Vísir - 17.06.1938, Síða 2

Vísir - 17.06.1938, Síða 2
VlSIR Gyðingaofsóknirnar í Þýskálandi fær- ast í aukana. Æsingar í fátækrahverfum Berlin- arbopgar. — Gyöingar dregnir út úr húsum sínum og sárt Ieiknir. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. Berlín, í morgun. Gyðingaofsóknum í Þýskalandi er haldið áfram af enn meiri harðneskju en áður. Gyðingar voru handteknir í gær í hundraðatali í ýms- um hlutum Berlínarborgar. Hafa borist fregnir um það, að stjórnin hafi fyrirskipað að herða sóknina gegn Gyðingum á ýmsa lund. Hefir þetta vakið talsverðar æsingar í sumum hlut- um Berlínarborgar, einkum í norðurhluta borgarinnar, í hverfum þeim, þar sem fátækir Gyðingar búa. Sjónarvottar skýra frá því, að árásir hafi verið gerð- ar á f jölda Gyðinga í gærkveldi. Þeir hafi verið dregn- ir út úr húsum sínum og búðum og sárt leiknir. í sum- um tilfellum var Gyðingum hent út um glugga. Á sölubúðir þeirra voru málaðar aðvaranir til manna um að skifta ekki við Gyðinga. Óstaðfestar fregnir herma, að áformað sé að gera ýmsar ráðstafanir til þess, að koma í veg fyrir, að Gyð- ingar njóti sömu réttinda og aðrir borgarar Iandsins — stía Gyðingum frá hinum. Þannig kvað vera í ráði að leyfa Gyðingum ekki aðgöngu að öðrum samkomu- stöðum en þeim, sem sérstaklega eru ætlaðir þeim. í miðhluta Berlínar sáust í gær í fyrsta sinni bekkir, sem á var málað: „Að eins fyrir Gyðinga“. United Press. Codreanu, leiðtogi púmen- sku fascistanna9 ðæmdup í tíu ára þpælkunaivinnu, EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Mál Codreanu, leiðtoga rúmensku fasistanna eða „járnvarðliðsins“ svo nefnda hefir nú verið leitt til fullra lykta, að því er símfregnir frá Búkarest í morg- un herma. Codreanu hafði verið dæmdur af herrétti til tíu ára þrælkunarvinnu, fyrir samsærisáform gegn stjórn Iandsins. Skaut hann dómi herréttarins til yfir- herréttar, sem staðfesti dóm undir-herréttarins, í öll- um atriðum. United Press. Þeim verður flogið til Bretlands- eyja frá Canada eftir því sem þörf krefur á ófriðartímum. Flugvéla- kaup í U. S. A, Bretar eru nú farnir að kaupa hernaðarflugrélar í Bandaríkj- unum og er það í fyrsta skifti í sögu Bretlands, sem hervamir landsins eru styrktar með kaupum á flugvélum erlendis á frið- artímum. liloyds í Xiondon sendir Franco reikning að upp- hæð 250,000 sterlings- pund. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Hið heimsfræga vátryggingarfélag Lloyds í London hefir ákveðið að senda Franco reikning að upphæð 250.000 sterlingspund, til greiðslu fyrir tjón það, sem bresk skipaútgerðarfélög hafa orðið fyrir vegna loft- árásanna á Spáni, en nokkurum breskum skipum hefir, sem kunnugt er, verið sökt í spænskum höfnum, af flugmönnum Francos, en auk þess hafa bresk skip í tugatali orðið fyrir meiri og minni skemdum af sömu orsökum, í höfnum Spánar. Einn af yfirmönnum Lloyds hefir sagt í viðtali við United Press, að firmað hafi ákveðið að krefjast greiðslu af Franco, þar sem það sé nú sannanlegt og öllum lýðum Ijóst, að árásirnar á bresk skip hafi verið gerðar að yfirlögðu ráði. United Press. Tyrkir segia sig úr þjóðabandalaginu, ef kröfara þeirra verðor ekki sint. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Fregn hefir borist frá Istambul, sem vekur furðu, þar sem áður höfðu borist fregnir um, að Tyrkir og Frakkar hefði jafnað ágreiningsmál sín viðvíkjandi Samjak. Nú er því haldið fast fram í blöðum Tyrklands, segir í fregnum frá Istambul, að Tyrkir ætli að segja sig úr Þjóðabandalaginu, verði kröfum þeirra viðvíkjandi Sanjak ekki sint. Allmörg af hinum kunnustu blöðum landsins gera kröfur þessu viðvíkjandi. United Press. VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Nóg aðgert! C ram,sóknarmenn hafa und- *• anfarna daga háð eitt af þessum „glæsilegustu þingum“, sem nokkuru sinni hafa verið háð, að sögn þeirra sjálfra. Af þvi að framsóknarmenn eru allra manna orðóvarastir, eink- um urn yfirburði sína og afreks- verk á þjóðmálasviðinu, þá fullyrða þeir nú venjulega ekki annað eða meira um þessi þing, en -að þau séu „glæsilegust“ allra slíkra þinga, sem menn hafi spurnir af hér á landi. En um þetta síðasta þing sitt segja þeir, að það sé „tvímælalaust merkilegasta og glsesilegasta pólitöska mótið, sem ungir menn hafa gengist fyrir“. — Og þó að elcketr sé sagt um það, þá er auðvitað hverj- um manni frjálst að sldlja þetta svo, að ekki sé eingöngu átt við mót sem ungir menn hafa gengist fyrir „hér á landi“, heldur hvar sem leitað væri um víða veröld, að fornu og nýju. Þetta „tvímælalaust merki- legasta og glæsilegasta pólitíska mót, sem ungir menn liafa gengist fyrir“, svo að sögur fari af, var sett að Laugarvatni s. 1. laugardag, og svo sagt, að þar og þá hafi verið stofnað „Sam- band ungra Framsóknar- manna“ og mót þetta því verið stofnfundur þess. En það er kunnugt, að Framsóknarmenn hafa nú um mörg ár verið að vinna að þvi, að koma sér upp slíku „sambandi“, og þó orðið lítt ágengt, enda verið allerfitt um aðdrætti efniviðarins. Þarf því engan að undra, þó að þeim finnist mikið til um það, er þeir hafa nú loks náð því lang- þráða marki að koma þessu sambandi á fót, og finna jafn- vel meira til sín, en þeim ann- ars er eiginlegt, af því að hafa unnið slíkt þrekvirki. í dagblaði framsóknarmanna, sem nú þykist vafalaust geta sagt skilið við þennan heim, ánægt og örugt um vöxt og við- gang flokksins í framtíðinni, þó að þess missi við, er gerð nokk- ur grein fyrir því, með hve miklum ólíkindum það hafi í rauninni verið, að Framsóknar- flokknum mundi nokkuru sinni auðnast að sjá drauma sína um stofnun „Sambands ungra framsóknarmanna“ rætast. En af því, að flokkurinn hafi nú borið gæfu til þess og þó að hann sé í því efni mörgum ár- um á eftir öllum öðrum stjórn- málaflokkum i landinu, telur blaðið, að öllum megi vera það ljóst, hve ákaflega og ört „vax- andi fIokkur“ Framsóknar- flokkurinn sé og að hann liljóti innan skamms að vera orðinn „fjölmennasti stjórnmálaflokk- urinn í landinu“! En svo virðist þó, sem framsóknarmönnum þyki nú nóg að gert um slikar þrekraunir í útbreiðslustarf- semi stjórnmálaflokkanna. Er það ef til vill af því, að þeir ólt- ast, að svo mikill ofvöxtur kunni að lilaupa í Framsóknar- flokkinn, ef lengra verði haldið á þeírri braut, að við ekkert verði náðið. Hið nýafstaðna þing „Sam- hands ungra Framsóknar- manna“ hefir vakið atliygli al- þjóðar á alvarlegri hættu, sem nú sé yfirvofandi, ef ekki verði tafarlaust tekið í taumana gagn- vart þessari starfsemi stjórn- málaflokkanna. „Hingað og ekki lengra“, segir þetta „tví- mælalaust merkilegasta og glæsilegasta pólitíska mót“, og það krefst þess, að stjórnmála- flokkarnir láti sér það nægja, að liafa i frammi stjórnniála- áróður meðal fullorðinna manna og unglinga eldri en 14 ára. En ein af lielstu sam- þykktum þess er áskorun til þings og stjórnar um, að „þegar á næsta þigni verði sett lög, er hanni pólitíska starfsemi meðal barna innan 14 ára aldurs“! En svo vonlítið sem það mátti virðast, að framsóknarmönn- um tækist að koma á fót „Sam- bandi ungra Framsóknar- manna“, þá gæti að vísu ekki síður hrugðist til beggja vona um það, hvernig þeim lánaðist „áróðurinn“ meðal hai-nanna. Og er þó engan veginn fyrir það að synja, að þau kynnu að reyn- ast þeim leiðitamari en ungling- ar sem eru að komast til vits og ára. HERSVEITIR FRANCOS HRAKTAR FRÁ VILLAREAL. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. C regn frá Valencia í morg- * un hermir, að sam- kvæmt tilkynningu Mijaja hershöfðingja hafi hersveitir Francos á fimtudagskvöld verið hraktar frá Villareal, sem nú sé algerlega í hönd- um stjórnarhersins. Norræn raðstefna réttindi listamanna. 16. júní. FÚ. I Stokkhólmi hefir nýlega ver- ið lialdin norræn ráðstefna, til þess að ræða um sameignlega löggjöf á Norðurlöndum, að því er snertir réttindi Iiöfunda og' listamanna. Fulltrúi íslands á Krahhe, fulltrúi í utanríkismála- ráðuneytinu danska. Mót norrænna húsameistara. Kalundhorg, 16. júní. FÚ. Mót norrænna liúsameistara hófst í Oslo í dag og er á veg- um þess haldnar ýmsar sýning- ar. Á mótinu flytur prófessor Guðjón Samúelsson erindi um skipulag bæja á Islandi. Skólasel Mentaskólans. DregiS var í happdrætti Menta- skólans hjá lögmanni kl. n í morgun. Þessi númer hlutu vinn- inga: i. vinningur: Far til Kaup- mannahafnar, báðar leiíSir, og 300 kr, í erlendri mynt nr. 641. Annar vinn.: Útvarpstæki nr. 4695. 3. vinn: Vikudvöl aö ’Laugarvatni í júlí nr. 32. 4. vinn.: Saumavél nr. 6032. 5. vinn.: Kr. 100 í pening- um nr. 151. 6. vinn.: 3 smál. af kolum nr. 7795. 7. vinn.: Rafsuðu- vél nr. 7722. 8. vinn.: SkíSi nr. 1935. 9. vinn.: Málverk eftir Finn Jónson nr. 1943. 10. vinn.: Olíu- tunna nr. 1939. — Vinninganna sé vitjaö til Pálma Hannessonar rek- tors eöa Valdimars Sveinbjörns- sonar, fimleikakennara. Lundúnadagblaðið Daily Ex- press slcýrði frá þvi fyrir skemstu, að samningar hafi ver- ið gerðir um kaup á 400 lirað- fleygum flugvélum (ælluðum til njósnaferða og eltinga) og æf- ingaflugvélum, við Lockhead Aircraft Corporation og North American Aviation Company. Framleiðsla flugvéla í Canada er til íhugunar og er tilgangur- inn að hafa þar í framtíðinni mikinn varaflugflota.Er það tal- ið mjög mikilvægt, að geta framleitt árásarflugvélar handa hreska hernum utan Bretlands- eyja — framleiðsla þeirra geti gengið óhindruð og án þess að óttast þurfi að verksmiðjurnar verði eyðilagðar í loftárásum. Árásarflugvélar þessar verða svo stórar -og afl- hyltu kon- ang sinn Stokkhólmi í morgun. — FB. Sænska þjóðin hylti konung sinn, Gustav V., af miklum fögnuði og áhuga, á áttræðisaf- mæli hans í gær, þ. 16. júní. Fremstir í flokki þeirra, sem liyltu konung á þessum merkis- degi, voru Kristján konungur Danmerkur og íslands, Hákon Noregskonungur og ríkisforseti Finnlands. Gustav Adolf, ríkiserfingi Svía, hylti konunginn, föður sinn, í ræðu, sem haldin var í Stokkhólmshöll. Var það hin hátíðlegasta athöfn, sem þar fór fiam og ríldserfingi hyrjaði ræðu sína er klukkan sló tólf og afmælisdagurinn var hyrjaður. Ríkiserfinginn lýsti konunginum sem réttlátum og kærleiksríkum föður og miklar, að hægt verður að fljúga þeim frá Canada til Bretlands, jafnóðum og þeirra er þörf. Sumar tegundir hernaðarflug- véla þeirra, sem Bandaríkja- menn eru að koma sér upp, geta farið með350 enskra mílna hraða á klst. í 20.000 feta liæð. framúrskarandi skylduræknum og fórnfúsum landsföður. Árdegis komu saman æðstu embættismenn og kunnustu menn þjóðarinnar og var kon- ungi þá færð vegleg gjöf, frá sænslcu þjóðinni, 4 miljónir króna, sem konungur hefir á- kveðið að verja til þess að draga úr því böli, sem stafar af gigt- veiki og lömunarveiki. Hanson forsætisráðherra flutti ræðu og bað menn hylla konung sinn. Stokkhólmsborg liélt árdegis- veislu konungi til heiðurs og voru þar viðstödd öll stórmenni þau, sem komin voru til þess að hylla konung í tilefni af afmæli hans. Sænski flotinn, sem lá á höfn- inni, fram undan Ráðhúsinu, skaut fallbyssuskotum til heið- urs konungi. Á íþróttasvæði borgarinnar hyltu konung síðar um daginn fulltrúar allra stétta þjóðfélags- ins. Tólcu þátt í þeirri sám- komu 25.000 manns. Áhrifa- mikla og snildarvel flutta ræðu fyrir minni konungs flutti Gösta Forssell prófessor og var því næst sunginn konungasöngnr Svia. Konungur þakkaði síðan þjóð sinni og hað menn minnast fóst- urjarðarinnar. Um kvöldið var lierguðsþjón- usta í Stokkhólmi og að henni lokinni herskoðun. Hermenn úr landsher og flugher og sjóliði gengu fram hjá konungi og

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.