkj- unni þriðjudaginn 24. maí kl. 8'l/2 síSdegis, með aðstoð Páls ísólfs- sonar, sem einnig mun leika tvö einleikslög (eftir Cesar Franck og Frescobaldi) á orgel. Á efnis- skránni eru lög m. a. eftir: Bach, Hándel, Schubert, Sigf. Einarsson o. fl. — adelns Loftur.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.