Vísir


Vísir - 22.06.1938, Qupperneq 2

Vísir - 22.06.1938, Qupperneq 2
V 1 S I R VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. „Hin fjárhagsíega frelsisbarátta“. Nú gerast mörg undur með þjóð voi’ri. Það mun ekki leika á tveim ttmgum, að aldrei liafi stjórn- málaflokkur seíið að völdum hér á landi.sem jafn gersneydd- ur hafi verið öllu fjármálaviti og Framsóknarflokkurinn er. Enda hefir fjármálastjórnin farið honum svo úr hendi und- anfarin ár, að teljast má full- komið hneyksli. Fjármálunum hefir stjórnað ungur maður, vel gefinn, en reynslulaus, sem ekkert skjm ber á þau efni. Og nú er svo komið að framsókn- armenn, sem framarlega standa í flokki, eru farnir að ræða um hina „fjárhagslegu frelsisbar- áttu“. Það mun eiga að skiljast svo, að þeim finnist nú tími til kominn að gengið sé í móti hinni fjárliagslegu rányrkju- stefnu, sem stjórnarflokkarnir hafa rekið undanfarin ár. En í hverju á svo hin „fjár- hagslega frelsisbarátta“ að vera fólgin? Hún lilýtur að vera fólgin í því, að vinna aftur hið glataða lánstraust landsins, sem með óvitaskap, úrræðaleysi, röngu skipulagi og opinberu fjármála- siðléysi hefir verið borið fyrir borð. Hún hlýtur að vera fólgin í því að rétta við afsagða víxla og fallnar skuldir ríkisfyrirtækj- anna í útlöndum og sjá um það framvegis, að stofnanir ríkisins standi við skuldbindingar sínar, eins og yfirleitt er búist við af siðuðum þjóðfélögum. Hún hlýtur að vera í því fólg- in að ríkisvaldið hætti að gefa út ávísanir á gjaldeyri, sem bankarnir afgreiða ekki og er- lendar þjóðir eru nú farnar að vara þegna sína við að taka trú- -mlegar. „Hin fjárhagslega frelsisbar- átta“ hlýtur, síðast en ekki síst, að vera í því fólgin, að gera þá menn „óskaðlega“ sem nú fara með fjármál landsins, hafa stofnað skuld á skuld ofan svo tugum miljóna skiftir í útlönd- um, og þangað til nú er svo komið, að allar dyr eru lokaðar. Það mætti segja um íslend- inga í hinu núverandi fjárliags- lega niðurlægingarástandi: „Lítilla sanda, lítilla sæva, litil eru geð guma,“ er þjóðin lætur möglunarlaust og án þess að spyrna við broddunum, núver- andi ríkisstjórn sigla fjármál- um sínum í algert öngþveiti. Það má teljast alveg einstök kaldhæðni örlaganna, að Fram- sóknarmenn, sem með óvitur- legri ráðsmensku sinni undan- farin ár liafa lagt fjárhag og lánstraust þjóðarinnar í rústir, skuli nú ganga fram fyrir skjöldu og hrópa hástöfum að nú skuli liefja fjárhagslega frelsisbaráttu. Undanfarin fjögur ár hefir Sjálfstæðisflokkurinn sagt fyrir um livernig fara mundi fjárhag þjóðarinnar, ef haldið væri á- fram eyðslu- og öfgastefnu stjórnarflokkanna í fjármálum. Nú fer þjóðin að skera upp eins og sáð hefir verið. Nú fer að líða að því, að landsmenn verða að fara að hefja baráttu lífs og dauða fyrir fjárhagslegu sjálfstæði sínu, ef f jármála-ovit- ar þeir sem nú stjórna landinu, standa öllu lengur við stýrið. í þessu landi getur búið efna- lega sjálfstæð þjóð, ef þeir ráðlausustu eru ekki látnir ráða og oflátungunum er ekki trúað. Landsiundup kvenna. Kl. 1 í gær var landsfundin- um haldið áfram í neðri deild- ar sal Alþingis. Samvinnumál kvenna voru á dagskxá og var frú Ingibjörg Benediktsdóttir frummælandi. Eftirfarandi til- laga kom fram við umræðurn- ar: „F undurinn samþykkir að kjósa sjö manna nefnd til að athuga leiðir til eflingar lieil- brigðrar samvinnu kvenna að þeirra sameiginlegu áhugamál- um um land alt, og leggja fram fyrir fundinn ákveðnar tillögur, þar sem lagðar verða línur um framtíðarstarfið". Umræður urðu allmiklar um tillöguna og var hún samþykt. í nefndina voru kosnar þess- ar konur: Hólmfríður Péturs- dóttir Ingibjörg Benediktsdótt- ir, Svava Þorleifsdóttir, Elisabet Eiríksdóttir, Jónína Guðmunds- dóttir, Aðalbjörg Sigurðardótt- ir og Laufey Valdimarsdótlir. Þegar fundi var lokið, flutti Baldnr Johnsen læknir erindi um matarræði og var það liið fróðlegasta. iDnanfélagsmót K. R. Njtt drengjamet t langstökki. í gærkveldi hófst innanfé- Iagsmót K. R. og keptu þá að eins unglingar innan 19 ára aldurs. — Kept var i kringlukasti, langstökki og 1500 m. ldaupi. 17 ára gamall piltur setti nýtt drengjamet í langstökki, 6,17 m., en metið var 6,10, og komst mjög nærri meti K. Vattnes í kringukasti. Kringlukast: Sigurður Finns- son 39,91 m. Met: Kristján Vatínes 41,09. Tveir piltar aðr- ir köstuðu lengra en 37 m. Langstökk: Sig. Finnsson: 6.17. 1 einu stökki, er liann slökk 2 sm. framan við plank- ann, stökk hann 6,32 m. 1500 m. hlaup: Guðbjörn Arnason (17 ára) 4:54,8. Hafði Guðbjörn þá bæði tekið þátt i kringlukasti og langstökki og var orðinn þreyttur. Litil slltíveiíi norðan- lanfl*. Slæmt veiðiveðnr Norðanlands var ekki veiði- veður í dag. — f Siglufirði var norðaustan átt, þoka og súld og talsverður sjór úti fyrir og veiðiflotinn lá inni. Talsverðrar síldar varð vart úti fyrir firðin- um í gær en fá skip veiddu, sakir óhagstæðs veðurs. Lítil sild hefir borist síðustu tvo daga. Atti að ræna barni Hangwitz Reventlow greila? Scotland Yard gerir víðtækar varúðarráðstafanir. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Daily Mail skýrir frá því í morgun, að það hafi fengið upplýsingar varðandi áformi um að ræna barni Haugwitz-Reventlow greifa, en hann er danskur greifi, kvæntur amerísku „dollara- prinsessunni“ Barbara Hutton, erfingja Woolworth miljónanna. Vigbúnaður Frakka. Daily Mail segir, að Scotland Yard hafi í skyndi sím- að til allra flugstöðva landsins og fyrirskipað strangt eftirlit með komu allra farþega. Þá segir blaðið, að vörður sé hafður dag og nótt á heimili greifans við Regents Park í London. Greifafrúin hefir játað, í viðtali við blaðið, að var- úðarráðstafanir hafi verið teknar. United Press hefir snúið sér til Scotland Yard og beð- ið um upplýsingar því viðvíkjandi, hvort rétt sé, að hótanir hafi borist um að ræna barninu. Var því svar- að, að eigi væri hægt að gefa upplýsingar um þetta að svo stöddu — en því eigi neitað, að hótun hefði fram komið. United Press. Bresk blöð telja lík- legt að vopnahlé náist á Spáni. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Það hefir vakið mikla ánægju í Bretlandi, að náðst hefir samkomulag um það á fundi hlutleysisnefndarinnar, að faliast á málamiðl- unartillögurnar um brottflutning sjálfboðaliða frá Spáni. En vegna þessarar samþykktar nefndarinnar þykir miklu betur horfa um það, að unt verði að leiða Spánar- arstyrjöldina til lykta. Er það almenn skoðun manna, að sá möguleiki sé nú fyrir hendi, að unt verði að stilla til friðar á Spáni. Stjórnmálafregnritari Times skýrir frá því, að sér hafi borist áreiðanlegar fregnir um það frá Spáni, að þreifað hafi verið fyrir sér um það við báða styrjaldar- aðila, með hvaða skilmálum þeir myndi tilleiðanlegir til þess að semja vopnahlé. Mun mega fullyrða, að báðir aðilar vilji slaka eitt- hvað til á kröfum sínum, enda er svo ástatt bak við herlínurnar hjá báðum aðilum, að því er fullyrt er, að allur almenningur er orðinn sárþreyttur á styrjöldinni. Stjórnmálafregnritari Times fullyrðir, að bæði meðal Baska og Kataloníumanna sé f jölda margir,sem mundu fagna því, ef vopnahlé yrði samið. Þá víkur hann að því, að falangistunum, sem styðja Franco, vaxi fylgi, og einkum beri á því í flokki þeirra, að hin megna ó- ánægja yfir erlendri íhlutun fari stöðugt vaxandk United Press. FRANSKIR HERMENN. Þrátt fyrir liervæðingu og hernaðarundirbúning annara ríkja og allar uppfyndingar síð- ari árá, telja sérfræðingar franska herinn best útbúinn af öllum lierjum Evrópurikja. — Fralckar óttast enn eina innrás að austan og hafa varið 400.- 000.000 dollara til Maginot-lín- unnar, sem er neðanjarðarvirki, er tryg^ir landamærin að aust- an og norðan, að undantekinni smáskák, sem veit að Sviss. — Þessi virki telja Frakkar óvinn- andi, en þeir treysta á flota sinn og breska flotann til varn- ar ströndinni. Til varnar á- rásum í lofli hafa víðtækar ráð- stafanir verið gerðar, og öllum borgarbúum hefir verið kent að forða sér á skammri stundu, ef um slíkar árásir er að ræða. Þúsundir manna vinna nú að vegabyggingu út frá París, og verða vegir þessir svo breiðir, að átta bifreiðar geta ekið sam- liliða um þá, en á þennan hátt eiga allir íbúar Parisarborgar, — þrjár miljónir —, að geta forðað sér út úr borginni á svip- slundu. Allar skrifstofubygging- FLÓTTAMENN Á SPÁNI. Mynd þessi er af flóttamönnum í einni borg Spánar. Svo liundruðum þúsunda skiftir hafa spænskar fjölskyldur mist alt, liúsin skotin í rústir eða menn neyðst til að flytja að heiman. ar í París liafa gluggahlera úr við eða stáli, til öryggis þvi, að nokkur Ijósglæta sjáist, og vagnar hafa gluggatjöld, til þess að draga niður í sama augna- miði, ef þörf gerist. Neðanjarðarkjallarar hafa verið bygðir i görðum stjórnar- bygginganna og bankanna og alla vinnu er unt að inna þar af hendi svo örugt sé. Hergagnaverksmiðjur, sem áður voru aðallega í nágrenni Parisar, eru nú dreifðar um 100 borgir víðsvegar í landinu. I Maginot-vígjunum er ung- um mönnum kent að inna sín verlc af hendi, og þessir menn koma ekki út undir bert loft i margar vikur. Þeir hafast við fimm liæðum fyrir neðan yfir- borð jarðar. Auk þess hers, sem Frakkar liafa á að skipa heima fyrir, hafa þeir mikinn svert- ingjaher í Afriku, sem er vel vopnum búinn eins og heima- herinn. Sjólier Frakka er mikill og sterkur, en Italir sækja á og komst bráðlega til jafns við hann, en enn þá hafa Frakkar fleiri kafbáta og lítil beitiskip. Allar Evrópuþjóðir fara leynt með stærð flugflota sins, með því að enginn alþjóðasamn- ingur skyldar þær til að gefa slikar upplýsinggr, en fyrir einu ári var um það rælt í franska þinginu, að loftfloti Frakka gengi næstur rússneská loftflot- anum að stærð. Frakkland á að minsta kosti 3.000 stríðsflugvél- ar en þó sennilega miklu fleiri, með því að stöðugt er unnið að framleiðslu þeiri’a. Frakka slcortir olíur og ben- sín. Þeir munu ekki hafa yfir fjögra mánaða forða, en nú eru þeir teknir að vinna þessar brensluvörur úr viðarkolum, en skógar eru mjög miklir í land- inu. Baðmull hafa Frakkar dregið að sér, og kaupa málm- vörur í stómm stíl frá Banda- ríkjunum. Frakkar eru orðnir svo vanir óttanum um styrjöld, að allur almenningur talar um hana eins og við tölum um að greiða skattana okkar, — sem óþægi- legan, en óhjákvæmilegan verknað.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.