Vísir - 15.07.1938, Page 2

Vísir - 15.07.1938, Page 2
VlSIR VÍSIR ÐAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Örðugleikar og hluídrægni. pleslir þykjast sjá fram á * vaxandi örðugleika með af- komu landsmanna, jafnvel þótt síldveiðamar fari betur en nú horfir. Dýrtíðin fer vaxandi. Tollar og skattar hafa hækkað stórlega. Lánstraust þjóðarinn- ar erlendis er glatað. Vanskilin við útlönd fara hraðvaxandi. Gjaldeyrismálin eru í fullkom- inni óreiðu í höndum núverandi stjórnar, sem þó lætur ekkert færi ónotað til að syngja inn- flutningshöftunum lof. Það er fyrir löngu komið á daginn, að höftin eru gersamlega ómegnug að halda innflutningnum í sam- ræmi við gjaldeyrisástandið. Stjórnin ræður nú ekkert við hið mikla skipulagningarbákn, sem hún hefir sett af stað i gjaldeyris- og innflutningsmál- unum. Það er vaxið henni yfir höfuð og það er vel á vegi með að sigla i strand öllu viðskifta- og atvinnulífi þjóðarinnar. Þegar svona er komið, mundi hver einasti heilsteyptur stjóm- málamaður, sem metur meira alþjóðarheill en flokksliags- muni, viðurkenna gjaldþrot þeirrar fjármálastefnu, sem öllu er nú að koma i öngþveiti. Þeir menn sem til þessa hafa haldið þessari gjaldeyrisþrota- stefnu til streitu, mundu vaxa að manndómi, ef þeir hefðu hugrekki og drengskap til að viðurkenna mistök sín. Öllum getur missýnst. En því lengur sem afglöpin halda áfram, því dýrari verða þau þjóðinni. Hver einasti athugull Fram- sóknarmaður, hlýtur að hafa komið auga á það, að innflutn- ingsliöftin bjarga ekki þjóðinni. Það er öllum ljóst. En liitt er einnig alþjóð ljóst, að sam- vinnufélögin tapa ekki á þeim. Þau hafa aldrei séð slík upp- gangs ár og hin þrjú siðustu, þau árin sem mest hefir verið hert á höftunum. Mörgum verð- ur á að spyrja hvort þetta sé ein aðalorsök þess að fram- sóknarstjórnin heldur dauða- haldi i haf taskipulagið, þótt það sé nú sýnilega að draga þjó'ð- ina að harmi gjaldþrots og fjár- bagslegrar niðurlægingar. Daglega heyrist umi það rætt, að gjaldeyrir sé ófáanlegur í hönkunum og innflytjendur fái ekki að greiða nauðsynjavörur. Menn missa viðskiftasambönd sín vegna vanskila, sem stafar af gjaldeyrisskorti. En meðan þessu fer fram, er hér eitt fyrir- tæki, Samband ísl. samvinnu- félaga, sem getur greitt allar sínar vörur og þarf ekki að lenda í vanskilum, vegna þess - ftf. ii . - -V'. '• Wó * **- að sambandinu er heimilað að nota sinn eigin gjaldeyri. Slík fríðindi liefir ekkert annað fyr- irtæki á landinu i neitt svipuð- um mæli. Samhandið notar elíki að eins sinn eigin gjaldeyri, seni inn kemur fyrir vörur félaganna, heldur kaupir það sjávarafurðir i stórum stíl, svo sem lirogn og harðfisk og not- ar gjaldeyrinn í sínar þarfir. Slíkur gjaldeyrir ætli þó ekki siður að koma öðrum að not- um. Það fer illa saman almenn- ir erfiðleikar og opinher hlut- drægní. Það er ekki lastandi þótt ein- hverjum takist að forðast van- skil erlendis, en það er gersam- Iega óþolandi, að einu fyrirtæki sé gefin sérstök fríðindi með gjaldevri meðan allir aðrir inn- flytjendur í landinu verða að lenda í stórkostlegum vanskil- um vegna gjaldeyrisskorts. Þess verður að krefjast, án nokkur- ar undantekningar, að sömu lög gildi fyrir alla í þessu landi. VÉR VILJUM EKKI LENG- UR ÞOLA NEINA HLUT- DRÆGNI. — VÉR HEIMTUM AÐ EITT SÉ LÁTIÐ YFIR ALLA GANGA. Jafnffamt sendif MitleF 100.000 menn til Rínarhéfaðanna til þess ad koma iipp nýjnm víggifdingnm gegnt Magfnet^víggÍFdlngnniim í Frakklandi6 EINRASKEYTI TIL VÍSIS London, í morgun. Daily Express skýrir frá því, að fregnir hafi borist um það til London frá áreiðanlegum heimildum, að Hitler hafi fyrirskipað að senda þegar í stað 100.000 menn úr hin- um ýmsu vinnustöðvum landsins, til Rínarbygðanna, í því augnamiði að vinna þar að því að koma upp víggirðingum, andspænis Maginotvíggirðingunum í Frakklandi, sem eru mestu Iandamæravíggirðingar, er nokkuru sinni hafa verið gerðar og var það f jölda margra ára verk að ganga frá þeim. Það vakir þó ekki fyrir Hitler að koma upp slíkum víggirðingum í Rínar- héruðunum, enda eru skiIjTði til landvarna betri í Rínarbygð- um en í Frakklandi við landamæri Þýskalands. Mundi það og taka langan tíma og ógrynni f jár þurfa til að koma upp slíkum víggirðingum, en Þjóðverja mundi skorta fé til þess að ráðast í slíkt fyrirtæki. Hefir Hitler því horfið að því ráði að treysta landvarnir í Rínarbygðum sem allra best að auðið er og verður lögð áhersla á, að hraða verkinu sem mest. Daily Express segir, að því eigi að verða lokið þ. 15. ágúst, eða á einum mánuði. Vekur það allmikla furðu, að hafist skuli handa um að treysta landvarnir Rínarbygðanna nú. Flugdagurinn á sunnudaginn. Sex svifflugup og 3 vélflugup á loffci samtímis. Á sunnudaginn verður mikið um dýrðir á Sandskeiðinu. Þá verður þar háð fyrsta flugmót á íslandi og taka þátt í því sex svifflugur og þrjár vélflugur. Sýnir það best hve mikill kraftur og áhugi er í félögum Svifflugfélagsins, sem aðallega sjá um mótið, að leggja í að halda svona mót, með þátttöku utan af landi og frá öðrum löndum. Blaðamönum vár í gær boðið upp á Sandskeið og eftir því sem við sáum þar og heyrðum, munu þeir ekki verða fyrir von- brigðum, er fara uppeftir á sunnudaginn. Fjðtir íslendingaar fara til Wembíey. Jafnframt, segir Daily Express, hafa verið gerðar ráð- stafanir til þess, að tilhlutan Hitlers, að undirbúa gífur- lega aukningu flugflotans. Vakir það fyrir Hitler, að þýski flugherinn hafi 6000 nýjar flugvélar af fullkomnustu gerð við hendina, ef ófriður brýst út. Þ. 22. þ. m. fara f jórir Islend- ingar utan með Esju. Eru það þeir Jónas Halldórsson og Ingi Sveinsson sundmenn, Jón Páls- son þjálfari og Erlingur Páls- son yfirlögregluþjónn, er verð- ur fararstjóri. Tíðihdamaður Vísis hitti Er- ling að máli í morgun og spurði hann um förina. Sagðist honum svo frá: I liaust sem leið fengum við hoð um að taka þátt í Evrópu- sundmeistaramótinu, sem fer fram í Wembley í London þ. 6. —13. ágúst n. k. S. R. R. sem hafði málið til meðferðar, áleit að bestu sund- menn okkar hefði erindi þang- að og er nú svo komið, að á- kveðið hefir verið að Jónas tek- ur þátt í 400 m. og 1500 m. sundi með frjálsri aðferð og Ingi Sveinsson í 200 m. bringu- sundi. Æfðu þeir sig og einnig fleiri efnilegir sundmenn og voru þeir reyndir fyrir rúmri viku, en því miður reyndust þeir tveir einir svo góðir, að rétt þætti að senda þá. Var reynt að fá góðan mann á 100 m. frj. aðf., en tókst ekki. Styrkur liefir fengist til far- arinnar, en Erlingur Pálsson' mun kosta för sína sjálfur. — Hvernig haldið þér að ár- angurinn verði ? — Um hann er erfitt að segja. Hann fer eftir því, hvernig menn eru upplagðir, svo og gegn hvaða mönnum kept er í fyrstu, en piltarnir eru báðir góðir sundmenn og Jónas mjög framarlega á Norðurlanda- mælikvarða. Laugin í Wembley er opin, 21° heiít vatn I henni ’ "t r Ferðafélag íslands fer skemtiför austur á Síðu að morgni 20. þ. m. þriggja daga ferð fram og til baka. Ódýr ferð. Allar upplýsingar á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5. Farmiðar að Gullfoss og Geysis-förinni verða seldir á Steindórsstöð bæði föstu- dag og laugardag til kl. 9. Næturlæknir: Sveinn Pétursson, Garðastræti 34, sími 1611. Næturvörður í Reykja- víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið- unni. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur fyrír framan Bernhöfts- bakarí kl. 9 í kvöld. HEFIR GÖRING STUNGIÐ UPP Á ÞYÍ, AÐ BRETAR OG ÞJÓÐVERJAR GERI MEÐ SÉR FLUGMÁLASAMNING? Enda þótt því sé neitað af bresku stjórninni, er því haldið fram í Daily Express, að Göring hafi snúið sér til kunnra breskra manna, sem verið hafa í heimsókn í Þýskalandi, og rætt við þá um skilyrðin til þess, að Bretar og Þjóðverjar gerð- ust aðilar að slíkpm samningi. Þjóðverjar eru nú að sannfærast um, segir Daily Ex- press, að þeir hafa ekki lengur neina möguleika til þess að sigra í vígbúnaðarkapphlaupinu við Breta, vegna fjár- skorts og hráefnaskorts. Muni því Þjóðverjar leita samvinnu um takmörkun vígbún- aðar í lofti, en jafnframt leggja höfuðáherslu á að treysta land- varnirnar. United Press. Italsknr flogbátsr ferst. Sextán farþegar og fjórir flBgmenn farast EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Rómaborgarfregnir herma, að ítalskur flugbátur í ferðum milli Sardinia og Róm — einn af stærstu flugbátum ítala, sem notaðir eru til farþegaflutninga, — hafi farist. Hrapaði flugbtáurinn í sjó niður. Sextán farþegar druknuðu og f jórir flugmenn. Slys- ið varð í gær. Meðal farþeganna voru tvær systur, frænkur Yalle, undirflugmálaráðherra. Sex lík hafa fundist. Tundurspillar og flugvélar leita enn á svæðinu, þar sem flugbáturinn fórst. United Press. Hann lenti heilu 09 höldnu í New York í gær. London, 14. júlí. FÚ. Howard Hughes, ameríski flugmaðurinn, og félagar hans fjórir, eru nú á leið frá Minnea- polis í Bandaríkjunum til New York (fregn þessi var móttekin kl. 4.20, ísl. tími). Eiga þeir nú eftir nokkurra klukkustunda flug til New York og er þar mikill viðbúnaður til þess að fagna þeim. Eru menn farnir að safnast saman í þúsundatali í nánd við flugvöllinn, þar sem þeir lenda. Flugmennirnir lögðu af stað frá Fairbanks í Alaska tveimur stundum eftir komu sína þangað, en þar lentu þeir stuttu fyrir miðnætti síðastliðið, eftir íslenskum tíma. Fyrsu sex klukkustundirnar eftir burtför þeirra frá Fair- banks fréttist elckert lil þeirra og var giskað á, að þeir mundu ætla að lenda i nánd við Winni- peg, en þeir lentu i nánd við borgina Minneapolis í Minne- sota kl. 1% e. h. Skýrðu þeir frá því, að ólag hefði komið á loftskeytatæki flugvélarinnar, er þeir flugu yfir Klettafjöll. Þeir höfðu ’að eins hálfrar slundar viðdvöl í Minneapolis. London, 14. júlí. FÚ. Samkvæmt útvarpsfregnum Frá því um lielgi hafa um 20 piltar og tvær stúlkur legið við uppi á Sandskeiði og notið kenslu Þjóðverjanna. Eru þeir þrír: Baumann verkfræðingur, foringi fararinnar, Ludwig, flugkennari og listflugmaður, og Springbock, svifflugmaður. Meðal „útilegumannanna“ eru fimm Akureyringar, — en fleiri eru væntanlegir i dag að norðan — og er ein stúlka þar á meðal. Eru samtals 3 stúlkur í félaginu á Akureyri, en ein liér. Samtals eru félagar í Svif- flugfélagi Reykjavikur 37—38. FÍugvélar þær, sem verið hafa uppfrá að staðaldri, eru átta að tölu. Þar af eru 6 svifflugur og tvær hreyfilflugur. Eru hreyf- ilflugurnar báðar, svo og ein svifflugan, tveggja mann för. Auk þess sem allir, sem upp- frá hafa verið, hafa lært svif- flug, hafa fimm menn stundað nám á hreyfilflugvél, aðallega hjá Þjóðverjunum. Til þess að menn geti glöggv- að sig á öllnm þeim prófum, sem minst er á í sambandi við svifflug', skal hér hirt hvað út- heimtist til þess að ná hverju prófi um sig. A-próf: Lýtalaust 30 sek. flug í beina stefnu, en áður 5 flug, hvert yfir 20 sek., með sömu skilyrðum. B-próf: 5 hringflug, minst 1 mínútu hvert, með lendingu við ákveðið mark. C-próf: 5 min. flug án þess að tapa liæð og lending við ákveð- ið mark. aC-próf: Fimm flug, ekkert undir 5 min. og til samans eina klukkustund. Silfur-C-próf: Flug i 5 st. samfleytt, komast í 1000 metra liæð, eftir að slept er dráttar- laug, og 50 km. flug yfir land í beinni loftlínu milli staðanna. GulI-C-próf: Þetta próf er af- ar sjaldgæft og munu ekki hafa það fleiri menn í heiminum en fjórir: 10 klst. flug, 250 km. yfir land og 3000 m. hæð. frá New York eru linattflugs- mennirnir lentir heilu og höldnu. Ógurlegur mannfjöldi hafði safnast saman til þess að fagna þeim og voru fagnaðar- lætin meiri en dæmi eru til við komu flugmanna til New York. Flugmennirnir lentu klukkan 5.37 e. li. eftir íslenskum tima. Flugmennirnir voru 3 sólar- hringa, 19 klukkustundirf og ca. 17 mínútur í hnattfluginu. Áður en blaðamenn komu uppeftir og meðan þeir dvöldu þar, gerðist þetta: Ivjartan Guðhrandsson fór upp í Zögling (rennifl.) og hélt sér á lofti í 36 mín. Leifur Grímsson fer upp í sömu flugu og flýgur í 22 mín. og aftur í 25 mín. Þá fór Kjartan upp í svif- flugu. Var þá kl. 1.05, og fékk skipun um að koma ekki niður fyr en eftir 5 klst, og lcom hann niður ld. 6.07, eftir 5 klst. og Ivær mín. Var liann að jafnaði í 400 metra hæð, en komst hæst i 860 m. hæð. Meðan Kjartan var uppi flaug Leifur tvisvar, 16 mín. í hvert skifti, og hafði þá lokið aC- prófi. 'Þá flaug Bj. Pálsson og náði í annari atrennu 12 mín. flugi og C-prófi. Þá flaug Hafliði Magnússon og náði C-prófi i fyrstu atrennu með 34 mín. fulgi. Þessir þrír fóru upp í skóla- vél. Þessu næst flaug Leifur, og átti að vera uppi fimm stundir eins og Kjartan, en er hann hafði flogið um 40 mín. lægði vindinn og breytti átt, svo að hann lenti. Hafði hann þá verið uppi í 42 mín. En á meðan flaug Hafliði tvisvar, i 12 mín. og 8 mín., og hafði þá lokið þrem af fimm flugum, til að ná aC-prófi. (Skv. heimildum Ludwigs yfirf lugkennara.) Að lokum var blaðamönnum hoðið að fljúga í þýsku hreyfil- flugunni og stjórnaði Baumann henni. Eins og Vísir hefir skýrt frá áður, hefir nefnd manna, skip- uð fulltrúum allra flugfétag- anna, unnið að undirbúningi flugdagsins og liefir hún orðið margliáttaðs stuðnings aðnjót- andi, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum, og þakkaði Guð- brandur Magnússon, er aðallega var leiðsögumaður hlaðamanna, blöðunum sérstaklega fyrir stuðning þeirra við þetta mál- efni. 79 ára verSur í dag ekkjan SlgríÖur Þorláksdóttir, Iiallveigarstig 9. Silfurbrúðkaup eiga á sunnudaginn Anna Jóns- dóttir og Sveinbjörn Angantýsson, innheimtumaður, BræSraborgarstíg 49. —

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.